Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 52
m
52
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985
y
|
)
I
/
|
fclk í
fréttum
LITIÐ INN í HLJÓÐVER INGVARS ÁRELÍUSSONAR OG
JANIS NIELSON VIÐ ABBEY ROAD í LONDON
„Á besta stað í heimi“
Á horninu við Abbey Road í
London eða á besta stað í heimi,
eins og Ingvar Árelíusson Nielson
orðar það, rekur hann lítið hljóð-
upptökuver. Skýringin á því af-
hverju einmitt þessi staður er svo
hentugur til þess arna, er að við
Abbey Road er hið fræga EMI-
stúdíó eða gamla „Bítla-stúdíóið“,
eins og það er oft kallað og í ná-
grenni þess hafa byggst upp önnur
þekkt stúdíó, svo hverfið er orðið
eins og miðstöð hljóðvera í borg-
inni. Einnig búa margir frægir
tónlistarmenn þarna í grenndinni.
„Þeir vilja droppa inn í upptöku
þegar svo ber við en þurfa ekki að
ferðast yfir hálfa London. Þetta er
því besta staðsetningin fyrir þessa
gerð fyrirtækis og það hefur sýnt
sig, að nóg er að gera,“ segir Ingv-
ar.
„Það er draumur hvers tónlist-
armanns að eignast sitt eigið
stúdíó,“ heldur hann áfram, þar
sem við ræðumst við í húsakynn-
unum, sem geyma 24 rása hljóð-
Ingvar í hljóöveri sínu.
upptökutæki og Fairlight-tónlist-
artölvu. Hann er svo að byggja
upp annað stúdíó með 8 rása dig-
ital-hljóðupptökutækjum, sem
hann setur upp sjálfur ásamt
tæknifólki.
„Við Janis höfum í hyggju að
taka hér einnig upp eigin plötur,“
segir hann. En lesendum til
glöggvunar má geta þess, að hér er
átt við Janis Carol Nielson söng-
konu, sem er kona Ingvars og hef-
ur gert það gott í söngleikjum í
London og er nú hér á landi að
leika aðalhlutverkið í nýjum söng-
leik Þjóðleikhússins, Chicago.
Vinnur 24 tíma á sólarhring
Ingvar segir okkur að á döfinni
sé að taka upp plötu með Janis,
sem á væntanlega að heita „Skipt
í miðju“. Eins og nafnið gefur til
kynna verður platan tvískipt; á
annarri hliðinni verða íslensk lög,
en á hinni lög sungin á ensku og
þá ef til vill eitthvað af þeirri tón-
list, sem Janis hefur sungið í söng-
leikjum að undanförnu. Mun plat-
Ingvar ásamt eiginkonunni.
an væntanlega koma út á Islandi
fyrir næstu jól.
„Já, það hefur gengið mjög vel
hjá okkur hér í stúdíóinu," segir
Ingvar, „en það eru 9 mánuðir síð-
an við tókum til starfa.“
Ingvar er reyndar svolítið
þreytulegur þar sem hann situr á
móti okkur, enda segist hann hafa
unnið nær 24 tíma á sólarhring
síðastliðna 2 mánuði.
„Stúdíóið verður að ganga vel,
því tækin eru dýr, leigan há og
samkeppnin mikil.
Hér hafa verið í upptöku nokkr-
ar þekktar hljómsveitir eins og
Púkó, Names Three, Lost in Space
og Sons of Lovers. Þá hefur hljóm-
sveit söngkonunnar Lindu Horne
verið hér í æfingaupptöku. Við
höfum unnið fyrir þekkt upptöku-
fyrirtæki eins og Verdun og þýskt
fyrirtæki, sem heitir TASC. Á
þess vegum var nýlega tekin hér
upp plata með session-hljómsveit
og á hún að heita Africa. Held ég
að þetta lag eigi eftir að verða vin-
sælt.“
VÍÐIDALUR
Komið við á
reiðnámskeiði
Ekki er óalgengt núorðið að borgarbarn eigi þess kost að koma á
hestbak eða jafnvel eignast hest. En það gildir um þessa íþrótt
sem aðrar, að það þarf að kunna skil á leiknum, sitja hestinn, hirða
hann og kunna að stjórna.
» Á síðari árum hafa reiðskólar og námskeið í hestamennsku orðið til,
ekki síst fyrir börn og unglinga. Einn slíkur er við bæjardyrnar, nánar
tiltekið í Víðidal þar sem Hrönn Jónsdóttir hefur haft reiðnámskeið
undanfarið.
BJÖRN HRANNAR
JÓNSSON 9 ÁRA
Björn Hrannar dreif sig á
námskeið svo hann gæti setið
á baki því amma hans á nokkra
hesta. Hann sagði að hestar væru
uppáhaldsdýrin sín fyrir utan
hunda en amma hans á líka einn
slíkan sem heitir Kópur.
JÓN ANDRI
JÚLÍUSSON 10 ÁRA
W
Eg fer stundum með pabba á
hestbak og það er ekkert erf-
itt nema hesturinn sé mjög viljug-
ur.
— Verðurðu eitthvað á hest-
baki í sumar?
— Vonandi, það er annars aldr-
ei að vita.
ÁGÚST PÁLL
TÓMASSON 13 ÁRA
w
Agúst hefur nokkuð oft verið á
hestbaki en þá yfirleitt ber-
bakt. Nú er óskadraumurinn að
eignast hest.
HRÖNN ÞRÁINS-
DÓTTIR 9 ÁRA
Mér finnst gaman að hestum,
þeir eru svo fallegir og góðir.
Eg hef bara einu sinni áður farið á
bak og það var þegar ég var í
sveitinni.
— Finnst þér erfitt að sitja
hest?
— Nei, nei. Þetta er ekkert erf-
itt en ofsalega skemmtilegt.
ÓSKAR ÖRN
ÞÓRODDSSON
10 ÁRA
etta er ofsalega gaman, sagði
óskar Örn Þóroddssson er
blm. spurði hvernig væri á nám-
skeiðinu.
— I sumar fæ ég að vera á
hestinum hennar mömmu sem
heitir Sumarliði því ég verð í
sveitinni.
— Hvert ferðu í sveit?
— Til Vopnafjarðar.