Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 58

Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 58
58 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985 „ Kviðdómesxdjur, hafi& þifc komi<5 ylckur' 5Qrr\Qn um hiJort þessi þrjótur er s>d/k.n eáa 5ekur." tteartAttn »19f1 r-tM Wntfnan 3^ við uppþvottinn og þessháttar hér. Kg er að hugsa um aö flytja, því ekki sit ég hér fyrir lífstíð! HÖGNI HREKKVlSI „ urfZAp LryFAR." Þungarokksunnendur sveltir á rás 2 Sigurður Þór Sigurðsson, Hverf- isgötu 55, Rvík. skrifar: Þorgeir Ástvaldsson, léttmetis- herra rásar 2, ýjaði að því í frétta- tíma rásar 1 19. apríl, að nú væri rás tvö orðin jafnoki kanaútvarps- ins. En sannleikurinn er bara sá að rás tvö kemst ekki með tærnar þar sem kaninn hefur hælana. Að vísu eru stöðvarnar svipaðar ef eingöngu er litið til léttmetistón- listarinnar, sem spiluð er á morgnana og að deginum til á báð- um stöðvum. En þar með er líka allur vindur úr rás tvö. Rokkið gleymdist nefnilega nær alveg á þeim bæ, eða allavega það rokk sem er yfir tíu desibelum. Já, hvar er þungarokkið (bárujárnsrokkið, bluesrokkið, nýbylgjurokkið og þar fram eftir götunum). Rás 2 hefur sem sagt misst niður um sig buxurnar og það eina sem hylur nekt hennar í þessum efnum er nærhaldið, nefnilega Sigurður Sverrisson. En hinn stór- góði bárujárnsþáttur hans var kæfður í fæðingu af léttmetis- hugsunarhætti rásarinnar. En á meðan rás 2 sveltir ís- lenska þungarokksunnendur, sem og aðra rokkunnendur, þá býður kaninn upp á sannkallaða rokk- veislu á kvöldin alla virka daga (kl. 20—01) og er tíminn frá kl. 22 til kl. 1 eingöngu ætlaður þunga- rokki. Sem sagt þrjár klukku- stundir í minnsta lagi hjá kanan- um á dag en ekki ein einasta hjá rás 2. Svo segir Þorgeir að tónlist- in á báðum stöðvum sé sú sama, að öllum líkindum fer hann mjög snemma að sofa blessaður. Já, íslenskir þungarokksunn- endur þurfa víst að reiða sig á am- eríska útvarpsstöð sér til dægra- styttingar á tónlistarsviðinu, eða allavega þangað til einokun Ríkis- útvarpsins líkur. Að lokum vil ég benda forráða- mönnum Skonrokks (svo við vend- um nú okkar kvæði í kross) á að lagið með Slade í síðasta Skon- rokksþætti var varla til þess fallið að þungarokksunnendur tækju það upp á sína arma, jafnvel þó það væri tileinkað þeim. Hvernig datt ykkur annars önnur eins vit- leysa í hug, jæja kannski er hugs- unin fyrir öllu. Mætti ég því benda ykkur á stórgóð myndbönd með Van Halen og lögunum „Jump“ og „Panama", sem einhverra hluta vegna hafa ekki sést í Skonrokki þrátt fyrir vinsældir laganna (Jump var t.d. um tíma í efsta sæti bandaríska vinsældalistans). Einnig mætti benda á myndbönd með Def Leppard, Scorpions, Acc- ept o.fl. Strákar, standið ykkur nú í stykkinu, þátturinn heitir Skon- rokk. Það er jú ekkert gaman að standa eftir á nærbuxunum einum saman cins og rás 2. Hlýtur að vera misskilningur Margrét Thoroddsen, deildar- stjóri upplýsingadeildar Trygginga- stofnunar ríkisins, skrifar: Ég tel mér skylt að gera athuga- semd við fyrirspurn ellilífeyris- þega í Velvakanda 22. maí sl. Hann telur greiðslur sínar hafa lækkað eftir hækkunina 1. maí sl. Þá hækkaði: úrkr. íkr. Ellilífeyririnn um 7% 4.349 4.654 Tekjutryggingin um 12% 6.088 6.819 Heimilisuppbótin um 12% 1.831 2.051 Hskkun kr. 1.256 Þessar tölur miðast við ein- stakling, sem hefur fulla tekju- tryggingu. Þess vegna hlýtur hér að vera um einhvern misskilning að ræða, en þetta einstaka dæmi get ég því miður ekki skýrt nema ellilífeyris- þeginn gefí sig fram við okkur undir nafni. Mér finnst ómaklega vegið að Tryggingastofnuninni, þar sem spurt er hvort hún geti farið með ellilífeyrisþega eins og henni sýn- ist. Starfsmenn hennar fara eftir ákveðnum lögum og reglum og veit ég ekki annað en þeir séu ávallt reiðubúnir að greiða götu fólks eftir fremsta megni og hafa það, er sannara reynist. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nðfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. „Kyssast“ of dónalegt Dagga skrifar: var það lesið sem „mynnast", Kæri Velvakandi: sem er eldgömul útgáfa af „kyss- Ég ætla að koma á framfæri ast“ (frumútgáfan). einni spurningu, sem ég vona að Nú spyr ég: Er orðið „kyssast" ég fái svar við. Einu sinni skrif- svo dónalegt orð að það megi aði ég í þáttinn „Lög unga fólks- ekki heyrast í útvarpi? Vonast ins“ og kom þar einu sinni fram eftir svari. orðið „kyssast", en í útvarpinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.