Morgunblaðið - 11.08.1985, Side 5
>
Préttirnar áttu helst ekki að vera
um stjórnmál, heldur „framfarir"
og menningarlif og sýna hinar
„bjartari hliðar" tilverunnar.
Undir þetta var tekið í ályktunum
UNESCO og í „þróunaráætlun á
sviði upplýsingamiðlunar" eru
lagðar fram beinar tillögur, sem
fela ekkert annað í sér en leiðir til
að takmarka fréttaflutning og
setja starfsemi vestrænna frétta-
manna í þriðja heiminum skorður.
Með réttu hefur fjölmiðlastefna
UNESCO verið kennd við ritskoð-
un. Hún er að vísu fagurlega orðuð
á stundum og hefur að geyma at-
riði, sem allir geta verið sammála
um, en í kjarna sínum felur hún í
sér endalok frjálsrar fjölmiðlunar.
Hún er augljóslega runnin undan
rifjum harðstjóranna i þriðja
heiminum, sem vilja fá að stjórna
í friði fyrir spurulum útlendum
fréttamönnum. (Um sjálfstæða
innlenda fréttamenn er ekki að
ræða. Slíkir menn heita „glæpa-
menn“ og „óvinir þjóðarinnar" og
ef þeir fá að lifa eru þeir látnir
dúsa í myrkraklefum stjórnvalda.)
Enrique Zileri, ritstjóri í Líma í
Perú, ritaði nýlega grein um fjöl-
miðlastefnu UNESCO í IPI Report
(apríl 1985), sem International
Press Institute gefur út. Þar segir
hann afar fróðlega sögu af því
hvernig hin „nýja upplýsingamiðl-
un“ er í framkvæmd. f júli 1974
stöðvuðu stjórnvöld í Perú útgáfu
frjálsra dagblaða og Meneses
hershöfðingi, upplýsingamálaráð-
herra landsins, lýsti því yfir að
ætlunin væri að leysa „vandamál
fjölmiðla" á grundvelli hugmynda
frá Menningarmálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna. Eigendum blað-
anna og flestum starfsmönnum
var ýtt til hliðar og nýtt fólk kvatt
til starfa. Jafnframt var ákveðið
að blöðin skyldu spegla „samfélag-
ið“ betur en þau hefðu áður gert
og í stað þess að flytja almennar
fréttir skyldi eitt blaðið einbeita
sér að landbúnaði, annað að iðnaði
o.s.frv. Stjórnin kvaðst ekki hafa
tekið blöðin í sínar hendur, heldur
væri það fólkið sjálft sem nú réði
þeim. Og hún setti ritfrelsi ekki
önnur takmörk en þau, að skrif
blaðanna mættu ekki ganga gegn
byltingunni i landinu! Það þarf
svo ekki að koma á óvart að á
ráðstefnum UNESCO og í sam-
þykktum stofnunarinnar var ætíð
talað um „tilraunina í Perú“ með
mikilli virðingu.
Framtíð UNESCO
Aðalfundur UNESCO verður
haldinn i Búlgaríu i haust. Að
honum loknum munu stjórnvöld í
Bretlandi, Vestur-Þýskalandi og
fleiri vestrænum rikjum gera það
upp við sig hvort þau fylgja for-
dæmi Bandríkjamanna og hætta
þátttöku í starfi stofnunarinnar
eða sætta sig við einhverja mála-
miðlun. Framtið UNESCO veltur
á þeim ákvörðunum.
íslensk stjórnvöld hafa í sam-
ráði við ríkisstjórnir hinna Norð-
urlandanna gagnrýnt UNESCO og
lagt til að stofnunin dragi veru-
lega saman seglin. Hins vegar hef-
ur ekki komið fram hvaða boðskap
fulltrúar okkar á aðalfundinum
eiga að flytja, en forvitnilegt væri
að hafa fregnir af þvi. Umræður
um UNESCO á ekki að einskorða
við þröngan hóp embættismanna
og í ljósi þess sem verið hefur að
gerast innan stofnunarinnar tel ég
við hæfi, að menntamálaráðuneyt-
ið láti hið fyrsta frá sér fara
„hvítbók" um ágreiningsefnin og
afstöðu íslenskra stjórnvalda til
þeirra. Þetta ætti ekki að vera
mikið verk þegar haft er í huga, að
fulltrúi ráðuneytisins situr í hinni
áhrifamiklu framkvæmdastjórn
UNESCO og á vegum ráðuneytis-
ins er maður í hálfu starfi við það
eitt að flokka póst frá UNESCO.
(Fyrir það hefur hann hinn virðu-
lega titil „ritari íslensku UN-
ESCO-nefndarinnar“.)
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985'
B 5
TÖLVUNÁMSKEID
Á AKUREYRI
Tölvunámskeið fyrir fulloröna
Gagnlegt og skemmtilegt byrjendanámskeið fyrir fólk á öllum
aldri. Námskeiðið kynnir vel notkun tölva og eyðir öllum tölvuótta.
Nemendur fá innsýn í forritun í BASIC, ritvinnslu með tölvu og
notkun töflureikna.
Tími:
15. og 16. ág., kl. 19:30—22:30.
17. og 18. ág., kl. 16:00—19:30.
IBM-PC
Námskeið í notkun IBM-PC og annarra einkatölva. Kynnt er notk-
un algengustu notendaforrita.
Dagskrá:
★ Grundvallaratriói viö notkun PC-tölva.
★ Stýrikerfiö PC-dos.
★ Ritvlnnsla með PC-tölvum.
★ Töflureiknirinn MULTIPLAN.
★ Gagnasafnskerfiö D-basell.
★ Bókhald á IBM-PC.
★ Fyrlrspurnir.
Tími:
15. og 16. ág„ kl. 09—12.
17. og 18. ág„ kl. 13—16.
Unglinganámskeið
Byrjendanámskeiö fyrir unglinga á aldrinum 12—15 ára í notkun
tölva og forritun í BASIC. Tilvalið námskeið fyrir þá sem eiga
heimillstölvu og vilja nota tölvuna til aö leysa verkefni.
Tími:
15. og 16. ág„ kl. 16—19.
17. og 18. ág„ kl. 13—16.
Töflureiknirinn
MULTIPLAN
Kennd er notkun töflureiknisins Multiplan til þess aö leysa algeng
verkefni og gera fjárhagsáætlanir. Aö loknu námskeiöi eru þátt-
takendur færir um aö nota Multiplan hjálparlaust.
Tími:
15. og 16. ág„ kl. 13—16.
17. ág„ kl. 09—12.
Ritvinnsla
Námskeiöiö veitir góöa þekkingu i notkun ritvinnsiu meö tölvu.
Nemendur fá æfingu í aö setja upp skjöf og nota prentara.
Tími:
15. og 16. ág„ kl. 09—12.
LEIÐBEINENDUR
Dr. Kristján Ingvarsson, Dr. Kjartan Magnússon, Yngvi Pétursson,
verkfræöingur. stæröfræöingur. menntaskólakennari.
Innritun á námskeiöin fer fram í versluninni Hljómver á Akureyri í síma 23626, eða hjá
Tölvufræðslunni í Reykjavík í síma 687590.
© Námskeiöin veröa haldin í Oddeyrarskóla á Akureyri.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Ármúla 36, Reykjavík.
piurijiiwMafeiiííi
Góðan daginn!
85 41