Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
23
Þorvaröur Elíasson skólastjóri Verslunarskóla íslands.
vel og vill vinna því enn betur.
Verslun og viðskipti einskorðast
ekki við ákveðnar atvinnugreinar.
Mikilvægi verslunarmenntunar er
vissulega minna hjá læknum en
kaupmönnum, en engu að síður er
mikilvægt að rekstur sjúkrahúsa
sé á heilbrigðum viðskiptalegum
grundvelli og undir traustri fjár-
málastjórn ekki síður en rekstur
verslana. Það er hlutverk skólans
að mennta starfsfólk í öllum stétt-
um og starfsgreinum. Ekki allt
starfsfólk allra stétta, heldur
nægilegan fjölda til þess að við-
skiptaleg sjónarmið megi hvar-
vetna ná traustri fótfestu."
Einnig kom fram að á þeim 80
árum sem skólinn hefur starfað
hafi íslenskt viðskiptalíf eflst
mjög og rekstur fyrirtækja færst í
hendur þeirra sem til þess hafa
lært. Þá hafa fjölmargir stjórn-
endur verslunar-, útgerðar- og
iðnfyrirtækja hlotið menntun sína
í skólanum og stór hluti skrif-
stofufólks hefur verslunarpróf.
Ný námsgrein — versl-
unarmenntapróf
Þorvarður sagði að þróun síð-
ustu ára hefði orðið sú að mjög
fáir hefja störf í atvinnulífi strax
að loknu verslunarprófi. Flestir
halda áfram námi og að flestir
sem fara að vinna að loknu stúd-
entsprófi koma úr máladeild en
tiltölulega fáir úr hagfræðideild.
Þorvarður sagði að það væri ekki
beinlínis í takt við tilgang VÍ ef
hann sendir nær eingöngu latínu-
lært fólk út á vinnumarkaðinn.
Nú hefur verið stofnuð ný deild
við skólann sem veitir verslun-
armenntapróf. Þetta er tilraun til
að þjóna markmiðum skólans og
koma um leið til móts við óskir
nemenda um hagnýta fram-
haldsmenntun sem gefur þeim
sterka stöðu á vinnumarkaðnum
og góða tekjumöguleika.
Þorvarður sagði að það hefði
vakið ánægju sína að sjá að þeir
nemendur sem við þessa útskrift
ljúka fyrstir verslunarmennta-
prófi hafi fullan hug á að skapa
sér sjálfstæða tilveru á eigin
grunni.
„Þeir koma fram með nýtt próf
undir nýju nafni og þeir innleiða
nýja siði. Það verður nú verkefni
nemenda hinnar nýju deildar að
hefja sína eigin verslunarmennt
til vegs og virðingar í atvinnulífi
þjóðarinnar."
Síðan beindi Þorvarður orðum
sínum til þessara nemenda og
sagði: „Munið að þið sjálf eruð
framtíð þessa náms. Réttindi,
starfsmöguleikar og launakjör
þeirra sem á eftir koma munu
mótast af árangri ykkar í starfi og
til þess verður ætlast að þið stand-
ið ykkur með þeim hætti að nem-
endur með verslunarmenntaprófið
verði í framtíðinni eftirsóttari og
betur launaðir starfsmenn en þeir
sem aðra próftitla bera.“
Eðlisfræði valgrein
Við þessi skólaslit voru einnig í
fyrsta skipti brautskráðir nem-
endur sem höfðu eðlisfræði sem
valgrein. Með því að taka upp
þennan valkost var skólinn að
koma til móts við þá nemendur
sem farið hafa í háskóla þar sem
meiri menntunar er krafist í
raungreinum en Verslunarskólinn
veitir og bjóða upp á meiri
kennslu í stærðfræði og eðlis-
fræði.
„Við vonumst þó til að sú þekk-
ing sem þeir nemendur hafa, sem
nú útskrifast með hið nýja náms-
efni, nægi þeim til undirbúnings
undir nám í verkfræði og öðrum
raunvísindum," sagði Þorvarður
Elíasson. „Nemendur skulu þó
hafa það hugfast að undirbúning-
ur þeirra er talsvert veikari en
nemenda sem koma úr hreinum
stærðfræðideildum... Á móti
kemur menntun í viðskiptagrein-
um sem aðrir nemendur í verk-
fræði hafa ekki hlotið og fá ekki
þar og sem kann að verða nemend-
um héðan gott vopn í lífsbarátt-
unni þegar út úr háskólanum kem-
ur.“
Að þessu sinni voru brautskráð-
ir 112 stúdentar og 11 nemendur
með verslunarmenntapróf frá
Verslunarskóla íslands. Fjöldi
brautskráðra stúdenta er nú orð-
inn 1.886.
Islands héldu aðeins 4 áfram
námi. Þrír fóru í viðskiptafræði og
ég fór í lögræði. Þrír hættu námi
og fóru út í viðskiptalífið.
Það er óhætt að fullyrða að
fyrir lögfræðimenntunina hafði
námið í Verslunarskóla íslands
verulega kosti umfram mennta-
skólanám. Þar á ég fyrst og fremst
við það, að við höfðum lært miklu
meira í bókfærslu og bókhaldi.
Vélritun var skyldunám í háskól-
anum, en henni höfðum við þegar
lokið í Verslunarskólanum. Auk
þess var hagfræði kennd í laga-
deild, en það var aðeins brot af því
sem við höfðum lært áður. Fyrir
þá sem fóru í viðskiptadeildina er
enginn vafi að sú kennsla sem við
fengum í Verslunarskólanum hafi
auðveldað þeim námið. Auk þess
sem bókhaldsþekking kom að góð-
um notum. Enda var það svo að
þeir sem komu á eftir okkur með
stúdentspróf úr Verslunarskólan-
um fóru flestir í viðskipta- og hag-
fræði. Þá mátti líka finna í verk-
fræði og læknisfræði, en ég efast
um að Verslunarskólamenntunin
hafi komið að notum þar. En ég
gat ekki fundið það í lagadeildinni
að við værum síður undirbúnir.
Það fór svo að nemendum fjölg-
aði mjög i lærdómsdeild Verslun-
arskólans og hafa aldrei verið eins
fáir og þegar við vorum. Þessi
þróun varð þrátt fyrir að í Versl-
unarskólanum væru veruleg
skólagjöld sem ekki var krafist í
öðrum skólum."
— Haldið þið miklum tengslum
við Verslunarskólann?
„Það er nú allur gangur á því.
En vinátta okkar við skólastjór-
ana Vilhjálm Þ. Gíslason og Jón
Gíslason hélst alla tíð. Við komum
saman á 5 ára fresti og þá ber
málefni skólans á góma. Kannski
höfum við haldið frekari tengslum
við skólann af því að við vorum
fyrstir og ruddum brautina. Einn-
ig vegna þess hve fáir við vorum
og nánar tengdir en gengur og
gerist. Við þykjumst vera hluti af
sögu skólans og þróun,“ sagði
Valgarð Briem að lokum.
Ný atvinnugrein á Þíngeyri:
Framleiddir leikfangavörubílar
I'ingeyri, 28. maí.
ÞAÐ FÓR aldrei svo að okkur
tækist ekki að slá íslandsmet í ein-
hverju, ef ekki heimsmet! Tvöhundr-
uð nýir vörubílar birtast á götum
Þingeyrar næstu daga.
Nú eru hér fjórir svo þetta er
engin smá fjölgun. Hér eru á ferð-
inni dýrfirsk börn, ásamt fleirum
sem gerast ökuþórar staðarins,
enda ekki vanþörf á að fá unga
ökumenn til liðs við sig við flutn-
ing á rusli og illgresi, nú þegar
allir sem vettlingi geta valdið
standa á haus við að þrífa og
prýða lóðir sínar. Eins og fram
kemur í kynningarbréfi framleið-
enda þá er vörubíllinn dýrfirskur
„að ætt og uppruna" og hefur verið
með afbrigðum vinsæll í tugi ára.
Orðrétt birti ég hér smáglefsu
úr kynningarbrefi framleiðenda:
„Nýlega var stofnsett á Þingeyri
leikfangasmiðjan Alda hf. Fyrst í
stað mun þetta fyrirtæki eingöngu
framleiða dýrfirska vörubílinn
Dúa sem að grunni til er hannaður
af dýrfirskum strákum, en fyrir
markað er þetta leikfang hannað
af Kristjáni Gunnarssyni frá Hofi
í Dýrafirði. Bíllinn er með sér-
stökum fjaðrabúnaði sem ekki er
vitað til að hafi verið fjöldafram-
leiddur hér á landi áður, auk þess
sem hann er stýranlegur og með
sturtu. Bílarnir verða með númer-
um og skoðunarvottorð mun fylgja
hverjum bíl. Lögð er áhersla á
fjölbreytt litaval."
Svo mörg voru þau orð og undir
þetta ritar Hallgrímur Sveinsson
skólastjóri á Þingeyri og bóndi á
Hrafnseyri, en stjórn fyrirtækis-
ins skipa auk Hallgríms þeir ólaf-
ur Veturliði Þórðarson og Elís
Kjaran Friðfinnsson.
Þegar eru nokkrir bílar seldir og
auðvitað með réttum einkennis-
stöfum. Við Þingeyringar vonum
að þessi leikföng verði sem flest-
um til yndis og ánægju og haldi
yngri kynslóðinni frá ýmsu lítt
þroskandi auk þess að sjá nokkr-
um mönnum fyrir vinnu hér á
Þingeyri.
Hutda.
f
.
Nokkrir af nýju vörubflunum voru viðraðir sunnudaginn 19. maí, eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum.
ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKI
GENERAL
ELECTRIC
■SséSBSsr"'™"
Fullkomin varahluta-
og vidgerdaþjónusta
HEIMIUS- OG RAFTÆKIADEILD
HF
LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 11687 ■ 21240