Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985
Norður-írland:
Fóru morðingj-
arnir mannavillt?
Belfast, N lrlandi, 29. maí. AP.
IRA-liðar situ í gær fyrir ungum manni á bílastæði í Belfastborg og skutu
hann til bana. Héldu þeir því seinna fram, að hann hefði verið lögreglufor-
ingi en talsmenn lögreglunnar segja það alrangt, ungi maðurinn hafi hvorki
fyrr né síðar haft nein tengsl við lögregluna.
Gary Smith, sem var 19 ára gæslustörfum á Norður-írlandi.
gamall, lagði bíl sínum á bílastæði
við tækniskóla í borginni, sem
hann stundaði nám við, og var á
leið frá honum þegar tveir grímu-
klæddir menn gengu að honum og
skutu hann til bana af stuttu færi.
Að því búnu flýðu þeir burt á bíl,
sem þriðji maðurinn ók. Fannst
bíllinn mannlaus skömmu síðar.
I yfirlýsingu, sem Irski lýðveld-
isherinn, IRA, lét frá sér fara
nokkru síðar sagði, að unglingur-
inn hefði verið lögreglumaður en
talsmaður lögreglunnar vísaði því
á bug. Sagði hann, að Gary Smith
hefði aldrei komið nálægt lög-
Gary Smith er 33. maðurinn,
sem drepinn er á Norur-írlandi á
þessu ári og sá 2.443 frá því að
óöldin hófst árið 1969. Segir lög-
reglan, að þetta sé í annað sinn í
þessum mánuði, sem morðingjar
fara mannavillt, en það átti sér
einnig stað 3. maí sl. þegar IRA-
liðar drápu bóndann Billy Heenan
að 13 ára gömlum syni hans ásjá-
andi. Var það sögð ástæða morð-
sins, að hann væri lögreglumaður,
en síðar var upplýst, að Heenan
hefði reyndar verið í lögreglunni,
en aðeins um stundarsakir fyrir 20
árum.
ísrael:
Rætt vid Egypta
um framtíð Taba
^ Tel Aw, ísraei, 29. maí. AP.
í DAG fór ísraelsk samninganefnd
til Kaíró til viðræóna við egypska
embættismenn og er erindið að
reyna að fínna lausn á landamæra-
deilu, sem komið hefur í veg fyrir
eðlileg samskipti ríkjanna.
í ísraelsku viðræðunefndinni
eru David Kimche, ráðuneytis-
Rainbow Hope
en ekki
Rainbow Warrior
ÞAU mistök urðu hér í blaðinu í
gær í frétt um farmflutninga til
varnarliðsins í Keflavík, að rangt
var farið með nafn skipsins, sem
þessa flutninga annast. Það átti
að sjálfsögðu að vera Rainbow
Hope en ekki Rainbow Warrior,
eins og sagt var í fréttinni.
stjóri utanríkisráðuneytisins, og
Avraham Tamir, skrifstofustjóri
forsætisráðherrans, Shimonar
Peres. Munu þeir ræða framtíð
Taba, sem er lítil landræma á
landamærum ríkjanna á strönd
Rauðahafs.
Tamir sagði fréttamönnum, áð-
ur en haldið var af stað til Kaíró,
að fsraelsstjórn hefði rætt sex
kosti til lausnar málinu, en hefði
ekki ákveðið hver þeirra yrði fyrir
valinu.
„Það er ekki unnt að leysa þetta
mál án þess að kosta til þess
nokkru," sagði Tamir.
Olíumálaráðherra Egyptalands,
Abdel-Hadi Kandil, setti fram
einn af þessum sex kostum á
tveimur fundum með Peres for-
sætisráðherra nýlega, að sögn
Tamirs.
AP/Símamynd
Særður shíti í Beirút leitar skjóls eftir að hafa orðið fyrir sprengjukúlum Palestínuaraba.
Ekkert lát er á bardögunum í borginni.
Sautján féllu í skæruliða-
árásum á Filippseyjum
Manila, Filippseyjum, 29. maí. AP.
Skæruliðasveitir kommúnista
gerðu nýlega skotárásir á herstöð og
skógarhöggsfyrirtæki í tveim héruð-
um á Filippseyjum og létu a.m.k. 17
manns lífíð, að því er yfirvöld sögðu
í dag, en 21 særðist í átökunum.
Fimm skæruliðar, fjórir her-
menn og embættismaður, voru
felldir á fimmtudaginn var, þegar
um 200 uppreisnarmenn réðust á
varðstöð í Maslog-sýslu á eynni
Samar, um 480 km suðaustur af
V ísindamenn mega ekki græða
senditæki undir húð dýranna
Laxar eru samvinnufúsir og gleypa tækin
UM ALLAR Bretlandseyjar skjótast, þjóta, sniglast og synda dýr af ýmsum
tegundum sem eiga það sameiginlegt að þau gefa frá sér hljóðmerki um
senditæki sem vísindamenn hafa meö ýmsum leiðum fest á þau. í stjórn-
stöðvum fylgjast vísindamennirnir með hljóðmerkjunum og verða þannig
mikils vísari um ferðalög viðkomandi dýra, en slíkar rannsóknir koma að
góðu haldi í hvers kyns friöunaraðgerðum, einnig þegar meta þarf hvort að
þessar framkvæmdirnar eða hinar stofna einhverri lífverunni í hættu. Teg-
undirnar sem lifa svo röskuöu einkalífí eru sem fyrr segir margar, en þær
helstu eru moldvörpur, fkornar, dádýr, laxar og leðurblökur.
Þeir vísindamenn í Bretlandi með einfaldri og hættulausri
sem hafa þennan starfa hittust
nýlega til að ræða framtíð að-
gerða sinna. Þeir eru óhressir,
þeir mega ekki koma senditækj-
um sínum fyrir inni í dýrunum og
telja sig þó vel geta það án þess að
skaða dýrin.
Spurningin vaknar: Ætti að
leyfa vísindamönnunum að koma
tækjum sínum fyrir inni í dýrun-
um eða ekki? Tækjabúnaður á
hverju dýri nemur aðeins 2—3
prósentum þyngdar þess og er sæ-
smár. Það má spenna tækið yfir
bakið á íkorna eins og um bak-
poka væri að ræða og sama má
segja um smærri dýrin. En hvað
með laxa, otra, hvali o.s.frv.?
Vísindamenn hafa fundið út með
tilraun að með því að smeygja
tækinu t.d. inn undir húð oturs
og
skurðaðgerð endist tækið ekki að-
eins lengur, heldur líður dýrinu
betur heldur en tækið væri reyrt
yfir bak þess með óium. Eftir því
sem dýrið stækkar, þá stækkar
vandamálið að sama skapi ef svo
mætti að orði komast. Hugsum
okkur hval. Dýraverndarlög
hamla fræðingunum í þessum
efnum, en lögin sem um ræðir eru
frá árinu 1876 og að mörgu leyti
úrelt að margra dómi.
Maður má sem sé ekki græða
tæki inn í líkama dýrsins. En lax-
ar hafa reynst samvinnufúsir. Al-
kunna er, að þrátt fyrir að laxinn
neyti ekki fæðu eftir að hann
gengur í ána til hrygningar er
hann oft tilbúinn til að gleypa agn
veiðimanna og með það að leið-
arljósi reyndu vísindamenn að
Laxarnir gleypa senditæki vísinda-
manna, en hreyfa sig ekki nema það
rigni hraustlega og vatnið aukist í
ánni...
tæla laxa til að gleypa örsmá
senditæki. Þeir hugsuðu sér að
reyna að leysa þá gátu hvers
vegna laxinn leyti upp í móti og
þá hvers vegna hann geri það
helst þegar vatn vex í ánum í
úrkomutíð. í Bretlandi eru ýmist
raforkuver, vatnsmiðlanir eða
annars konar gæsla með vatninu í
rúmlega helmingi helstu laxveiði-
ánna. Þar koma ekki lengur
skyndiflóð í árnar sem síga svo
niður í grjót þess á milli, vatns-
magnið er alltaf nokkuð jafnt og
það hefur orðið til þess að laxinn
safnast í stórar torfur neðarlega i
ánum. Þar bíður hann eftir flóði
sem aldrei kemur.
I ánni Fowey í Cornwall var
gerð eftirfarandi tilraun á laxa-
hópi sem hafði legið vikum saman
á sama stað í jöfnu vatnsrennsli.
Margir þeirra voru plataðir til að
gleypa senditæki og síðan biðu
menn og fylgdust með löxunum á
göngu sinni upp ána. Ef ekki kom
flóð vegna rigningar hreyfðu þeir
sig varla, en ef rigndi að ráði kom
hreyfing á laxana strax á fyrstu
minútum vatnavaxtanna. í ánni
Neots, skammt frá Fowey, eru nú
gerðar tilraunir með „gerviflóð"
frá vatnsmiðlunarstíflu.
Annað dæmi sem mætti nefna
er viðleitni vísindamanna til að
fylgjast með ferðum hvala með
aðstoð senditækja og gervihnatta.
Einn breskur doktor er með þeim
hætti að fylgjast með ferðum
hnúfubaks og annar fylgist með
ferðum búrhvelis undan Madeira.
Hvalverndarsjónarmið stjórna
báðum tilraunum, en framkvæmd
þeirra undirstrikar hvað best
hversu úrelt gamla dýraverndar-
reglugerðin sem áðan var nefnd,
er í raun og veru. Hvalirnir verða
að sætta sig við, að senditækin
hafa verið fest við skrokka þeirra
með skutlum ...
Manila, að sögn ríkisfréttastof-
unnar á Filippseyjum, PNA.
Á sunnudag réðst skæruliða-
sveit kommúnista á aðalstöðvar
skógarhöggsfyrirtækis á Negros-
eyju. Létu fjórir lífið i árásinni.
Hermenn stjórnarinnar voru
sendir á vettvang og á þriðjudag
felldu þeir þrjá menn, sem grun-
aðir voru um að vera félagar í
skæruliðasveitunum. Einnig
fundu hermennirnir mikið af
skotfærum, sem skæruliðar höfðu
tekið herfangi.
í dag var komið með 19 víetn-
amska flóttamenn til bæjarins
Navotas, sem er skammt frá Man-
ila. Höfðu sjómenn frá Filippseyj-
um bjargað þeim af lekum báti,
sem var á reki úti fyrir Palawan-
eyju, að sögn lögreglunnar.
Flóttamennirnir höfðu verið
vatns- og matarlausir í fimm
daga, er þeim var bjargað á laug-
ardag.
De Cuellar
á Kúbu
Mexíkóborg, 29. maí. AP.
Framkvæmdastjóri Sameinudu
þjóðanna, Javier Pcrez de Cuellar,
kom í gær til Havana á Kúbu og tók
Fidel Castro forscti á móti honum,
að sögn hinnar opinberu kúbönsku
fréttastofu, Prensa Latina.
Perez de Cuellar er oddviti
sendinefndar, sem er í erind-
rekstri á Kúbu, og meðal annarra
nefndarmanna má nefna Norberto
Conzalez, framkvæmdastjóra
efnahagssamvinnustofnunar Sam-
einuðu þjóðanna.
Perez de Cuellar og Castro áttu
viðræður saman, eftir að hinn
fyrrnefndi hafði lagt blóm að
minnisvarða kúbönsku frelsishetj-
unnar Jose Marti. Ekki var getið
um efnisatriði viðræðnanna.
Frá Kúbu fer Perez de Cuellar
til Dóminikanska lýðveldisins og
Trinidad-Tobago, að sögn Prensa
Latina.