Morgunblaðið - 31.07.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1985
Gamla póst-
húsið málað
EKKI hefur það farið fram hjá
vegfarendum Austurstrætis að nú
er verið að laga gamla pósthúsið í
Pósthússtræti 5. Fyrir u.þ.b. viku
síðan var byrjað að skafa, sparsla í
sprungur, hreinsa og lagfæra húsið
að utan og mun væntanlegur litur
hússins verða í svipuðum dúr og sá
fyrri.
Garðar Einarsson útibússtjóri
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins að einnig væri
ætlunin að taka ný, stærri og
betri pósthólf í notkun í byrjun
ágúst. Alls verða þau 1750, en
þau gömlu, 1344, verða rifin.
Pósthólfin færast af fyrstu hæð
pósthússins niður í kjallara.
„Hvert hólf tekur lárétt A-4
stærð af umslögum, en þau
gömlu tóku þau aðeins brotin
saman.
f haust verður síðan afgreiðsl-
an lagfærð. Nýjar innréttingar
koma í stað þeirra gömlu og
verður væntanlega ný afgeiðsla
tekin í notkun í október," sagði
Garðar.
Auglýst eftir
íslenskum ung-
mennum í kvik-
myndahlutverk
„Framleiðendur myndarinnar höfðu samband við mig fyrir helgi
og báðu mig að finna tvö ungmenni, í grænum hvelli, sem gætu leikið
aðalhlutverk í ensk-amerískri bíómynd sem hafist verður handa við f
byrjun september," sagði Vilhjálmur Knudsen kvikmyndagerðar-
maður þegar blaðamaður innti hann eftir auglýsingu er birtist í
Morgunblaðinu í gær.
„Fyrirtækið Talia-Film í
London framleiðir myndina og
eru aðstandendur hinir sömu
og kvikmynduðu „Enemy Mine“
hér um árið. Þeir eru að leita að
tveimur enskumælandi ungl-
ingum, 14—15 ára strákalegri
en fallegri stúlku og 7—8 ára
kvenlegum dreng. Þau skulu
vera norræn í útliti og leika
systkini á fiarlægum hnetti í
sólkerfinu. Eg veit lítið meira
um efni myndarinnar, sem
verður kvikmynduð í Kanada
frá 9. september til október-
loka.“
Vilhjálmur bjóst við að í
enda vikunnar yrði ljóst hverjir
veldust í hlutverkin, enda væri
timinn naumur þar til upptök-
ur hæfust. „Reyndar auglýsa
framleiðendurnir einnig í Sví-
þjóð en ég býst þó við að íslend-
ingar verði fyrir valinu."
Heimsmót æskunnar:
Um 20 íslensk
ungmenni fóru
til Moskvu
Um tuttugu íslensk ungmenni
sækja nú Heimsmót æskunnar,
sem hófst í Moskvu um síðustu
helgi. /Eskulýðssambandi íslands
barst á sínum tíma boð frá Æsku-
lýðssambandi Sovétríkjanna um að
senda 20 fulltrúa á mótið, og fól
boðið í sér fríar ferðir frá Kaup-
mannahöfn og uppihald í Moskvu.
Stjórn Æskulýðssambandsins
ákvað að þiggja ekki boðið í eigin
nafni, heldur var auglýst eftir
áhugafólki, sem hefði hug á að
sækja mótið á eigin vegum.
Niðurstaðan varð sú að um tutt-
ugu manns ákváðu að sækja Sov-
étmenn heim og eru flestir frá
Iðnnemasambandi fslands og
ungliðadeild Alþýðubandalags-
ins.
Rafmagn fór
af Kópavogi
RAFMAGN fór af vesturbæ Kópavogs í hálfan þriðja tíma í gær-
morgun, frá um kl. fimm til hálfátta.
Rafmagnsleysið stafaði af magnsveitu Reykjavíkur orðaði
því að háspennumúffa sprakk í það í samtali við blm. Morgun-
dreifistöðinni í Holtagerði og blaðsins.
við það fór rafmagn af fleiri
dreifistöðvum í sama bæjar- Tvöfalt kerfi er á dreifikerf-
hluta. Það gerist ekki oft að inu og tókst þvi tiltölulega
slíkar múffur springa — þessi fljótlega að koma rafmagni á
var orðin gömul og hrum, eins aftur en eiginlegri viðgerð var
og verkstjóri í bilanadeild Raf- að Ijúka um hádegisbilið i gær.
jrt>»ftP6e
$ 'Á
Gamla pósthúsið fær lit á sig á næstu dögum
' V;
Morgunblaöiö/Júlíus
Stendur sem hæst í
S versl. samtímis
40—60%
afsláttur
Sérstakt tækifæri til að fá ódýr
sumarföt fyrir stærstu helgi sumarsins.
/
i
i
í
1
Þær vörur sem eru ekki á útsöiunni
eru meö 10% afslætti.
WMm GARBO
lauoavog. 30 1?