Morgunblaðið - 12.06.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNl 1985
3
Landakotsspítali tekur við
rekstri langlegudeildar
- ef ríkið kaupir Hafnarbúðir
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur gert kauptilbod í Hafnarbúðir við Reykjavíkur
höfn fyrir hönd ríkissjóðs, eins og kom fram í Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Matthfas Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra var spurður að því hvers
konar starfsemi færi fram í Hafnar-
búðum ef af kaupum hússins yrði.
„Það liggur ekki enn ljóst fyrir
hvort af þessum kaupum verður, en
ef svo verður geri ég ráð fyrir að
rikið muni láta sjálfseignafélagið
sem rekur Landakotsspítalann ann-
ast rekstur Hafnarbúða. Landakots-
spítala hefur skort húsnæði fyrir
langlegusjúklinga hingað til og
verða Hafnarbúðir líklega áfram
notaðar sem langlegudeild.
Þeir sjúklingar sem fyrir eru í
Hafnarbúðum munu flytjast f
B-álmu Borgarspítalans," sagði
Matthías Bjarnason heilbrigðisráð-
1 herra.
Skattamál álversins:
Undirbúningsvinna
komin á lokastig
SÉRFRÆÐINGAR samninganefndar um stóriðju og Alusuisse/ISAL um skatta-
mál álversins í Straumsvík hafa komið saman til þriggja funda að undanförnu,
sfðast í London í síðustu viku. Að sögn Garðars Ingvarssonar ritara samninga-
nefndarinnar eru störf sérfræðingahópsins á lokastigi, og skila þeir fljótlega
álitsgerðum til samninganefndanna.
Sagði Garðar að verkefni hópsins
hefði verið að ræða og leita lausna á
ýmsum tæknilegum atriðum skatta-
málsins og undirbúa þannig sjáifar
samninganefndirnar. Eins og fram
hefur komið f Morgunblaðinu var
gott andrúmsloft á þessum fundi og
miðaði starfinu vel áleiðis. Islensku
sérfræðingarnir sem vinna að undir-
búningi skattamálanna eru auk
Garðars: Hjörtur Torfason lögfræð-
ingur, Halldór Kristjánsson deildar-
stjóri f iðnaðarráðuneytinu, Stefán
Svavarsson löggiltur endurskoðandi
og Árni Kolbeinsson ráðuneytis-
stjóri f sjávarútvegsráðuneytinu.
GRÆNT HREINOL
Þetta gamla góöa í uppþvottinn
spm aldrei bregst.
ÞAÐBLÁA
ER ALLT ÖÐRUVl'SI
Nú er Hreinol til í þremur geröum:
Fyrst er auðvitað það
gamla góða græna í uppþvottinn,
svo er glænýtt gult
með sítrónuilmi, líka í uppþvottinn
og að lokum er svo það bláa.
sem auðvitað er allt öðruvísi því það er
til hreingerninga — með salmíaki
og hvaðeina.
Allar gerðir Hreinols fást
í 530 ml, 2,0 I og 3,8 I pakkningum.
Er það ekki á hreinu?
HREINN
Barónsstíg 2-4, sími: 28400
1
• I
GULT HREINOL
Nýr mildur uppþvottalögur meö
sítrónuilmi.
BLÁTT HREINOL
Afbragös hreingerningalögur
meö salmiaki.