Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNl 1985 Skemmta átti mótsgestum með sýningu á kerruakstri. Voru það bæði tveggja hjóla kappreiðarkerrur og svo fjögurra hjóla vagn með prúðbúnu fólki sem farþega. En því miður hrundi eitt hjólið undan vagninum rétt eftir að hann kom inn á völlinn og brá þá ekillinn á það ráð að leysa hestana frá og hlaupa með þá hringinn. Vakti þetta kátínu meðal áhorfenda og einhvers staðar segir að fall sé fararheill. Fjórðungsmótinu á Gaddstaðaflöt við Hellu. Alls má Fákur senda níu hesta í hvorn flokk á Fjórð- ungsmótið og í stað þess að fjalla hér frekar um sjálfa keppnina ætla ég öllu heldur að eyða plássi í að telja upp þessa hesta. í A-flokki varð röðin þessi: Glæsir frá Glæsibæ, knapi Gunn- ar Arnarsson, Gormur frá Húsa- felli, knapi Sigurbjörn Bárðarson, Ljúfur frá Ytra-Dalsgerði, knapi Albert Jónsson, Grettir frá Efri- Brú, knapi Sigvaldi Ægisson, Júp- iter frá Fossum, knapi Eiríkur Guðmundsson, Svarti-Stjarni frá Stokkhólma, knapi Eyjólfur ís- ólfsson, Þrymur frá Brimnesi, knapi Erling Sigurðsson, Börkur frá Kvíabekk, knapi Ragnar Tóm- asson, og Ás frá Vallanesi, knapi Tómas Ragnarsson. í B-flokki varð röin sem hér seg- ir: Sölvi frá Glæsibæ, knapi Gunn- ar Ágústsson, Hörður frá Bjólu- hjáleigu, knapi Lárus Sigmunds- son, Gári frá Bæ, knapi Sigur- björn Bárðarson, Fróði frá Kolku- ósi, knapi Hreggviður Eyvindsson, Goði frá Ey, knapi Trausti Þór Guðmundsson, Senjor frá Glæsi- bæ, knapi Baldvin Guðlaugsson, Krummi frá Kjartansstaðakoti, knapi Sigvaldi Ægisson, Snilling- ur frá Krossanesi, knapi Sveinn Hjörleifsson, Kórall frá Sandlækj- arkoti, knapi Orri Snorrason. Hvítasunnumót Fáks: Vel heppnuð „generalprufa“ Kappreiðahrossin lofa góðu fyrir sumarið Hestar Valdimar Kristinsson Mótssvæði Fáks á Víðivöllum hefur á síðustu vikum tekið mikl- um breytingum og fengu móts- gestir á Hvítasunnumóti félagsins að njóta þessara breytinga. Fyrir þá sem ekki vita þá er megin- ástæðan fyrir þessum miklu fram- kvæmdum væntanlegt Fjórð- ungsmót. Ekki er allt frágengið ennþá en greinilegt að mikill hug- ur ríkir meðal Fáksmanna að bjóða upp á góða aðstöðu. Töldu margir að þetta Hvítasunnumót væri nokkurskonar „generalprufa" fyrir Fjórðungsmótið. Er sjálfsagt mikið til í þvi, margir væntanlegir starfsmenn Fjórðungsmótsins voru þarna á vappi í þeim tilgangi að átta sig á hvernig best sé að standa að málum þegar þeirra tími kemur. Atján hestar á Fjórðungsmót Gæðingar voru dæmdir á fimmtudag og föstudag og voru mörg þekkt nöfn á ferðinni. Hest- ar sem getið hafa sér gott orð í keppni á síðustu árum svo og nýir hestar sem áttu að slá í gegn. Óneitanlega hleypti það meiri spennu í keppnina að jafnframt því að vera gæðingakeppni félags- Hægt hefði verið að fjalla um gæðingana og dómana á ýmsan hátt en þessi upptalning látin nægja þetta árið. Rásbásarnir með hliðum Á árum áður litu íslenskir kappreiðamenn svokallaða rás- bása, eins og notaðir voru erlendis á kappreiðum, löngunaraugum. Nú hefur langþráður draumur ræst því básarnir sem fyrst voru reyndir hér ’81 eru nú komnir með hlið sem opnast samtímis. Einn af Morgunblaðid/Valdimar Kristinsson Knapi mótsins á glæsilegasta besti mótsins og jafnframt sigurvegaranum í B-flokki gæðinga, Gunnar Arnarson og Sölvi frá Glæsibæ. ins var þetta úrtaka fyrir Fjórð- ungsmótið. Urslit komu ekki mjög á óvart, því Glæsibæjarhestarnir Sölvi og Glæsir sigruðu og er þetta í annað skiptið sem þeir báðir verma þessi sæti. Sölvi vann B-flokkinn í fyrra og Glæsir vann A-flokkinn ’81 og það sama ár var hann efstur á Hann ber nafn með rentu hann Glæsir frá Glæsibæ, sigurveg- arinn í A-flokki gæðinga. Knapi er Gunnar Arnarsson. Tilburðir hrossanna í 800 metra stökkinu gefa vonir um gott sumar á þessari vegalengd öfugt við það sem var í fyrra. Kristur sigrar hér Lýsing og voru þeir á sama tíma en sjónarmunur réð úrslitum. þeim mönnum sem töluðu í hátal- arann sagði að þessir básar styttu hlaupin verulega og fannst manni það skrýtið en vafalaust hefur maðurinn meint að styttri tíma tæki að ræsa hvern riðil og varð raunin einmitt sú. Þar sem veður var óhagstætt fyrir kappreiða- hald, mótvindur og kuldi var ekki gott að meta hvort þessi nýjung hefði einhver áhrif á tímana. Segja verður að tímar hafi verið þokkalegir í sumum greinum svona miðað við aðstæður. Skeiðið var eins og oft áður rjóminn af kappreiðunum, hörð keppni milli þeirra og óvænt úr- slit. Börkur frá Kvíabekk er risinn úr stónni á nýjan leik og sigraði hann á 23,4 sek. Var allt annað að sjá hestinn nú miðað við undan- farin ár en margir töldu að hann væri „búinn“. En svo reyndist ekki vera og eins og áður er getið er hann einn af níu A-flokksgæðing- Edda Gísladóttir var hinn öruggi sig- urvegari í yngri flokki unglinga en hún keppti á Seif frá Hafsteinsstöð- um. um Fáks sem fara á Fjórðungs- mót. Fróðlegt verður að sjá fram- haldið hjá honum. 1 öðru sæti varð Vani Erlings Sigurðssonar á ein- um tíunda úr sekúndu lakari tíma, lá hann aðeins fyrri sprettinn, sem betur fer fyrir keppninautana sagði Erling. Vani er mjög erfiður hestur en þegar allt gengur upp gerir hann venjulega góða hluti og reikna má með honum í toppbar- áttunni í sumar. Þriðji varð svo Leistur frá Keldudal, methafinn í 150 metrunum en skeiðhestarnir frá Sigurbirni virtust ekki ná sér á strik að þessu sinni, þeir Hilding- ur og Villingur komust ekki á blað. Ekki þarf að reikna með öðru en þessu verði kippt í lag fljótlega ef Sigurbjörn er samur við sig. I 150 metra skeiðinu gátu úrslit ekki orðið annað en óvænt því mikil endurnýjun á sér stað á þessari vegalengd nú og flest hrossin lítt kunn af afrekum á hlaupabrautinni. Sigurvegari varð Jökull Sigvalda Ægissonar, flug- vakur hestur sem gæti gert það gott og gerði reyndar nú, önnur varð Fönn sem Eiríkur Guð- mundsson sat og í þriðja sæti Hnappur frá Möðruvöllum sem er undan svartlitföróttri hryssu, Hremsu sem sást oft hér á vellin- um fyrir nokkrum árum og vakti alltaf mikla athygli fyrir góð skeiðgrip. Tíminn hjá þessum hrossum var ótrúlega góður, Jök- ull með 14,5 sek, Fönn með 14,9 og Hnappur með 15,6 sek. I stökkgreinum var árangur heldur síðri en í skeiðinu en eigi að síður jöfn og spennandi keppni. Ánægjulegt var að sjá 800 metra hlauparana því allt bendir til að þeim hafi verið sinnt sem skyldi í vetur og má búast við skemmti- legri keppni á þessari vegalengd í sumar. Kristur sem var í 350 metrunum í fyrra við góðan orð- stír sigraði að þessu sinni eftir harðvítuga keppni við Lýsing en báðir þessir hestar koma frá Skarði í Landsveit þótt ekki séu þeir fæddir þar. Voru þeir á sama tíma en Kristur sjónarmun á und- an, í þriðja sæti varð Tvistur frá Götu á 62,9 sek. í 350 metra stökki sigraði Reyk- ur Kristjáns Guðmundssonar og þar var það einnig sjónarmunur sem réð úrslitum. í öðru sæti varð Rúdolf Kristjáns Benjamínssonar og í þriðja sæti Loftur Jóhannesar í Þjöppuleigunni á 26,9. I ung- hrossahlaupi voru að ég held öll hrossin ný og því um algerlega óskrifað blað að ræða. Þegar öll hrossin eru óþekkt er aldrei eins spennandi á að horfa og tímarnir gáfu ekki tilefni til mikillar eftir- væntingar en sjálfsagt eiga þessi hross eftir að gera garðinn frægan í sumar. Undri sigraði á 19,0, Lót- us annar á 19,4 og Gnýfari þriðji á 19,5.sek. Að venju hefnr maður sem fæst orð um brokkið en þó má geta þess að skemmtilegt er að horfa á Trítil en gallinn er bara sá eins og alltaf hefur verið að það vantar eina sjö eða átta jafngóða og helst betri hesta til þess að ein- hver spenna verði í þessari keppn- isgrein. Vonandi verður hægt að skrapa saman í einn góðan riðil á margumræddu Fjórðungsmóti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.