Morgunblaðið - 24.07.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.07.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1985 SKÁLHOLTSHÁTÍÐ 1985 Samkoma í Skálholtskirkju helguð 170 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags Selfossi, 22. júlí. Á Skálholtshátíö í gær, 21. júlí, var samkoma í Skálholtskirkju sem var helguð 170 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags. Samkoman hófst með orgelleik en síðan fluttu leikararnir Guðrún Ásmundsdóttir, Auður Bjarna- dóttir, Hallgrímur Helgason og Karl Guðmundsson samantekt Guðrúnar Ásmundsdóttur sem nefndist: Guðleg ný tíðindi — svo sem kvað Oddur Gottskálksson. Þar var m.a. fjallað um tilurð þýð- ingar biblíunnar á íslensku og mikilvægi þess. Glúmur Gylfason og Davíð Kolbeinsson léku á orgel og óbó Air & Rondo eftir Hándel. Að því loknu flutti sr. Felix Ólafsson ávarp um Ebenezer Henderson postula biblíufélagsins. Það var fyrir 170 árum sem Henderson kom með biblíu til íslands, 1813, þá fimmtu sem prentuð var. Þess má geta að í hátíðarmessunni var lesið úr þeirri biblíu. Að loknu ávarpi sr. Felix söng Guðmundur Gíslason einsöng og sr. Helga Soffá Konráðsdóttir las úr Ritningunni og flutti bæn. Loks var svo almennur söngur. í tilefni afmælis Hins íslenska biblíufélags hefur verið komið fyrir í Skálholtskirkju sýnishorn- um af útgefnum biblíum. Þar er frumútgáfa Guðbrandsbiblíu og ljósprentun hennar. Þá er þar fyrsta íslenska biblían sem gefin var út á kostnað Breska og erlenda biblíufélagsins. Hún var prentuð í Kaupmannahöfn á erfiðum stríðs- tímum — ófullkomin á ýmsan hátt, en þjóðinni ómetanlega dýrmæt eins og þá stóð á, upplag 5.000, eins og segir í skýringar- texta. Sig Jóns. Prestar ganga til Skálholtskirkju. Hluti gesta á Skálholtshátíð. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, í Skálholtskirkju. . Á ^ Svo sem kvað Oddur Gottskálksson. Leikarar flytja samantekt Guðrúnar Ásmundsdóttur. Skálholt var í árdaga sérstök vitjun frá Guði Ávarp herra Péturs Sigurgeirssonar biskups á Skálholtshátíð 21. júlí 1985 í tilefni af tveggja alda tfmamótum um flutning biskupsstóls úr Skálholti. Kæru þátttakendur og gestir á Skálholtshátíð. í sögu Guðmundar Kambans er vel að orði komist um þennan helga stað. Þar segir: „Og Guð leit yfir landið og sjá: Á þessum stað var sól án forsælu í allar áttir. Og Guð gerði Skálholt að fyrsta vígi kirkju sinnar á ís- landi." Þannig var Skálholt í hálfa átt- undu öld höfuðstaður kirkju og kristni í þessu landi ásamt Hólum í Hjaltadal. Þeir staðir voru gróð- urreitir trúar og menningar. Frá þeim bárust víðfeðm árhif, sem mótuðu íslenska menningu, og áttu sinn drjúga skerf að endur- reisn hinnar íslensku þjóðar. - O - Á 17. og 18. öld átti þjóðin við mikla erfiðleika að stríða, svo að slíks eru ekki dæmi í þjóðarsög- unni. Þá lá við borð, að þeir sem af lifðu hörmungarnar yrðu fluttir brott af landinu og það eftir skilið óbyggilegt. Bæði Hólum og Skál- holti hnignaði svo, að þeir voru sviptir sinni aldagömlu hefð. Þannig hvarf öll gjöf Gissurar. — O — Enginn staður var svo rúinn ytri merkjum tignar sinnar sem Skálholt. Ofan á allt lagði jarð- skjálfti staðarhúsin í rúst, og eftir var dómkirkjan ein, gömul og hrörleg. Árið 1785, fyrir réttum tveimur öldum, var sú ákvörðun tekin að biskupsstóllinn yrði flutt- ur til Reykjavíkur. Fjárhagslegum stoðum var kippt undan embætt- inu, sem það hefur síðan ekki endurheimt. En þjóðin reis upp og sótti fram. Hún kom sér upp nýjum höfuðstað og vann sína stóru sigra í lífstríði alda. Skálholt, sem í árdaga var sérstök vitjun frá Guði, hefur á liðnum áratugum stöðugt verið í uppbyggingu til þess að halda áfram ætlunarverki sínu. Þegar 9 aldir voru liðnar frá því að fyrsti íslenski biskupinn settist að í Skálholti var hornsteinn þess- arar nýju veglegu kirkju lagður. Skálholtskirkja var svo vígð 1963 af dr. Sigurbirni Einarssyni bisk- upi, er mikinn þátt hafði átt í endurreisn staðarins. Skálholt var gefið þjóðkirkjunni með heimild- arlögum frá Alþingi og samkvæmt ákvörðum íslensku ríkisstjórnar- innar. Það var gert í þakkarskyni fyrir allt, sem kirkjan hafði verið þjóðinni á umliðnum öldum. Á vígsludeginum, 21. júlí, ná- kvæmlega fyrir 22 árum, afhenti þáverandi kirkjumálaráðherra Bjarni Benediktsson kirkjunni Skálholt og sagði: „Það skiptir ekki máli, þó að hin kaþólska kirkja hafi miklu lengur en okkar evangelisk-lúterska kirkja haft biskupsstól í Skálholti. Hin síðar- talda er afsprengi og eftir íslensk- um lögum arftaki hinnar fyrri. Siðaskiptin urðu raunar ekki með ljúfu samþykkir landsmanna, en hafa fyrir löngu unnið sér hefð í hugum þeirra." - O - Uppbyggingin hefur komið skref fyrir skref. Fyrst kirkjan, síðan koma sóknarprestsins á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.