Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNl 1985 «» Ul' •• '1 ði i 5 ii Stálgrmdur þar sem mikils styrks og oryggis er óskað Vandoður og viðhaldslitill frágangur Allir fylgihlutir frá Adromt Flytjum inn frá Adronit Werk, Þýskalandi, vandað girðingaefni og hlið og allt sem til þarf. Adronit kerfið er mjög umfangsmikið og vekja þrjú atriði mesta athygli: Fjöldi valmöguleika, auðveld uppsetning og mikil ending — bæði hvað varðar hnjask og tæringu. Og útlitið er vissulega við hæfi vel rekins fyrirtækis eða stofnunar. Útlit lóðar ber vitni um starfsemina innan dyra. SINDRA STALHF Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222 WIKA Þrýstimælar Allar stærðir og gerðir SQyífeyigHyif1 j&iro©@<a>(n) <& Vesturgötu 16, sími 13280 Neytendasamtökin: Mótmæla kjarnfóðurskatti Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Hátt net ásamt V-laga öryggisbúnaði. Athugasemd frá félagi löggiltra endurskoðenda Öflug hlið fyrir alla umferð Einnig rafknúin MORGIJNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Félagi löggiltra endurskoðenda vegna frétta, sem birtust í Þjóðviljanum og DV 30. maí sl.: „Eins og fram kemur í fyrr- nefndum blöðum 30. maí var mað- ur sá, sem handtekinn var 29. maí sl., grunaður um skjalafals með skuldabréfum ekki endurskoðandi og hefur enga heimild til að nota það starfsheiti. Talsvert hefur verið um mis- notkun starfsheitisins endurskoð- andi með þeim afleiðingum að viðskiptavinir bókhaldsstofa hafa staðið í þeirri trú að þeir væru að skipta við löggilta endurskoðendur. Starfsheitið löggiltur endur- skoðandi er lögverndað og er öðr- um en löggiltum endurskoðendum eigi heimilt að nota orðið endur- skoðandi í starfsheiti sínu. Þá er og óheimil notkun starfsheitis sem til þess er fallið að vekja þá trú að maður sé löggiltur endur- skoðandi, ef hann er það ekki.“ Gold Coast er svar Rolf Johan- sen & Co. við ódýrum vindlingum sem að undanförnu hafa selzt hér í miklum mæli. Eftir þá hækkun sem varð á tóbaki um sl. mánaða- mót kostar pakkinn af Gold Coast kr. 60.90. Tíu söluhæstu tegundir af vindl- ingum í maímánuði voru skv. upp- lýsingum Alexanders, í millum talið, en í hverju milli eru fimm karton eða fimmtíu pakkar: Royal (12.361), Winston (5.565), Camel (3.878), Gold Coast (2.870), Royal Light (2.277), Winston Light (2.139), Salem Light (2.139), Vice- roy (1.389), Prince (932), Marlboro (918). ÞittUkendur í ráðstefnu iðnfulltrúa. Fremri röð f.v.: Guðmundur Gunnarsson, iðnfulltrúi Akureyri, Vilborg Guðsteins- dóttir, iðnfulltrúi Reykjavík, Sigurður Kristinsson. formaður iðnfræðsluráðs, Óskar Guðmundsson, framkvæmdastjóri iðnfræðsluráðs og Daníel Kristjánsson, iðnfulltrúi ísafirði. Aftari röð f.v.: Jón S. Einarsson, íðnfulltrúi Neskaupstað, Skæringur Georgsson, iðnfulltrúi Vestmannaeyjum, Haukur Stefánsson, iðnfulltrúi Sauðárkróki, Anton S. Jónsson, iðnfulltrúi Keflavík og Ólafur Pálsson, iðnfulltrúi llafnarfírði. IÖnfulltrúar þinga DAGANA 14. og 15. maí sl. var ráðstefna iðnfulltrúa haldin í Reykjavík á vegum Iðnfræðsluráðs. Iðnfulltrúar annast samþykkt námssamninga og eftirlit með iðn- námi, hver í sínu fræðsluumdæmi, segir í frétt frá ráðinu. Tilgangur ráðstefnunnar var samhæfing á störfum iðnfulltrúa og fyrirkomulag á þjónustu Iðn- fræðsluráðs við þá. Ákveðið var fyrirkomulag á löggildingu meist- ara og iðnfyrirtækja til nematöku og eftirlit með vinnubókum. Sam- Gold Coast í fjórða sæti á þremur vikum NÝLEGA komu á markað hér á landi vindlingar sem seldir eru und- ir vörumerkinu Gold Coast. Fram- leiðsla og pökkun fer fram í Sviss en tóbaksblandan kemur frá RJ. Reyn- olds Tobacco International. Þær þrjár vikur sem þessi nýja vindÞ ingategund var á markaði í maímán- uði urðu þær fjórða söluhæsta teg- undin sem hér er til sölu, skv. upp- lýsingum sem fengust há Alexander Alexanderssyni lagerstjóra hjá ÁTVR. komulag varð um að mynda starfshóp, til að samræma stytt- ingarreglur vegna mismunar á námi eftir skólum. Skýrt var frá skipunum sveinsprófsnefnda, nýju fyrirkomulagi sveinsprófa og ráðningarsamningum fyrir nema í starfsþjálfun á vegum skóla. Þá skýrði formaður ráðsins frá því að menntamálaráðherra hefði nýlega skipað nefnd til að endur- skoða lög um iðnfræðslu. Skal hún ljúka störfum fyrir áramót. í nefndinni eru fimm menn en einn- ig hefur ráðherra mælst til þess við 20 sambönd á vinnumarkaðin- um, að þau tilnefni fulltrúa í sam- ráðshóp, nefndinni til aðstoðar. Neytendasamtökin hafa nýlega sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau mótmæla harðlega öllum áform- um um nýja lögfestingu á kjarn- fóðurskatti og framleiðslustjórnun svína- og fuglaafurða. Þar segir m.a.: „Samtökin vara við afleiðingum þess að reynt verði í skyndi í þinglok að hrinda slíkum áformum í framkvæmd án nauð- synlegrar umfjöllunar allra þeirra sem málið varðar. Það eru fyrst og fremst nefndar afurðir, sem hækk- un kjarnfóðurgjalds munu bitna á, en verð þeirra er almennt miklu hærra á Islandi en gengur og gerist í nágrannalöndunum og neysla þeirra því mun minni. Það er með öllu óeðlilegt að hagsmunasamtök þeirra fram- leiðslugreina sem eru í samkeppni við nefndar afurðir skuli ætla sér að ráðskast með hagsmuni neyt- enda með því að ákveða matseðil- inn fyrir fólk. í umræðum um þessi mál upp á siðkastið virðist ein helsta réttlæting fyrir hækkuðum kjarnfóðurskatti vera niðurgreiðsl- ur á kjarnfóðri í Efnahagsbanda- lagslöndunum. Það er skoðun Neyt- endasamtakanna að slíkar niður- greiðslur kjarnfóðurs séu til þess að gera kjarnfóður frá EBE sam- keppnishæft á heimsmarkaði, en þar ríkja engar niðurgreiðslur kjarnfóðurs meðal stærstu fram- leiðandanna. Því eru slíkar niður- greiðslur engin röksemd fyrir kjarnfóðurskatti á íslandi. Hér með er skorað á alþingismenn að kynna sér þessi mál rækilega áður en gripið verður til svo alvarlegra aðgerða, sem lesa má út úr frum- varpi til laga um framleiðslu, verð- lagningu og sölu á búvörum og frumvarpi til laga um gjald af inn- fluttum fóðurblöndum og hráefni í fóðurblöndur. Enn fremur er skorað á alþing- ismenn að viðurkenna rétt neyt- enda til þess að taka þátt í að skilgreina rétt sinn varðandi bú- fjárafurðir og nytjajurtir, en þar sem innflutningsbann ríkir gagn- vart þessum afurðum eða einokun- arverslun, er með öllu óeðlilegt og óverjandi að fulltrúar framleiðslu- hagsmuna skuli einir fá að móta lagasetningar um þau mál, svo og tilgang þeirra og markmið." (KréttatilkynninK) Útimark- aður við Fríkirkjuna KVENFÉLAG Fríkirkjunnar í Reykjavík verður meó útimarkað fyrir utan kirkjuna, fostudaginn 7. júní nk. Á boóstólum verður alls konar fatnaóur, heimabakaóar kök- ur, blóm o.fl., segir í frétt frá kvenfé- laginu. Utimarkaðurinn opnar kl. 9.00 f.h. Vænst er eftir stuðningi alls Fríkirkjufólks, því að ágóðinn rennur í orgelsjóð kirkjunnar. Konur verða í kirkjunni til að taka á móti munum og kökum, fimmtu- daginn 6. júní nk. eftir kl. 17.00. GoklCoast BOX VELGIRT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.