Morgunblaðið - 24.07.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1985
21
„Nær allt í
leikjaformi“
— segir Valdimar Stefánsson leiðbein-
andi hjá knattspyrnuskóla Fram
leitt æfingarnar á að allt liðið er
drifið inn að drekka og horfa á
Tomma og Jenna. Það vekur
mikla ánægju."
Eru þeir margir snillingarnir
sem þið hafið komið auga á í
knattspyrnuskólanum sem
hefðu kannski ekki komið á
fótboltaæfingu?
„Þeir eru nokkrir, ungir og
feimnir, sem hefðu kannski
aldrei komist inn í hópinn á 6.
flokksæfingu og ekki fengið þá
athygli sem þeir eiga skilið en
hafa komið hingað og tekið
miklum framförum og æfa nú
með félaginu líka,“ svarar
Valdimar.
Hafa allir þessir krakkar mik-
inn áhuga á fótbolta eða eru
sumir settir hingað í geymslu
yfir daginn, í pössun til ykkar?
„Mæðurnar hafa komið með
nokkra hingað í einskonar pöss-
un. Sumir hafa áhugann aðrir
ekki, sumir fá áhugann og aðrir
ekki. Maður sér það best þegar
farið er að spila þá eru alltaf
nokkrir sem eru bara að leika
sér fyrir utan völlinn."
Er knattspyrnuskólinn ekki
það eina sem ungum stúlkum
býðst til að læra knattspyrnu,
það eru engir yngri flokkar hjá
þeim eða hvað, enginn 6. flokk-
ur, enginn 5. flokkur?
„Það er rétt. Það eru engir
yngri flokkar fyrir stelpur, því
miður, en það þyrfti að auglýsa
enn betur til að laða þær í
knattspyrnuskólana."
Reynir það ekki oft á taugarn-
ar að stjórna þessu?
„Það gerir það stundum en
þetta er bara svo skemmtilegt
og þau áhugasöm, þannig að það
gleymist fljótt. Baráttan hérna í
fótboltanum er gífurleg, oft
ótrúleg og gildir þá einu hvort
stelpurnar leika með eða gegn
strákunum."
Fáið þið leikmenn í heim-
sókn?
„Já, já. Um daginn kom Guð-
mundur Torfason og afhenti
verðlaun og slíkt. Sýndi hvernig
hann tekur vítaspyrnur. Þeim
þykir mikið til um það þegar
fyrirmyndirnar láta sjá sig. Að
vísu spurði einn fjögurra ára
guttinn Guðmund: „Vinnurðu
hérna?"
Morjfunbladid/Árný
Stelpurnar gáfu strákunum lítið eftir í fótboltanum en gáfu sér
þó tíma til að sitja fyrir á einni mynd. Þetta eru þær Þuríður,
Heiða, Árný og María.
Eruð þið nokkuð skotnar í
strákunum sem eru bestir hérna í
fótboltanum?
„Neei, og eigum enga kærasta
hérna."
Hvernig finnst ykkur Sigur-
bergur og Valdimar?
„Þeir eru ferlega góðir og
skemmtilegir."
Ætlið þið að halda áfram í fót-
bolta þegar þið eruð orðnar stór-
ar?
„Neei,“ sögðu ein eða tvær en
hinar jánkuðu þessu og sögðust
jafnvel ætla að verða atvinnu-
menn.
Knattspyrnumenn framtíðarinnar? Það er aldrei að vita. Þeir Hjalti, Örn, Pétur
og Heiðar brosa alla vega við lífinu enda fjörkálfar hinir mestu.
Það er mest lagt upp úr því
hér að krakkarnir hafi
gaman af leiknum, - segir Vald-
imar Stefánsson, knatt-
spyrnumaður, en hann leiðbein-
ir í knattspyrnuskóla Fram
ásamt Sigurbergi Sigsteinssyni.
„Hér er allt meira eða minna í
leikjaformi," segir Valdimar.
„Þau hafa ekki eins gaman af
þessu þegar þau eru komin á 6.
flokks æfingu, því þar er hugsað
allt öðruvísi."
Hver er helsti munurinn á
knattspyrnuskólanum og fót-
boltaæfingum?
„Fyrir það fyrsta þá leggjum
við aðaláhersluna á tækniæf-
ingar. Sýnum hvernig á að
spyrna knetti, ristarspyrnur,
innanfótarspyrnur, hvernig á að
skalla, hvernig á að taka innköst
og svo framvegis."
Hvernig hefur þátttakan ver-
ið?
„Virkilega góð. Á þessu hálfs-
mánaðarnámskeiði sem nú
stendur yfir eru 50 þátttakend-
ur.“
„Námskeiðin standa yfir frá
9—12 eða 1—4 og þá er allt á
fullu en síðan endum við yfir-
Sigurbergur Sigsteinsson befur komið mörgum knattspyrnumanninum afstað. Hér útskýrir hann föðurlega fýrir
einum þátttakendanna á námskeiði knattspyrnuskólans.
„Ahuginn vaxandi“
að sem knattspyrnuskólinn
gerir einna helst fyrir þá
yngstu er að koma þeim inn í
hópinn. Margir þessara krakka
komast ekki inn í hópa, ekki einu
sinni á leikskólum, nema þar
sem vitað er að þeir hafi áhuga á
fótbolta, segir kempan Sigur-
bergur Sigsteinsson sem hvað
ötulast hefur starfað fyrir
knattspyrnuskóla Fram síðustu
árin og gerir enn.
„Auk þess er gefinn meiri tími
í að kenna krökkunum nánari
snertingu við knöttinn. Það gef-
ur auga leið að á kannski 80
manna 6. flokks æfingu sem
stendur í 50—60 mínútur gefst
lítill tími eða næði fyrir einn
þjálfara að kenna hverjum og
einum eins og þyrfti. Það er
hægt í kanttspyrnuskólanum
sem býður upp á xk mánaðar
námskeið þar sem krökkunum er
skipt í eldri og yngri flokk og
leiðbeinendur eru tveir eða
fleiri."
Það er tiltölulega stutt síðan
knattspyrnuskólarnir hófu
göngu sína?
„Svona 5—6 ár held ég en
hinsvegar man ég eftir því þegar
ég var svona 9—10 ára, að þá
voru haldin svipuð námskeið
þegar erlendir menn komu til
landsins, þannig að þetta er eng-
in ný bóla, en nú er þetta hins-
vegar orðið fastur liður sem bet-
ur fer.“
Stutt spjall
við Sigurberg
Sigsteinsson
leiðbeinanda
Er mikið um það að foreldrar
komi hingað með börn sín í pöss-
un eins og á dagheimili?
„Það er þó nokkuð um það á
þessu yngra námskeiði en það er
í fínu lagi ef krakkarnir hafa
gaman af þessu. Það eru nokkrir
strákar í fimmta flokki Fram
sem ég man eftir að mömmurnar
komu með hingað alveg hágrát-
andi. Þeir voru svo hræddir. En
svo finna þeir sig í hóp og eru nú N
kannski orðnir aðalmennirnir í
fimmta flokki."
Sýnist þér áhuginn fyrir
knattspyrnuskólum fara vax-
andi?
„Tvímælalaust. Hvort sem það
er að þakka auknum knatt-
spyrnuáhuga eða barnagæslu."
Þarf ekki alveg sérstaka þol-
inmæði til að leiðbeina þessum
hópi fjörkálfa?
Sigurbergur ræskti sig örlítið
en svaraði svo: „Þú heyrir það
nú!“
„Stelpurnar sko
ekki betri en við“
Hjalti, Pétur og Örn fylgdust
með yngstu krökkunum á
meðan þau voru í boðhlaupi. Af
hverju eruð þið ekki með strák-
ar?
„Við vorum fyrir hádegi, erum
sko í eldri hópnum og alltof góð-
ir til að vera í þessum hóp,“ svör-
uðu þeir hreyknir. Þeir sögðust
vera Framarar (hvað annað) og
líka æfa með 6. flokki félagsins
og voru sammála um það að þeir
lærðu meiri tækni í knatt-
— Hjalti, Pétur og
Örn teknir tali
spyrnuskólanm en á sjálfum
knattspyrnuæfingunum.
Er ykkur alveg sama þó stelp-
urnar spili með ykkur?
„Þær eru ekki með okkur í
flokki núna, voru bara með
okkur fyrstu vikuna."
Eru þær betri en þið?
„Nei ertu vitlaus maður, en
þær eru samt góðar, eða allavega
ágætar."
Pétur vildi endilega koma því
á framfæri að um daginn hefði
knattspyrnuskóli Fram keppt
við 6. flokk Víkings og tapað
0—3. „Það var algjört svindl að
þeir skyldu vera með 6. flokk."
Hverjir eru uppáhaldsleik-
mennirnir ykkar strákar?
„Guðmundur Steinsson, Guð-
mundur Torfason," kölluðu þeir
hver í kapp við annan og þutu
svo út á völl til hinna krakk-
anna.