Morgunblaðið - 23.06.1985, Side 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
139. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
E1 Salvador:
Lýsa
ábyrgð
á fjölda-
morði
Su Sahador. 22. júaf. AP.
LÍTT þekkt skærulidasamtök vinstri
manna í El Salvador, Mardoqueo
Cruz, hafa lýst ábyrgð sinni á fjölda-
morði því sem átti sér stað á úti-
veitingastað í San Salvador í fyrra-
dag. Þá skutu 10 menn klæddir ein-
kennisbúningi stjórnarhersins í El
Salvador 13 manns til bana, þar á
meðal fjóra bandaríska hermenn.
í tilkynningu skæruliða segir að
fórnarlömbin hafi verið banda-
rískir hernaðarráðgjafar og
bandamenn þeirra.
Jose Duarte, forseti E1 Salva-
dors, sem kvað þjóðina harmi
slegna yfir þessum atburði, vott-
aði Bandaríkjamönnum samúð
sina með því að hringja f Reagan
Bandaríkjaforseta og vera við-
staddur minningarathöfn um her-
mennina fjóra áður en lík þeirra
voru flutt með sérstakri flugvél
flughersins til Bandaríkjanna.
Sprenging
í Briissel
Brttaoel, 22. jání. AP.
SPRENGJA, sem sprakk í dag í höf-
uðstöðvum vestur-þýska efnafyrir-
tækisins Bayer í Briissel, olli nokkru
tjóni á anddyri byggingarinnar, en
engan sakaði að sögn belgísku lög-
reglunnar.
Hafa óþekkt umhverfisvernd-
arsamtök, sem kenna sig við frið-
arbaráttu, lýst á hendur sér
ábyrgð á sprengingunni. Maður,
sem ekki vildi segja til nafns,
hringdi í AP-fréttastofuna og
kvað samtökin hafa komið
sprengjunni fyrir í ruslakörfu í
aðalbyggingunni til að mótmæla
losun úrgangsefna á vegum Bayer
í Norðursjó, og aðgerðum fyrir-
tækisins gegn umhverfisverndar-
samtökum Grænfriðunga.
írakar hrinda
sókn írana
Budad, írak. 22. iúní AP
ÍRAKAR skýrdu frá því í dag að þeir
hefðu hrundið sókn frana á suður-
hluta víglínunnar, og fellt um 200
íranska hermenn.
Talsmaður íraka vísaði einnig á
bug fréttum frana um að þeir hafi
náð frumkvæði í stríðinu og unnið
mikla hersigra að undanförnu.
Sagði talsmaðurinn að tilgangur
frana með þessum staðhæfingum
væri greinilega að reyna að bæta
andann í herbúðum þeirra og
hvetja hermenn sína til dáða.
Morgunbladið/RAX
Sumar á Húsavík
Discovery:
Tilraun með
leysi-geisla
ber árangur
KauTenlbörta. 22. jiof. AP.
FERÐ bandarísku geimferjunnar
Discovery gengur að óskum. f
morgun voru geimfararnir að reyna
að ná um borð gervihnettinum
Spartan, sem þeir komu sjálfir á
braut umhverfis jörðu í því skyni að
afla upplýsinga um svonefnd
„svarthol" í miðri Vetrarbrautinni,
sem lengi hafa verið vísinda-
mönnum mikil ráðgáta.
í gær gerðu geimfararnir til-
raun með leysigeisla og er það
liður í rannsóknum Bandarikja-
manna á möguleikum varnar-
kerfis í geimnum. Spegill var
settur í einn glugga geimferjunn-
ar og leysigeisli sendur frá jörðu
til að leita ferjuna uppi. Átti til-
raunin að sýna hvernig ljósgeisl-
inn dreifist á ferð sinni gegnum
gufuhvolfið og hvaða leiðrétt-
ingar þurfi að gera til að koma í
veg fyrir að geislinn brotni og
dreifist. Að sögn geimferðayfir-.
valda á Kanaveralhöfða varð til-
raunin árangursrík og því fallið
frá því að endurtaka hana í dag.
Tveir útlendingar eru um borð
í geimferjunni. Annar þeirra er
Frakkinn Patrick Baudry, sem
vinnur að rannsóknum á áhrifum
þyngdarleysis á mannslíkamann.
Hinn er Salman Al Saud, soldán
frá Saudi-Arabíu, bróðursonur
Fahd konungs. Hann hefur m.a.
tekið myndir af heimalandi sínu
frá geimferjunni. t>ær gætu leitt í
ljós nýjar auðlindir undir yfir-
borði jarðar.
Lausn á gísladeiluiini ekki í sjónmáli:
Bandarískar herþot-
ur á flugi yfir Beirút
Beirút, 22. júnf. AP.
ÓÞEKKTAR herþotur flugu yfir
Beirút árla í morgun og fullyrðir út-
varpsstöð kristinna manna, að þar
hafi verið á ferð bandarískar orr-
ustuþotur af gerðinni F-14, sem
komið hafi frá flugmóðurskipi ei
staðsett sé 8 km undan strönd Líb
anons.
Fjörutíu Bandaríkjamenn eru
enn gíslar flugræningjanna, sem
rændu farþegaþotu bandaríska
flugfélagsins TWA á leiðinni frá
Aþenu til Rómar fyrir röskri viku.
Eru 37 þeirra í haldi víðs vegar í
Beirút og nágrenni, en þrír úr
áhöfn vélarinnar eru í gíslingu í
stjómklefa þotunnar á flugvellin-
um í Beirút. Tilraunir til að fá
fólkið látið laust hafa enn engan
árangur borið. Vonir voru í gær
bundnar við að tveir gíslanna, sem
talið er að séu heilsutæpir, yrðu
látnir lausir, en af þvi hefur ekki
orðið.
Ræningjarnir krefjast þess að
um 770 líbanskir fangar í lsrael,
sem flestir eru shítar, verði látnir
lausir í skiptum fyrir Bandaríkja-
mennina. ísraelsstjórn segist hafa
■ hyggju að láta fangana lausa
þegar ástandið er orðið eðlilegt, en
ekki fyrir þvinganir.
Hernaðaryfirvöld í Beirút hafs
ekki staðfest, að þoturnar hafi
verið bandarískar. Algengt er, af
herþotur ísraela fljúgi eftirlits-
flug yfir Líbanon. Hins vegar hafa
líbönsk hernaðaryfirvöld viður-
kennt, að bandarískt flugmóð-
urskip hafi fært sig nær strönd
landsins, en segja að þau séu enn
utan lögsögunnar.
Bandaríska sendiráðið í Beirút
hefur ekkert viljað láta hafa eftir
sér um mál þetta.
Mafíufélagar handteknir
Kóm.borg, 22. júni. AP.
ÍTALSKA lögreglan handtók í gær
107 manns, sem gninaðir eru um
að eiga aðild að mafíunni. Er þetta
liður í þeirri viðleitni yfirvalda að
stemma stigu við skipulagðri
glæpastarfsemi á Ítalíu.
Mennirnir voru handteknir
víðs vegar á Ítalíu, en lögreglan
leitar nú 43 í viðbót sem riðnir
eru við mafíuna. Meðal hinna
handteknu voru Eduardo Form-
isano, sem er fyrrverandi borg-
arráðsmaður i Róm og félagi i
ítölsku nýfasistahreyfingunni,
og Vincenzo Femia, sem sakaður
er um að hafa ætlað að ræna
brasilísku knattspyrnustjörn-
unni Paulo Roberto Falcao.