Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985 7 Morgunblaðið/ Július Frá setningu öryggismálanámskeiðs sjomanna f húsi Slysavarnafélags íslands í gaermorgun. Haraldur Henrysson, forseti félagsins, í ræðustól. Öryggisfræðsla sjómanna: Nemendur með allt að 40 ára reynslu „VIÐ gerum okkur vonir um að þetta námskeið sé aðeins upphaf víðtækrar öryggisfraeðslu fyrir sjómenn og geti síðar jafnvel orðið að skyldunámi," sagði Þorvaldur Axelsson, erindreki Slysavarnafélags íslands, um örygg- ismálanámskeið á vegum félagsins er hófst í Reykjavík í gærmorgun. Námskeiðið stendur einnig f dag og á morgun. Um 20 skipstjórnarmenn af átj- án skipum taka þátt í námskeið- inu. „Aðallega eru þetta skipstjór- ar af kaupskipum og togurum, sumir með allt að fjörutíu ára reynslu á sjó,“ sagði Þorvaldur. „Við þurftum að vísa frá fjölda manna en við gerum okkur vonir um að geta haldið fleiri námskeið — fyrst þessir menn telja sig geta lært eitthvað um öryggismál á sjó á námskeiðinu hlýtur líka að mega kenna þeim, sem hafa minni reynslu." í gær var farið yfir atriði er varða aðkomu á slysstað, blásturs- aðferðina, hjartahnoð, ofkælingu, stöðvun blæðinga, lost og bruna- sár. 1 dag verður fjallað um eðli elds og slökkvitækni, fyrirbyggj- andi eldvarnir um borð í skipum, reykköfun, hlutverk Siglingamála- stofnunarinnar, móttöku þyrla, út- búnað gúmmíbáta og notkun flot- búninga. Síðdegis í dag verður þyrluæfing á ytri höfninni í Reykjavík. Á morgun verður fjall- að um notkun handslökkvitækja, reykköfun og skyndihjálp. Leiöbeinendur á námskeiðinu eru frá Siglingamálastofnun ríkis- ins, Landhelgisgæslunni, Lands- sambandi slökkviliðsmanna og Slysavarnafélagi íslands. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur aukatónleika í kvöld SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur í kvöld aukatónleika í Háskóla- bíói. Flutt verður óratórían Judas Makkabeus eftir Georg Friedrich Hánd- el. Flytjendur ásamt hljómsveitinni eru Söngsveitin Fflharmónía, félagar úr karlakórnum Fóstbræðrum og einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sig- ríður Ella Magnúsdóttir, Jón Þorsteinsson og Robert W. Becker. Tónleikarnir eru haldnir í til- efni af 25 ára afmæli Söngsveit- arinnar Fílharmóníu. Hún var á sínum tíma stofnuð að tilhlutan forsvarsmanna Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Tilgangurinn var tvíþættur; annars vegar að stuðla að vönduðum flutningi stórra kórverka og hins vegar að fá dr. Róbert A. Ottóssyni í hendur öfl- ugan kór, en hann var einn af helstu frumkvöðlum slíks tónlist- arflutnings hér á landi. Dr. Rób- ert stjórnaði sveitinni til dauða- dags, en núverandi stjórnandi hennar er Guðmundur Emilsson og stjórnar hann hljómleikunum I kvöld. Óratóríuna Judas Makkabeus samdi Hándel til heiðurs ríkjandi konungsætt á Englandi, eftir að uppreisnartilraun Charles Edwards prins var brotin á bak aftur í orrustunni við Culloden í apríl 1746. Verkið var áður flutt hérlendis í Trípóli-leikhúsinu á Melunum í maí 1947, réttum 200 árum eftir að það var frumflutt í London. Flytjendur voru þá sam- kór, drengjakór og Hljómsveit Fimm sýningar á Kjarvalsstödum Fimm sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöðum laugardaginn l.júní. I vestursal sýna 18 félagar Listmálarafélagsins rúmlega sex- tíu málverk. Eru það þau Benedikt Gunnarsson, Bragi Ásgeirsson, Elías B. Halldórsson, Einar Há- konarson, Einar G. Baldvinsson, Einar Þorláksson, Guðmunda Andrésdóttir, Gunnlaugur St. Gíslason, Hafsteinn Austmann, Hrólfur Sigurðsson, Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Kristján Davíðsson, Pétur Már Pétursson, Sigurður Sigurðsson, Svavar Guðnason, Steinþór Sig- urðsson og Valtýr Pétursson. Þetta er þriðja sýning félagsins sem stofnað var 1982 og eru flest- ar myndanna til sölu. 1 austursal heldur Tryggvi Árnason sína fyrstu einkasýningu. Sýnir hann tvennskonar grafík, mezzotintu og silkiþrykk en sú síð- arnefnda er lítt notuð aðferð hér- lendis að sögn Tryggva. „Sýningin er tileinkuð Reykjavík og þeim hliðum hennar sem við lýtum framhjá dagsdaglega," sagði Tryggvi í spjalli við bíaðamann, en auk þess eru þrjár myndaseríur annars efnis. Tryggvi hóf nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík 1976 og útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans 1983. í vesturforsal sýnir Myriam Bat-Yosef (María Jósefsdóttir) hundrað verk sem eru þverskurð- ur myndlistar hennar. Málverkin eru máluð á silki og annað efni; þar á meðal á pappír með klippi- myndum. Þá eru á sýningunni silkiþrykkt veggteppi, málaðir hlutir og ljósmyndir af gjörning- um. Myriam er íslenskur ríkis- borgari; kom hún fyrst til íslands fyrir um það bil þrjátíu árum, þá gift Erró, og vorið 1956 hélt hún sína fyrstu sýningu á íslandi. Síð- an þá hefur Myriam haldið sýn- ingar víða um heim. Hún er nú búsett í París. í austurforsal sýnir Örn Ingi skúlptúra og myndverk. „Þetta er mín fjórtánda einkasýning og samanstendur mestmegnis af skúlptúrum en ég hef lítið fengist við þá áður,“ sagði Örn Ingi í við- tali við blaðamann. „Tengjast myndirnar leikhúsi og fjalla um lífskeðjuna frá fæðingu til dauða og ýmsar spurningar þar að lút- andi. Kalla ég sýninguna. Sviðs- myndir í tilveru lífs og dauða." Þess má geta að örn Ingi sýnir samtímis þessari sýningu 10 verk í París. Fyrir framan kaffistofuna verð- ur sýning á þeim sex tillögum sem valdar voru til frekari útfærslu í hugmyndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls cg verða úr- slit samkeppninnar tilkynnt á föstudaginn klukkan fjögur. Sýningarnar verða opnar dag- lega kl. 14—22 fram til 17. júní næstkomandi. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur í kvöld í fyrsta skipti með Sinfóníu- hljómsveit íslands. tónlistarfélagsins, ásamt ein- söngvurum. Stjórnandi þá var dr. Victor Urbancic. Þess má að lokum geta að Sig- rún Hjálmtýsdóttir syngur í kvöld í fyrsta sinn með Sinfóníu- hljómsveit íslands. P5 INNLENT HJÁ AGLI EV-KJOR - OPIN-KJÖR VORIÐERKOMIÐ ... i Buick Skylark 1981 Ford Futura 1978 Fiat Ritmo '85 Range Rover 1976 Fiat UNO ’45 1984 og ...EV-vildarkjör .T„T Skoda 1984 Lada Sport 1980 Fiat 132 2000 1979 Lada Í600 1979 Alfa Sud 1978 A N0TUDUM BÍLUM HJÁ AGLI 1929 BILAURVALIÐ ER SÍBREYTILEGT FRÁ DEGI TIL DAGS Notaöir bflar í eigu umboðsins EGILL. VILHJALMSSON HF Smiðjuvegi 4C, Kópavogi. Sími 79944, 79775. 1985 MUNIÐ EV-KJÖRIN VINSÆLU AÐ ÓGLEYMDRI SKIPTI- VERSLUNINNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.