Morgunblaðið - 05.06.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
27
NÝTT HEIMSMET
Franski brokkhesturinn Minou du Donjon setti nýtt heimsmet í ensku mfluhlaupi í Solvalla í SvíþjóA í síðustu
viku. Þótti þetta frækilega gert, enda vakti atburður þessi mikla athygli.
Ekkert
vodka hjá
Gorbatchev
NÝ LÖG um notkun alkóhóls tóku
gildi í Sovétríkjunum nú um mán-
aðamótin. Góðlátlegt grín var gert
að því, að Willy Brandt, formaður
vestur-þýskra jafnaðarmanna, heim-
sótti Sovétríkin síðast I maí og sagt
var að hann vildi fara þangað áður
en nýju lögin tækju gildi.
En við komu hans til Moskvu
vakti það athygli manna að engir
sterkir drykkir voru veittir við
móttökuna á flugvellinum og
vodkað vantaði alveg í kvöldverð-
arboði sem Michail Gorbatchev,
leiðtogi landsins, hélt fyrir
Brandt. Þar var aðeins boðið vín
frá Georgíu-ríki.
Pótboltaáhugamenn í V-Evrópu
tóku eftir auglýsingum á Gorb-
atchev-vodka á vestur-þýskum
fótboltavöllum skömmu eftir að
Gorbatchev tók við völdum í Sov-
étríkjunum. Talið var að um nýtt
vodka væri að ræða. Nánari könn-
un leiddi í ljós að vodkað hafði
verið þó nokkuð lengi á markaðn-
um en fáir höfðu tekið eftir því
fyrr en Michail Gorbatchev tók við
forystu í Kreml. —»b
SALT n til athugunar
hjá Bandaríkjastjórn
Akvöröun um framtíð samningsins tekin í vikunni
Waahington, 4. júnf. AP.
RONALD Reagan forseti og Þjóðar-
öryggisráð Bandaríkjanna höfðu það
til athugunar í gær, hvort Bandarík-
in ættu að halda fast við og fram-
lengja SALT II-samninginn, en hann
hefur aldrei verið staðfestur. Búizt
er við, að ákvörðun verði tekin í
málinu í þessari viku.
Fyrir þennan fund var talið, að
mikill ágreiningur væri milli
þeirra George Shultz utanríkis-
ráðherra og Caspars Weinberger
varnarmálaáðherra varðandi
þessa ákvörðun og þær víðtæku
afleiðingar, sem hún kann að hafa
í för með sér.
Larry Speakes, talsmaður for-
setans, sagði í gær, að forsetinn
nhefði kynnt sér“ drög að endur-
skoðun á samningnum, sem samin
hefðu verið af starfsmönnum
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins. Gildistími samningsins renn-
ur út 31. desember nk.
Áformað er, að „Alaska“, nýj-
asti kafbátur Bandaríkjamanna af
Trident-gerð, byrji reynslusigl-
ingar nú í haust. Þessi kafbátur á
að geta flutt 24 eldflaugar, sem
draga milli heimsálfa, og þegar
hann verður tekinn í notkun,
verða Bandaríkjamenn þannig
komnir upp fyrir þau mörk, sem
gert er ráð fyrir í samningnum
varðandi langdrægar eldflaugar.
SALT II-samningurinn var gerður
í forsetatíð Jimmys Carter, en var
hins vegar aldrei staðfestur.
Ítalía:
Breskir ferðamenn afpanta
MíUnó, ÍUIfu, 40. júní. AP.
ÞÚSUNDIR Breta hafa afpantað sumarleyfisferðir til Ítalíu eftir að þar fór
að gæta andúðar í garð breskra ferðamanna í kjölfar atburðarins í Briissel í
síðustu viku, að því er ferðamálayfirvöld sögðu í dag.
Carlo Mile, forstjóri ferðamála-
ráðs Ítalíu, sagði, að ferðamennirn-
ir og margar breskar ferðaskrif-
stofur óttuðust hefndaraðgerðir af
hálfu ítala vegna harmleiksins á
fþróttaleikvanginum í Brússel.
f síðustu viku voru breskir áætl-
unarbílar og einkabílar skemmdir f
ítölskum strandbæjum, sprengju
var varpað í átt að breskum skóla f
Mílanó og nokkrir Bretar urðu fyrir
áreitni í borgum á Norður-Ítalíu.
Dario Valle, formaður sambands
hóteleigenda á ftölsku Rivierunni,
uppáhaldsstað breskra ferða-
manna, kvað afpantanirnar „alls
staðar verulegar".
Á árinu 1984 komu 1,4 milljónir
breskra ferðamanna til Ítalíu og
var það um 100 þúsundum fleira en
árið áður.
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Dfsarfell ...... 17/6
Dísarfell ....... 1/7
Dísarfell ....... 15/7
ROTTERDAM:
Dísarfell ....... 18/6
Disarfell ....... 2/7
Dísarfell ....... 16/7
ANTWERPEN:
Dísarfell ....... 19/6
Dísarfell ....... 3/7
Dísarfell ....... 17/7
HAMBORG:
Dísarfell ....... 7/6
Dísarfell ...... 21/6
Dísarfell ....... 5/7
Dísarfell ....... 19/7
HELSINKI:
Hvassafell ...... 15/6
LARVÍK:
Jan ............. 24/6
Jan ............. 8/7
Jan ............. 22/7
GAUTABORG:
Jan ............. 11/6
Jan ............. 25/6
Jan ............. 9/7
Jan ............. 23/7
KAUPMANNAHÖFN:
Jan ............. 12/6
Jan ............. 26/6
Jan ............. 10/7
Jan ............. 24/7
SVENDBORG:
Jan ............. 13/6
Jan ............. 27/6
Jan ............. 11/7
Jan ............. 25/7
ÁRHUS:
Jan ............. 13/6
Jan ............. 27/6
Jan ............. 11/7
Jan .............25/7
GLOUCESTER,
MASS.:
Jökulfell ....... 19/6
NEW YORK:
Jökulfell ....... 21/6
PORTSMOUTH:
Jökulfell ....... 22/6
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101