Morgunblaðið - 24.07.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1985
37
Ketill Guðmunds-
son — Kveðjuorð
Kæddur 21. mars 1955
Dáinn 17. júlí 1985
Ketill er látinn, manni finnst
það óneitanlega ranglátt að menn
séu kvaddir burt í blóma lífsins,
en við því er fátt eitt að gera, það
er gangur lífsins.
Fundum okkar Ketils bar fyrst
saman á Skagaströnd þar sem við
unnum saman um tíma hjá Spari-
sjóði Skagastrandar, síðar Lands-
banka íslands. Það sem einkenndi
Ketil mest var það sem aðrir
missa svo oft sjónar á í nútíma
lífsgæðakapphlaupi, það að vera
það sem maður er. Sýndar-
mennska var ekki til í Katli, hann
vildi aðeins fá að vera það sem
hann var, eins og hann var í heim-
inn borinn og njóta virðingar
jafnt á við aðra sem slíkur, án af-
skipta annarra, án fordómafullra
radda, radda sem telja sig vita hið
rétta og eðlilega um lífsins gang.
Þann 16, þ.m. var til hinstu
hvílu borinn Reynir Breiðfjörð
Vigfússon, Bergþórugötu 14a,
Reykjavík. Reynir var fæddur í
Flatey á Breiðafirði 16. febrúar
1926, í svokölluðum Brekkubæ,
sem nú er löngu horfinn. Hann var
sonur hjónanna Vigfúsar Stefáns-
sonar frá Galtará og konu hans,
Ingibjargar Einarsdóttur frá
Bjarneyjum.
Reynir var yngstur í hópi barna
þeirra Ingibjargar og Vigfúsar,
sem áttu auk hans þrjár dætur,
Pálínu og Lilju, búsettar í Kópa-
vogi og Guðlaugu, sem er for-
stöðukona Dvalarheimilis aldr-
aðra í Stykkishómi. Auk sinna
barna ólu þau Ingibjörg og Vigfús
upp bróðurdóttur Ingibjargar,
Fjólu Guðmundsdóttir, búsetta í
Hafnarfirði. Er Reynir óx úr grasi
biðu hans fjölbreytt verkefni við
búskap foreldra hans, sem var allt
í senn erilsamur og erfiður, þar
sem m.a. þurfti að flytja fé milli
lands og eyja, sinna garðrækt,
hlúa að varpi, svo ekki sé talað um
heyskap og lundaveiðar, en hinn
harði húsbóndi allra eyjamanna
var sjórinn, flóð og fjara. Öll störf
Reynis voru foreldrum hans ómet-
anlegur stuðningur í harðri lífs-
baráttu, miðað við þaö sem nú er.
Reynir átti því láni að fagna að
vera léttlyndur og gáskafullur.
Græskulaust grín og gamansemi
voru hans líf og yndi. Hann var
fundvís á hinar broslegu hliðar
lífsins sem hvarvetna birtast
okkur, jafnvel daglega, en svo
mörgum yfirsjást í erli dagsins.
Þá var honum líka einkar lagið að
laða fram bros og hlátur hjá þeim
sem hann átti samskipti við. Ég
veit að fólk sem var að alast upp í
Flatey á árunum um og eftir 1950
minnist margra sólríkra sumar-
kvölda, þegar Reynir kom út eftir
oft langan vinnudag, til að taka
þátt í og leiða leiki sér yngra fólks
af lífi og sál og þá var hann sem
einn af hópnum, þó aldursmunur
væri allnokkur.
Og árin liðu. 1. desember 1964
gekk Reynir að eiga Huldu Valdi-
marsdóttur frá ólafsvík. Þau hófu
búskap í Flatey og eignuðust tvær
dætur, Báru, sem býr á Drangs-
nesi og Þórunni, búsetta í Reykja-
vík. Syni Huldu, Eysteini Nikulás-
syni, gekk Reynir í jafnframt í
föðurstað og reyndist honum sem
besti faðir.
Þar kom að ekki var lengur líf-
vænlegt í Breiðafjarðareyjum.
Fiskur hvarf af miðum, atvinnu
var enga að hafa og vegna fólks-
fæðar var ekki lengur hægt að lifa
þar sama lífi og áður fyrr.
Þessi ótímabæra hnignun hins
áður blómlega byggðarlags hitti
Reyni og fjölskyldu hans ekki síð-
ur en aðra. Hvort þau tóku „síð-
Ketill barðist fyrir þessari lífs-
skoðun sinni hvar og hvenær sem
var og held ég að Ketill hafi farið
oftar en ekki með sigur af hólmi.
Ketill var góður og skemmtileg-
ur vinnufélagi og umfram allt
mjög hæfur starfskraftur. Ketill
starfaði hjá Sparisjóði vélstjóra
er hann lést, þar er nú stórt skarð
í röðum starfsfólks sem erfitt mun
að fylla.
Ég þakka Katli samfylgdina,
hún gaf mér mikið þó stutt væri.
Foreldrum og öðrum ættingjum
sendi ég mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Helgi Gunnlaugsson
Maður á erfitt með að sætta sig
við að þrítugur maður, fullur lífs-
vilja og orku, skuli vera horfinn
frá okkur, eftir hetjulega baráttu
við erfiðan sjúkdóm.
asta skip suður" veit ég ekki, en
þau fluttu eins og allur fjöldi ann-
arra eyjamanna og settust að í
Reykjavík, þar sem Reynir réðst
til afgreiðslustarfa. Hann var
vinsæll af viðskiptavinum sínum
og kom sér þar vel léttleiki hans
og sá eiginleiki, að geta slegið á
létta strengi við háa sem lága. Síð-
ustu árin átti hann við mikla van-
heilsu að stríða, þótt hann léti
þess lítt getið og væri alltaf jafn
hress og kátur.
Eiginkonu hans, börnum og öll-
um skyldmennum votta ég samúð
mína við fráfall góðs drengs. En
verið þess minnug, mitt í söknuði
ykkar, að minningin um Reyni
Vigfússon lifir og hún er björt.
Hvers er frekar hægt að óska sér á
stundu sem þessari?
Ólafur Ásg. Steinþórsson
Við Ketill Guðmundsson kynnt-
umst er ég hóf störf hjá Sparisjóði
vélstjóra í febrúar 1984. Urðum
við fljótlega góðir vinir og á ég
margar góðar minningar um
einlægan og góðan dreng.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég votta móður hans, Lilju
Halldórsdóttur, og systkinum
mína dýpstu samúð. Katli þakka
ég stutt en góð kynni.
Ragnheiður Hauksdóttir
Leiðrétting
í minningargrein um Nóa Berg-
mann Þórhailsson hér í blaðinu í
gær var sagt að systur hans hefðu
verið þrjár. Þær voru fjórar og féll
niður nafn einnar þeirra, Sóleyjar,
systur hans. Það leiðréttist hér
með.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
t
Alúöarþakkir og góöar óskir sendum viö venslafólki og vinum,
starf sliöi Sjúkrahússins á Akureyri og öörum er veittu hjálp og sýndu
hlýhug og samúö viö fráfall eiginkonu minnar, móöur okkar og
tengdamóöur,
EYJÓLFÍNU EYJÓLFSDÓTTUR
frá Heiöarseli á Síöu.
Árni Sigurösson,
Þórunn Árnadóttir, Rafn Jón Jónsson,
Halldóra Sigurrós Árnadóttir, Rafn Valgarösson,
Guörún Áslaug Árnadóttir, Pálmi Andrésson,
Elín Gíslina Árnadóttir, Kristjón Guöbrandsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför,
HARÐAR M. FELIXSONAR.
Ragnheiöur Hjálmarsdóttir,
Drífa Haröardóttir, Jack E. James,
Daöi Haröarson, Pat A. Dixon,
Leifur Harðarson,
Rafn Haröarson,
Ragnheiöur Haröardóttir, Jóhann Melsteð
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
mannsins mins, föður okkar, tengdafööur, afa og bróöur,
STURLAUGS GUDNASONAR,
Klébergi 13,
Þorlákshöfn.
Aðalheiöur Eyjólfsdóttir,
Guörún Sturlaugsdóttir, Þorsteinn Alfreösson,
Guöni Sturlaugsson, Ósk Gísladóttir,
Margrét Sturlaugsdóttir, Höröur Pálsson,
Viktor Sturlaugsson, Sigríöur Th. Mathiesen,
Einar Sturlaugsson, Svala Valgeirsdóttir,
Jakob Guönason, Oddný Rfkharösdóttir,
Margrét Guönadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Reynir Breiðfjörð
Vigfússon - Minning
+
SIGRÍOUR ANNA JÓNSDÓTTIR
frá Heigadal,
Dalbraut 27,
lést í Landspítalanum þann 22. júlí.
Systkini hinnar látnu.
4
+
Fósturmóöir mín, tengdamóöir, amma, systir og mágkona,
INGIGERDUR Ó. SIGURDARDÓTTIR,
áöur Álfheimum 50,
tést á Elliheimilinu Grund, mánudaginn 22. júní.
Ragnhildur J. Pálsdóttir, Vilhelm Ingimundarson,
Hjörtur I. Vilhelmsson, Jóhanna E. Vilhelmsdóttir,
Sæmundur Sigurósson, Sigrföur Þóröardóttir.
+
Faöir okkar,
HJÖRTUR NIELSEN,
kaupmaöur,
Baröaströnd 11,
andaöist þann 21. júli.
Erna Nielsen,
Svala Nielsen,
Sophus Nielsen.
+
Faöir okkar,
ERLENDUR BALDVINSSON
söölasmiöur,
Leirubakka 30,
andaöist föstudaginn 12. júlí.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd varidamanna.
Baldvin Erlendsson,
Pátur Erlendsson.
+
Fósturmóðir okkar og systir, '
RAGNHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Brimnesvegi 24,
Flateyri,
lést 20. júlí í Borgarspítalanum.
Minningarathöfn veröur í Fossvogskapellu miövikudaginn 24. júlí
kl. 15.00.
Fósturbörn og systkini hinnar látnu.
+
Móöir okkar,
ELÍN INDRIÐADÓTTIR,
Teigageröi 15,
Reykjavík,
er andaöist i Sjúkrahúsi Húsavíkur 19. júli sl. veröur jarösungin frá
Bústaöakirkju föstudaginn 26. júlí kl. 13.30.
F.h. vandamanna,
Anna Albertsdóttir,
Sigtryggur Albertsson.
+
Móöir okkar og tengdamóöir,
MARGRÉT EINARSDÓTTIR,
Hjallalandi 24,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júlí kl.
15.00.
Einar Kristjánsson,
Matthías Kristjánsson,
Oddný Kristjánsdóttir,
Siguröur E. Kristjánsson,
Ingileif Eyleifsdóttir,
Hjördfs Magnúsdóttir,
Ragnar Bjarnason,
Hólmfrfóur Sigmunds.
+
Þökkum samúö og vinarhug vlð andlát og jaröarför,
JÓNU SIGRÍOAR SVEINSDÓTTUR,
Hamrabakka 12,
Seyöisfiröi.
Eva Björk Helgadóttir, Stefanía Magnúsdóttir,
Hulda Sveinsdóttir, Ólafur Kjartansson,
Stefán Sveinn Ólafsson,
Sveinveig Siguröardóttir, Úlfur Ingólfsson
og aörir vandamenn.