Morgunblaðið - 31.07.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1985
29
Islax hefur látið gera frumáætl-
anir um byggingu og rekstur klak-
og seiðaeldisstöðvar á Nauteyri til
framleiðslu á 250—300 þúsund
gönguseiðum og matfiskeldis-
stöðvar í Reykjanesi til fram-
leiðslu á 300 tonnum af laxi á ári.
Stofnkostnaður á Nauteyri er
áætlaður 25,7 milljónir kr. og í
Reykjanesi 61 milljón kr. Gert er
ráð fyrir að söluverðmæti seið-
anna verði 10 milljónir kr. á ári og
söluverðmæti á laxi frá Reykja-
nesstöðinni verði 60 milljónir kr.
og sýna áætlanir góða arðsemi af
framkvæmdunum.
Klak- og seiðaeldis-
stöð á Nauteyri
Klak- og seiðaeldisstöðinni á
Nauteyri hefur verið valinn staður
á eyri við ósa Hafnardalsár og
hefur þar verið byggt 423 fer-
metra hús yfir eldið og vinna við
innréttingar er komin á lokastig. í
húsinu er auk eldisaðstöðu íbúð
fiskeldismanns og vinnuaðstaða.
Á þessu ári verður hafist handa
við að byggja annað hús af svip-
aðri stærð við hlið þess fyrra.
Heitt vatn er tekið úr borholum og
leitt að stöðinni í einangruðum
plastpípum, um 2,7 kílómetra leið.
Gerður var samningur við Naut-
eyrarhrepp um lands- og hitarétt-
indi til 25 ára með forleigurétti.
íslax kostar boranir en borholurn-
ar verða eign Nauteyrarhrepps í
lok samningstímans. Kalda vatnið
er tekið úr lokræsum meðfram
Hafnardalsá og úr dælubrunni, en
líka er hægt að fá sjálfrennandi
vatn úr ánni.
Engilbert sagði áformað að taka
fyrra húsið í notkun í byrjun ág-
úst með aðkeyptum seiðum. í
haust yrði stöðin síðan með eigið
klak og næsta vor þyrfti seinna
húsið að vera tilbúið til að taka við
seiðum úr klakinu. Hann sagði að
af þeim 250—300 þúsund göngu-
seiðum sem framleidd yrðu í stöð-
inni á ári væri gert ráð fyrir að
100 þúsund seiði yrðu tekin til
framhaldseldis í Reykjanesi en
hitt yrði til sölu á einhverju stigi
innan héraðs eða þá sett í hafbeit.
Fyrirtækið hóf hafbeitartilraunir
á Nauteyri í fyrrasumar með því
að sleppa 4.500 seiðum í ós Hafn-
ardalsár, en enginn lax hefur enn
sem komið er skilað sér til baka.
Hann sagði að nokkrir bændur
hefðu áhuga á að kanna möguleika
á fiskeldi, bæði í ám og til fram-
eldis þar sem jarðhiti væri til
staðar. Hann sagði að menn færu
ekkert suður á land til að sækja
seiði til slíkra tilrauna og væri
seiðaeldisstöð innan héraðs því
Reykjanes. Tilraunastöð tslax hf. er Ijósa húsið til hægri i myndinni.
grundvöllur allra raunhæfra til-
rauna á þessu sviði. Við stöðina
munu verða 2 ársstörf, en við upp-
bygginguna starfa mun fleiri.
Engilbert sagði að samvinna væri
ágæt við núverandi hreppsnefnd í
Nauteyrarhreppi og þegar hefði
orðið vart við jákvæð áhrif stöðv-
arinnar í sambandi við tryggingu
búsetu á svæðinu. Hann sagði að
það væri kannski umdeilanlegt
hvort rétt væri að halda þessu
svæði í byggð, „en menn verða að
gera það upp við sig hvort þeir
leggja pening í að flytja fólkið í
burtu eða að byggja hér upp,“
sagði Engilbert.
Matfiskeldi í Reykjanesi
f frumáætlunum sem gerðar
hafa verið fyrir matfiskeldisstöð í
Reykjanesi er gert ráð fyrir að þar
verði laxaseiði frá Nauteyri alin
frá gönguseiðastærð í sláturstærð.
Eldið verður sambland af strand-
kvíaeldi og flotkvíaeldi. Seiðin
verða fyrst alin í strandkvíum í
upphituðum sjó í um eins kg
stærð, en stór hluti þeirra síðan
færður út í flotkvíar þegar sjávar-
hitinn er orðinn nægilega hár og
alin þar í sláturstærð. I Reykja-
nesi er mesta jarðhitasvæðið við
ísafjarðardjúp, og ræður það fyrst
og fremst staðarvali, en þar er
líka gott landrými, og aðstaða til
sjávartöku, rafmagn frá dreifi-
kerfi Orkubús Vestfjarða og vara-
aflstöð og flugvöllur. Þá er ágæt
aðstaða fyrir flotkvíar báðum
megin Reykjaness, þ.e. 1 Isafirði
og Reykjarfirði.
Engilbert sagði að íslax hefði
átt viðræður við ísafjarðarkaup-
stað, sem er eigandi landsins í
Reykjanesi, um lands- og hitarétt-
indi fyrir eldisstöð en samninga-
viðræðum væri ólokið. „En þar
sem Pétur Bjarnason hefur lands-
réttindi í Hveravík í Reykjanesi
var gengið til samninga við hann
um að byggja tilraunastöð á landi
hans, þar sem nauðsynlegt þótti
að kanna vaxtarforsendur með
beinni íblöndun hveravatns i sjó.
Einnig þótti nauðsynlegt að prófa
laxeldi í netkvíum í sjó. Við byggj-
um stöðina en hann rekur hana í
tvö ár og á kost á að kaupa hana
að þeim tíma liðnum. Við lítum á
þetta sem undirbúning og æfingu í
að byggja upp stærri stöð annars
staðar á nesinu," sagði Engilbert.
Þeir hafa nú byggt eldishús í
Hveravík með tveimur eldiskerj-
um og eru með laxaseiði þar í eldi
og í flotkví í Reykjarfirði.
„Hafbeit of áhættu-
söm við I)júp“
Fyrirtækið Djúplax hf., sem er í
eigu Péturs Bjarnasonar fyrrver-
andi skipstjóra á ísafirði og fleiri,
hóf hafbeitartilraunir í Reykjar-
fjarðarbotni í samvinnu við land-
eigendur á árinu 1974. Pétur sagði
að hafbeitin hefði gengið þokka-
lega framan af, endurheimtur
hefðu verið 2—5% af 2—3 þúsund
seiða sleppingum. En frá árinu
1979, eftir að slepping var aukin
upp í 4—6 þúsund seiði á ári,
hefðu endurheimturnar brugðist
nánast alveg.
„Það er lítið um skýringar á
þessu,“ sagði Pétur þegar hann
var spurður hvað ylli. „Það sem
maður þó veit eftir á er að á þessu
tímabili hefur legið mjög kaldur
pólsjór yfir Vestfjarðagrynning-
unni og líklegt að seiðin, sem eru
stríðalin, hafi drepist þegar þau
gengu út í þennan kalda og æt-
issnauða sjó. Ég tel að selurinn
hafi einnig tekið sinn toll, en hon-
um hefur fjölgað hér í Djúpinu."
í vor var engum seiðum sleppt í
hafbeit í Reykjarfjarðarbotni í
fyrsta skipti síðan 1974. í fyrravor
var 2.000 seiðum sleppt þar og var
aðeins einn lax kominn til baka
um miðjan júlí, þegar blaðamaður
var á ferð í Djúpinu. Pétur sagði
að framhald tilraunanna væri
óráðið. Hann sagði: „Ég tel að haf-
beitarrekstur á Vestfjörðum sé
ákaflega háður sjávarhita og geti
ráðist af því hvernig straumar
liggja; hvað golfstraumurinn er
sterkur á hverjum tíma. Maður
sér þessar sveiflur ekki fyrr en
eftir á og hafbeit er því allt of
áhættusöm þar til menn geta ráð-
ið meira í aðstæður fyrirfram."
Tilraunirnar lofa góðu
Pétur hefur nú stofnað fyrir-
tæki sem nefnt er Laxeldisstöiðin í
Hveravík, eftir staðsetningu
hennar í Reykjanesi. Meðeigendur
hans eru tveir starfsmenn Hér-
aðsskólans í Reykjanesi. Þeir ætla
að taka við rekstri tilraunastöðv-
arinnar af íslaxi aö tilraunatím-
anum loknum og stækka hana.
Mun stöðin kaupa seiði frá tslaxi
og ala þau í sláturstærð, og er
stöðin því liður í því að nýta fram-
leiðslu Nauteyrarstöðvarinnar.
Sagði Pétur að tilraunirnar
hefðu komið vel út til þessa. „Það
sem aðallega þurfti að fá svör við
með tilraununum var hvort hægt
væri að dæla sjó allt árið. Það
reyndist hægt. Einnig þurfti að
kanna áhrif þess á laxinn að
blanda hveravatni beint í sjóinn, í
stað þess að forhita hann fyrst.
Með því móti þarf aðeins 10% af
því heita vatni sem annars þyrfti.
Þessi tilraun hefur komið jákvætt
út og fiskurinn þrifist vel. Hefur
náðst allt upp í 1,7% vöxtur á dag,
en það er fyrir ofan meðallag,"
sagði Pétur.
- HBj.
Vinnumenn við einangrun heitavatnsleiðslunnar frá borholunni að stöðvarhúsinu.