Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. JÚNl 1985
jr
A svidinu
Fegurðarsamkeppnin var á
dagskrá sjónvarpsins nú á
mánudagskveldið. Þar svifu um
sali glæsipíur grillaðar í ljósa-
lömpum og stæltar í reiptogi við
lóð og gorma. Hafði ég lúmskt
gaman af þessum þætti enda ekki
á hverjum degi sem súperstjörnur
á borð við Rod Stewart stökkva
óbeðnar upp á svið íslensks
skemmtistaðar.
En fleira kom á óvart í þessum
annars ágæta þætti er Saga-film
filmaði fyrir ríkissjónvarpið
okkar. Þannig lásu tveir söngvar-
anna textanna af blaði. Sumum
stórsöngvaranum kann að finnast
harla léttvægt að syngja á Broad-
way íslands þá hann hefir skreytt
svið allra helstu óperuhúsa heims.
Persónulega hef ég þá skoðun að
vilji listamaður standa undir
nafni, verði hann að vanda sig á
listflutningum hvaða svið sem
hann annars heiðrar með nærveru
sinni. Gætum þess að gestir á ís-
lenskri fegurðarsamkeppni hafa
reitt fram aðgangseyri og eiga
engu að síður heimtingu á vönduð-
um vinnubrögðum af hálfu þar til
kvaddra listamanna en hinir er
álpast inn I óperuhús.
Fegurðarímyndin
Eins og ég sagði aðan filmaði
Saga-film Fegurðarsamkeppni Is-
lands ’85. Þar var margt vel gert.
Þó fannst mér myndaugað dvelja
of lengi við sundboli stúlknanna.
Ég hefði fremur kosið að kynnast
stúlkunum, ögn nánar í sam-
kvæmiskjólunum því sá búningur
leysti hina kvenlegu fegurð miklu
frekar úr læðingi en sundbolirnir,
er höfðu einkennileg áhrif á
göngulag sumra stúlknanna. Er ég
þeirrar skoðunar að líkamsfegurð
hafi öðru fremur ráðið kjöri Feg-
urðardrottningar íslands að þessu
sinni. En það er nú bara mín per-
sónulega skoðun og alltaf er nú
jafn gaman að spá í hver hlýtur
hnossið. Hitt er ljóst að á tímum
vaxandi jafnréttis er ótækt að úti-
loka annað kynið frá þátttöku í
fegurðarsamkeppni. Hvers eiga
blessaðir karlmennirnir að gjalda
að fá ekki að spóka sig á sundskýl-
um á sviðinu í Broadway? Ég á
ekki við þá karlmenn er hafa tekið
sér holdanaut til fyrirmyndar um
líkamsvöxt heldur ósköp venju-
lega karlmenn. Ingólfur í Útsýn
hefir hér þegar hlýtt kalli tímans
og væri ekki ráð að fleiri fylgdu í
þau fótspor? Við skulum og gá að
því að slík fegurðarsamkeppni
myndi vafalaust auka kaup karl-
manna á fegrunarvörum, tísku-
vörum og aðgöngumiðum að sól-
stofum. En er ekki einmitt sá
helstur tilgangur fegurðarsam-
keppni að lífga upp á tilveruna í
fleiri en einum skilningi?
Lenín
Ég verð að játa að þrátt fyrir
góðan ásetning hvarflaði eftir-
tektin frá blessaðri mánudags-
myndinni enda þótt hún væri gerð
eftir sögu Solsénitsin og fjallaði
um Lenín kallinn, sem hefir nú
ætíð vakið áhuga minn. Myndin
var ekki í lit og afar stirðleg og
fannst mér eins og þar sæi Ijósár
aftur í tímann miðað við þá ná-
lægð andartaksins er hafði
skömmu áður skartað á skjánum.
Þó náði myndin að bregða upp
svipmynd af afar viljasterkum
manni er lifði samkvæmt þeirri
reglu að stórisannleikur væri ætíð
sín megin. Það var ráð Leníns að
flokkurinn hreinsaði sem ræki-
legast af sér „þorparalýð, skrif-
stofusnigla, óheiðarlega og óáreið-
anlega kommúnista og mensjev-
íka, sem hvítkalkað höfðu „fram-
hlið“ sína en voru þó í hjarta sínu
samir mensjevíkar og áður“. (Len-
ín: Úrvalsrit, IX. bindi, 271. bls.).
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP/ S JON VARP
Málræktarþátturinn
Fljótalífið heillar
■■■■ Á dagskrá sjón-
91 15 varps í kvöld er
^ A “ fimmti þáttur
ástralska myndaflokksins
„Allt fram streymir ..."
(All the Rivers Run).
Hann hefst kl. 21.15.
Þessi geysivinsæli
myndaflokkur er í 8 hlut-
um og tekur þvi að síga á
seinni hluta hans.
t síðasta þætti gerðist
það helst að söguhetjan
Phildelphia Gordon
kynnti unga heimsdömu
fyrir Brenton skipstjóra.
Hann stóðst ekki mátið og
gaf ungfrúnni undir fót-
inn. Philadelphia yfirgef-
ur þá fljótabátinn, heldur
til Sidney og stundar þar
myndlistarnám af miklu
kappi. Hún eignast vel-
gjörðarmann sme hvetur
hana eindregið til að ferð-
ast til Evrópu og kynna
sér nýjustu strauma mál-
aralistarinnar. En fljóta-
lífið heillar og þegar
Brenton kemur til Sidney
eftir þriggja ára aðskiln-
að og biður Philadelphiu
tekur hún bónorðinu.
Morgunþáttur rásar tvö
■■■■ Morgunþáttur
1 A00 rásar tvö verð-
A ” “” ur á sínum stað
milli klukkan 10 og 12.
Umsjónarmaður hans er
Kristján Sigurjónsson.
Væntanlega verður þar
margt að heyra og án efa
fá unnendur norrænnar
popptónlistar sinn
skammt af gæðapoppi
frænda vorra á Norður-
löndum. Kristján er iðinn
við að kynna ýmsar
hljómsveitir á rásinni,
sem annars heyrðist
áreiðanlega lítið í á öldum
ljósvakans.
■■^B Málræktarþátt-
1 Q 40 urinn er á dag-
1«/— skrá hljóð-
varpsins í kvöld um kl.
19.40. Ólafur Oddsson sér
um þáttinn. Þegar Morg-
unblaðið sló á þráðinn til
Ólafs sagði hann m.a.:
„Baldur Jónsson, formað-
ur íslenskrar málefndar,
hefur fengið mig til að
annast málræktarþáttinn
í suraar, en fleiri munu
koma þar við sögu líkt og
verið hefur. í þættinum í
kvöld mun ég fjalla um ís-
lenska málnefnd og hlut-
verk hennar, um nýyrði í
íslensku máli og ýmsar
aðferðir við smíði þeirra. I
seinni þáttum verða tekin
fyrir margvísleg efni er
varða íslenska tungu.
Þetta er fyrsti þáttur-
inn sem Ólafur sér um en
hann hefur starfað fyrir
islenska málnefnd sem
ráðunautur orðanefndar
rafmagnsverkfræðinga á
þriðja ár. Sú nefnd hefur
starfað frá árinu 1984 og
sagði Ólafur að rafmagns-
verkfræðingarnir væru
mjög áhugasamir um ís-
lenskt mál og skemmti-
legt að starfa með þeim.
Ólafur Oddsson sér um
málrektarþáttinn í sumar.
Nýr þáttur á rás 1:
Staður og stund
■■■■ „Staður og
1 0 30 stund" nefnist
A O — nýr þáttur á
dagskrá hljóðvarpsins.
Hann hefst í dag kl. 13.30
og kemur frá RUVAK.
Kristján Sigurjónsson um-
sjónarmaður morgunþáttar
á rás 2.
Þórður Kárason sér um
þáttinn og sagði hann að
hér væri um að ræða al-
hliða þætti, með spjalli og
góðri tónlist. í hverjum
þætti verður eitt viðtal,
jafnt við unga sem aldna.
Fyrsti gesturinn verður
Albert Karlsson kennari
við Verkmenntaskólann á
Akureyri. Hann er mikill
áhugamaður um skotvopn
og í safninu hans eru á
fjórða tug skotvopna. Al-
bert er einnig mikill
áhugamaður um sögu og
stundaði hann nám i
Bandaríkjunum í mann-
kynssögu og ensku. Einnig
hefur Albert mikið dálæti
á tónskáldinu Richard
Wagner og verður leikin
tónlist eftir hann í þætt-
inum.
Þórður sagðist vilja
reyna að brúa bilið milli
unglingaþáttanna og dag-
skrárliða fyrir eldri hlust-
endur. Þannig væru gestir
hans bæði ungir og aldnir
og tónlistin verður fjöl-
breytt, ekki topplögin í
dag, heldur sígildar
lummur sem valdar yrðu í
samráði við viðmælanda
hverju sinni.
Þórður Kárason er umsjón-
armaður þáttarins „Staður
og stund“.
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
5. jún(
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunþáttur. 7.20 Leiktimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar trá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Arndls Hjart-
ardóttir, Bolungarvlk, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Börn eru besta fólk" eftir
Stefán Jónsson
Þórunn Hjarfardóttk les (11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 Hin gömlu kynni
— Valborg Bentsdóttir.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Ðagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Inn og út um gluggann
Umsjón: Sverrir Guöjónsson.
13J0 Staður og stund
— Þóröur Kárason.
(RÚVAK)
14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens
Björnebo
Dagný Kristjánsdóttir þýddi.
Kristján Jóhann Jónsson les
(3).
14.30 Miðdegistónleikar: Is-
lensk tónlist
a. „Minni íslands", forleikur
op. 9 eftir Jón Leifs. Sin-
fónluhljómsveit Islands leik-
ur; William Strickland stjórn-
ar.
b. „Inngangur og passa-
caglia" f f-moll eftir Pál Is-
ólfsson. Sinfónluhljómsveit
Islands leikur; William
Strickland stjórnar.
c. Fiðlukonsert eftir Leif
Þórarinsson. Einar Svein-
björnsson og Sinfónluhljóm-
sveit Islands leika; Karsten
Andersen stjórnar.
15.15 „Það var auðvelt", smá-
saga eftir Alice Walker
Kristln Bjarnadóttir les þýð-
ingu slna.
15A0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Popphólfið
— Bryndfs Jónsdóttir.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir.
17.50 Siðdegisútvarp
— Sverrir Gauti Díego.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Málræktarþáttur
Ólafur Oddsson flytur.
20.00 A tramandi slóöum
Oddný Thorsteinsson segir
frá Arabalöndum og leikur
þarlenda tónlist. Slðari hluti.
(Aöur útvarpað 1982).
20.30 Kvöldtónleikar
a. Sinfónla nr. 11 D-dúr eftir
Carl Philipp Emanuel Bach.
Enska kammersveitin leikur;
Raymond Leppard stjórnar.
b. Fiðlukonsert nr. 1 I C-dúr
eftir Joseph Haydn. Yehudi
Menuhin leikur með og
stjórnar Hátiðarhljómsveit-
inni I Bath.
c. Sinfónla nr. 41 I C-dúr
K.551 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Fllharmónlu-
sveitin I Berlln leikur; Karl
Böhm stjórnar.
21.30 „Italfuferð sumarið
1908“ eftir Guðmund Finn-
bogason
Finnbogi Guömundsson og
Pétur Pétursson lesa (3).
22.00 Tónleikar
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Staldrað viö á Ar-
skógsströnd
3. þáttur Jónasar Jónasson-
ar. (RÚVAK)
SJÓNVARP
19.00 Alþjóðlegt skákmót I
Vestmannaeyjum
Skákskýringaþáttur.
19J25 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. Söguhornið
— Drangey, Tómas Einars-
son segir frá. Myndir: Rósa
Ingólfsdóttir. Kanlnan með
köflóttu eyrun, Dæmisögur
og Högni Hinriks, sðgumað-
ur Helga Thorberg.
19Æ0 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Viöskipti með notaða
blla
Þriðji þáttur um lög og reglur
á sviöi verslunar og við-
MIÐVIKUDAGUR
5. júnl
skipta.
Umsjón: Baldur Guölaugs-
son, hæstaréttarlögmaður,
og Andri Arnason, héraðs-
dómslögmaður.
Stjórn upptöku: Örn Harð-
arson.
21.15 Allt fram streymir . . .
(All the Rivers Run)
Fimmti þáttur
Astralskur framhaldsmynda-
flokkur I átta þáttum, geröur
eftir samnefndri skáldsögu
eftir Nancy Cato.
Aðalhlutverk: Sigrid Thorn-
ton og John Waters.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.10 Úr safni Sjónvarpsins
„Svo endar hver sitt ævi-
svall"
Dagskrá um sænska skáldið
Carl Michael Bellman og
kynni Islendinga af verkum
hans.
Dr. Sigurður Þórarinsson
flytur inngang um skáldið og
yrkisefni þess. Vlsnasöngv-
arar og spilmenn flytja
nokkra söngva Bellmans
sem þýddir hafa veriö á Is-
lensku.
Kynnir Arni Björnsson.
Stjórn upptöku: Tage Amm-
endrup.
Þátturinn var áður sýndur l
Sjónvarpinu I mars 1982.
22.45 Fréttir I dagskrárlok
23.20 Dönsk tónlist
a. Trló I G-dúr fyrir planó,
flautu og selló eftir Friedrich
Kuhlau. „Tre Musici" leika.
b. „Einu sinni var", ævin-
týrasöngleikur eftir Lange-
Múller. Willy Hartmann syng-
ur með kór og hljómsveit
Konunglegu óperunnar I
Kaupmannahöfn; Johan
Hye-Knudsen stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
5. júní
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Sumarflugur
Stjórnandi: Helgi Már Baröa-
son.
17.00—18.00 Tapað fundið.
Sögukorn um popptónlist.
Stjórnandi: Gunnlaugur Sig
fússon.
Þriggja mlnútna tréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.