Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 56
SEAÐFESTIÁNSTRAUST
OPINN 10.00-00.30
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Gekk níunda
unganum í móðurstað
Það gerist margt við Tjörnina á góðviðrisdögum. Þessi unga
Reykjavíkurmær heldur á andarunga sem lenti í ýmsu nýlega,
en eftir sólarhring var hann aftur kominn heilu og höldnu til
félaga sinna á Tjörninni. Sagt er nánar frá ævintýrum ungans
á bls. 4. Morgunblmöi8/Bj»rni.
Húftryggingar
hækka um 68,7 %
— og sjálfsábyrgðin um 91—119%
MEÐALIÐGJÖLD kaskótrygginga hækka um 68,7 % á gjaiddögum í ár. Jafn-
framt hækkar sjálfsábyrgð tryggingataka um 91—109%. Tryggingaeftirlitið
hcfur fallist á niðurstöður Samstarfsnefndar íslensku bifreiðatryggingafélag-
anna, sem ákvað þessar hækkanir, að því er segir í fréttatilkynningu frá
ncfndinni.
{ tilkynningunni segir að síðasta
ár hafi almennt verið slæmt ár í
bifreiðatryggingum. „Iðgjöld
ábyrgðartrygginga ökutækja
hækkuðu aðeins um 10% og iðgjöld
kaskótrygginga um 20%. Hins veg-
ar hækkaði almennt verðlag á ár-
inu um 25—30% varlega áætlað.
En það sem verra var, almennt
verðlag á tjónum hækkaði meira,
eða á bilinu 35—45%. Jafnframt
fjölgaði tjónum og þau urðu alvar-
legri. Afleiðingin varð mjög erfiður
rekstur bifreiðatrygginga al-
mennt,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir ennfremur að eins og
undanfarin ár hafi tryggingafræð-
ingur reiknað út sameiginlega
stöðu kaskótrygginga bifreiða fyrir
árið 1984 og 1985. Þau gögn hafi
verið send Tryggingaeftirlitinu til
athugunar. Með tilliti til þessa „svo
og eins árs áætlun fram í tímann
til gjalddaga þessarar trygginga-
greinar á árinu 1986, þar sem gera
má ráð fyrir a.m.k. 30% hækkun
tjónakostnaðar, má Ijóst vera að
hækkunarþörfin í þessari trygg-
ingagrein er rnikil," segir í tilkynn-
ingunni.
Samstarfsnefndin sendi Trygg-
ingaeftirlitinu bréf 31. maí sl. þar
sem tilkynnt var um hækkunina.
Nokkrar hliðarráðstafanir voru
gerðar jafnhliða hækkuninni, aðal-
lega vegna endurskoðunar á ið-
gjaldaskrám, segir þar. „Nokkrir
áhættuflokkar voru hækkaðir eða
lækkaðir innbyrðis vegna mismun-
andi tjónareynslu (mesta hækkun
umfram meðaltal var 10% og
mesta lækkun á sama hátt 10%),
breyting var gerð á aldursflokkum
og nokkrar tilfærslur voru gerðar á
bifreiðum í 1. áhættuflokki, sem
byggðist á varahlutaverði þeirra
bifreiðategunda. Allar þessar
breytingar voru byggðar á töl-
fræðilegum niðurstöðum," segir í
fréttatilkynningu Samstarfsnefnd-
ar íslensku bifreiðatryggingafélag-
anna. _
Kröfur BSRB:
Kaupmáttar-
trygging og
meiri laun
Bændur vilja stöðva
landbúnaðar frum varpið
„Hvet alls ekki til þess að afgreiðslu sé frestað,“ segir forsætisráðherra
MISMIKILLAR bjartsýni gætir nú í
herbúðum stjórnarliða, hvort frum-
varpið um ný framleiðsluráðslög
verður að lögum á þessu þingi. Hall-
dór Blöndal, einn nefndarmanna í
landbúnaðarnefnd neðri deildar, tel-
ur að svo geti orðið, en Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra seg-
ist ekki vera bjartsýnn, þar sem
bændur hafi úskað eftir rýmri tíma
til þess að kynna sér frumvarpið og
koma fram með breytingartillögur.
Hann segist þó engan veginn vera
talsmaður þess að afgreiðslu frum-
varpsins verði frestað.
landbúnaðinum út úr þeirri blind-
götu, sem hann stefnir alltaf
lengra inn í.“ Steingrímur sagðist
ekki vera bjartsýnn á að frumvarp-
ið yrði að lögum á þessu þingi, því
bændur vildu gjarnan fá að fjalla
betur um málið og ræða það sín á
milli. Hann sagði að fulltrúar
Stéttarsambands bænda hefðu
gengið á fund sinn og Þorsteins
Pálssonar í fyrradag, og lýst þeim
vilja sínum að þeir vildu fá ráðrúm
til þess að kynna málið meðal sinna
manna og fjalla betur um það.
Forsætisráðherra sagðist í sjálfu
sér ekki telja ósk bændanna neitt
óeðlilega, en á það bæri einnig að
líta að svo gæti ekki fram haldið
eins og nú væri, að mjólkurfram-
leiðsla ykist og bændur hugsuðu
einungis um eigið skinn, en ekki
fjöldann. „Menn virðast bara ekki
taka sönsum, margir hverjir, held-
ur setja á fleiri og fleiri kýr og
meðan svo er, þá verður að taka
mjög hart á því. Ég hvet því alls
ekki til þess að afgreiðslu þessa
frumvarps verði frestað," sagði for-
sætisráðherra.
Viðræður VSÍ og landssambanda ASÍ:
B8RB hefur sett fram hugmyndir um
nýjan kjarasamning, sem bandalagió
vill gera við ríkið. Gerir stjórn og
samninganefnd BSRB ráð fyrir að
samningurinn gildi frá 1. júní sl. til
31. ágúst á næsta ári. Tillaga um þetta
var samþykkt samhljóða á fundi
stjórnar og samninganefndar BSRB í
gær.
Tillögurnar eru samhljóða þeim
hugmyndum, sem ASÍ setti fram í
viðræðum sínum við Vinnuveit-
endasamband Islands á mánudag-
inn. Þannig gera tillögur BSRB ráð
fyrir „rauðum strikum", einskonar
vísitölubindingu, opnunarákvæð-
um, gengistryggingu, að launakerfi
verði fært til samræmis við launa-
stiga BHM skv. úrskurði kjara-
dóms, meiri launahækkunum en
felast í nýlegum tillögum VSl og að
sérkjarasamningar verði gerðir
jafnhliða viðræðum um aðalkjara-
samning.
Tillögur BSRB og ASÍ eru birtar í
heild á bls. 30 í blaðinu í dag.
Næstu tveir dagar skera úr
um áframhald viðræðnanna
— segir framkvæmdastjóri VSÍ — Landssambandi vörubflstjóra boðið að ganga í VSÍ
Halldór Blöndal sagði ennfrem-
ur: „Landbúnaðarnefnd hefur setið
á löngum og ströngum fundum,
með sérfræðingum sem hún hefur
kallað fyrir sig, og nefndin er nú
með athugasemdir þessara aðila til
athugunar.“ Hann sagðist halda að
það væri almenn skoðun meðal
bænda að sú grundvallarbreyting
sem lögð væri til með frumvarpinu
væri til bóta, þó einstök atriði
crkuðu tvímælis, og að áherslu-
munur væri á milli stjórnarflokk-
anna um einstök atriði. „Ég vil
mega trúa því að við leysum þau
mál, þannig að þetta frumvarp nái
fram að ganga á þessu þingi,“ sagði
Halldór. Hann sagði jafnframt að
þessi mál myndu skýrast í þessari
viku.
„Ég hefði kosið að framleiðslu-
ráðslögin færu í gegn á þessu
þingi;“ sagði Steingrímur Her-
mannsson í gær, „því ég held að
það sé ákaflega tímabært að koma
„ÞAÐ skýrist á næstu tveimur dög-
um eða svo hvert framhaldið verður
í þessum viðræðum," sagði Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands, í
samtali við blm. Morgunblaðsins í
gær eftir fundi samninganefndar
VSÍ með fulltrúum tveggja lands
samhanda innan Alþýðusambands-
ins.
Framkvæmdastjóm VSÍ ítrekaði
á fundi sínum í gær að ekki kæmi
til greina að semja um sjálfvirka
vísitölubindingu launa, eins og Al-
þýðusambandið hefur gert kröfu
um, síðast í skjalinu „sameiginleg
samningsatriði", sem lagt var fram
í fyrradag. „Við teljum þá kröfu
ASÍ óaðgengilega en við erum stað-
ráðnir í að reyna til þrautar að
finna lausn á þeim vanda, sem
blasir við okkur," sagði Magnús
Gunnarsson.
Samninganefnd VSÍ fékk í gær
endurnýjað umboð til að halda
áfram viðræðum við aðildarfélög
og -sambönd ASl á næstu dögum.
Nefndarmenn VSl ræddu í gær við
fulltrúa Sambands byggingamanna
án þess að ákveðin niðurstaða feng-
ist „nema sú“, sagði Magnús, „að
við viljum reyna að finna heildar-
lausn á vandanum". Síðar í gær var
fundur með fulltrúum Landssam-
bands vörubifreiðastjóra — þeim
fundi lauk með því að fulltrúi
Verktakasambands Islands í samn-
inganefnd atvinnurekenda bauð
vörubílstjórunum að ganga í sam-
bandið enda væru þeir í raun ekki
annað en sjálfstæðir verktakar.
Fyrir hádegi í dag hitta samn-
ingamenn VSl fulltrúa Málm- og
skipasmíðasambandsins og full-
trúa Landssambands verslunar-
manna. Eftir hádegið verða fundir
með Rafiðnaðarsambandinu kl. 13
og með Verkamannasambandi fs-
lands kl. 14. Á morgun hitta samn-
ingamenn VSl forystusveit AI-
þýðusambandsins og formenn
landssambanda ASÍ.