Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAftlQ, FÓSTUDAGUR 3. MAt 1985 47 Minning: Sveinn Ben Aðalsteinsson Fæddur 3. maí 1943 Dáinn 12. febrúar 1985 Á morgun kl. 10.30 verður hald- in í Dómkirkjunni í Reykjavík minningarathöfn um gamlan fé- laga og vin, Svein Ben Aðalsteins- son, sem drukknaði er fiskibátur með sex mönnum á, fórst í ofsa- veðri við Kodiakey í Alaska þann 12. febrúar sl. Svenni Ben eins og hann var jafnan kallaður var rétt liðlega fertugur þegar helgreipar Ægis læstu sig um skip hans við þessa ókunnu strönd. Hann var fæddur 3. maí 1943 í Reykjavík, annar í röðinni af sjö börnum hjónanna Svöfu Stefánsdóttur frá Fá- skrúðsfirði og Aðalsteins Snæ- björnssonar frá Reykjavík, sem nú er látinn. Þessi athafnasami glókollur ólst fyrst upp við Laugaveginn en síð- an í Mjóstræti 4. Var því gamla Grjótaþorpið, höfnin og miðbær- inn með öllu sinu athafnalífi hans aðalleikvöllur. Þar var hraðinn mikill og mikið að sjá og gera fyrir ungan svein á þessum árum. Bar hann þess ætíð merki síðar meir, því hann vildi jafnan vera þar sem eitthvað líflegt var um að vera og hann þá oftast í fremstu röð. Vandamálin voru til að glíma við og öllu tók hann með brosi á vör. Hið létta skap hans, hnittin tilsvör og dillandi hlátur, var öll- um sem til hans þekktu ógleym- anlegt. Sjálfir áttum við margar góðar stundir saman — stundir sem nú koma upp í hugann þegar við kveðjum þennan hressa félaga í hinsta sinn. Allar eiga þessar stundir það sameiginlegt, hvort sem það var þegar við vorum strákar að skoða bæinn, ókum saman á bílum af öllum gerðum og stærðum og í misjöfnu ásigkomu- lagi, eða hittumst á förnum vegi á síðari árum, að bros og hlátur var alltaf með hjá Svenna. Alvara lífsins var þó að sjálf- sögðu einnig fyrir hendi hjá hon- um. Hann varð hennar snemma var því ungur að árum kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, ólafíu Jónsdóttur, og hófu þau búskap kornung. Þau eignuðust þrjú börn, Svövu Björg, fædd 1961, Jón Ben, fæddur 1963, og Pál Ben, fæddur 1971. Fyrir fimm árum kom svo fyrsta barnabarnið í fjöl- skylduna, augasteinninn hans afa síns, Sandra Dögg, en hún var mikið uppáhald hjá honum. Sveinn fluttist með fjölskyldu sína til Stöðvarfjarðar árið 1967. Þar hafði hann verið í sveit sem strákur og var Stöðvarfjörður honum ætíð hugleikinn eftir það. Þar byggðu þau sér glæsilegt hús, sem þau nefndu Draumaland. Sveinn stundaði sjómennsku frá Stöðvarfirði m.a. á Heimi SU, Kambaröst og Hilmi SU. En hann vildi freista gæfunnar á öðrum miðum en við ísland. í mars 1984 flutti hann ásamt sínum til Seattle í Bandaríkjunum, þar sem hann réð sig á fiskiskip. Þar kunni hann vel við sig og var staðráðinn í því að dvelja þar til frambúðar. En dvölin varð ekki löng hjá hon- um þar. Ellefu mánuðum eftir að hann kvaddi vini og ættingja á ís- landi kom kallið mikla. Án efa hefur hann þá á hinstu stundu verið með hugann hjá konu sinni, börnum, barnabarni, aldr- aðri móður heima á íslandi og systkinum og öðrum ættingjum. Þar var hugurinn jafnan. Þau og við hin sem þekktum þennan góða dreng vitum að hann er þegar kominn á fund þeirra sem guðirnir elska. Þar situr.hann nú örugglega við háborðið í hópi þeirra mörgu, glöðu og fjörmiklu vina sem þegar eru horfnir. Þar bíður hann þeirra, sem fortjaldið mikla hefur enn ekki fallið fyrir. Þegar þeir koma vitum við að hann mun leiða þá brosandi að háborðinu og hjálpa þeim á alla lund, eins og hann gerði meðan á hans stuttu jarðvist stóð. klp t BJÖRN JÓNSSON, f.v. forseti ASÍ, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. maí kl. 15.00. Þórgunnur Sveinsdóttir, Rannveig Björnsdóttir, Guömundur Karl Jónsson, Hildur Björnsdóttír, Pélmar Guójónsson, Björn Björnsson, Guöný Aöalsteinsdóttir, Svava Björnsdóttir, Emil Gautur Emilsaon, t Þökkum inniiega auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, KARÍTAS BERGMANN KARLSDÓTTUR, Háteig 14, Kaftavlk. María Bergmann, Kristján Pátursson, Marta Bergmann, Thijs Hofman, Guölaug Bergmann, Ellert Emanúelsson, barnabörn og barnabarnabðrn. Lokað í dag frá kl. 9-13 vegna jaröarfarar ÓSKARS BJÖRNSSONAR. Sportvöruverslun Ingólfs Óskarssonar, Klapparstíg 40. SVAR MITT eftir Billy (iraham Ég veit, að fagnaðarboðskapurinn höfðar mjög til fólks, sem hefur orðið hált á svellinu, en hvað um þá, sem hafa gætt sín vel? I landi okkar er fjöldi fólks, sem á góð heimili. er í ágætri vinnu og vill efla heill samfélagsins, en er ekki trúað, kristið fólk. Hvaða . erindi á fagnaðarerindið til slíks fólks? Það er mjög undir því komið, hvernig þér skilgreinið hamingju og velferð. Eigum við að gera ráð fyrir, að þeir, sem hafa forðazt ofdrykkju, fátækt og hjónaskilnað, séu fullkomlega hamingjusamir í hjarta sér? Fagnaðarer- indi Jesú Krists á vissulega jafnmikið erindi til „vel- heppnaða mannsins", sem svo er kallaður, eins og til hins sem hefur orðið fótaskortur. Það er eins og kunnur maður sagði: „Margir leiðtogar eru einmana. Margir valdamenn fyllast vonbrigðum. Margir þeirra, sem ná markinu, er þeir hafa keppt að alla ævi, þjást af tóm- leika.“ Sá, sem hefur farið illa að ráði sínu um dagana, getur séð eftir því dag og nótt. En hitt er jafn víst, að þann, sem hefur haft lánið með sér, að mati þessa heims, getur skort innri fyllingu og gleði. Jesús sagði dæmisögu, sem snertir þetta atriði. Hann sagði frá gildum bónda, sem búnaðist svo vel, að hann varð að rífa gömlu hlöðurnar og byggja nýjar. Hann fann, að hann hafði unnið vel, og því sagði hann: „Sál mín, hvíl þig nú!“ En sál hans fann enga hvíld, því að hann hafði látið undir höfuð leggjast að safna raunverulegum auði í hlöð- ur, auði andans, auði Guðs. Biblian kennir, að í hjarta hvers manns, hvort sem hann er ríkur eða fátækur, sé tómarúm, og enginn öðlist sannan frið, fyrr en það hefur verið fyllt. C V^ei*f)w\ Ert þú eins og ómálga barn í útlöndum? eeeseesqedq n Vel heppnuð ferð er ekki sjálfsögð. Það þarf undirbúning til. Ferðanámskeíð Mímis eru sérsniðin fyrir ferðamanninn. Við kennum tungumál og hagnýta ferðafræði. Markmið okkar er að þú lærir að bjarga þér á tungumálinu við sem flestar aðstæður. Jafnframt færðu innsýn í líf og hugsunarhétt þjóðar- innar sem þú heimsækir. Viö bjóöum upp á kennslu í ensku, þýsku, dönsku, frönsku, spænsku, ítölsku, serb-króatísku og grísku, — átta tungumál — átta þjóölönd. 6.-17. maí kl. 1830 —2100 Gríska Spænska Franska ítaiska ATHUGIÐ: tínntMmit ■ ■ fluttur f ^ 03! húsnæði _ mtmuaví 1 Hjón 03 systkini fé 20% afslétt é öll némskeið Mímis svo os allir félajsmenn Stjórnunarfélags Islands. Ferðanámskeið Mímis er gott veganesti. váimSm Ánanaustum 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.