Morgunblaðið - 05.06.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
53
• Eitt hættulegasta fœri islands (gær. Siguróli Kristjánsson (lengst til vinstri) skallar að marki af stuttu
f»ri, en markvörðurinn varöi. Mofgunwaöið/joiíus
Sanngjam sigur
íra á íslendingum
„Það tðk okkur alveg fyrri hélf-
leikinn að laga okkur aö aðstaaó-
um — að rokinu, en strákarnir
voru góöir í seinni hálfleiknum og
mér fannst aöeins spurningin
hvenær við nmðum að skora og
sigurinn var sanngjarn aö minu
mati,“ sagði Liam Tuohy, þjálfari
írska landsliðsins 18 ára og yngri,
eftir að það haföi sigraö íslenska
landsliöíð, 2:1, á Kópavogsvelli í
gær í Evrópukeppninni. írska lið-
ið var betra í leiknum og verð-
skuldaði sigurinn.
irar og Skotar eru nú efstir (riðl-
inum með fimm stig. Skotar þó
ofar á hagstæöari markatölu. Hafa
þrjú mörk í plús en irar tvö. irar
unnu Englendinga, 1:0, heima og
geröu jafntefli, 1:1, í Skotlandi.
Þaö var allt annaö aö sjá til ís-
lenska liösins nú en í leiknum gegn
Skotum í Laugardalnum á dögun-
um er Skotar unnu 2:0. Þá var liðið
einsog höfuölaus her, liösheildin
mjög slök, en nú var góö barátta
fyrir hendi, spil gott á köflum og
heildarbragurinn allur annar.
Fyrri hálfleikur var heldur tíð-
indalítill en Irar náöu síðan góöum
leikkafla í upphafi þess síöari. Þeir
sóttu mun meira en íslenski
markvöröurinn, Þorsteinn Gunn-
arsson úr Vestmannaeyjum, var
góöur og varöi nokkrum sinnum
vel. islendingar komu síöan meira
inn í leikinn eftir fyrsta stundar-
fjóröung hálfleiksins og á 25. mín.
náöi ísland forystunni. Atli Helga-
son úr Þrótti fékk góöa sendingu
inn á vítateig vinstra megin og
skoraöi meö viöstööulausu skoti
meö vinstri fæti. íslendingar fögn-
uöu ákaft en sá fögnuöur stóö ekki
lengi . . .
... í r a r jöfnuöu nefnilega
strax í næstu sókn. Þeir fengu
aukaspyrnu langt úti á velli — löng
sending kom inn í teig og risinn
Niall Quinn skoraöi meö hörku-
skalla viö fjærstöngina. Markvörö-
urinn heföi átt aö vera búinn aö
hiröa fyrirgjöfina áöur en Quinn
náöi aö skalla.
írar sóttu nokkuö stíft eftir þetta
— Eamonn Dolan (númer 9) átti
þrumuskot aö marki eftir einleik en
Þorsteinn varöi mjög vel í horn,
Quinn komst í dauöafæri inni á
teig en Þorsteinn varöi aftur af
snilld en hann réö ekki viö skot
Dolan á 84. mín. Hann fókk send-
ingu inn á teig, sneri Elías Friö-
riksson snöggt af sór meö bol-
vindu og skoraði óverjandi í fjær-
horniö. Sigurinn var í höfn hjá írum
og Dolan fagnaöi af innlifun. Litlu
munaöi aö Dolan skoraöi aftur
stuttu fyrir leikslok — hann lék á
nokkra varnarmann á teig og
skaut glæsilegu bogaskoti aö
marki en knötturinn small í sam-
skeytum, hrökk þaöan út til Martin
Bayly en þrumuskot hans smaug
framhjá fjærstönginni.
Eins og á þessu sést veröur sig-
urinn aö teljast sanngjarn. Islend-
ingar náöu þó ágætis köflum.
Bestu menn islands voru Þorsteinn
markvöröur og Siguróli Kristjáns-
son. Siguróli, sem er úr Þór á Ak-
ureyri, lék þarna sinn fyrsta lands-
leik. Þetta er fyrsta árlö sem hann
leikur í meistaraflokki og hefur
hann staöiö sig mjög vel í 1. deild-
inni. Hann var kallaöur í lands-
liöshópinn eftir leik Þórs og Fram á
laugardag, æföi meö liöinu á
sunnudag og mánudag og lék síö-
an í gær og ekki var aö sjá aö hann
væri nýliði í hópnum. Kröftugur
strákur á miöju vallarins. Allir léku
hinir betur en gegn Skotum —
voru jafnir aö getu.
KR-ingar
kæra úrskurð
aganefndar
„VIÐ HÖFUM kært úrskurö
aganefndar til KRR, því aö viö
teljum aö aganefnd hafi farið út
fyrir verksviö sitt. Þeir hafa ekki
rétt til aö dæma í svona máli.
Aganefndin hefur fariö út fyrir
sitt starfssvið aö okkar mati og
því kærum viö þetta,“ sagöi
Gunnar Guömundsson formaö-
ur knattspyrnudeildar KR en
deildin hefur kært úrskurö aga-
nefndar þess efnis aö Jón G.
Bjarnason hafi veriö ólöglegur
og veriö í leikbanni. Dómur
þessi er óréttlátur aó mati KR
vegna þess aö þeim barst ekki
símskeyti þaö sem Póstur og
sími átti aó koma til þeirra til aö
tilkynna þeim málavöxtu.
„Meðferö málsins ber þess
merki aö aganefndin hafi ekki
móttekiö og metið gögn þau
sem henni voru send. Viö höf-
um lagt efnislegar varnir í mál-
inu og vonum að þaö veröi tek-
iö fyrir hjá KRR á föstudag,"
sagöi Gunnar. — pR
Bikarleikir
NOKKRIR leikir fara fram i 2. umferð blk-
arkeppni KSÍ i kvðid vtösvegar um land. A
suöur- og vesturtandi eru þaö eftlrtaldlr
leikir:
ÍR — Skallagrímur
Reynir S. — Léttir
Árvakur — Tálknafjöröur
Breiöabiik — Grindavik
Stjarnan — Njarövik
Tindastoil — KA
Leiftur — KS
Einherji — Leiknlr. Þessi leikur er i 1.
umferö en var trestaö. Slgurllöið mœtir
siöan Þróttl á Neskaupstaö i 2. umferö. I
kvöld teika svo i 2. umferölnni fyrir austan
Huginn og Austri.
iBV og iBÍ áttu aö leika i Eyjum i kvðld
en leik þelrra hefur veriö frestaö þar tH á
laugardag og hefst þá kl. 14.30.
Allir leikimir í kvöld hefjast kl. 20.
Athugasemd frá Teiti Þórðarsyni
Það sem haft er eftir mér í
Morgunblaöinu aö loknum lands-
leik íslands og Skotlands ( sið-
ustu viku kannast ég ekki við.
Fyrirsögnin hljóðaði „Þetta var
grátlegt“ sem það vissulea var en
að ég hafi skotið allt of laust og
verið taugaéstyrkur er skoöun
annarra en mfn, það geta boriö
viðtöl við mig í öðrum fjölmiðlum
um annað atriði. Það er mikil-
vægt að þetta sé birt á síðum
blaðsins til aö fólk sjái aö ég er
sjálfum mér samkvæmur.
Annaö sem mig langar til aö
benda á sem fyrirliöi landsliösins
er aö eftir svona frábæran lands-
leik þar sem allt hjálpast aö aö
gera hann svo góöan sem raun ber
vitni um skuli ekki vera reynt aö
telja fram þaö sem vel er gert og
þaö látiö kyrrt liggja þaö sem miö-
ur fer. Neikvæöi tónninn er alltaf til
staöar eins og greinilega kemur
fram í blaöinu í umfjöllun um leik-
inn. Min reynsla erlendis er ekki
þessi. Svona skrif þekkjast hvergi.
Umfjöllun um slíka leiki þarf aö
vera sanngjörn og álít ég aö lands-
liöiö okkar eigi ekki annaö skiliö
eftir þennan leik. Þó þessi grein sé
gagnrýni á skrif Morgunblaösins
gefst um leiö tilefni á aö benda
öörum fjölmiðlum á aö slík blaöa-
mennska er ekki af hinu góöa.
Teitur Þórðarson
Aths. ritstj.
Morgunblaðið harmar þau mis-
tök aö Teiti Þóröarsyni voru eign-
uö önnur ummæli en þau, sem
hann lét falla viö blaöamann og
biður hann afsökunar á þeim. Hins
vegar getur blaöiö ekki fallist á aö
umsögn um leik íslands og Skot-
lands hafi veriö neikvæö.
a fímmtudogum
til kl. 20
HAGKAUP
Reykjavík-Akureyri