Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985 llndankeppni HM í knattspyrnu: Tekst okkur að vinna Spánverja í næstu viku? LANDSLEIKUR íslands og Spánar í 7. riöli heimsmeist- arakeppninnar í knatt- spyrnu veröur á Laugardals- leikvangi miövikudaginn 12. júní kl. 20.00. Daginn áöur, 11. júní, fer fram landsleikur, sem er liö- ur í Evrópukeppni undir 21 árs Ísland-Spánn á Kópa- vogsvelli og hefst hann kl. 20.00. Bæöi landsliö Spánar koma til íslands 9. júní nk. og munu dvelja á Hótel Loftleiö- um og fara eftir landsleikinn 12. júní. Mikill áhugi er ríkjandi fyrir iandsieiknum, ekki síst eftir mjög góöa frammistööu ís- lenska landsliösins gegn Skotum á dögunum og telja Spánverjar leikinn afar þýö- ingarmikinn, sem dæmi um áhuga þeirra koma til lands- ins meö liðinu 50 fréttamenn auk spánskra gesta. Þess skal getiö aö landsliö íslands undir 21 árs hefur staöiö sig mjög vel þaö sem af er þessari keppni. Skotar hafa þegar lokiö keppni og hlotiö 3 stig og eru úr leik, Spánverjar eru einnig meö 3 stig og íslands meö 2 stig, en þessi liö eiga eftir aö leika saman heima og heiman. Forsala aögöngumiöa hefst fimmtudaginn 6. júní og veröur í bifreiö á Lækjartorgi, í versluninni Óöni á Akranesi, Sportvík í Keflavík og á Akur- eyri hjá Feröaskrifstofu Akur- eyrar. Laugardaginn 12. júní veröur miöasala á Lækjar- torgi og Laugardalsvelli frá kl. 10.00 f.h. Dómari í A-landsleik ís- lands og Spánar er Andre Daina frá Sviss en hann dæmdi leik Liverpool og Ju- ventus 8. júní sl. í Brussel þar sem hin óhugnanlegi harm- leikur átti sér staö. Dómari í leiknum undir 21 árs veröur einnig frá Sviss, Georges Sandoz, og línu- veröir í báöum leikjum Phil- eppe Mercier og Werner Li- ebi. Eftirlitsmaöur UEFA og FIFA á þessum landsleikjum veröur Paul Hyldgaard frá Danmörku. Undirbúningur fyrir þenn- an leik er í fullum gangi og er • Ragnar Margeirsson ÍBK hefur leikiö mjög vel meö ÍBK, ekki er Stefnt aö því aö vanda til ólíklegt aö hann komi í staö Péturs Péturssonar í framlínuna. hans eins og kostur er. Spánverjar verða erfiðari en Skotar — segir Teitur Þóröarson fyrirliði Leikurinn heima gegn Spén- verjum veröur erfiður. Erfiðari en leikurinn gegn Skotum. Spán- verjar leika allt öðru vísi knatt- spyrnu; þeir eru leiknari, fljótari é sér og spila léttan bolta. Þetta gerir okkur erfitt fyrir. En ég er samt nokkuð bjartsýnn og hræö- ist þá ekki, sagöi Teitur Þórðar- son fyrirliði íslenska landsliösins er Morgunblaöiö ræddi við hann í gærdag og innti hann eftir lands- leiknum viö Spánverja sem fram fer í næstu viku. „Þetta er spurning um andlegt hugarfar, vilja og kraft hjá okkur. Viö lékum mjög vel gegn Skotum og eigum aö geta staöiö okkur jafnvel gegn Spánverjum takist okkur vel upp.“ — Áttu von á því aö liöinu frá síöasta leik veröi breytt? Nei, þaö væri einkennilegt ef liö- inu yröi breytt eftir svoleiöis leik. Ég á ekki von á því aö nokkur breyting veröi. — Hvenær leikur þú þinn síð- asta leik í Sviss? Ég á aö leika minn síöasta leik í Sviss 19 júni. En Öster er aö reyna aö fá mig lausan svo aö ég geti leikiö meö þeim sama dag í úrslita- leik sænsku bikarkeppninnar og ég vona aö ég fái leyfi til aö leika þann leik Þaö yröi óskaplega gaman aö fá aö taka þátt í honum. Þaö veröur spennandi fyrir mig aö snúa aftur til Svíþjóöar og líka skemmtilegt að leika aftur með Öster. En þaö veröur allt annaö en létt. Þaö gekk svo vel hjá mér síö- ast meö liðinu aö fólkiö krefst þess án efa aö ég standi mig jafnvel. Liöi Öster hefur gengiö mjög vel aö undanförnu, þaö eru aöeins þrir leikmenn eftir i liöinu sem léku með mér svo miklar breytingar hafa átt sér staö, sagöi Teitur Þórðarson sem snýr aftur til Sví- þjóðar eftir aö hafa dvaliö fjögur ár i Frakklandi og fimm mánuöi i Sviss. — ÞR. • Teitur Þóróarson ásamt fjölskyldu sinni. Nú flytja þau sig um set og flytjast til Svíþjóöar aftur. En þar mun Teitur leika meö öster. • Pétur Pétursson er í leíkbanni og veróur því ekki meö gegn Spénverjum ( næstu viku. Pétur ekki meö Knattspyrnusambandi Is- lands hefur borist skeyti þess efnis frá knattspyrnusam- bandi Evrópu aó Pétur Pét- ursson sé kominn í leikbann og geti því ekki leikió meö í undankeppní HM á móti Spánverjum í næstu viku. Pét- ur fékk gult spjald í leiknum gegn Wales í fyrrahaust og gult spjald í leiknum gegn Skotum á Laugardalsvellinum í maí síöastliönum. Þaö er mjög bagalegt aö Pétur skuli ekki geta leikiö meö gegn Spánverjum. Pótur var einn besti maöur íslenska landsliösins gegn Skotum. Sí- vinnandi, haföi mikla yfirferö og ógnaöi mjög vel. Þá er Pétur einn af þessum leikmönnum • Siguröur Jónsson á enn viö meiösl aö stríöa og verö- ur varla oröinn góöur fyrir leikinn á mióvikudag. sem ávallt skila mjög góöum leik þegar um landsleik er aö ræöa. Þá er líka nokkuö víst aö Siguröur Jónsson leiki ekki meö. Hann er enn meiddur og þrátt fyrir aö hann hafi veriö í meðferö hjá læknum er hann enn þaö slæmur í ökklanum aö litlar likur eru taldar vera á þvi aö hann veröi oröinn nægilega góöur. Þaö er því mikil blóö- taka sem landsliðshópurinn hefur oröiö fyrir aö missa þessa tvo góöu leikmenn. — ÞR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.