Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 25
mála um skýringar eins og land-
fræðilega og markaðslega fjar-
lægð okkar. Skilnings- og þekk-
ingarleysi forsvarsmanna fyrir-
tækja. Að hönnuðirnir hafi ekki
verið nógu duglegir að selja hug-
myndir sínar og að samtök fyrir-
tækja hafi ekki rekið nógu sterkan
áróður fyrir mikilvægi hönnunar.
Hver ynni í sínu horni án nokk-
urra heildarmarkmiða, hvað varð-
ar þróun hönnunar fyrir iðnaðinn
eða til áhrifa á gæðamat neyt-
enda. í skjóli þessa hefði innflutn-
ingur á miðlungsiðnaðarvörum,
sem hægt væri að framleiða betur
hér innanlands, náð undirtökum á
alltof mörgum sviðum.
Ástþór ræddi nokkuð um
reynslu sína af því að vinna með
fyrirtækjum og kvað það allt of
algengt, að forsvarsmenn fyrir-
tækja gerðu sér litla grein fyrir
þeirri vinnu, sem lægi að baki
iðnhönnun. Gæti hún tekið nokkra
mánuði.
Kvaðst Astþór hafa lent í því
nokkrum sinnum að hafa gert
skissur að lausnum og afhent
framleiðendum. Síðan hefði hann
ekki heyrt frá þeim meira, né
fengið greitt fyrir vinnu sína, en
séð að úr þessum hráu skissum
var búin til vara, sem var ef til vill
hvorki fugl né fiskur. Sagði hann
að hugarfar sem þetta þyrfti að
uppræta, ef einhver framtíð ætti
að vera fyrir iðnhönnun hér á
landi.
Hvað er til ráða?
Hvað er til ráða? — Á hverju
skal byrja?
Páll Kr. Pálsson sagði, að hann
teldi að hið opinbera ætti að sýna
viljann í verki með því að tryggja
ákveðið fjármagn til verkefna þar
sem væri um að ræða samstarf
milli fyrirtækja og hönnuða.
Mætti það gerast í gegn um Iðn-
lánasjóð. Gæti þetta verið í formi
styrkja og áhættulána. Myndi
þetta verka sem hvati á fyrirtæk-
in.
Hið opinbera á nú þegar að
setja á stofn hönnunardeild við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands,“ sagði Páll ennfremur.
Binnig þyrfti fræðsla um hönnun
að verða liður í hinu almenna
menntakerfi, svo og í sérskólum
eins og iðnskóla, tækniskóla og
háskóla.
Byggja þyrfti upp aðstöðu þar
sem hægt væri að rannsaka og
prófa sig áfram með nýja fram-
leiðslu.
Þá kvaðst Páll vænta mikils af
hinu nýja félagi, sem gæti meðal
annars beitt sér fyrir kynn-
ingarstarfi og samkeppni ýmiss
konar.
Stefán Snæbjörnsson tók í sama
streng en bætti við að fyrst yrðum
við að koma á fót einhvers konar
hönnunarstofnun sem myndi sam-
eina og leiðbeina hlutaðeigandi
aðilum. Slík stofnun myndi á ýms-
an hátt stuðla að og hvetja til
bættrar hönnunar og þar með
vöndunar íslensks iðnvarnings.
Markmið slíkrar stofnunar yrði að
vinna að góðri hönnun í öllum
greinum iðnaðarframleiðslu með
sýningum, jákvæðri jgagnrýni og
leiðbeiningarstarfi. Áhersla yrði
lögð á að gera framleiðendum og
neytendum ljóst mikilvægi góðrar
hönnunar og hvetja til aukins
samstarfs þessara aðila.
Þá þyrfti að koma á fót listiðn-
aðarsafni, því þó að Listasafn ís-
lands hafi fyrirmæli um að kaupa
listiðnað þá hafi því greinilega
ekki þótt það ómaksins vert.
Einnig kvað hann mikilvægt, að
menn gerðu sér grein fyrir að eyða
þyrfti meiru í iðnhönnun en fyrir-
tækin gerðu nú eða sem næmi
3—5% af framleiðslukostnaði, en
oft væri ekki eytt meiru í hönnun
en næmi verði á nokkrum auglýs-
ingum í sjónvarpi eða blöðum.
Þá sagði Stefán að við þyrftum
að yfirvinna ákveðna minni-
máttarkennd í sambandi við ís-
lenska hönnun. Ef okkur væru bú-
in skilyrði þyrftum við ekki að
vera síðri en aðrir á þessu sviði.
Texti: HILDI R EINARSDÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985
25
terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Styrkið og fegrið líkamann
Síðasta námskeið fyrir sumarfrí
Ný 3ja vikna námskeið hefjast 3. júní
Leikfimi fyrir konur á
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eóa meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eda þjást af vödvabólgum. Vigtun -f
mæling-^sturtur — gufuböd — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295. ^
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Verðmætir
i
i
ÍAGAR
Af sérstökum ástæðum getum við boðið viðskiptavinum
okkar bláu verðin frábæru í dag, fimmtudag, á morgun,
föstudag, og eftir helgina, á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag.
Þetta er einstakt tækifæri ti! að tryggja sér sumarleyfisferð á
„gamla verðinu” - tilboð sem gildir aðeins í fimm daga.
Athugaðu verðdæmin hér í auglýsingunni og fáðu nánari
upplýsingar hjá söluskrifstofunni.
áSnu*Ö^t>örn^
l13ra.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727