Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 ÚTVARP/SJÓNVARP Gætirðu sungið... En aö hugsa sér! mega vera lítið barn fyrsta sumardag! w Eg veit ekki hvort lesendur þekkja uppruna þessa vísu- korns, en það er reyndar ættað alla leið frá Japan, og hér prentað í til- efni þess að framhaldsþátturinn: Shogun hefir nú runnið sitt skeið á skjánum. En mönnum til fróðleiks vil ég geta þess að Helgi Hálfdan- arson vippaði fyrrgreindri „hæku“ yfir á tungu hinna norrænu sam- urai. Meðan ég man, Helgi, þá vil ég biðja þig forláts á þeirri óskammfeilni að líkja þýðingar- starfi þínu við leik, en orðið vippa er gjarnan notað í þeirri merkingu að sveifla léttilega einhverju eða einhverjum. En mér finnst einmitt eitt helsta aðalsmerki snjallra þýðinga að þar er eins og menn hafi vippað eða snarað hugmyndum hinna erlendu skáldbræðra áreynslulaust yfir á sína eigin tungu. Klaufskir þýðend- ur eru hinsvegar eins og illa þefj- andi aflraunamenn sem svæla listnjótendur af vettvangi. Mikilvœgi textans Helgi Hálfdanarson er í hópi hinna er virðast lyfta grettistaki nánast áreynslulaust. Þó veit ég, Helgi, aö þú hefir lagt þig allan fram um að rífa tröllaukin björg úr túngarði fjarlægra skáldjöfra. Hef ég grun um að þar hafi efnafræði- menntun þín komið sér vel, og glöggt man ég þá tíð, er þú storm- aðir fram og aftur um efnafræði- stofuna í gamla Kennó i leit að heppilegum orðlyklum er gátu upp- lukið fyrir verðandi kennaraefnum leyndardómum efnafræðinnar. Síð- an þá hefir efnafræðin verið í huga mér hreinn skáldskapur, tengdari gullgerðarlist miðalda en sótt- hreinsuðum apótekum, má með nokkrum rétti segja að þar hafi skáldfákurinn skeiðað útúr efnis- heiminum. Ætli það sé ekki sá klár sem hefir hér fengið mig til að nota orðið vippa um þýðingarstarf þitt. Samkvæmt lögmálum efnafræð- innar, sem er í senn nákvæm og ströng fræðigrein, þá er slíkt mál- farslegt frávik ótækt. Nægir í þvf sambandi að fletta uppi „lotukerfi" tungumálsins sem finna má i orða- bókum. En einsog ég sagði hér áð- an, Helgi, þá tókst mér ekki að læra hjá þér lotukerfi Menedlejevs nema svona sem óljósa formúlu er fóstraði snjallar líkingar og skáldskaparmál. Hitt veit ég, Helgi, að þú ert mjög hrifinn af þessari snjöllu grunnformúlu efna- fræðinnar og sumir væna þig um að vilja festa mál vort á viðlíka grind, en sem gamall nemandi hef ég nú grun um að þú hafir jafn gaman af „slysunum" i efnafræði- stofunni og þá efnablöndurnar heppnast fullkomlega. Gleymum eigi: En hvað kemur annars þetta spjall mitt um þýðingarstarf og efnafraeði- kennslu Helga Hálfdanarsonar þvi við að Shogun er horfinn af skján- um? Jú, markmið mitt með þessu langa spjalli er það að benda for- ráðamönnum sjónvarpsins á að við eigum snillinga á borð við Helga Háifdanarson sem geta vippað texta sjónvarpsþátta á borð við Shogun yf- ir á máJ vort, án þess að glatist svo mikið sem eitt merkingarkorn né andblær hinnar fomu menningar. Þar með er ég ekki að varpa rýrð á þann er snaraði texta Herstjórans, en höfum við efni á að ganga fram- hjá gullgerðarmeisturunum? Ólafur M. Jóhannesson „Toots“ - munnhörpu- leikari Susan Hayward í hlutverki sínu í föstudagsbíómyndinni. „Aðeins það besta“ - bandarísk bíómynd ■■ Bandaríska 20 bíómyndin „Að- — eins það besta" er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 22.20 í kvöld. Leikstjóri er Michael Gordon en með aðalhlut- verk fara Susan Hayward, Dan Daily, George Sand- ers og Sam Jaffe. Myndin er frá 1951 og er um unga sýningar- stúlku sem stofnar eigið tískuhús og setur markið hátt. Kvikmyndahandbókin okkar gefur myndinni tvær og hálfa stjörnu af fjórum mögulegum. Bókin segir ennfremur að mynd- in sé vel leikin en þó vanti nokkuð upp á að áhorf- andinn geti talist full- komlega ánægður. ■i „Toots" nefnist 40 þýskur heim- ” ilda- og tónlist- arþáttur um belgíska munnhörpuleikarann Jean Babtiste Thiele- mans, sem er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 20.40 í kvöld. í myndinni er m.a. fylgst með Toots á hljóm- leikaferð til Ziirich og New York þar sem hann lék með þekktum banda- rískum djassleikurum. Toots er mjög vel þekktur tónlistarmaður í mörgum löndum. Hann ferðast mikið um veröld- ina til að halda tónleika bæði einsamall eða með öðrum. Til dæmis hefur hann spilað með Bennie Goodman og George Shearing, Monty Alex- ander, Ray Brown, Bill Evans og fleirum. Sjálfur heldur Toots mikið upp á Charlie Park- er og Django Reinhardt. Tónlistar- krossgátan ^■■■1 „Tónlistar- 1 (T 00 krossgátan“ er A á dagskrá rásar 2 á sunnudag klukkan 15.00. Hér birtist kross- gátan og eru þátttakendur beðnir um aö klippa hana út hér og geyma þangað til á sunnudag. Lausnir sendist til: Ríkisútvarpið, rás 2, Hvassaleiti 60, 108 Reykjavík. Merkt Tónlist- arkrossgátan. „Baráttan við heróínið“ - bresk heimildamynd ■■ Bresk heim- 25 ildamynd um ” aukna heróín- neyslu ungs fólks í Bret- landi og þann vanda sem yfirvöld, læknar og vandamenn sjúklinganna eiga við að etja, er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 21.25 í kvöld. Bogi Arnar Finnboga- son, þýðandi, sagði í sam- tali við Mbl. að í þættin- um væri sagt frá tveimur /Z ungum stelpum, sem fara að fikta við heróínið af rælni. Einnig er fylgst með ungri þungaðri hjúkrunarkonu sem fæst ekki til að stoppa heróín- neyslu sína þó að búið sé að segja henni að eins gæti farið fyrir barni hennar eða það myndi jafnvel deyja áður en það kæmist í heiminn. „Aðallega kemur heró- ínið frá Afganistan, Pak- istan og Indlandi og er markaðurinn orðinn nokkuð vel mettur í Bandaríkjunum og mun því heróínið og kókaínið fara að flæða um Vestur- Evrópu í meira mæli held- ur en áður og eins er þró- unin sú að það er orðið ódýrara vegna mikils framboðs." Bogi sagði að greinilega kæmi fram í myndinni að vandamálið færi sívax- ÚTVARP andi og væru það aðallega börn sem lentu í þessu. Fram kemur í myndinni að fólkið er í miklum vandræðum og virkilega reitt út í heilbrigðisyfir- völd að hjálpa ekki til, en yfirvöíd segjast ekki geta tekið fé frá öðrum rann- sóknum, t.d. krabba- meinsrannsóknum til þess að hjálpa fólki því sem skapar sér þetta sjálf- skaparvíti. Einnig kemur fram að sjö af hverjum tíu sem fara í meðferð detta aftur. En það eru ekki peningar til til að hjálpa þessu fólki. „Heróínið og kókaínið kemur að mestu leyti með skipum og flugvélum og af því magni sem fer til Bretlands finnast aðeins 15 prósent við leit. Það þýðir að 85 prósent kemst inn á markaðinn í Bret- landi.“ FÖSTUDAGUR 3. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7.55 Oaglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar G. Tómassonar trá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Sigrún Schneider talar. 8.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Páfagaukurinn sem missti fjaðrahaminn" eftir Horaclo Ouiroga Helga Þ. Stephensen les úr bókinni Ævintýri úr frum- skóginum, I pýölngu Guö- bergs Bergssonar 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr dagbl. (útdr). 10.45 .Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson trá Her- mundarfeMi sér um þáttinn. (RÚVAK). 11.15 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12J0 Fréttir 12.45 Veður- fregnir Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 .Sælir eru syndugir" eftir W.O. Valgarðsson. Guörún Jörundsdóttir byrjar lestur pýðingar sinnar 14.30 A léttu nótunum Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Slðdegistónleikar a. Fiðlukonsert nr. 5 I a-moll op. 37 eftir Henri Wieuxt- emps. Rudolf Werthen og Sinfónlu- hljómsveitin I Liege leika; Paul Strauss stjórnar b. Sellókonsert I D-dúr op. 7 eftir Johan Svendsen. Hede Waldenland og Sinfónlu- hljómsveitin I Bergen leika; Karsten Andersen stjórnar 17.00 Fréttir á ensku. 19.15 A döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Krakkarnir I hverfinu Þrettándi þáttur. Kanadlskur myndaflokkur um hversdagsleg atvik f llfi nokkurra borgarbarna. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 2030 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Toots Þýsk heimilda- og tónlist- 17.10 Slðdegisútvarp Tilkynningar 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.55 Daglegt mál. Valdimar Gunnarsson flytur. 20.00 Lðg unga fólksins. Þor- steinn J. Vilhjálmsson kynnir. 20.40 Kvðldvaka a. Dr. Björn Bjarnason frá Viöfirði Guöbjörn Sigurmundsson segir frá. b. Ofar önnum dags Edda Vilborg Guömunds- dóttir les úr bókinni Hetjur hversdagsllfsins. 3. mal armynd um belgiska munn- hörpuleikarann Jean Babt- iste Thielemans en sérgrein hans er djass. I myndinni er meöal annars fylgst meö „Toots" á hljómleikaferð til Zúrich og New Vork þar sem hann lék meö pekktum bandarlskum djassleikurum. 21J2S Baráttan viö herólniö Ný bresk heimildamynd um aukna herólnneyslu ungs fólks I Bretlandi og þann vanda sem yfirvöld. iæknar og vandamenn sjúklinganna eiga viö aö etja. c. Háttutlmi, svefnhættir og fótaferð Þórunn Eirlksdóttir á Kaö- alstöðum flytur frásögn skráöa eftir Jóni Snorrasyni trá Laxfossi. Umsjón: Helga Agústsdóttir. 21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir Sveinsson kynnir sex lög eftir Hjálmar R. Ragnarsson við Ijóð Stefáns Haröar Grlmssonar. 22.00 „Öðurinn um oss og börn vor“ Hjalti Rögnvaldsson les Ijóöaflokk eftir Jóhannes úr Kðtlum. Þýðandi Bogi Arnar Finn- bogason. 22,20 Aöeins þaö besta Bandarlsk blómynd frá 1951. Leikstjóri: Michael Gordon. Aöalhlutverk: Sus- an Hayward, Dan Daily, George Sanders og Sam Jaffe. Myndin er um unga sýn- ngarstúlku sem stofnar eigiö tlskuhús og setur markiö hátt. Þýöandi: Eva Hallvarösdótt- ir. 23.50 Fréttir I dagskrárlok. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 2235 Úr blöndukútnum — Sverrir Páll Erlendsson. (RÚVAK). 23.15 A sveitallnunni Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK). 23.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. FÖSTUDAGUR 3. mal 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll Þorsteins- son og Sigurður Sverrisson. 14.00—15.00 Pósthólfiö Stjórnandí: Inger Anna Aikman og Anna Melsteð. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Olafsson. Þriggja mlnútna fréttlr klukk- an: 11:00, 15:00, 16:00 oa 17:00. 23.15—03.00 Næturvaktin Stjörnendur: Vignir Sveins- son og Þorgeir Astvaldsson (Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1.) SJÓNVARP FÖSTUDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.