Morgunblaðið - 23.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNl 1985
21
Doktor í
jarðeðlis-
fræði
HINN 6. júní síðastliðinn varði
Guðni Axelsson doktorsritgerö sína
við jarðeðlisfræðideild háskólans
Oregon State University í Bandaríkj-
unum. Ritgerðina nefndi hann ó
ensku: Hydrology and Thermomech-
anics of Liquid-Dominated Hydroth-
erma System in Iceland. Hafði
Guðni unnið doktorsritgerðina undir
leiðsögn Gunnars Böðvarssonar
prófessors við Oregon State-háskól-
ann.
Guðni lauk BS-prófi i eðlisfræði
við Háskóla íslands 1978 og
MS-prófi við hinn bandaríska há-
skóla 1980.
Hann er fæddur í Reykjavík 20.
júní 1955, sonur hjónanna Þór-
unnar Guðnadóttur og Axels
Kristjánssonar aðstoðarbanka-
stjóra. Guðni er kvæntur Svan-
fríði Franklínsdóttur kennara.
Ingibjörg Guðjónsdótt-
ir farin til Cardiff
INGIBJÖRG Guðjónsdóttir söng-
kona, sem sigraði í söngkeppni sjón-
varpsins, fór á fimmtudag til Cardiff
í Wales til að taka þar þátt í söngva-
keppni sjónvarpsstöðvanna. Fylgdar-
maður hennar í fórinni er Tage
Ammendrup.
„Dagarnir 21. og 22. júní munu
að mestu leyti fara í æfingar,"
sagði Tage er blm. spurðist fyrir
um fyrirkomulag keppni þessarar
áður en þau héldu utan. „Keppnin
hefst svo þann 23. þ.m. og verður
keppt á hverju kvöldi í mismun-
andi riðlum. Úrslitin munu svo
ráðast sunnudagskvöldið 30. júní.“
Aðspurður um hver væru verð-
launin í keppni sem þessari upp-
lýsti Tage að sigurvegarinn myndi
fá geysistóra kristalskál, að verð-
mæti 2000 pund. Einnig fengi
hann eina sjónvarpshljómleika að
launum auk tvennra útvarps-
hljómleika.
Ingibjörg Guðjónsdóttir
„Undanúrslit þau, sem Ingi-
björg tekur þátt í, verða á dagskrá
sjónvarpsins þann 7. júlí og loka-
úrslitin svo daginn eftir," sagði
Tage.
Eitt verka Iðunnar á sýningunnl í Alþýðubankanum á Akureyri.
S*T"
jr
Iðunn Agústs-
dóttir sýnir-
á Akureyri
Altureyri, 14. júní.
í Alþýðubankanum á Akur-
eyri stendur nú yfir mál-
verkasýning Iðunnar Ágústs-
dóttur. Er þetta sjötta einka-
sýning Iðunnar en hún hefur
tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum. Menningarsamtök
Norðlendinga standa að sýn-
ingunni.
GBerg
Ráðstefna Norræna áhugaleik-
húsráðsins haldin í Færeyjum
NORRÆNA áhugaleikhúsráðið hélt
nýlega ráðstefnu í Þórshöfn í Fær-
eyjum. Þar var fjallað um alþjóðlega
fjölmiðlun og hinar norrænu þjóðir.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
var Hjörtur Pálsson, sem sagði frá
reynslu íslendinga af hinni öru
framþróun fjölmiðla á síðustu ár-
um.
Umræður voru líflegar og urðu
menn á eitt sáttir um að þar sem
þróuninni yrði ekki snúið við, yrðu
menn að finna ráð til að beisla
hina nýju tækni og læra að beita
henni í þágu þjóðlegrar menning-
ar landa sinna. Þótt svo virtist um
stund sem myndbðnd og sjónvarp
um gervihnetti hefðu áhrif á að-
sókn að leikhúsum, gæti slíkt aldr-
ei komið í staðinn fyrir leikhúsið.
Starfsemi Norræna áhugaleik-
húsráðsins hefur farið vaxandi á
undanförnum árum og beinist hún
aðallega að því að efla menntun
áhugaleikara með norrænum
námskeiðum, efla leikstarf meðal
barna og unglinga og aldraðra og
öryrkja. Einnig hefu ráðið áhuga á
að ná sambandi við minnihluta-
samfélög, sem geta beitt áhuga-
leikstarfi til að viðhalda menning-
arverðmætum sínum.
Næsti aðalfundur Norræna
áhugaleikhúsráðsins verður í
Reykjavík í júní 1986. í tengslum
við hann er fyrirhugað að halda
leiklistarhátíð áhugamanna með
þátttöku leikhópa frá öllum Norð-
urlöndunum og þ.á m. Grænlands,
en Grænlendingar áttu nú í fyrsta
sinn fulltrúa á þingi og aðalfundi
ráðsins. (Úr fréttatilkynningu.)
ÖRYGGI í ÖNDVEGI
Monroe Gas Matic höggcleyfar
á
monroe hefur í áratugi verið leiðandi fyrirtæki í hönnun og
framleiðslu á vönduðum höggdeyfum. Nú er komin á markaðinn ný
kynslóð höggdeyfa frá Monroe, sem...
• eru einstaklega fljótvirkir, traustir og endingargóðir
• halda eiginleikum sínum við hin erfiðustu skilyrði
• stuðla að minna sliti á dekkjum, stýrisbúnaði, hjöruliðum,
hjólalegum, skiptingu, kúplingu o.fl.
• tryggja öruggan og þægilegan akstur og þannig leikur bíllinn í
höndum þínum.
Áratuga reynsla af Monroe höggdeyfum við islenskar aðstæður
tryggir þér og þínum meira öryggi.
mONROE