Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 43

Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 43
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 43 100 ára minning: Steindór Björns- son frá Gröf f jan. sl. hafði ég verið í 60 ár í Góðtemplarareglunni. Ég var 11 ára þegar ég gekk í barnastúku og tel það mitt farsælasta spor í líf- inu. Þá var Reglan mikils ráðandi og mikils virt í landi voru og ef til vill hefir hún aldrei verið fjöl- mennari en þá og þeir sigrar sem þá unnust verða aldrei metnir til verðs eða verðgildis. Þeir birtust í fegurra mannlífi, meiri heiðar- leika og trú, von og kærleika. í gegnum áranna störf hefi ég svo í þessum félagsskap eignast óborganlega vini, vini sem mér eru svo mikils virði að þeim fæ ég ekki fullþakkað samfylgd. Einn þess- ara manna var Steindór Björns- son, maður sem hugsjón bróður- kærleika hafði greypt sig inn í hugskot og sál að með engu var betra gert. Maður sem allur lifn- aði ef hann sá árangur erfiðis síns og maður sem hafði alltaf tíma til að vinna góðum málum lið, þótt hann stæði fyrir stóru heimili og í erfiðu starfi oftast einn meðan hann var birgðavörður Pósts og síma. Síðustu árin mörg fékk ég frá honum þessa hlýju og fallegu jóla- kveðju alla skrautritaða með þess- um fallegu stöfum, nótnablað fylgdi og ljóð sem honum voru hugstæð. Öll voru þau með sama yfirbragði, að glæða það góða. Steindór var mikill íslendingur. Ættjarðarljóðin lærði hann sem barn, söng þau jafnvel í tíma og ótíma. í söngfélagi IOGT var hann lífið og sálin, skrifaði nótur fyrir það, valdi oft söngtexta, hvatti fé- laga til að mæta stundvíslega, nota tímann til hins ýtrasta. Að því varð ég oft vottur. Ég varð þess aðnjótandi að vera á æfingu kórsins og man vel hvernig sú stund fór fram. Allt var gert til þess að öll áferð yrði sem best og oft var farið yfir sum lögin þar til menn voru ánægðir enda kom uppskeran í ljós þegar kórinn hélt hljómleika. Hann söng líka við ýmis tækifæri og lífgaði upp á starfsemi Reglunnar á þeim tíma. Unglingarnir voru Steindóri hjartfólgnir, börnin eins og hann sagði, arftakar okkar, voru svo mikils virði að braut þeirra yrði að vefja guðsblessun og góðum siðum. Hann skildi vel gildi upp- eldis og því var hann um nokkur ár stórgæslumaður ungtemplara og dró ekki af sér í starfi og bréfin sem hann skrifaði út til barna- stúknanna voru full af góðleik og heilræðum. Gæslumönnum leið- beindi hann með svo mikilli vin- semd og hlýleik að ég vissi marga varðveita bréfin hans. Og í skjala- safni okkar hér er nafn Steindórs. Hann mætti á öll unglingareglu- þing eftir að hann hætti sem stór- gæslumaður og þar mættumst við oft og iðulega. Þar vann ég með honum i nefndum og það fór ekki framhjá mér hvernig hann lagði línurnar. Dró það besta fram af lífsreynslu sinni og hugsaði til framtíðarinnar með tilliti til þess að bæta leið þeirra sem á eftir koma. Mörg atvik gæti ég nefnt en ætla bara að taka hér eitt dæmi. Við vorum á unglingaregluþingi á Akureyri og þar var einnig kemp- an Jón Björnsson frá Sauðárkróki. Veður var einstaklega gott og við fengum út fyrir og ræddum málin. !g man að Steindór sagði eitthvað á þessa leið: Þessi heimur, en hve þeir eru margir sem leggja snörur fyrir saklausa æskuna. Og ég sá hann leit yfir til sjoppu í nálægð- inni. Við vorum sammála um að ef niðurrifsöfl þjóðfélagsins gengju í lið með okkur væri ekki vandi fyrir ísland að eignast mannvæn- legt fólk til sálar og líkama. Og spurningin: Hvernig stendur á því að svo og svo margir farast í elfun eiturnautna. Þá kom allt í einu. Sjáið, sólin er á lofti og birtu hennar blindar enginn. Er ekki alltaf von um betri tíma? Þessi stutta samræða okkar er mér enn í minni. Jú víst skal trúa á betri tíma. Æðruleysi og starfshugur Steindórs, þetta að gefast aldrei upp í þjónustu góðra afla, það gef- ur vissulega kjark til að horfa upp á við og guði sé lof fyrir alla sem varða leið til betri tíma og guð gefi landi og þjóð að eignast sem flesta með hugarfari Steindórs fá Gröf, sem var í sjálfboðavinnu góðs málefnis alla sína tíð og við horf- andi á þá tíma í dag sem heimta greiðslu fyrir hvert viðvik. Ég veit að vini mínum Steindóri væri það mikið áhyggjuefni, ef hann nú mætti vera með okkur, hversu hag Reglunnar hefir hrak- að undanfarin ár og hversu meðal- mennskan ríður þar húsum nú. Enda er það okkur sem höfum af hug og hjarta unnið Reglunni þung raun hvernig nú horfir í hennar málum, þar sem marni virðist uppgjafartónn f hverju horni, öllum hugsandi mönnum til leiðinda. Guð gæfi að hugarfar Steindórs ætti enn eftir að vaxa kynslóð dagsins og birtast í batn- andi hag Reglu vorrar. Það væri vegleg gjöf á aldarafmæli Stein- dórs, sem stóð jafnan eins og foldgnátt fjall í starfi Reglunnar, hve mörg sem á því skruggan skall. Sú skyldi karlmannslund, segir skáldið. Við minnumst nú góðs gengins félaga. Hann gaf okkur margt um dagana. Minnumst hversu æðru- laus hann stóð í stríðinu, kannski stærstur þegar stórhríðir dundu yfir. Um leið og við minnumst hans er ekki úr vegi að athuga sinn gang, ganga feti framar og herða sig til nýrrar sóknar því ekki vantar viðfangsefnin. Steindór Björnsson fæddist 3. maí 1885 á Hvanneyri í Borgar- firði og voru foreldrar hans Krist- rún Eyjólfsdóttir frá Stuðlum í Reyðarfirði og Björn Bjarnarson frá Vatnshorni í Skorradal. Hann nam við Lærða skólann í Reykja- vík, fór til Danmerkur og lærði íþróttir og var síðan leikfimikenn- ari í Reykjavík og víðar, bæði hjá ungmennafélögum o.fl. Þá var hann fyrst kennari við Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi og síð- an við Barnaskóla Reykjavíkur frá 1909—1918. Var í símavinnu á sumrum í mörg ár og birgða- og efnisvörður Landssímans var hann frá 1918 til 1955. 1 Góðtemplarareglunni var hann frá 1899 og í ungmenna- hreyfingunni ( 20 ár. I stjórn Frjálsíþróttafélags Reykjavíkur var hann lengi og fyrstu stjórn Sumargjafar. Gæslumaður barna- stúkunnar Svövu var hann í 27 ár og Díönu í 10 ár. Hann var líka heiðursfélagi margra félaga sem hann starfaði í, svo sem Fél. ísl. símamanna, barnast. Eyrarrós, Siglufirði, og barnastúkna í Reykjavík. Þá var hann heiðursfé- lagi stúkunnar sinnar, Framtíðar- innar nr. 173, og Stórst. íslands svo eitthvað sé nefnt. Var þetta allt mjög að verðleikum. Hvert verk var traust í höndum Stein- dórs. Það fann ég vel þegar ég kom til Landssímans um það bil að Steindór var að ljúka þar störfum. Og það vissi ég fyrir víst að eftir að Steindór hætti á símanum fyrir aldurs sakir var oft leitað til hans ef um einhver vandaverk var að ræða. Brást hann þá jafnan veL við. Ég var bæði með Steindóri á stundum gleði og gáska og eins á stundum alvöru og sorgar. Fannst mér mikið til um hversu hann var alltaf viðbúinn að taka því sem dagurinn færði honum og þó er maður aldrei viðbúinn sagði hann. Hann hugsaði og hugsaði vel áður en hann framkvæmdi. Það var gaman að hitta þá saman í bóka- búð Æskunnar hann og Jóhann Ögmund, sem engum gleymist sem var svo hamingjusamur að eiga hann og konu hans, Sigríði Hall- dórsdóttur, að vinum. I bókabúð- inni var margt rætt og auðvitað bar hæst Regluna og hvernig hægt væri að vinna henni sem mest gagn. Starf þeirra beggja var að- dáunarvert. Ég á enga ósk betri Reglunni til handa en margir þeirra líkar vek- ist upp til þjónustu við hana. Þá birtir á ný. Árni Helgason I tilefni af 100 ára afmæli Stein- dórs Björnssonar 3. maí heldur st. Framtíðin nr. 173 samkomu í húsakynnum Templarahallar Reykjavíkur mánudaginn 6. mai kl. 20.30 siðdegis. Selt verður kaffi til ágóða fyrir Minningarsjóð Steindórs Björnssonar. In memoriam: Páll Pálmason fv. ráðuneytisstjóri Fæddur 19. ágúst 1891 Dáinn 24. aprfl 1985 Þann 24. apríl sl. andaðist í Borgarspitalanum Páll Pálmason, fyrrv. ráðuneytisstjóri, á 94. ald- ursári. Páll fæddist 19. ágúst 1891 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Pálmi, yfirkennari við Lærða skól- ann i Rvk. Pálssonar bónda á Tjörnum í Saurbæjarhr. í Eyjaf. Steinssonar, og kona hans Sigrið- ur Rósa Björnsdóttir Hjaltested járnsmiðs i Reykjavík, á Suður- götu 7. Foreldrar Björns Hjalte- sted voru Georg Pétur Hjaltested bóndi i Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd, Einarssonar Hjaltested verzl.stj. á Akureyri og kona hans Guðriður Magnúsdóttir prests i Steinnesi Árnasonar biskups Þór- arinssonar á Hólum. Móðir Guð- ríðar var Anna Þorsteinsdóttir, prests i Stóra-Árskógi, Hall- grimssonar prófasts Eldjárnsson- ar. Kona séra Þorsteins var Jór- unn Lárusdóttir klausturhaldara Scheving, Hannessonar Scheving sýslumm. á Munkaþverá. Móðir Lárusar Scheving var Jórunn Steinsdóttir biskups á Hólum. Einn bróðir önnu Þorsteinsdóttur var Hallgrímur prestur á Bægisá, faðir Jónasar Hallgrimssonar skálds. Voru þau þvi systkinabörn Guðríður Magnúsdóttir Hjalte- sted í Saurbæ, langamma Páls, og Jónas Hallgrimsson. Skal eigi frekar rekja ættir Páls, en geta má þess, að ættbálkur hans er feiknastór, bæði í föður- og móð- urætt. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum í Rvk. 1911 og lagaprófi frá Háskóla ísl. 1916. Hann mun því hafa verið elstur núlifandi stúdenta og elstur lög- fræðinga á íslandi er hann lézt. Páll varð fyrst fulltrúi hjá Eggert Claessen yfirdómslögmanni frá 1916—1921. Hann var skipaður að- stoðarmaður í atvinnu- og sam- göngumáladeild Stjómarráðs ís- lands 1. sept. 1919. Skipaður full- trúi þar frá 1. jan. 1927. Varð skrifstofustj. (síðar ráðuneytis- stjóri) i samgöngumálaráðun. 1947, síðar einnig ráðuneytisstj. í iðnaðarráðuneytinu. Hann lét af störfum fyrir aldurs sakir í árslok 1961. Hann var oft settur skrif- st.stj. i atvinnu- og samgöngu- málaráðuneytinu, stundum um lengri tíma, áður en hann var skipaður þar. Skipaður vöru- merkjaskrárritari 1. febr. 1940, en hafði annast það starf siðan 1937. Skipaður í vörumerkjalaganefnd 20. maí 1958. Hdl. 1945. Hann var lengi endurskoðandi Búnaðarfé- lags íslands, Áburðarsölu rikisins, Iðnlánasjóðs og fl. opinberra stofnana. Páll hlaut heiðurs- merkin RÍF — 3. júní 1944; Str. ÍF 30 des. 1961; R.’FiHR; Officier d’Academie. Þegar háaldraðir heiðursmenn yfirgefa jarðvistina, vekur það e.t.v. ekki sömu athygli og þegar maður i blóma lífs, á miðri önn, er hrifinn á brott. Hér kveður þó maður með næstum heila öld að baki, þá viðburðaríkustu i lifi þessarar þjóðar. Páll Pálmason, hinn virðulegi, prúði og vingjarn- legi öldungur, hafði lokið löngu og giftudrjúgu starfi ( þágu samfé- lagsins, með samviskusemi og nærfærni, og er mér ekki kunnugt um, að hann hafi aflað sér óvild- armanna á löngum embættisferli. Segir það sina sögu um embætt- ismanninn Pál Pálmason. Páll var hreinræktaður Reykja- víkurdrengur og unni borg sinni og lifði þar alla sina tíð. Hann fæddist í Suðurgötu 7, átti um tíma heima i Suðurgötu 8, en fluttist snemma með foreldrum sínum í aðra kennaraíbúð Menntaskólans við Lækjargötu. Eftir 1910 fluttist fjölskyldan um tima á Laugaveginn, neðarlega, en 1914 að Þingholtsstræti 29. Átti hann þar heima æ siðan. Miðbær- inn var Páli þvi kær. Meðan heilsa og þrek leyfðu, leið vart sá dagur að hann færi ekki á göngu um miðbæinn og fengi sér kaffisopa á Hressingarskálanum eða ein- hverjum öðrum veitingastað í miðbænum, ásamt einhverjum góðkunningja. Frá aldamótum og fram til siðustu ára mun fátt markvert hafa borið við á Austur- velli eða Lækjartorgi, svo Páll hafi ekki verið einhvers staðar nærstaddur. Hann var gervilegur að vallarsýn, hár og mátulega þrekinn og bar sig vel svo eftir honum var tekið, hæglátur og kurteis. Páll kvæntist aldrei en bjó ætíð í foreldrahúsum, fyrst með for- eldrunum báðum, og eftir lát föð- ur síns 1920 með móður sinni, sem hann hafði mikið dálæti á, og reyndist einstakur sonur. Móðir hans andaðist 1956, 93 ára gömul. Á efri árum hennar lét hann sér svo mjög annt um hana, að hann fór aldrei nema í örstutt ferðalög og aldrei til útlanda, þvi hann vildi ekki valda henni áhyggjum sín vegna. Hjá þeim feðginum dvaldist um 40 ára skeið kona ein, Guðlaug að nafni, er annaðist heimilisstörfin fyrir þau. Hún dvaldist áfram hjá Páli að móður hans látinni og annaðist hússtörf- in þar til hún andaðist fyrir einum 12 árum siðan, háöldruð. Var Páll alveg einstaklega nærgætinn við þessa öldruðu konu og gerði virðu- lega útför hennar. Fyrstu árin eftir að móðir Páls lést var hann tiður gestur á heim- ilum frændsystkina sinna, dætra móðurbróður sins, séra Bjarna Hjaltested. Á öllum stórhátiðum var hann sjálfsagður þátttakandi og var ætíð aufúsugestur. Þær systur höfðu miklar mætur á Páli og voru boðnar og búnar að veita honum hjálparhönd hvenær sem var. Páll var ljúfur viðmóts, ræð- inn og hafði næmt skopskyn. Hann hafði frá mörgu að segja úr hinni gömlu Reykjavík og var öll frásaga hans lipur og lifandi. Ég hefi hvergi lesið eða heyrt betur sagt frá konungskomunni 1907 en af munni Páls Pálmasonar, enda var hann mikill þátttakandi i þeirri móttöku, þótt hann væri að- eins 16 ára. Én svo vildi til, að hann bjó þá ásamt foreldrum sin- um í Menntaskólanum við Lækj- argötu. Varð að rýma allt húsið fyrir konungskomuna, því konungi var ætlaður bústaður þar. Páll var einn þeirra skólasveina, sem dubbaðir voru upp í „kúska“, eða vagnsveina, og látnir aka þing- mönnum og öðru fyrirmenni í hestvögnum til Þingvalla. Þar voru veizluhöld mikil. Frá Þing- völlum fór allt liðið ríðandi til Geysis og Gullfoss, um Lyngdals- heiði. Þeir kerrusveinar urðu að fara til baka með vagnana og austur yfir Hellisheiði um Kolvið- arhól, til að taka aftur við farþeg- um vagnanna, er komið væri að austan, þreyttum og þjökuðum eftir reiðtúrinn. öll frásögn Páls af þvi ferðalagi og allt það er fram fór á hinum óæðri veizlubekkjum var stórkostlegt og ætti heima í annálum. Síðastliðin 5—6 árin var Páll lítt á ferli. Hann gerðist æ ein- rænni og hafnaði afskiptum ann- arra af sér og sínum högum. Lifði hann nánast sem einsetumaður. Samt fylgdust ættingjar og vinir allnáið með hvernig högum hans væri komið, og komu því til leiðar að honum bærust allar nauðsynj- ar og brýn aðstoð. Var það eigi að ófyrirsynju, og fór svo að lokum, að frændi hans einn kom að hon- um veikum og illa á sig komnum, snemma árs 1984. Kom hann hon- um þá í Borgarspitalann, þar sem hann hlaut frábæra hjúkrun. Hjarnaði hann allvel við og gat hreyft sig um i hjólastól, þar til fyrir rúmum mánuði, að hann lamaðist og var lítt með rænu eft- ir það. Að leiðarlokum er Páll Pálma- son kært kvaddur af ættingjum og vinum. Við hjónin og dætur okkar þökkum honum allar elskulegar samverustundir og vinskap. Frið- ur sé með honum. Geir Stefánsson Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal valdn á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á I miðviku- dagsblaði, að berast (síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt i minningar- orðasíðum Morgunblaósins. Handrit þurfa að vera vélrítuð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.