Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 46

Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 Kveöjuorð: Sigurður Atli Gunnarsson Fsddur 3. mars 1948 Dáinn 22. aprfl 1985 Verðld kveðja vinir kærir, virðist lítt um aldur spurt. Mannlíf timinn með sér færir, markvisst þar er rutt á burt. Þannig er upphaf á ljóði eftir mig er ég setti saman árið 1970. Nú hefur sigð dauðans sniðið af grein er stóð í blóma á lffsins meiði. Við sem eftir stöndum hérna megin grafarinnar beygjum okkur fyrir valdi hins hæsta og þökkum samfylgdina við látinn vin okkar, og þökkum honum allt sem hann var og vann á skammri svileið. Sigurður Atli Gunnarsson, sem hér er minnst, fæddist í Reykjavík 3. mars 1948. Foreldrar hans settu saman bú i höfuðstaðnum árið 1946, þau Gunnar Sigurðsson, lengi kennari við Miðbæjarskól- ann, og Jóhanna Þorvaldsdóttir. Hún lést fyrir aldur fram árið 1978, aðeins rúmlega fimmtug að aldri. Minntist ég hennar þá með fáum orðum í dagblaði. Bæði voru þau hjón ættuð af Barðaströnd. Auk Sigurðar Atla eignuðust þau eina dóttur, Ragnheiði Maríu að nafni, sem er gift og á börn. Þegar Sigurður Atli var á barnsaldri fluttust foreldrar hans vestur í bæ og settust að í fjölbýl- ishúsinu Hjarðarhaga 24—32, er kennarar stóðu að og nefnt er i daglegu tali Kennarablokkin. Þar átti hann heima allt þar til hann fluttist úr Reykjavík til Seyðis- fjarðar. Á sumrin var hann sem barn hjá afa og ömmu á Auðs- haugi á Barðaströnd, þeim Sigurði Pálssyni bónda þar og cand. phil. og Maríu Sigríði Jónsdóttur, konu hans. Sigurður á Auðshaugi var bróðir sr. Jóns á Höskuldsstöðum á Skagaströnd. Námsferill Sigurðar Atla hófst i Melaskólanum. Þaðan lá siðan leiðin í Hagaskólann. Mennta- stofnanir þessar eru rétt við æskuheimili Sigurðar Atla. Grón- ar stofnanir í rólegu bæjarhverfi. Heimili Sigurðar Atla var menn- ingarheimili. Þar ríkti eindrægni, friður og reglusemi. Því get ég borið vitni, því að ég hef þekkt þetta heimili vel allt frá því að ég fluttist í Kennarablokkina haustið 1969 og dvalið þar, að vísu með nokkrum frávikum, síðan. Eftir nám svo að segja við bæjarvegg- inn stundaði Sigurður Atli nám einn vetur í Menntaskólanum í Reykjavík, þeirri grónu og gömlu menntastofnun. En haustið 1968 innritaðist hann í Tækniskóla ís- lands og lagði stund á bygginga- tækni þar. Utskrifaðist hann sem byggingatæknifræðingur vorið 1972. Lá nú lífsbrautin opin fyrir hinn unga mann. Vann hann næstu árin á vegum borgarverk- fræðingsins i Reykjavík. Siðan starfaði hann hjá fyrirtækinu Breiðholti hf. Til Seyðisfjarðar- bæjar réðst hann sem bæjartæknifræðingur haustið 1978. Því starfi gegndi hann i rúm fjögur ár. En um áramótin 1982—83 veiktist hann af þeim sjúkdómi, sem átti eftir að þjá hann mikið og vinna um siðir bug á lifsþrótti hans, þessa unga og gjörvilega manns. Að vísu vann hann með köflum eftir að hann tók að kenna þessa sjúkdóms, þvi að starfsvilji hans var mikill. En frá og með siðasta hausti tók meinsemdin að breiðast meira og meira út og lokaáfanginn var framundan. í frium frá námi og störfum var Sigurður Atli iðulega háseti á millilandaskipum. Hann kunni vel við að vera á sjó, þótt hann gerði sjómennskuna eigi að lifsstarfi sinu. Um störf Sigurðar Atla á Seyð- isfiröi átti ég tal við fyrrverandi bæjarstjóra þar, Jónas Hall- grimsson. Hann tjáði mér, að hann hefði verið frábær starfs- maður. Sjaldgæft væri að ungur maður sem hann var, er hann gegndi ábyrgðarstarfi i þágu Seyðisfjarðarbæjar, hefði þvilíka ábyrgðartilfinningu til að bera. Hann var því mjög vinsæll meðal allra er nutu verka hans. Lundar- far hans var og þeirrar gerðar, að öllum var ánægja að kynnast hon- um og starfa með honum. Er hann veiktist og kom ekki aftur til starfa á Seyðisfirði, var hans mjög saknað. Ég sá Sigurð Atla aldrei nema i góðu skapi, jafnan brosandi og þægilegan i viðmóti. Um slíka menn geymast ljúfar minningar. Nú er ekki eftir annað en að kveðja — og þakka. Gunnari, Ragnheiði Mariu og börnum send- um við innilegar samúðarkveðjur við fráfall Sigurðar Atla, svo og öðrum aðstandendum hans. Eftir lifir minning mæt þótt maðurinn deyi. Auðunn Bragi Sveinsson Mig langar i fáum orðum að minnast vinar okkar, Sigurðar Atla Gunnarssonar, sem lést i Borgarspítalanum 22. april sl. Hann var jarðsunginn frá Nes- kirkju á þriðjudaginn. Sigurður Atli fæddist 3. mars 1948, sonur hjónanna Sigurðar Gunnarssonar kennara og Jóhönnu Þorvaldsdótt- ur, sem ættuð var af Barðaströnd. Jóhanna lést fyrir fáum árum, að- eins 53 ára að aldri, úr sama sjúkdómi og nú lagði son hennar að velli, aðeins 37 ára. Sigurður Atli var tæknifræðing- ur að mennt og réðst sem slikur til Seyðisfjarðarkaupstaðar vorið 1978. Kynni okkar hófust á fyrsta degi dvalar hans hér á Seyðisfirði, þar sem í minn hlut kom að taka móti honum er hann kom til bæj- arins. Var hann heimilisvinur á Garðarsvegi 6 frá þeim tíma og ávalt aufúsugestur. Ekki þurfti löng kynni við Sigurð Atla til að finna að þarna fór maður góðum gáfum gæddur. Áhugamál hans voru ótal mörg, enda var alltaf ánægjulegt að sitja með honum kvöldstund og kryfja málin. Var nokkurn veginn sama um hvað var rætt, alltaf kunni hann skil á hlut- unum. Auk tækniáhuga og þekk- ingar stóð hugur Sigurðar Atla mjög til alls sem að náttúruvísind- um sneri. Enda var hann áskrif- andi að margs konar ritum þar um. Ákveðnar stjórnmálaskoðanir hafði hann, en lét þó aldrei blind- ast. Veit ég að hjarta hans sló réttum megin í þeim efnum. Trúi ég að ekki hefði verið auðvelt að hræða hann frá sjálfum sér á þeim sviðum, eins og stundum vill verða. Til þess var hann of stað- fastur. í æsku og fram á unglings- ár var Sigurður Atli tíðum í sveit á sumrum hjá afa sínum og ömmu, Þorvaldi Bjarnasyni og ól- öfu Dagbjartsdóttur, í Gröf á Rauðasandi í Barðastrandarsýslu. Minntist hann þeirra oft, er sveit- ina bar á góma, enda mat hann þau mikils. Þorvaldur lést fyrir fáum árum, en Ólöf amma hans lifir enn í hárri elli fyrir vestan. Ekki gat ég fundið hvort honum var kærara, Barðaströndin eða Vesturbærinn í Reykjavík, þar sem hann ólst upp í hópi kátra félaga, en meðal þeirra voru Vil- mundur Gylfason og Hrafn Gunn- laugsson, sem hann oft minntist á þegar bernsku og bernskubrek bar á góma. Þar og þá mun hann hafa eingöngu gengið undir nafninu Atli. Eins og við mátti búast af manni með svo mörg áhugamál lét hann sér ekki nægja eingöngu störf á landi. Hugur hans stóð einnig til farmennsku. Auðnaðist honum að nokkru leyti að svala farmannseðli sínu. Minnist ég þess, að einu sinni á starfsferli sínum hér á Seyðisfirði fékk hann leyfi í nokkurn tíma til að fara í siglingar á farskipi. Nú síðast, meðan þrek entist, starfaði Sig- urður Átli hjá Innkaupastofnun rfldsins. Já, margt kemur fram í hugann þegar þessa prúða drengs er minnst. Engan þekkti ég sem bar jafn gott skynbragð á vandaðar kvikmyndir, enda hafði hann næman skilning á listrænum og sálrænum boðskap þeirra og hafði lag á að opna augu félaga sinna til að nema hann. Þegar áhugamál Sigurðar Atla eru nefnd er ekki hægt að komast hjá að minnast á skák, sem hann hafði mikla ánægju af. Enda var hann nokkuð lesinn í þeim fræð- um. Eignaðist hann nokkra góða félaga hér á Seyðisfirði í gegnum það áhugamál sitt. Upp úr áramótum 1983 kenndi hann sjúkdóms þess sem hann nú hefur lotið í lægra haldi fyrir. Barðist hann mjög hetjulega gegn honum og sýndi þar aðdáanlegt þrek, uns yfir lauk. Vissi hann þó áreiðanlega manna best að hverju stefndi. Var mér kunnugt um, frá heimsókn minni til hans i nóv- ember sl., á heimili systur hans og mágs í Hæðabyggð 2, þar sem hann naut góðrar aðhlynningar í veikindum sínum, að hann gerði sér vonir um að standast barátt- una fram á árið 1986. Hafði hann þá í huga að verða vitni að heims- viðburði þeim sem aðeins verður á 76 ára fresti. Það er þegar hala- stjarnan sem kennd er við Halley fer fram hjá hnetti okkar. Þessi von Sigurðar Atla sýnir vel þann áhuga sem hann hafði á öllu sem markvert var, og lýsir honum því vel. Hann kunni vel að greina hismi frá kjarna. Oft furðaði ég mig á því, hversu brennandi áhuga hann hafði á öllu því sem fór fram hér á Seyðisfirði, eftir dvölina hér. Innti hann eftir hinum ólíklegustu atvikum, smá- um og stórum. Einkum þó verkleg- um framkvæmdum sem á döfninni voru í það og það skiptið. Sýndi það vel hug hans til staðarins. Sigurður Atli bar ekki tilfinn- ingar sínar utan á sér. Þó gat hann ekki leynt hug sínum til systursona sinna, Jóns Gunnars 12 ára, Ásmundar 10 ára og nafna síns Atla, sem aðeins er 4 ára. Var augljóst að þeir voru honum mjög kærir. Fylgdist hann vel með þroska þeirra meðan hann dvaldi hér. Var von hans sú, eftir að hann tók hinn banvæna sjúkdóm, að halda út það lengi, að nafni sinn Atli fengi munað sig er hann væri allur. í einu síðasta símtali okkar, sem mig minnir að hafi verið 3. mars, á 37. afmælisdegi hans, hafði hann á orði að heimsækja okkur á Seyðis- fjörð þegar voraði og hlýnaði 1 veðri, ef „lyfjakúrarnir" sem hann reglulega þurfti að þola gengju vel. Ekki rættust allar þessar von- ir hans. Engu að síður veit ég að við munum skynja nærveru hans. Já, hver veit nema hann sé þegar búinn að „koma auga á“ hala- stjömu Halleys, sem við hér verð- um að bíða eftir að lfta okkar „efnisaugum" í heilt ár. Fjölskyldan á Garðarsvegi 6 þakkar af alhug kynni við góðan dreng og óskar honum fararheilla til framandi stranda, vitandi að: Þar bíöa vinir í varpa sem von er á gesti. Við vottum jafnframt föður hans, systur og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Þótt mannanna þekking sé markað svið, svo mælt vér ei geiminn fáum, til Ijóssins að sannleika leitum við, svo langt sem með huganum sjáum. Hver veit þá er þeirri lýkur leit, hve langt vér að endingu náum. (Þ.G.) Jóhann Sveinbjörnsson, Seyðisflrði. Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin IGróðrarstöð viö Hagkaup, sími 82895 t Systlr okkar, ALDA ÁGÚ8TSDÓTTIR HOLTH, andaölst hinn 29. apríl sl. ’a heimlli sínu, Stokke, Vestfold í Noregi. Ásta Guömundsdóttir. t Eiginkona mfn og móöir okkar, MARÍA SIGFÚSDÓTTIR, Klapparstfg 37, veröur jarösungin frá Kópavogskirk ju mánudaginn 6. maf kl. 13.30. Gylfi Gunnarsaon og börn. t Systir okkar, SIGURLAUG HELGADÓTTIR, Túngötu 18, Kaflavik, sem lést 27. aprfl, veröur jarösett frá Keflavíkurkirkju f dag, föstu- dag, kl. 14.00. Matthias Helgason, Haukur Helgason, Jóhanna Helgadóttir, Maria Helgadóttir, Ólafur Helgason. t Móöir okkar, tengdamóölr, amma og langamma, SVAVA GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, Merkisteini, Stokkseyri, veröur jarösungin f dag, föstudaginn 3. maí, kl. 14.00 frá Stokks- eyrar klrkju. Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vlldu minnast hinnar látnu er bent á hjúkrunardeild Sjúkrahúss Suöurlands, Ljósheimum Guórún Arnfinnsdóttir. Guómunda Arnfinnsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móöir okkar, SIGRÍÐUR JÓNÍNA EINARSDÓTTIR, (JÓNA EINAR8DÓTTIR), Vallargötu 17, Keflavik, veröur jarösungin frá Keflavikurkirkju laugardaglnn 4. maí kl. 14.00. Blóm vinsamlega afþökkuö. Jóhanna Stefánsdóttir, Björn Stefánsson, Einar Stefánsson. t Minningarathöfn um BENEDIKT Þ. 8NÆDAL veröur f Egllsstaöaklrkju föstudaglnn 3. maf kl. 18.00. Jarösett veröur aö Hofi f Vopnafiröi laugardaginn 4. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á björgunarsveit Slysavarnafélagslns og Hjálparsveit skáta á Héraöi. Fyrir hönd aöstandenda, Þórdis Jörgensdóttir, Þórdis Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.