Morgunblaðið - 03.05.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
5
Tekjutrygging
nú 6.819 krónur
„ASTÆÐUR þess að ellilífeyrir
hækkaði um 7 %, en tekjutrygging um
12% eru þær að ellilífeyrir er viðbót-
arlífeyrir en tekjutryggingu fá aðeins
þeir sem engar tekjur aðrar hafa, eða
sáralitlar," sagði Matthías Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingaráðherra i
samtali við blm. Mbl. er hann var
spurður hvers vegna ellilífeyrir hefði
ekki hækkað jafnmikið og tekju-
trygging þann 1. maí sl.
Einstakir bótaflokkar verða fram-
vegis sem hér segir:
Elli- og orörkulífeyrir kr. 4.653
Hjónalífeyrir kr. 8.376
Full tekjutrygging einsUklinga kr. 6.819
Full tekjutrygjfing hjóna kr. 11.528
Heimilisuppbót 2.051
Barnalífeyrir vegna 1 barns 2.849
Meðralaun vejjna 1 barns 1.786
Meóralaun vejjna 2 barna kr. 4.679
Meðralaun vegna 3 barna 8.300
Ekkjubetur 6 mánaða og 8 ára 5.832
Ekkjubetur 12 mánaða 4.373
Feðingarorlof 20.808
Kvistur SK sóttur á fjórtán faðma
SauAárkróki, 2. nui.
TRILLAN Kvistur SK 58, sem
sökk nýlega út af Reykjaströnd og
sagt var frá í Mbl. á sínum tíma,
náðist upp sl. þriðjudag.
Þegar trillan sökk voru á
henni þrír menn, sem björguðust
allir í gúmmíbjörgunarbát. Eig-
andi Kvists, Hilmar Hilmarsson,
fékk kafara frá Akureyri til að-
stoðar við björgunina ásamt
tveimur bátum.
Trillan var á fjórtán faðma
dýpi og gekk all vel að ná henni
upp á yfirborðið en þá vildi til
óhapp, svo stýrishúsið brotnaði.
Að öðru leyti er báturinn lítið
skemmdur.
Hilmar hreinsaði vélina og
gangsetti síðan í gær. Hyggst
hann halda áfram að róa á
Kvisti þegar gert hefur verið við
skemmdirnar. — Kári.
Borgarstjóm samþykkti ályktun um samningamál læknæ
Allt verði gert til
að ná samningum
í upphafí borgarstjórnarfundar í
gær kvaddi Katrín Fjelsteð sér hljóðs
utan dagskrár og bar frara svohljóð-
andi tillögu. „Borgarstjórn lýsir
áhyggjum sínum yfír því að heimilis-
læknar og heilsugæslstöðvalæknar í
Reykjavík skuli hafa sagt upp störf-
um. Borgarstjórn hvetur samningsað-
ila til þess að gera allt sem í þeirra
valdi stendur svo aö samkomulag
megi nást. Að öðrum kosti er heilsu-
gæsluþjónustu Reykvíkinga stefnt í
voða.“ Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Á fundinum var lög fram fyrir-
spurn frá borgarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins um átak i trjárækt á
höfuðborgarsvæðinu samkvæmt til-
lögu, sem samþykkt var á aðalfundi
samtaka sveitafélaga á höfuðborg-
arsvæðinu í nóv. 1984. Þar var sam-
þykkt að beina því til sveitastjórn-
armanna, sem að samtökunum
standa, að á næstu 5 árum verði
trjárækt á innri svæðum í byggð og
i námunda við byggð efld að þvi
marki að útplöntun trjáplantna
nemi a.m.k. einni trjáplöntu á
hvern íbúa á ári á árunum 1985 til
1990 í hverju sveitarfélagi.
Hulda Valtýsdóttir, formaður
umhverfismálaráðs svaraði fyrir-
spurninni. I svari hennar kom með-
al annars fram að Reykjavíkurborg
mun standa við sinn hlut hvað trjá-
ræktarverkefni varðar. Samkvæmt
upplýsingum frá garðyrkjustjóra er
áætlað að úr ræktunarstöðinni í
Laugardal fari til útplöntunar á
innri svæði í borginni um 24 þús.
tré og runnar.
Skógræktarfélag Reykjavíkur á
mikið og gott samstarf við Reykja-
víkurborg bæði varðandi fram-
leiðslu plantna og gróðursetningar
á ýmsum stöðum bæði innan borg-
arinnar og á útjöðrum borgarlands-
ins. Fram kom að gróðursetning
plantna árið 1985 á vegum Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkru verður
um 276 þús. plöntur, þar af er ráð-
gert að gróðursetja í Heiðmörk 80
þús. plöntur og i Hólmsheiði 50 þús.
plöntur svo að nokkuð sé nefnt.
Forðaðist vatn og
snyrtivörur og lifði
mig inn í þetta
— segir Eggert Þorleifsson um hlut-
verk sitt í kvikmyndinni Skammdegi
KVIKMYNDIN Skammdegi hefur
nú verið sýnd í tæpan mánuð. Eins
og nafnið ber með sér gerist hún í
svartasta skammdeginu á af-
skekktri jörð. Þar búa þrjú systkini
og fjallar myndin um það, þegar
peningamenn með aðstoð mágkonu
þeirra, reyna að ná af þeim jörðinni.
Annar bræðranna er Einar og á
hann við geðræn vandamál að
stríða. Með hlutverk hans í mynd-
inni fer Eggert Þorleifsson.
„Það hafa um 10.000 manns séð
myndina," sagði Eggert í samtali
við Morgunblaðið og um hlutverk
sitt hafði hann þetta að segja:
„Hlutverkið er mjög ólíkt þeim
sem ég hef áður leikið og það var
rosalega gaman að gera tilraun til
að festast ekki í ákveðnu hlut-
verki. Þetta er kjötmesta persón-
an sem ég hef leikið. En auðvitað
hefði verið hægt að gera Einar
hlægilegan, það fer allt eftir því
hvernig maður fer með hlutverk-
ið.“
— Hvernig var stemmningin
þegar verið var að taka Skamm-
degi?
„Stemmningin lýsir sér best í
myndinni sjálfri. Við bjuggum í
mikilli einangrun á meðan á
myndatökunni stóð. Einangrunin
og fjarveran frá ættingjum og
vinum gerði það að verkum að
auðveldara var að setja sig í spor
persónanna i myndinni. Þarna
var mjög mikill vetur og allt mjög
ólíkt því sem maður á að venjast.
Eg svaf nánast í búningnum, forð-
aðist vatn og snyrtivörur og lifði
Eggert Þorleifsson i hlutverki Ein-
ars í kvikmyndinni Skammdegi.
mig inn í þetta."
— En hvað ert þú að fást við
núna?
„Ég leik í Leðurblökunni hjá ís-
lensku óperunni. Þar fer ég með
hlutverk fangavarðar, sem er eins
konar erkitýpa. Það er hefð að sá
sem fer með þetta hlutverk ræður
því að mestu sjálfur og samdi ég
það að verulegu leyti. Svo er ég að
leika í sjónvarpsleikriti eftir
Steinunni Sigurðardóttur, sem
heitir „Bleikar slaufur". Þar leik
ég vel kvæntan, rólyndan, margra
barna föður.“
— En hvað með Nýtt líf. Fá
landsmenn að sjá meira af þeim
félögum, Þór og Danna?
„Já, það hefur eitthvað verið
rætt um það. Ætli þeir fari ekki á
stjá í sumar.“
F I A T
ÆVO'
n
vSVv
SOLUSYNING
ALLIR sem ætla að festa kaup á nýjum bíl ættu að kanna endursöluverö á þeim bíl er þeir hyggjast kaupa._
ENGINN bíll hefur sannað áþreifanlega jafnhátt endursöluverð og FIAT.
ENGINN ætti að festa kaup í öðru fyrr en hann hefur kynnt sér okkar landsþekktu FIAT-KJOR.
ENGINN fer bónleiöur frá okkur meö gamla bílinn, því við tökum flesta notaða bíla upp í nýja.
ÚR FlAT-FJÖLSKYLDUNNI SYNUM VIÐ:
FIAT Regata
FIAT 127 Panorama
FIAT PANDA 4x4
FIAT UNO
METSÖLUBÍLLINN
sem alls staðar slær í gegn.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 1—5 « OPIÐ SUNNUDAG KL. 1—5 - FIAT - bíllinn þinn
1929 / yiLJHÍJÁLMSSON HF.
IBOOn 1985
SMIÐJUVEGI 4, KÓPAVOGI.