Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985 r HITTUMST A ÍSAFIRÐI Á fyrsta stjórnarfundi að aftoknum fulltrúaráðsfundi á Þingvöllum sl. haust, fóru fram umræður um hvar halda skyldi næsta landsþing. Fulltrúaráðsfundurinn hafði staðið í tvo daga og voru þær konur, sem þar höfðu verið mjög ánægðar með það fyrirkomulag. Gefist hafði góður tími til formlegra fundahalda og einnig höfðu konur fengið tækifæri til að ræðast við óformlega og stofna til kynna, sem ekki hefði tekist ef hver hefði farið til síns heima að kvöldi. Vegna hinnar góðu reynslu áhugi Sjálfstaeðiskvennafélags ísafjarðar á að fá þingkonur í heimsókn og var ákveðið að landsþingið skyldi haldið á fs- afirði, þar sem aðstaða virðist öll mjög góð. Konurnar í Sjálf- stæðiskvennafélagi fsafjarðar hafa undanfarnar vikur unnið ötullega að undirbúningi landssambandsþingsins. Meðal af fundinum á Þingvöllum voru stjórnarkonur sammála um að freista þess að halda næsta landsþing utan Reykjavíkur- svæðisins. Var leitað til aðild- arfélaganna og þau hvött til þess að kanna aðstöðu til þing- halds hvert á sínum stað. Fljótlega kom í ljós mikill Landssamband sjálfstæðiskvenna Heimavist Menntaskólans á fsafirði. Þar verður 15. landsþing LS haldið. þess sem þær bjóða upp á með- an á þinginu stendur er sýning á handiðn vestfirskra kvenna, farið verður um fsafjarðardjúp með Fagranesinu og bærinn skoðaður undir leiðsögn heimamanna, þar á meðal stærsta rækjuverksmiðja landsins. Ennfremur verða kvöldvökur og veglegt lokahóf. Til þess að vekja athygli á framleiðslu hins mikilvæga sjávarútvegsbæjar, fsafjarðar, býðst konum að taka með sér heim á mjög hagstæðu verði rækjur, hörpudisk, harðfisk og hákarl. Þegar er ljóst að þátttaka í landsþinginu verður góð og auk þingfulltrúa munu sækja það margar konur af Vestfjörðum og vænta sjálfstæðiskonur góðs árangurs af þessari til- raun til þess að auka fjöl- breytni starfseminnar með landsþingshaldi með nýju sniði. V v_ Þróttmikið starf Landssam- bands sjálfstæðiskvenna 15. landsþing Landssam- bands sjájfstæðiskvenna verður haldið á ísafirði 7.—9. júní nk. Lýkur þá tveggja ára tímabili þróttmikils félagsstarfs sjálf- stæðiskvenna um allt land und- ir forystu Halldóru J. Rafnar, sem kjörin var formaður LS á 14. landsþinginu í Keflavík vor- ið 1983. Aðrar í stjórn hafa ver- ið Ásthildur Pétursdóttir, Kópa- vogi, varaformaður, Erna S. Mathiesen, Hafnarfirði, gjald- keri, Esther Guðmundsdóttir, Reykjavík, ritari, Birna Guð- jónsdóttir, Sauðárkróki, Hulda Guðbjörnsdóttir, Selfossi, Jóse- fina Gísladóttir, ísafirði, Ragnheiður Ólafsdóttir, Akra- nesi, Sólrún Jensdóttir, Reykja- vík, Svanhildur Björgvinsdóttir, Dalvík, Svava Gunnlaugsdóttir, Borgarnesi, Vigdís Pálsdóttir, Keflavík, og Þórunn Sigur- björnsdóttir, Akureyri. Einnig var kosin í stjórnina Sigrún Þorsteinsdóttir frá Vestmanna- eyjum, en hún hætti störfum eftir nokkra mánuði. í tilefni loka kjörtímabils stjórnarinnar þykir rétt að skýra hér á síðunni frá helstu atriðum í starfi LS undanfar- in tvö ár. Stjórnin setti sér það markmið í upphafi að vinna að aukinni þátttöku sjálf- stæðiskvenna í flokksstarfinu og vekja áhuga þeirra á þjóð- málum. Hefur þeirri ákvörðun verið fylgt eftir með ýmsum hætti. Að tillögu stjórnar LS skipaði miðstjórn Sjálfstæðisflokksins nefnd undir forystu Friðriks Soph- ussonar, varaformanns flokksins, til þess að kanna orsakir þess að vaxandi fjöldi kvenna tekur þátt í félags- starfi utan „gömlu stjórn- málaflokkanna". Skilaði nefndin mjög fróðlegri skýrslu með ýmsum ábend- ingum um hvernig laða megi konur til virkrar þátttöku í flokksstarfinu. Eins og ljóst er, þegar um Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna. landssamband er að ræða, búa stjórnarkonur dreift um landið og vegna ferðakostnað- ar og mikils tíma, sem fer í ferðir, er ekki fært að halda stjórnarfundi mjög oft. í upp- hafi kjörtímabils fráfarandi stjórnar var ákveðið að skipa sex manna framkvæmda- stjórn og hefur þessi tilhögun tekist mjög vel. Stjórnar- fundir hafa verið 7 á kjörtímabilinu, en fram- kvæmdastjórnin hefur hist 31 sinni. Af samkomum, sem LS hélt eða átti aðild að á kjörtíma- bili fráfarandi stjórnar má nefna ráðstefnu, sem haldin var í Valhöll við Háa- leitisbraut í mars 1984 í sam- vinnu við Hvöt, félag sjálf- stæðiskvenna í Reykjavík. Þar var fjallað um efnið Frið- ur — frelsí — mannréttindi. Voru mörg fróðleg og afchygl- isverð erindi flutt á ráð- stefnunni og þau siðan gefin út í myndarlegum bæklingi. Fráfárandí stjórr tók upp þaö nymæli að haida íull- trúaráðsfund i Valhöli á Þing- völlum haustið 1984. Sam- kvæmt lögum landssam- bandsins er gert ráð fyrir slíkum fundi það ár sem landsþing er ekki haldið, en þetta er í fyrsta sinn, sem það atriði laganna kom til fram- kvæmda. Á fundinum, þar sem sæti áttu um 50 fulltrúar, voru einkum til umræðu fimm málaflokkar og voru samþykktar ályktanir um þá, sem síðan voru prentaðar í fréttabréfi LS og var það tölublað fréttabréfsins gefið út í 5 þús. eintökum. Þeir málaflokkar, sem fulltrúa- ráðsfundurinn ályktaði um, voru: atvinnumál, efna- hagsmál, fjölskyldu- og jafn- réttismál, fræðslu- og menntamál og utanríkismál. í mars sl. hélt LS fund í samvinnu við Hvöt í Reykja- vík og fjallaði hann um at- vinnumál. Á kjörtimabilinu hefur LS tekið þátt í starfi Friðar- hreyfingar isl. kvenna og Framkvæmdanefnd um iaunamái kvenna. Ennfremur tekur LS þátt i undirbúningi loka kvennaáratugar Samein- uðu þjóðanna. LS á ekki formlega aðild að neinum erlendum kvenna- samtökum en haft hefur verið óformlega samband við þá flokka á Norðurlöndum, sem hafa líka stefnu og Sjálfstæð- isflokkurinn og skipst á gögn- um og upplýsingum um starf kvenna innan flokkanna. Fulltrúar LS hafa sótt þing hægri kvenna á Norðurlönd- um og ráðstefnu um friðar- og öryggismál, hvort tveggja í Finnlandi. I vetur var tekin upp sú ný- breytni hér í Reykjavík á veg- um Hvatar og LS að hafa opið hús í Valhöll við Háaleitis- braut eitt hádegi í mánuði. Komu konur þangað, snæddu léttan hádegisverð og skiptust á skoðunum. Aðildarfélög LS eru 17 tals- ins og eru félagar á fjórða þúsund. LS hexur skrifstofn i Valhöd við Háaleitisbrauí. og hefur Anna Borg gegnt störf- um framkvæmdastjóra sam- bandsins þetia kjörtímabii. Hér aö t'raman var vikið aö fréttabréfi LS, en það kom út fjórum sinnum á kjörtímabil- inu undir ritstjóm Ragnheið- ar Ólafsdóttur. Annað af út- gáfumálum er það að segja, að eftir 14. landsþingið voru gefin út þingtíðindi og sá Esther Guðmundsdóttir um útgáfuna. Loks er fyrirhuguð útgáfa bókar í tilefni loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna og verður hún gefin út í samvinnu við Hvöt. Rit- stjóri bókarinnar er Bessí Jó- hannsdóttir. Að undanförnu hefur verið unnið að undirbúningi 15. landsþings LS, en hann hefur mætt mest á sjálfstæðiskon- um á ísafirði þar sem þingið verður haldið, eins og fram kemur annars staðar á síðu þessari. J Umsjón: Sólrún Jensdóttir, Björg Einarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.