Morgunblaðið - 05.06.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
7
Sinfóníuhljómsveit íslands:
í tónleikaferð
um Austurland
Heldur tónleika á
Kjarvalsstöðum
BRYNJA Guttormsdóttir, pí-
anóleikari, heldur tónleika á
Kjarvalsstöóum fóstudaginn 7.
júní næstkomandi og hefjast
þeir klukkan 21.00. Á Kjar-
valsstöðum stendur nú yfir
sýningin „Kæra Reykjavík“ og
myndar hún umhverfi tónleik-
anna. Á efnisskránni eru
„Þrjár Gnossiennes“ eftir Erik
Satie, Fantasía í C-dúr opus 17
eftir Robert Schumann og
„Myndir á sýningu“ eftir M.
Moussorgsky.
Brynja Guttormsdóttir er
fædd í Reykjavík. Hún stund-
aði nám í einkatímum hjá
Helgu Laxness og Jórunni Við-
ar. í Tónlistarskólanum í
Reykjavík voru kennarar henn-
ar Rögnvaldur Sigurjónsson og
Árni Kristjánsson og lauk hún
píanókennaraprófi frá skólan-
um vorið 1969.
Árið 1970 hóf Brynja nám
við Tónlistarháskólann í
Stokkhólmi og lauk þaðan
prófi vorið 1973. Hún stundaði
einkanám hjá prófessor Gunn-
ar Hallhagen 1976—78.
Brynja hefur stundað
kennslu um árabil, lengst af
hjá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar.
Brynja Guttormsdóttir
Varði doktorsritgerð við land-
búnaðarháskólann í Ultuna
Landsmálafélagið
Vörðun
Fundur um
stjórnmála-
ástandið
Landsmálafélagið Vörður held-
ur fund um stjórnmálaástandið f
þinglok, fimmtudaginn 6. júní kl.
20.30, i Sjálfstæðishúsinu Valhöll
við Háaleitisbraut. Frummælend-
ur verða: Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisfiokksins, og
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisfiokksins. Sjálfstæðis-
fólk er hvatt til að fjölmenna.
Róbert Hlöðversson
NÝLEGA VARÐI Róbert Hlöðvers-
son doktorsritgerð sína „Methods for
estimating and preventing storage
losses in moist hay“, við landbúnað-
arháskólann í llltuna, Svíþjóð.
Ritgerðin byggir á fjögurra ára
rannsóknum við háskólann, og
fjallar um skemmdir í heyi við
geymslu, aðferðir til að mæla
skemmdirnar og leiðir til að hindra
þær.
I ljós kom að helstu skaðvaldarn-
ir eru ýmislegir myglusveppir. Þeir
breyta efnainnihaldi fóðursins
þannig, að hlutur verðmætustu
næringarefnanna minnkar, en
í DAG, miðvikudaginn 5. júní,
leggur Sinfóníuhljómsveit íslands
upp í tónleikafor til Áusturlands og
mun leika á eftirtöldum stöðum:
Miðvikudaginn 5. júní á Egils-
stöðum kl. 21.00, fimmtudaginn
6. júní á Fáskrúðsfirði kl. 21.00,
föstudaginn 7. júní á Seyðisfirði
kl. 21.00, laugardaginn 8. júní á
Vopnafirði kl. 17.00, sunnudag-
inn 9. júní á Neskaupstað kl.
15.30, sunnudaginn 9. júní á
Eskifirði kl. 21.00, mánudaginn
10. júní á Höfn, Hornafirði kl.
21.00.
Á efnisskránni er Egmont for-
leikurinn eftir Beethoven, 5
hlutfall torleystari efna, svo sem
trénis, eykst að sama skapi. 1 öðru
lagi myndast í fóðrinu eiturefni
sem geta valdið heilsutjóni á
mönnum og búpeningi. 1 þriðja lagi
étur búpeningur einnig minna af
skemmdu fóðri, þannig að arðsemi
dýranna minnkar.
Höfundur ritgerðarinnar er
fæddur 30. október 1950. Foreldrar
nans eru Hlöðver Kristjánsson og
Ester Jónsdóttir. Róbert lauk stúd-
entsprófi frá M.R. 1973 og B.Sc.
prófi frá búvísindadeild Bænda-
skólans á Hvanneyri 1977. Hann er
kvæntur Ingibjörgu Garðarsdóttur
og eiga þau þrjú börn.
þættir úr L’Arlesienne svítum
eftir Bizet, óperuaría eftir Verdi,
lög úr ýmsum óperettum sungin
og leikin, svo og íslensk sönglög.
Hljómsveitarstjóri í þessari
ferð er Karolos Trikolidis, en
hann er af grískum ættum,
fæddur í Austurríki 1947. Hann
stundaði nám m.a. við Mozarte-
um í Salzburg og við tónlistar-
háskólann í Vín, lagði sig eftir
fiðluleik og tónsmíðum og lék
auk þess á ásláttarhljóðfæri.
Tvítugur að aldri þreytti hann
frumraun sína sem hljómsveit-
arstjóri í Aþenu og helgaði sig
því starfi eftir það. Meðal kenn-
ara hans í hljómsveitarstjórn
voru Hans Swarowsky og Bruno
Maderna, en einnig hefur hann
starfað með Sir Adrian Boult,
Herbert von Karajan og Leonard
Bernstein. Hann hefur unnið
ýmis eftirsótt verðlaun og
stjórnað tónleikum og óperusýn-
ingum í mörgum löndum austan
hafs og vestan. Hann er nú fast-
ur stjórnandi við ýmis óperuhús
í Þýskalandi og ennfremur við
Ríkisóperuna í Aþenu og við
grísku útvarpshljómsveitina.
Trikolidis stjórnaði Sí á tónleik-
um 15. nóvember sl. og einnig 18.
apríl þegar hann hljóp í skarðið
fyrir Jean-Pierre Jacquillat með
stuttum fyrirvara.
Einsöngvarar verða óperu-
söngvararnir ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Sigurður
Björnsson en þau þarf vart að
kynna nánar.
* (FrétUlilkynnmg)
Fyrir meðlimi Norræna féiagsins
2. SERTILBOÐ
Osló - Flug og bíll í viku.
Verð frá kr. 13.961.*
Flug, bíll og sumarhús í viku
verð frá kr. 14.941.-*
Brottför: 11/6 (uppselt), 25/6, 16/7 og örfá
sæti 6/8.
Gautaborg - Flug og bíll í viku.
Verð frá kr. 14.446.-* Flug, bíll og sumarhús
í viku verð frá kr. 16.451.-* Brottför: 13/8.
* Verð pr. marm miðað við 4 í bíl og sumarhúsi.
Flugvallarskattur er ekki innifalirm.
Barnaafsláttur: Osló: Kr. 6.000.- fyrir 2-11
ára. Gautaborg: Kr. 6.500.- fyrir 2-11 ára.
FLUG OG BILL
FRÁ KR. 12.746.-
Ferðaskrifstofan Úrval býður félögum í
Norræna félaginu sérlega ódýra og heppilega
ferðamöguleika til tveggja borga á Norður-
löndum, - Oslóar og Gautaborgar.
1. MINIPAKKI
Flug út og heim ásamt bílaleigubíl í 3 daga.
Osló - Verð frá kr. 12.746.-*
Brottför: 25/6, 5/7 og 11/7.
Gautaborg - Verð frá kr. 13.763.-*
Brottför: 13/8.
* Verð pr. mann miðað við 4 í bíl.
3. ÞU RÆÐUR
Osló og Gautaborg þurfa ekki að vera annað
en upphafsstaðir skemmtilegrar sumardvalar.
Bílaleigubíll opnar leiðir vítt og breitt um
Norðurlöndin, á milli tjaldstæoa, sumarhúsa
eða hótela í Noregi, Svíþjóð eða Danmörku.
Þar að auki verða farnar sérstakar 12 og 16
daga rútuferðir frá Osló um Norðurlöndin
11/6, 25/6, 16/7 og 6/8.
Og svo er sr. Ágúst Sigurðsson byrjaður
að lóðsa landa sína um Tslendingaslóðir í
Keben. Hann verður á ferðinni alla þriðjudaga
í sumar.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Norræna
Fl&agið
Ferðaskrifstofan ÚrvalviðAusturvöll, sími (91)-26900.