Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
55
„Heiðarlegra að segja
að hann vildi mig ekki“
— segir Lárus Guðmundsson um ummæli Tony Knapp iandsliðsþjáHara.
„MÉR FINNST það nú hálf ein-
kennilegt að það skuli ekki hafa
veríð haft samband við mig út
af landsleiknum. Og hálf finnst
mér hún vandræðaleg afsökun-
in sem Tony Knapp, landsliös-
þjálfari, notaði í einu dagblað-
anna. Að ég vaari ekki naagilega
líkamlega sterkur til þess að
leika í framlínunni gegn Skot-
um. Ég leik í einni erfiöustu
deild í Evrópu, „Bundeslig-
unni“, og hef verið fastur í liöi
mínu og er aö leika um hverja
helgi gegn mjðg sterkum varn-
armönnum. Til d»mis hóf ég
leikinn gegn Bayern MUnchen
og var með svo til alveg þar til
flautað var til leiksloka. Fékk
góða dóma fyrir leik minn og
Bayern er nú eitt besta lið Evr-
ópu og með sterkustu vörnina í
V-Þýskalandi.
Það hefði verið heiöarlegra af
Tony Knapp að segja aö hann
vildi mig ekki I liö sitt,“ sagöi
Lárus Guömundsson er Morg-
unblaöið spjallaði viö hann f
gærdag og innti hann eftir þvf
hvort hann yröi með gegn
Spánverjum næstkomandi mið-
vikudag.
„Heföi veriö leitað til mín í tíma
þá heföi ég aö sjálfsögöu komiö
og leikiö meö. Þaö er heiöur aö
leika í íslenska landsliöinu. En
þaö er oröið of seint úr þessu.
Enda er rétt vika til stefnu og
enginn hefur fariö þess á leit viö
mig aö ég kæmi til leiksins. Ég er
eini atvinnumaöurinn sem ekki er
kallaö á en þó er ég fastamaöur í
sterku liöi sem náð hefur góöum
árangri í Evrópu á keppnistíma-
bilinu og var aö veröa bikar-
meistari í V-Þýskalandi. Þeta
kemur mér allt nokkuö á óvart,“
sagöi Lárus Guömundsson og
var greinilega vonsvikinn yfir því
aö Knapp landsliösþjálfari skildi
ekkert hafa talaö viö sig.
„Eg veit ekki tii þess aö Tony
Knapp hafi fylgst neitt meö mér í
vetur og engan ieik hefur hann
séö. Svo aö ég veit aö hann get-
ur ekki dæmt um getu mína. Ég
er ekki einu sinni i 16 manna
hóp. Ég gleöst yfir því aö leikur
íslenska landsliösins gegn Skot-
um var mjög góöur. Þaö sýnir aö
hægt er aö ná langt ef þaö er
stefnt nógu hátt. Efniviöurinn er
fyrir hendi og viö eigum ekki aö
bera neina viröingu fyrir þessum
sterku þjóöum. Þaö er hægt aö
vinna vel saman og þegar þaö
tekst þá veröur útkoman góö. Ég
óska landsliöinu góös gengis á
móti Spánverjum og vona aö út-
koman veröi jafngóö og gegn
Skotum,“ sagöi Lárus Guö-
mundsson, sem varö vestur-
þýskur bikarmeistari meö liöi
sínu Uerdingen. — ÞR.
• Lárus Guðmundsson hefur skorað sex mörfc með liði sfnu í vetur og þótt leika oft mjög vel. Hann
þykir haröur af sér og marksœkinn, þrátt fyrír aö þetta sé hans fyrsta keppnistímabil í „Bundeslig-
unni“. Hér sækir Lárus að markveröinum f leik en hann veröur fyrri til að ná til boltans.
• Sigurður Einarsson spjótkastari náði sfnum besta árangri f g»r-
kvöldi, kastaði 84,30 metra í Laugardal og setti nýtt vallarmet.
Sigurður setti
vallarmet í gær
GÓÐUR árangur náöist í gœr-
kvöidi á hinu árlega EÓP-móti í
frjálsum íþróttum sem fram fór í
Laugardal. Hæst bar glæsilegt
spjótkastsafrek Siguröar Ein-
arssonar. Hann setti persónulegt
met og vallarmet f laugardal
kastaði 84,30 metra sem er afrek
á heimsmœlikvaröa. Siguröur átti
best áður 82,76 m. Siguröur er f
greinilegri framför í grein sinni,
virkaði mjög kröftugur í útkastinu
og tækni hans var góö. i öðru
s»ti f spjótinu varð Siguröur
Matthíasson með 68,04 m og
Þorsteinn Þórsson þriöji með
60,68 en það er hans besti árang-
ur. Spjótkastið var boðsgrein á
mótinu.
Af öörum árangri má nefna
stangarstökk Kristjáns Gissurar-
sonar 4,90 metra viö frekar erfiöar
aöstæöur. Svanhildur Kristjáns-
dóttir UBK sigraöi í 100 og 200 m
hlaupum eftir hörkukeppni viö
Oddnýju Árnadóttur úr ÍR. Náöi
Svanhildur ágætum árangri í báö-
um greinunum. Hjörtur Gíslason
sigraöi á góöum tima 14,5 í 100 m
grind og Aðalsteinn Bernharösson
í 200 m hlaupi á 22,2 sek.
Helstu úrsiit á mótinu uröu
þessi:
Spjótkast: m
Siguröur Einarsson 84,30
Siguröur Matthíasson 68,04
Þorsteinn Þórsson 60,86
Hástökk kvenna:
Bryndís Hólm 1,60
Guöbjörg Svansdóttir 1,60
Inga Ulfsdóttir 1,55
Karitas Jónsdóttir 1,55
Þórdís Hrafnkeisdóttir
5000 m hlaup karla:
Már Hermannsson
Bragi Sigurösson
Ágúst Þorsteinsson
110 m grindhlaup:
Hjörtur Gíslason
Stefán Þ. Stefánsson
Sigurjón Valmundsson
Stangarstökk:
Kristján Gissurarson
Geir Gunnarsson
1,55
15,34,8
15,42,3
15,58,0
200 m hlaup karla
Aöalsteinn Bernharösson 22,2
Jóhann Jóhannsson 22,4
Stefán Þ. Stefánsson 23,3
200 m hlaup kven.ia: sek.
Svanhildur Kristjánsdóttir 24,9
Oddný Árnadóttir 25,0
Valdís Hallgrimsdóttir 26.3
Kúluvarp kvenna:
Soffía Gestsdóttir
Hildur Harðardóttir
• Helga Halldórsdóttir KR sigraöi f 100 m grindahlaupi kvenna á 14,2
sek. Hér er hún einbeitt á svip yfir grindunum. Morgunbiaðio/júiius