Morgunblaðið - 05.06.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
Tilraunir til að
svæfa bjórinn
segir Stefán Benediktsson þingmadur
um meðferð þess í efri deild
MÁLNMEÐFERÐ sú sem bjórfrumvarpið fær nú í allsherjarnefnd efri deild-
ar Alþingis bendir til þess að ákveðnir þingmenn hafi í hyggju að hindra að
frumvarpið komi til atkvæðagreiðslu í deildínni. Þetta er m.a. skoðun Stef-
áns Benediktssonar, eins flutningsmanna frumvarpsins, en hann greindi
blaðamanni Morgunblaðsins frá þvi í gær, að á fundi nefndarinnar í gær,
hefði verið rætt við nokkra sérfræðinga og enn væri eftir að ræða við þó
nokkra menn og skoða gögn.
Nokkrir þingmenn efri deildar
íhuga nú flutning breytingar- eða
frávísunartillögu við bjórfrum-
varpið. Ragnar Arnalds (Abl) tók
fram, er blaðamaður Morgun-
blaðsins spurði um þetta efni i
gær, að enn væri óráðið hvert
form yrði á tillögunni sem og
hverjir flutningsmenn yrðu. Hann
sagði það hins vegar sína skoðun
að þjóðaratkvæði ætti að fara
fram um þetta mál, bæði vegna
hefðar og fordæmis um almennar
atkvæðagreiðslur um áfengismál
og vegna þess að mjótt væri á
mununum i afstöðu til þessa um-
deilda máls á þingi. Við afgreiðslu
neðri deildar Alþingis á bjór-
frumvarpinu var felld breyt-
ingartillaga Karvels Pálmasonar
(A) þess efnis að heimild til sölu á
meðalsterku öli kæmi ekki til
Óákveðið
með sýn-
ingarstað
KVIKMYNDIN „A View to a Kill“
var sýnd aöstandendum kvikmynda-
húsa og blaðamönnum í fyrrakvöld í
Laugarásbíói, en sem kunnugt er var
hluti byrjunaratriðis hennar kvik-
myndaður við Jökulsárlón sl. sumar.
Mike Maccklesfield, frá United Int-
ernational Pictures kom hingað með
myndina, en fyrirtækið er dreifingar-
aðili utan Bandaríkjanna fyrir Uni-
versal Pictures, Paramount, MGM og
United Artists.
Enn er óvíst í hvaða kvikmynda-
húsi nýja James Bond myndin verð-
ur sýnd, en ástæða fyrir komu
Maccklesfield var m.a. að endur-
velja íslensk kvikmyndahús sem
umboðsmenn dreifingarfyrirtækis-
ins. Til þessa hefur það dreift mynd-
um til Laugarásbíós, Háskólabiós,
Tónabíós og Nýja bíós, en hyggst nú
fækka um eitt. Að sögn Grétars
Hjartarsonar hjá Laugarásbíói er
um að ræða að fyrirtækið bæti við
nýju kvikmyndahúsi sem hefur á að
skipa fleiri en einum sal, og kæmi
það þá í stað Tónabíós og Nýja bfós.
Það, hvaða kvikmyndahús verður
fyrir valinu, ræðst væntanlega í dag
og þá í framahaldi af því, hvert
þeirra þriggja kemur til með að
sýna 007 í íslensku umhverfi.
framkvæmda nema að undan-
gengnu samþykki meirihluta í
þjóðaratkvæði.
„Ég held, þrátt fyrir þetta, að
frumvarpið verði afgreitt frá
nefndinni til þingdeildarinnar, en
ég á ekki von á því að þingdeildin
ljúki afgreiðslu. Hugsanleg
dagskrártillaga Ragnars Arnalds,
um að vísa málinu frá, getur einn-
ig haft áhrif þar á,“ sagði Stefán
Benediktsson í gær, „auk þess sem
það hefur heyrst að Alþýðuflokk-
urinn hafi í hyggju að flytja
breytingartillögur við frumvarp-
ið.“
Stefán var spurður hvernig
hann túlkaði þá afgreiðslu sem
frumvarpið fengi nú í allsherjar-
nefndinni, svo og hugsanlega frá-
vísunartillögu Ragnars Arnalds:
„Ég held að það megi fyllilega
túlka það sem svo að menn séu
bæði leynt og ljóst að hægja þann-
ig á afgreiðslu málsins, að menn
þreytist á því á síðustu dögum
þingsins og leggi það til hliðar,"
sagði Stefán, „því eins og menn
töluðu digurbarkalega um það í
fyrra að það væri hlutverk Al-
þingis að setja lög um þetta, en
hafa ekki þjóðaratkvæðagreiðslu,
til þess eins að tefja afgreiðslu
málsins, þá nota menn bara öfuga
aðferð í dag, til þess að ná sama
tilgangi — að tefja afgreiðsluna."
MorgunblaÖið/Emilía
Halldóra Ásgeirsdóttir og Kristín Sigurðardóttir á vinnustofunni í Þjóðminjasafninu. Fyrir framan þær má sjá
nokkra af þeim postulum sem prýða altaristöflu Hólakirkju.
Viðgerð hafin á altaristöflu Hólakirkju
„ÞAÐ ER ERFITT að segja fyrir um
hvað viðgerðin tekur langan tíma en
hún er afar tímafrek," sagði Hall-
dóra Ásgeirsdóttir forvörður á þjóð-
minjasafninu. þegar Morgunblaðið
innti hana eftir viðgerð á altaristöflu
llólakirkju sem er nýhafin. „Ég
ásamt Kristínu Sigurðardóttur for-
verði erum nýbyrjaðar á verkinu en
Karsten V. Larsen, sem hefur starf-
að í 11 ár við viðgerðir á kirkjumun-
um, kom hingað í stutta heimsókn
og leiðbeindi okkur hvernig best
væri að standa að viðgerðinni.“
Altaristaflan er flæmsk að upp-
runa og kom til landsins í tíð Jóns
biskups Arasonar . „Þessi altar-
istafla er mjög sérstök að því leyti
aö upprunalega málningin hefur
fengið að haldast, en það gerðist
mjög oft að málað var ofan í upp-
runalegu myndina til að breyta
litasamsetningunni eftir tísku
hverju sinni eða til að bæta
skemmdir. Fyrst var sett krftar-
lag á tréð til að jafna yfirborðið
og binda málninguna og síðan
málað yfir.“
Orsakir skemmdanna taldi
Halldóra vera af tvennum toga. I
fyrsta lagi breytist bindiefnið í
krítarlaginu með tlmanum þannig
að holrúm myndast milli mynd-
flatar og trésins. I annan staö
væri það alþekkt vandamál með
listaverk úr tré að viðurinn
skryppi saman eða þendist út við
mismunandi rakastig. „Þegar
settur var hiti í Hólakirkju,
skrapp viðurinn saman þannig að
sprungur komu í myndflötinn. Nú
er hitinn orðinn stöðugur í kirkj-
unni og viðurinn hefur jafnað sig,
þannig að þær skemmdir sem
hugsanlegar urðu vegna hitans
eru þegar komnar fram, en þar
sem við skoðuðum ekki töfluna
áður en hitinn var settur á, getum
við ekki sagt fyrir um að hversu
miklu leyti skemmdirnar eru af
þessum völdum. Vængirnir eru
einnig mjög þungir og aldrei hef-
ur verið nein brík undir til að
styðja við þá. Taflan hefur því
skekkst og sprungur komið í
miðhlutann sem einnig verður
gert við. Hefði viðgerðin dregist
öllu lengur, segjum í tvö þrjú ár,
hefði taflan eyðilagst alveg. Við
erum núna að vinna við hægri
væng hennar sem var verst farin
og áætlum að hver postuli taki um
einn mánuð, en þeir eru sex á
hvorum væng, auk tveggja lftilla
mynda."
Um það hvernig viðgerðin yrði
fjármögnuð sagði Halldóra að
reynt yrði að fá fjárveitingu fyrir
henni á næsta ári. „Þegar unnið
er að jafn brýnu verkefni sem
þessu er nauðsynlegt að geta ein-
beitt sér að þvf, en slíkt hefst ekki
nema með auknu fé,“ sagði Hall-
dóra að lokum.
Til skýringar má geta þess að
„forvörður” er starfsheiti þeirra
sem sérmennta sig f viðgerðum á
safnmunum.
„Semjum ekki við stjórnarand-
stöðuna um framgang þingmálau
segir Steingrímur Hermannsson, og telur enn óvfst hvenær þingi verður slitið
GAGNRÝNISRADDIR úr herbúðum stjórnarandstöðunnar vegna þess að enn
liggur ekki fyrir endanlegur listi þeirra þingmála sem forsætisráðherra mun
leggja áherslu á að fái afgreiðslu á þessu þingi, verða æ háværari. Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra sagði af þessu tilefni í gær: „Við höfum farið
yfir það á hverjum ríkisstjórnarfundi, hvað við viljum leggja áherslu á, en ég
bef sagt það, og stend við það, að ég hef ekki viljað vera I neinum samningum
um það við stjórnarandstöðuna hvaða mál verða afgreidd á þinginu. Það er ef
til vill óvenjuleg afstaða, en ég met það svo, að ekki sé ástæða til slíkra
samninga."
Forsætisráðherra sagðist mundu
leggja mikla áherslu á að frum-
vörpin um nýsköpun, þróunarfélag,
sjóði atvinnuveganna og Byggða-
stofnun, hlytu afgreiðslu á þessu
þingi. Þessi frumvörp hefðu verið
mjög lengi f undirbúningi, og sá
undirbúningur hefði verið mjög it-
arlegur af hálfu stjórnarflokkanna.
„Ég sé þvf ekki ástæðu til annars,
en þessi frumvörp eigi að geta farið
í gegn,“ sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagðist jafn-
framt vonast til þess að útvarps-
lagafrumvarpið færi f gegn á þessu
þingi, svo og frumvarpið um við-
skiptabanka og sparisjóði. Hann
sagðist vonast til þess að það lægi
fyrir nú um næstu helgi, hvaða mál
yrði endanlega ákveðið að afgreiða
á þessu þingi.
Forsætisráðherra var spurður
hvort hann teldi að þingi yrði slitið
fyrir 17. júní, eins og talað hefur
verið um: „Ég skal ekki segja um
það á þessari stundu, það ræðst af
því hversu duglegir menn verða á
næstu fjórum dögum eða svo. Ég
vek athygli á því að efri deild Al-
þingis er ekki með neinn fund f dag,
og lauk störfum mjög snemma í
gær. Þó er fjöldinn allur af málum
í nefndum hjá efri deild. Mér sýnist
að af því megi merkja að mönnum
liggi ekki mikið á að ljúka þing-
störfum."
Mál grimaða fálkaeggjaþjófsins, Christian Krey:
Rannsókn á ferðum tveggja
einkaflugvéla frá Akureyri
Rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavík fóru til Akureyrar í gær til að rann-
saka ferðir tveggja einkaflugvéla sem fóru frá Akureyri um svipað leyti og
Uhristian Krey, Vestur-Þjóðverjinn sem grunaður var um stuld á fálkaeggjum í
Aðaldal, fór úr landi. Rannsókn á því hvort fálkaeggjum eða ungum hafi verið
smyglað úr landi með þessu móti er hluti af rannsókn á nokkrum þáttum
Krey-málsins sem ríkissaksóknari hefur óskað eftir að verði athugaðir nánar.
Christian Krey fór með áætlun-
arvél til Lúxemborgar að morgni 5.
maí sl. Vélarnar sem nú er verið að
athuga fóru frá Akureyri að kvöldi
þess dags og daginn eftir. Klukkan
10.30 að morgni sunnudagsins lenti
einkaþota á AkUreyrarflugvelli.
Samkvæmt upplýsingum Gísla
Jónssonar forstjóra Ferðaskrif-
stofu Akureyrar kom með henni
hópur ferðaskrifstofufólks frá Nor-
egi, þ.e. eigandi norskrar ferða-
skrifstofu, nokkrir Norðmenn með
honum og Bandaríkjamaður sem
var að hætta störfum hjá ferða-
skrifstofunni. Ferðin var farin í til-
efni starfsloka Bandaríkjamanns-
ins. Gísli sagði að ferðaskrifstof-
ufólkið hefði farið í skoðunarferð í
Mývatnssveit í fylgd með íslensk-
um leiðsögumanni og bílstjóra, sem
aldrei hefðu vikið frá þeim. Fór
vélin í loftið aftur kl. 19.15 áleiðis
til Jótlands í Danmörku.
Mánudaginn 6. mai fór einka-
flugvél Bílaleigu Akureyrar frá
Akureyri til Cardiff í Wales. Skúli
Ágústsson einn eigenda Bilaleig-
unnar sagði að annar eigandi fyrir-
tækisins hefði verið að fara á sýn-
ingu hjá verksmiðju sem framleiðir
varahluti í Land-Rover bíla en
Bílaleigan er með umboð fyrir
þessa tegund bíla á Norðurlandi, og
flytur þá m.a. inn beint frá Bret-
landi. Skúli sagði að á meðan vélin
hefði verið í loftinu hefði rann-
sóknarlögreglumaður á Akureyri
haft samband við sig til að spyrjast
fyrir um ferðir vélarinnar. Hann
hefði þá þegar óskað eftir því við
lögreglumanninn að gerð yrði sér-
stök tollskoðun við komu flugvélar-
innar til Cardiff. Hann taldi þó að
það hefði ekki verið gert. Gerð var
skýrsla um þessar ferðir vélanna
og gætu þær verið ástæður óskar
ríkissaksóknara um frekari rann-
sókn.
Arnar Guðmundsson deildar-
stjóri hjá Rannsóknarlögreglunni
vildi ekki staðfesta að rannsókn á
ferðum flugvéla frá Akureyri færi
fram. Hann vildi aðeins segja um
þetta mál að niðurstöður rann-
sóknarinnar á brottför Christian
Krey hefðu verið sendar ríkissak-
sóknara til ákvörðunar og hann
síðan beðið Rannsóknarlögregluna
að kanna nánar nokkra þætti í
tengslum við málið. Rannsóknin
væri á byrjunarstigi og ekkert
hægt að segja um framvindu henn-
Barist í Eyjum
FIMM skákmenn berjast í efstu sæt-
um alþjóðlega skákmótsins í Vest-
mannacyjum. Helgi Ólafsson, W.
Lombardy og Karl Þorsteins voru efst-
ir eftir 7. umferðina sem tefld var í gær
en áður en biðskákum var lokið, með 5
vinninga. Jóhann Hjartarson og A.
Lein voru með 4Vi vinning og betri
stöðu í biðskákum þannig að þeir áttu
góða möguleika á að komast upp fyrir
þá þrjá efstu eftir biðskákirnar sem
tefla átti seint í gærkvöldi.
(Jrslit í 7. umferð urðu þessi: Karl
vann Plaskett, Jón L. vann Braga
Kristjánsson, jafntefli varð hjá Guð-
mundi Sigurjónssyni og Jóhanni
Hjartarsyni og Helga og Lombardy.
Óljós biöstaða var I skák Björns
Karlssonar og Ingvars Ásmunds-
sonar, Short var með betri stöðu I
biöskák gegn Ásgeiri Þ. Árnasyni og
Lein var með betri stöðu gegn Tis-
dal.
I 6. umferð sem tefld var i fyrra-
dag urðu úrslit þessi: Helgi vann
Ingvar, Jón L. vann Plaskett, Short
vann Karl og Ásgeir vann Björn.
Jafntefli gerðu Lombardy og Lein,
Tisdal og Guðmundur og Jóhann og
Bragi. Jóhann á biðskák úr 5. umferð
gegn Plaskett og hefur Jóhann betri
stöðu.
Mótið í Eyjum er mjög líflegt og
skemmtilegt eins og sést á baráttu
efstu manna. Jóhann og Karl eiga
möguleika á að ná 9'A vinningi sem
gefur áfanga að stórmeistaratitli.
Jóhann fengi stórmeistaratitil ef
hann næði þessum árangri en Karl 1.
áfanga að slíkum titli.