Morgunblaðið - 24.07.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1985
25
Reynsatindi lagt
Reynsatindi, naggskipi færeyska nskiskipaflotans hefur nú verið lagt sök- Kemur þetta fram í færeyska blaðinu „Dagblaðið“. Þegar Reynsatindur var
um rekstrarörðugleika og hefur nauðungaruppboð verið auglýst i skipinu keyptur til Færeyja var skipið stærsta fískiskip i Vesturlöndum.
15. igust nk. Finnist ekki lausn i vandanum fer skipið undir hamarinn.
Skýrsla á vegum Amnesty Intemational:
Pyntingar algengar í
tyrkneskum fangelsum
New York, 23. júlf. AP.
í SKÝRSLU, sem kynnt var í dag i vegum mannréttindasamtakanna Amn-
esty International, kemur fram að pyntingar eru algengar í Tyrklandi, og er
þeim skipulega beitt.
Sovézka sendiráðið
f Kabúl:
7 hermenn
féllu í árás
frelsis-
sveitanna
Islamahad, 23. júlí. AP.
AFGÖNSKU frelsissveitirn-
ar hafa þrisvar sinnum gert
eldflaugaárás á sovézka
sendiráðið í Kabúl það sem
af er þessum mánuði, aö
sögn vestrænna sendifull-
trúa. í einni árásinni biðu
a.m.k. sjö sovézkir hermenn
bana.
Að sögn sendifulltrúanna
virðist sem sovézka sendiráðið
sé helzta skotmark frelsisafl-
anna í árásum þeirra á Kabúl. Á
miðvikudag skutu sveitirnar 16
stórum flugskeytum á höfuð-
borgina og löskuðust margar
byggingar. Tvö flugskeytanna
lentu við skrifstofur forsætis-
ráðuneytisins. Á fimmtudag
gerðu sveitirnar árás á aðalstöð-
var sovézka heraflans í Kabúl,
en ekki hefur frétzt af tjóni.
Fyrir þremur vikum hæfðu
nokkur flugskeyti sovézka
sendiráðið og biðu 7 hermenn
bana, að sögn vestrænna sendi-
fulltrúa, sem segjast hafa fengið
upplýsingar sínar hjá austur-
evrópskum sendifulltrúum.
Yfirvöld í Afganistan halda
því hins vegar fram að frelsis-
sveitirnar hafi goldið afhroð í
átökum við stjórnarherinn víðs
vegar í landinu. Til að reyna að
sannfæra menn hefur verið efnt
til sýningar á vopnum, sem eiga
að vera úr vopnabúrum frelsis-
sveitanna, er stjórnarherinn
hefur fundið.
Veður
víða um heim
Lægst H»st
Akureyri 9 alskýjað
Amsterdam 13 20 skýjaó
Aþena 23 36 heióskirt
Barcelona 29 mistur
Berlín 14 20 skýjaó
Brliesel 15 23 skýjað
Chlcago 17 24 heióskírt
Dublin 12 18 heióskírt
Feneyjar 26 heiðskírt
Frankfurt 17 24 skýjaó
Genl 10 28 heióskirt
Helsinkí 13 19 skýjað
Hong Kong 28 30 heióskírt
Jerúsalem 18 30 heióskírt
Kaupmannah. 13 18 skýjaó
Las Palmas 25 hállskýjaó
Lissabon 20 33 heiðskirt
London 14 23 heiðskirt
Los Angeles 21 30 skýjaó
Lúxemborg ISskýjað
Malaga 29 heióskírt
Mallorca 30 heiðskirt
Miami 24 28 skýjaó
Montreal 9 23 heióskírt
Moskva 15 27 rigning
New York 21 29 heióskírt
Osló 11 19 skýjaó
París 17 27 skýjaó
Peking 23 32 skýjaó
Reykjavík 12 skýjaó
Rió de Janeiro 12 26 skýjaö
Rómaborg 20 36 heióskírt
Stokkhólmur 14 19 skýjaó
Sydney 8 14 rigning
Tókýó 23 31 heióskírt
Vinarborg 14 23 skýjaó
Þórshöln 12 •kýi»*
Samtökin segja að niðurstöður
umfangsmikillar könnunar á mann-
réttindabrotum í Tyrklandi séu
reistar á áreiðanlegum upplýsing-
um, sem skipti þúsundum og spanni
vítt svið.
„Allir þeir, sem sitja í tyrknesk-
um fangelsum fyrir stjórnmála-
skoðanir sínar eiga á hættu að sæta
pyntingum," segir í skýrslunni.
Þar kemur einnig fram að illa sé
farið meö þorra pólitískra fanga í
landinu; þeir séu yfirheyrðir með
ómannúðlegum aðferðum og illa sé
að þeim búið.
Eftir skýrslunni að dæma versn-
aði ástandið mjög þegar herfor-
ingjastjórnin rændi völdum 1980,
en þá er talið að tæplega 179 þús-
und manns hafi verið tekin hönd-
um.
Frásögnum af pyntingum hefur
hins vegar fækkað nokkuð eftir
þessar fjöldahandtökur, en samt
sem áður berast enn kvartanir um
að farið sé illa með fanga í fangels-
um landsins.
Samkvæmt skýrslu Amnesti Int-
ernational eru það einkum pólitísk-
ir fangar, sem sæta pyntingum. Og
í flestum tilvikum eru fangarnir
pyntaðir af lögreglu, oft meðan á
yfirheyrslu stendur. Þó segjast
samtökin einnig hafa aflað sér upp-
lýsinga um að pyntingum hafi verið
beitt í husakynnum hersins.
Eru sígarettur oft notaðar við
pyntingar og föngum gefið rafstuð.
Einnig eru dæmi um að mönnum
hafi verið misþyrmt um allan lík-
amann með járnstöngum og kylf-
um. I skýrslunni eru margar frá-
sagnir vitna, sem þurft hafa að
sæta pyntingum.
Meðal þeirra var konan Sema
Ogur, sem kvaðst hafa orðið fyrir
pyntingum ásamt manni sinum.
Hefði þeim verið misþyrmt í sama
herbergi í „pyntingarmiðstöð" ör-
yggislögreglunnar, en á máli
stjórnvalda nefnist hún „Þróunar-
og rannsóknarstofnunin f Ankara“.
Sema kvaðst m.a. hafa þurft að
horfa á þegar manni hennar hefði
verið gefið rafstuð f kynfærin. Hún
sagðist einnig hafa þurft að sæta
sömu meðferð fyrir framan mann
sinn.
í lok skýrslu Amnesty Internat-
ional er skorað á tyrknesk stjórn-
völd að banna pyntingar og skipi
nefnd sem hefði að markmiði að
rannsaka þessi mál út i hörgul.
Þannig yrði unnt að refsa kvala-
mönnum og veita fórnarlömbunum
einhverjar skaðabætur. Hvetja
sjimtökin einnig til þess að réttar-
höld fari fram sem fyrst yfir söku-
dólgunum og föngum verði leyft
reglulega að hitta lögfræðinga sína
og fjölskyldur.
Tyrknesk stjórnvöld hafa viður-
kennt að fangar hafi sætt pynting-
um, en neitað því að hér væri um
skipulegar misþyrmingar að ræða.
Það er gott að sofa í Habitat
Túpurúmið er gott dæmi um Habitathönnun
Nýstárlegt, þægilegt og vandað.
Þessi níðsterku og stöðugu rúm
eru til á lager, — einnig springdýnur,
sængur, koddar, rúmteppi og sængurföt,
því Habitat er heimilisverslun.
Túpurúmið er framleitt í rauðum og hvítum lit
og kostar kr. 3.980,-.
Springdýna kostar kr. 3.270,-.
Habitat. Verslun — póstverslun,
Laugavegi 13, sími 25808. I$v:
habitat