Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
21
Hollustubyltingin/ Jón Óttar Ragnarsson
Hvert er sambandið milli mjólkurneyslu og heilsufars?
Eitt það sorglegasta við íslenska
læknastétt er hve illa hún er að sér
í n«ringarfræði. Hefur sú stað-
reynd dregið ófáa dilka á eftir sér.
Þetta er sérstaklega bagalegt
þegar haft er í huga að næringar-
fræðin er á góðri leið með að verða
einn af hornsteinum fyrirbyggj-
andi læknisfræði.
Auk þess er næringarfræðin svo
flókin grein að því aðeins að heil-
brígðisstéttir séu vel að sér í fag-
inu er von til þess að almenningur
verði það.
Eitt af þeim fjölmörgu sviðum
sem þetta hefur bitnað á er sam-
bandið milli mjólkurneyslu og
heilsufars sem mjög hefur skol-
ast til í hugum almennings að
undanförnu.
Tveir sjúkdómar
Allar fæðutegundir nútímans
tengjast einum eða fleiri sjúk-
dómum með ýmsu móti, ann-
aðhvort vinna gegn eða stuðla að
þeim.
Þannig er t.d. mjólk vegna
frábærrar hollustu sinnar vörn
gegn margvíslegum hörgulsjúk-
dómum vegna þess að í henni eru
næringarefni sem eru nauðsyn-
leg til að sporna gegn þeim.
En það eru einkum tveir
sjúkdómar, hvor tveggja eins
konar hrörnunarsjúkdómar, sem
við skulum skoða í þessu sam-
bandi: hjartasjúkdómar og bein-
þynning.
Beinþynning
Rannsóknir benda til þess að
ein af meginástæðum beinþynn-
ingar sé ónógt kalk í fæði. Aðrar
meginorsakir eru taldar skortur
á kynhormónum og kyrrsetur.
Það er að vísu ósannað mál að
mjólkurdrykkja og neysla á öðr-
um mjólkurmat geti fyrirbyggt
beinþynningu, en vaxandi lfkur
eru taldar á þvf.
Ekki aðeins er mjólkurmatur
einhver besta kalkuppspretta
sem til er, heldur eru aðrir góðir
kalkgjafar í fæði íslendinga af
heldur skornum skammti.
Þar sem beinþynning er sjúk-
dómur sem ágerist með aldrinum,
ekki síst hjá konum eftir tíðahvörf,
bendir það til að nauðsynlegt sé að
neyta mjólkurmatar ævilangt.
Hjartasjúkdómar
En það þarf að athuga fleira.
Hjartasjúkdómar eru einhverjir
hættulegustu sjúkdómar nútím-
ans, raunar algengasta dánar-
orsök íslendinga nú.
Það er að visu ekki sannað að
mettuð fita sé ein helsta orsök
hjartasjúkdóma, en vaxandi lík-
ur eru taldar á því. Því þarf að
huga að eðli fitunnar i matnum.
Hluti af fitunni í mjólk er
harðfeiti. Þetta þýðir að mjólk
er ein af mörgum matartegund-
um sem gefur okkur slíka fitu
frá degi til dags.
Þetta þýðir einfaldlega að þeir
sem eru í mestri hættu gagnvart
þessum sjúkdómum verða að
takmarka við sig harða fitu án
tillits til hvaðan hún kemur.
Helsti áhættuhópurinn fyrir
þennan sjúkdóm eru karlmenn yf-
ir tvítugu og svo konur eftir tíða-
hvörf. Það er einkum þetta fólk
sem á að spara harðfeitina.
Ráðgjöf
Þetta þýðir — eins og svo oft í
næringarfræðinni — að það
koma upp tvö andstæð sjónar-
mið. Aðeins er um að ræða að
finna bestu málamiðlunina.
Til þess að fá nægilegt kalk
ævilangt er eðlilegast að drekka
2—3 glös af mjólkurdrykkjum á
dag auk kalksins úr öðrum mjólk-
urmat: ostum, skyri, jógúrt o.s.frv.
Til þess að fullnægja þessari
þörf er eðlilegast að börn og ungl-
ingar haldi sig sem mest við
mjólkina og láta smekk ráða vali
á mjólkurmat að öðru leyti.
Fyrir fullorðna er eðlilegt að
halda sig við léttmjólk eða und-
anrennu og nota frekar annan
mjólkurmat af magrara taginu:
skyr, kotasælu, léttjógurt o.s.frv.
Með þessu móti er fengin skyn-
samleg málamiðlun milli þessara
tveggja sjónarmiða: Fólk fær kalk
og önnur fjörefni, en hagar fitu-
neyslu eftir aðstæðum.
LokaorÖ
Því miður er ekki hægt að
treysta á lækna við næringarráð-
gjöf. Er það ekkert séríslenskt
fyrirbæri því yfirleitt er næringar-
fræði lítill þáttur í læknanámi...
ennþá.
Þetta er afar bagalegt, svo ekki
sé fastara að orði kveðið, vegna
þess að svo margt af þvf sem við
leggjum okkur til munns hefur
meira en lítil áhrif á heilsuna.
Dæmið um kalkið og fituna er
aðeins eitt af mörgum sem sýnir
hversu þessi málamiðlun þarf að
vera nákvæm til að fæðið stuðli að
sem bestri heilsu.
Þetta dæmi er einnig gott að því
leyti að það hefur valdið mörgum
ómældum heilabrotum um hvort
mjólkurneysla sé heppileg eða
óheppileg.
Fyrir Islendinga sem vilja gjarn-
an sjá hlutina í svörtu eða hvítu
fremur en gráu getur verið erfitt
að kyngja því að raunveruleikinn
er oftast flókinn.
Þeim sem skaðlegra er það þeg-
ar fúskarar í næringarfræði taka
upp á því að mæla með mjólk eða á
móti mjólk eins og það sé eitthvað
annaðhvort eða.
Það sem máli skiptir er að sú
málamiðlun sem hér hefur verið
tíunduð er vísindaleg, byggð á
bestu upplýsingum sem við höfum
um þessar mundir. Þeir sem halda
að þeir viti betur ættu að kynna
sér fræðin.
Ljósmynda-
sýning um
Jónas
frá Hriflu
UÓSMYNDASÝNING um ævi og
störf Jónasar Jónssonar frá Hriflu
var opnuð hinn 1. maí í Hamragörð-
um, Hávallagötu 24, en þá var aldar-
afmæli Jónasar, segir í frétt frá fé-
lagsheimili samvinnumanna.
Þar er annars vegar um að ræða
60 ljósmyndir sem margar hafa
ekki áður sést opinberlega og hins
vegar skyggnuröð, þar sem í máli
og myndum er rakin ævi Jónasar
og afskipti hans af hinum marg-
víslegustu málum.
Hamragarðar voru heimili Jón-
asar í rúman aldarfjórðung. Sýn-
ingin verður opin öllum almenn-
ingi frá 1. maí til 12. maí.
Opnunartími er frá kl.
14.00—22.00 þann 1. maí og um
helgar en kl. 16.00—22.00 á virkum
dögum.
Hugmyndin er að þessi sýning
fari víðar á þessu ári. Uppsetn-
ingu hefur Ljósmyndasafnið ann-
ast en Skjalasafn Sambandsins
mun hafa umsjón hennar með
höndum.
Fiskverkunar-
hús Sæborgar
í byggingu
Stykkishólmi, 26. apríl.
FISKVERKUNARFÉLAGIÐ Sæ-
borg hf. í Stykkishólmi hefir nú haf-
ið byggingu á fiskverkunarhúsi til
vinnslu á saltfíski.
Er þetta stálgrindarhús og
þarna verður mikið rými til vinnu
en undanfarið hefir Sæborg verið
á hrakhólum með umsöltun og
pökkun á saltfiski. Er nú þessi
bygging að rísa og hefir Stykkis-
hólmshreppur látið félaginu í té
gott og mikið athafnasvæði rétt
sunnan við kauptúnið, en þarna
verður í framtíðinni athafna-
svæði.
Árni
hefur aldr
Daihatsu Charade hefur létt mörg þúsund íslendingum lífiö sökum ótrúlegrar sparneytni og
alhliöa lægsta reksturskostnaöar ásamt hæsta endursöluveröi.
Á tímum þrenginga og erfiöleika hjá heimilum er Charade öflugt vopn gegn lífskjaraskerö-
ingu.
Lanosþekkt gæði og þjónusta tryggja endursöluna.
Opið á morgun, laugardag, kl. 10—17.
Daihatsu-umboðið
Ármúla 23, sími 685870 • 81733