Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 inn verslunarhús af Kaupfélagi Suðurnesja á Grundarvegi 23, sem var að flytja verslun sína. Það var byggt ofan á húsnæðið hæð og ris og er húsnæðið samtals um 600 m'. Það voru Reynir Adamsson arkitekt, Gunnar Magnússon inn- anhússarkitekt og Guðmundur Björnsson verkfræðingur sem hönnuðu og sáu um eftirlit með breytingum á húsnæðinu, sem var tekið í notkun um 6 máuðum seinna en gert var ráð fyrir í byrj- un. Húsnæðið er bjart, íburður enginn, bjart yfir innréttingum og allt snyrtilegt. Allar innréttingar eru frá Kristjáni Siggeirssyni, stólar, borð o.s.frv. Húsnæðið er m.a. hannað fyrir þarfir fatlaðra. Auk aðstöðu fyrir útibúið er í risi rúmgóð og björt aðstaða fyrir starfsfólk, t.d. til smærri funda- halda og námskeiða. Sparisjóðurinn í Njarðvík flytur í nýtt húsnæði Yogum 29. aprfl. SPARISJÓÐURINN í Njarðvík opn- aði á nýjum stað að Grundarvegi 23 í dag. Auk þess að sparisjóðurinn flytji f nýtt og rúmbetra húsnæði hef- ur þjónusta verið aukin. Það eru gjaldeyrisviðskipti, VISA-þjónusta, næturhólf og mjög góð bankahólf. Sparisjóðurinn Njarðvík opnaði á sjötíu ára afmæli Sparisjóðsins í Keflavík, árið 1977, á Hólagötu 15, en það var fyrsta útibú sparisjóðs sem opnað var i landinu. Var Ljóamynd/V fkurfréttir Starfsfólk Sparisjóðsins í Njarðvík ásamt sparisjóðsstjóninum Tómasi Tómassyni og Páli Jónssyni. Á miðri myndinni er Margrét Jakobsdóttir deildarstjóri. Ljóamynd/Víkurfréttir Fyrsti viðskiptavinur afgreiddur f nýjum húsakynnum, Áki Gráns forseti bæjarstjórnar í Njarðvfk. sparisjóðurinn í húsnæði er keypt var af sjálfstæðisfélaginu i Njarð- vfk, neðri hæðinni á Hólagötu 15, um 130 m2, og var starfsmanna- fjöldi í byrjun 3. Nú eru starfs- menn sparisjóðsins 9, og innlán þann 31. des. 1984 voru 137,6 millj- Snir kr. og er sparisjóðurinn Njarðvík (útibúið) einn sér sjötti stærsti sparisjóður landsins. 1 mars 1983 keypti sparisjóður- Útibúið verður áfram rekið með sama sniði og verið hefur. Spari- sjóðsstjórar verða til viðtals á hverjum morgni. Þegar útibúið var opnað 1977 hlaut það góðar viðtökur, og hefur hlutfallsleg aukning ávallt verið heldur meiri þar en heildaraukning Sparisjóðs- ins í Keflavík. Sparisjóðurinn í Njarðvík er bú- inn fullkomnu öryggiskerfi.— E.G. „Undanþágurnar skottulækning sem engan rétt getur átt sér“ Rætt við þrjá „undanþáguskipstjóra“ um menntun skipstjórnarmanna MorgunbUóið/Bjarni Fyrrum „undanþáguskipstjórar" nýútskrifaðir með réttindi til stjórnar skipum allt að 200 lestum að stærð. Frá vinstri: Gylfi Helgason, Guðjón Jóhannsson, Kristinn Guðjónsson og Smári Thorarensen. „VITl menn ekki möguleikana á námi og námslánum, segja þeir bara sömu vitleysuna: Ég bef ekki efni á því; og verður ekki neitt úr neinu. Okkar reynsla er sú, að fjár- hagshliðin sé yfirstíganleg og námskröfurnar líka, svo ekki sé talað um það hve nauðsynlegt námið er okkur. Það er ekki eðli- legt að menn fái undanþágur á undanþágur ofan í sjómannastétt- inni frekar en einhverjum öðrum. Undanþágurnar eru skottulækn- ing, sem á engan rétt á sér.“ Þetta sögðu þrír fyrrum „und- anþáguskipstjórar" í samtali við Morgunblaðið, er þeir höfðu lok- ið prófi af fyrsta stigi Stýri- mannaskólans í Reykjavík síð- astliðinn mánudag. Þeir eru Guðjón Jóhannsson, Smári Thorarensen og Kristinn Guð- jónsson, sem allir hafa verið skipstjórar á undanþágum síð- astliðin 4 til 7 ár og hafa nú hlot- ið réttindi til skipstjórnar á skipum 200 lestir og minni. Þeir sögðu ástæður þess að þeir hefðu farið út í námið margar. Þeim hefðu verið ljósir lánamöguleikarnir og að farið væri að herða talsvert að undan- þáguveitingum. Því liefði staðan virzt sú, að þeir yrðu að fara í nám eða hreinlega hætta skip- stjórn að þeirri staðreynd slepptri að öllum væri þeim nauð3yn á námi. Þeir sögðu það talsvert átak að rífa sig upp frá starfi og fjölskyldu og setjast á skólabekk eftir um tveggja ára- tuga hlé. Þeir hefðu jafnvel þurft að læra að læra, byrja á öllu upp á nýtt. Fjárhagslegu hliðina sögðu þeir eiga stóran þátt í því hvort menn drifu sig til náms eða ekki. Hún væri hins vegar enginn Þrándur í Götu þeirra, sem vildu læra. Algengt hefði verið, að þeir, sem hófu nám á fyrsta stig- inu í haust, hefðu verið komnir með 400.000 til 700.000 krónur f tekjur á árinu. Að auki fengju menn umtalsverð námslán, sem að nokkru miðuðust við skatt- byrði þeirra. Það gætu því allir klofið það fjárhagslega að taka fyrsta stigið. „Þegar menn bera féleysi fyrir sig er það bara fyrirsláttur, en það er nauðsynlegt að kynna mönnum þá möguleika, sem þeir hafa á námi og námskeiðum. Námslán fást ekki vegna nám- skeiða „undanþágumanna", að- eins vegna náms í skólanum. Þvf þurfa menn að átta sig á áður en þeir taka ákvarðanir. Námskeið, sem veitir 200 tonna réttindi, stendur frá hausti og fram f marz. Fyrsta stigið stendur að- eins um mánuði lengur, en að báðum loknum eru öll pláss á vetrarvertíð upptekin svo það má einu gilda hvað tfma varðar hvort menn fara í skóla eða á námskeið. Athugi menn gang mála vandlega munu líklega fáir skila sér á námskeiðin en fleiri í skólann. Bn þeir, sem ekki hafa kynnt sér málið, vita ekkert hvað þeir eru að tala um, heldur gefa ógrundaðar yfirlýsingar, sem allt of margir taka mark á. Við höfum lært mikið hagnýtt á þessum vetri og námið er öll- um starfandi skipstjórnar- mönnum nauðsyn. Þeir eiga það líka inni hjá þjóðfélaginu að hvíla sig frá sjómennskunni einn vetur til að afla sér þekkingar, sem öllum kemur til góða. Það er bara verst að kvótinn er að verða búinn svo maður fær ekkert að gera fyrr en á næsta ári,“ sögðu þeir félagar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.