Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 58

Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 58
68 MQRGlWBLAÐiQ, FÖSTUDAGJJR 3, MAÍ4986 leika hans. TM Reg U.S. Pat. OH.-all rlghts reserved e1385 Los Anoeles Tlmes Syndicate getur ekki maett í kvöld. Hann datt Varadu þig á vinstri beinni! af hjólinu á horninu heima hjá sér! HÖGNI HREKKVÍSI „riANN Q5R.lfi pSTTA T|l A£> LIÞKA FlNGUieMA." Áskorun til bænda Friðjón Guðmundsson, Sandi, Aðaldal, skrifar: Það lítur helst út fyrir að stjórnvöld ætli sér að keyra frum- varp um breytingar á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins í gegnum Alþingi fyrir þinglok. Þessi frumvarpsdrög, sem sumir hafa kallað „leynifrumvarpið", snerta svo mjög hagsmuni bænda og dreifbýlis að ég tel það mikil mistök og óvirðingu við bænda- stéttina ef framhjá henni verður gengið í svo stóru máli. Það virðist ennþá ólýðræðislegri málsmeðferð en hjá ferðamálaráðuneytinu og svokallaðri „endurskoðunarnefnd“ um tillögur um ný sveitarstjórn- arlög á sl. ári. Af þeim tillögum var að vísu mikið einræðisbragð, en þær voru samt sendar sveitar- stjórnum til umsagnar, þó þeim væri ætlaður furðulega lítill tími til athugunar. Þeir sem ekki hafa séð þetta „leynifrumvarp“ vita auðvitað lít- ið um efni þess. En það mun vera byltingarkennt. M.a. er vitað að það á að skera niður útflutnings- bætur á landbúnaðarafurðum og draga völd frá bændum til land- búnaðarráðuneytisins svo um munar. Þar mun raunverulega vera á ferð undirstaða að „samn- ingi“ við bændur um framleiðslu og stefnumótun í landbúnaðar- málum. Og það getur varla heitið að bændastéttin sé spurð álits og hefur málið ekki einu sinni verið kynnt. Það virðist eiga að drífa í gegn róttækar lagabreytingar nánast á bak við bændastéttina. Stéttarsambandsfundur hefur að vísu fjallað um frumvarpsdrögin, en aðeins einn dagur var ætlaður til að athuga þau og ætli full- trúarnir hafi fengið boðskapinn i hendur fyrr en á fund kom? Mér finnst svona málsmeðferð fráleit. Ég hef heyrt að breytingar á umferðarlögunum hafi verið til umfjöllunar í fimm ár. Það hefur verið fremur hljótt um þennan Stéttarsambandsfund, en svo virð- ist sem hann hafi ekki gert veiga- miklar athugasemdir ellegar borið fram tillögur um að málinu yrði vísað heim í héruð til kynningar og umsagnar. Sannast að segja undrast ég lin- kind bændaforystunnar í málinu. Við hvað eru menn hræddir? Eru stjórnmálamenn og óróðursöfl Reykjavíkursvæðisins búin að brjóta bændastéttina svo niður að hún geti ekki lengur gengið upp- rétt? Ég vona þó að svo slæmt sé ástandið ekki orðið. Ég geri ráð fyrir að það þurfi að breyta Framleiðsluráðslögunum eitthvað, ef gera á byltingar- kenndar breytingar og það er með öllu óverjandi án ítarlegrar um- fjöllunar bændastéttarinnar. Ég leyfi mér því að beina þeirri áskorun til bænda og forsvars- manna þeirra, að sitja hér ekki hjá heldur sýna einhug í málinu og mótmæla harðlega því ofríki, sem hér virðist eiga að beita af hálfu stjórnvalda, og gera jafn- framt kröfu til að umrædd frum- varpsdrög verði send til Búnaðar- félags íslands, Búnaðarþings og til búnaðarsambanda og hreppsbún- aðarfélaga til umsagnar. Og að þeim verði gefinn góður tími til að skila áliti. Hér þarf að bregða skjótt við af hálfu bænda áður en það verður of seint. Fáum náttúrufræðisafn sem sæmir menntaþjóð Axei Kaaber skrifar: Hérna er mynd af zeolit, — sem er svokallaður geislasteinn, sem nefnist stilbít. Hér á landi er stilbít algengur kristall í basalt- lögum, en stærstir hafa þeir fund- ist á Austurlandi. Geislasteinar myndast sem útfelling úr heitu vatni í holum í basalti, oft á tals- verðu dýpi, en þegar berglag lyft- ist koma þeir fram á yfirborðið. Einmitt sú lyfting berglaga, sem átt hefur sér stað, t.d. á Austfjörð- um, og víða á vestanverðu landinu, verður til þess að berglög, sem innihalda geislastein, koma fram á yfirborðið og má þar oft finna falleg sýnishorn. En nú vantar alveg að efna lof- orð ríkisstjórnar og Háskóla ís- lands um byggingu náttúrugripa- safns, sem gefið var 1947 þegar gamla náttúrugripasafnið var af- hent ríkinu, ásamt byggingarsjóði þeim að upphæð um kr. 82.000 sem safnið átti. Hvað skyldi þessi upp- hæö vera orðin nú, framreiknuð til dagsins i dag? Tökum höndum saman, ríkis- stjórn, Háskóli íslands, borgaryf- irvöld og allir velviljaðir áhuga- menn. Fáum náttúrufræðisafn rannsókna og þar sem áhugamenn sem sæmir menntaþjóð, sem gefur geta fengið tækifæri til þess að vísindamönnum góða aðstöðu til fræðast um náttúru landsins. Koiigátan Gréta Sigfúsdóttir hringdi: Ég vi' þakka Illuga Jökulssyni fyrir spurningaþátt hans „Koll- gátuna’. Þetta er einn besti spurningaþáttur sem ég hef séð uni ævinr, og eins vil ég taka það frair vegn; skrifa um stefið i Velvakanda, aö stefið í upphafi þátta • er eftir Hándel eins og Illugi benti réttilega á. Bein útsending Björn Gunnlaugsson hringdi: Fyrirspurn til Bjarna Felix- sonar íþróttafréttamanns: Hefur þú hugsað þér að sýna úrslitaleik UEFA-keppninnar milli Real Madrid og Videotone í beinni útsendingu? Þar sem hið frábæra liö Real Madrid hefur lagt alveg gifurlega á sig til að komast i úrslit og lagt geysi- sterka andstæðinga á leið sinni, teljum við Real Madrid-aðdá- endur, að þessi leikur sé einn hinn merkilegasti a öllum leikj- um í Evrópukeppninni í ár. Ég vil biðja Bjarna að svara þessarí í'yrirspurr, í næsta íþrót- taþæt.ti sjónvarpsins og munum viö Real Madrid-aðdáendur bíða i ofvæn: þangat til. Jafn atkvæðisréttur Anna Helgadóttir hringdi: Ég er svo innilega sammála henni Svövu Jónsdóttur sem skrifaði í Velvakanda laugardag- inn 27. apríl sl. um að allir ættu að hafa jafnan atkvæðisrétt. Ég skil bara ekki hvað Sjálfstæðis- flokkurinn var að hugsa er hann samþykkti þetta á landsfundin- um og setti máiið svo í nefnd, sem það væntanlega drepst i síð- ar. Brúður Anna María hringdi: Hvar í Reykjavík er hæg; aö | koma brúðum í viðgerð?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.