Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1985 + Sonur minn og faðir okkar, JÓN GUNNAR KRISTINSSON, Þóragötu 21, lést 3. júní sl. Einara Jónsdóttir, Hjörtur M. Jónsson, Eínar Kr. Jónsson, Guóni Þór Jónsson, Ingibjörg Vala Jónsdóttir. + Eiginmaöur minn og faðir okkar, EINAR ÓLAFSSON, Suðurgötu 3, Kefiavfk, lóst þann 3. júní. Kristín Guömundsdóttir og börn. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, RAGNHEIOUR EINARSDÓTTIR, Hrafnistu í Hafnarfiröi áöur Brekkugötu 16, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn 6. júni kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hrafnistu eða aörar líknarstofnanir. Geirlaug Siguróardóttir, Magnús Sigurðsson, Einar Sigurósson, Júlíana Siguröardóttir, Kristján Björnsson, Gunnar Sigurösson, Sigríóur Einarsdóttir og barnabörn. + Konan mín, FANNEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Laugarnesvegi 81, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. júní kl. 10.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna, barnabarnabarna og systkina hinnar látnu. Finnur Bjarnason. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, FRIÐBJÖRN ÁSBJÖRNSSON frá Hellissandi, sem andaöist 27. maí, veröur jarösunginn frá Ingjaldshólskirkju föstudaginn 7. júní kl. 14.00 e.h. Ásta Friöbjarnardóttir, Sveinbjörn Benediktsson, Hólmfríöur Friöbjarnardóttir, Guömundur Valdimarsson, Jóhanna Frióbjarnardóttir, Aöalateinn Guömundsson, börn og barnabörn. Minning: Ingimundur A. Bjarnason vélvirki Fæddur 28. júlí 1903 Dáinn 27. maí 1985 Ingimundur Árelíus Bjarnason fæddist á Sveinsstöðum í Reykja- vík 28. júlí 1903. Móðir hans var Gróa Ingimundardóttir ættuð frá Knútsborg á Seltjarnarnesi, en faðir hans var Bjarni Sveinsson frá Sveinsstöðum í Reykjavík. Gróa og Bjarni voru þá heitbundin og í drögum að endurminningum sínum segir Ingimundur að senni- lega hafi þeim ekki litist betur á frumburðinn en svo að þau ákváðu að slíta trúlofuninni. Móðirin hafði þá ekki tök á því að ala upp son sinn og var honum þegar á fyrsta ári komið í fóstur að Ei- lífsdal í Kjós og dvaldi hann þar til átta ára aldurs. Næsta ár er hann hjá föður sínum sem þá var kvæntur Björgu Einarsdóttur. Björg og Bjarni eignuðust 10 börn sem komust á legg og eru afkom- endur þeirra nú fjölmargir. Þrjár af systrum Ingimundar eru enn á lífi. Mikil og góð vinátta hefur ætíð ríkt milli Ingimundar og hálfsystkina hans, svo og fjöl- skyldna þeirra. Níu ára gamall flytur Ingi- mundur til móður sinnar, sem bjó með Helga Erlendssyni að Merk- urgötu 5, Hafnarfirði. Móðir Ingi- mundar lést snögglega úr berklum þegar hann var á tólfta árinu og fór hann þá að Skuld í Seyðisfirði til móðursystur sinnar, Valgerðar, sem bjó þar með manni sínum, Gunnari Bjarnasyni, skósmið. Þau hjón voru barnlaus en ólu upp tvö fósturbörn, Ingimund og Ingu Jó- hannesdóttur. Við Skuld var Ingi- mundur jafnan kenndur síðan, enda var hann búsettur þar fram yfir þrítugsaldur. Skömmu eftir komuna til Seyð- isfjarðar kynnist Ingimundur sjónum og því lífi sem honum fylgir. Honum var minnisstæður fyrsti róðurinn sem hann fór í, þá 11 ára gamall, en var orðinn 12 ára þegar að landi kom. 17 ára að aldri er heimdraganum hleypt og haldið út í heim með lélegu milli- landaskipi sem kom til Seyðis- fjarðar og vantaði háseta. Eftir nokkurra ára útivist við alls konar sjómennsku, bæði siglingar til Miðjarðarhafslanda og selveiðar í íshafinu, er aftur snúið heim til Seyðisfjarðar og nú til að fást við eigin útgerð, sem stunduð er næstu árin. Hugstæðust var hon- um jafnan útgerðin með vélbátinn Ásu, og frá þeim tíma átti hann hugljúfar minningar. Á þessum árum kynntist Ingi- mundur ungri stúlku, Guðnýju Jónsdóttur, ættaðri frá Unaósi í Hjaltastaðaþinghá. Guðný var þá nýkomin til Seyðisfjarðar með dóttur sína, Helgu Sæmundsdótt- ur, á fyrsta ári. Guðný og Ingi- mundur felldu brátt hugi saman og gengu í hjónaband snemma árs 1931 og gekk Ingimundur Helgu síðan í föðurstað. Helga giftist 1950 Kristjáni Pálssyni trésmíða- meistara og eignuðust þau sex börn, Guððnýju setjara, Sæmund Pál matreiðslumann, Bjarna Þór kennaranema, Kristjönu læknis- frú í Kaupmannahöfn, Gunnar sjómann á Patreksfirði og önnu Katrínu. Kristján lést árið 1965. Seinni maður Helgu er Karl Þórð- arson verkamaður í Áburðarverk- smiðjunni. Eina barn þeirra Guðnýjar og Ingimundar var dóttir sem fædd var árið 1931 og skírð Gróa Val- + Minningarathöfn um eiginmann minn, ÁRNA ÁSBJARNARSON, Bauganesi 38, fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. júní kl. 16.30. Útförin veröur gerö frá Grundarkirkju í Eyjafiröi laugardaginn 8. júní kl. 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaöir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, María Stefánsdóttir. gerður í höfuðið á móður og móð- ursystur Ingimundar. Hún var ætíð kölluð Gógó og var auga- steinn föður síns, enda fór vel á með þeim feðginum. Gógó giftist undirrituðum árið 1953. Börn okkar eru fjögur: Steinberg kenn- ari á Tálknafirði, Hildur verk- fræðingur, Heimir lögregluþjónn og Reynir nemi og eru þrjú þau síðasttöldu búsett í Reykjavík. Fyrir hjónaband eignaðist Gógó dreng, Ingimund Bergmann vél- stjóra sem alinn var upp hjá afa sínum og ömmu og er nú bóndi á Vatnsenda. Á kreppuárunum upp úr 1930 urðu miklar sviptingar í atvinnu- lífi íslendinga og fóru þau Guðný og Ingimundur ekki varhluta af því. Vélbátaútgerðin hjá Ingi- mundi bar sig ekki og við taka ár, þar sem sjómennskan var stunduð þar sem best gekk hverju sinni hvort sem það voru róðrar frá Langanesi eða síldveiði með Fær- eyingum fyrir Norðurlandi. Þessi margbreytilegu sjómannsstörf verða þess valdandi að um miðjan fjórða áratuginn flytja þau hjón búferlum til Suðvesturlands og búa bæði í Reykjavík og Njarðvík- um næstu árin. Um 1942 verða þáttaskil í lífi þeirra Guðnýjar og Ingimundar. Hann hættir þá sjómennsku og fer að vinna öll almenn járnsmíða- störf í Vélsmiðjunni Héðni, þar sem hann starfaði síðan yfir 20 ár eða til ársins 1966. Við lítil efni er byggt hús á Seltjarnarnesi, sem nefnt var Skuld eftir gamla heim- ilinu á Seyðisfirði. í maímánuði fyrir réttum 32 árum leit ég fyrst tengdaforeldra mína er þá bjuggu í Skuld. Mér er enn í minni þetta litla en hlýlega heimili, sem þau höfðu búið sér og dóttursyni sín- um, Ingimundi Bergmann, sem þá raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar fundir — mannfagnaöir Stúdenta- fagnaöur Nemendasambands Menntaskólans í Reykja- vík verður haldinn á Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaginn 7. júní og hefst með borðhaldi kl. 19.00. Miöasala á Hótel Sögu miövikudaginn kl. 2-5 og fimmtudaginn kl. 5-7. Stjórnin. Samtök um byggingu tónlistarhúss Aöalfundur veröur haldinn í Súlnasal Hótels Sögu fimmtudaginn 13. júní kl. 20.30. Fundar- efni: Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin Hestamenn Félagsmót hestamannafélagsins Geysis og íslandsmót í hestaíþróttum veröa haldin á Rangárbökkum dagana 14.,15. og 16. júní. Keppt verður í flestum greinum kappreiöa. Skráning fer fram í símum 99-5525, 99-8330, 99-8245 og 99-8591 og lýkur mánudaginn 10. júní 1985. Dansleikur veröur í Hvoli, laugar- dagskvöldið 15. júní. Hin vinsæla hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Stjórnin. Gamlir meistarar Málverk Nýjar myndir á sýningu gamalla meistara í Gallerí Borg viö Austurvöll í dag: Ásgrímur Jónsson: Kona, model frá 1904, vatnslitur. Nesjar í Grafningi, vatnslitur frá því um 1930. Jón Stefánsson: Frá Borgundarhólmi, olía á léreft. HORG Pósthússtræti 9 Sími24211. Digranesprestakall Aöalsafnaöarfundur verður haldinn í safnaö- arheimilinu viö Bjarnhólastíg mánudaginn 10. júní og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Sóknarnefndin. Ættarmót Afkomendur Jónasar Guömundssonar (1835-1919) bónda á Bíldhóli, Skógarströnd, halda niöjamót í Domus Medica laugardaginn 8. júní nk. kl. 14.00. Undirbúningsnefnd. Aöalfundur FR-deildar 4 veröur haldinn fimmtudaginn 13. júní kl. 20.00. Fundarstaöur Rafveituheimiliö viö Ell- iöaár. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.