Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 11. ÁGOST 1985 B 11 POPPARI VIKUNNAR INGÓLFUR HANNESSON, ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAOUR POPPARI vikunnar aö þessu sinni, reyndar sá fyrsti, er enginn annar en Ingólfur Hannesson, ástsæll íþróttafréttamaöur útvarpsins. Ingólfur er maöur vinsæll, á besta aldri og leynir á sór hvad tónlistarsmekk varöar. Við skulum sjá hvaö er í mestu uppáhaldi hjá Ingólfi. Uppáhaldslögin: 1. The River Bruce Springsteen 2. Sgt. Peppers Beatles 3. You Don’t Mess Around with Jim Jim Croce 4. A Child’s Adventure Marianne Faithful 5. Dire Straits Dire Straits 6. Babbacomb Lee Fairport Convention 7. Kár och galen Ulf Lundeil 8. Forces of Victory Linton Kwesi Johnson 9. Born in the USA Bruce Springsteen 10. Ready Blues Band Uppáhaldsplöturnar: 1. A Whiter Shade of Pale .Procol Harum 2. Time in a Bottle Jim Croce 3. Stairway to Heaven Led Zeppelin 4. Sultans of Swing Dire Straits 5. Ikaros Björn Afzeiius 6. John Lee Fairport Convention 7. The River Bruce Springsteen 8. Satisfaction Rolling Stones 9. Blowin' in the Wind Bob Dytan 10. Let Me Drive Bette Midler GallabuxnarokkW (f f uppáhaldi h|á Ingótfi HannMsyni. Myndband félaganna, Jaggers og Bowíe meó laginu Dancing in the Street er eitt það glaöieg- asta og iókvæðasta sem maö- ur hefur séð síðustu érin. Lífsgieðin og glaðværðin i fyrírrúmi. Myndbandið var tekið upp á mettíma og það er kannski þess vegna sem þaö var svona gott og eðli- legt. Hér eru tvær myndir. önnur sýnir popparana tvo i förðun triöra fljóða og hin er úr mynd- bandinu. Bowie og Jagger syngja saman Jh Dancing 't> in the Streets væntanlegt á smáskífu Mick Jagg- er og David Bowie slógu heldur betur i gegn í vídeóinu góöa sem sjónvarpaö var á Live Aid. Þeir tóku lagiö Dancing in the Street meö viðeigandi töktum aö hætti svartra og mátti ekki sjá hvor haföi betur í dans inum sem nú er víst iökaöur hér og þar. Já, þeir voru víst einhverjir sem tóku þetta upp á myndband. Skamm-skamm. Vídeóiö veröur vist aidrei sýnt aftur en „fátt er svo meö öllu illt aö ei boöi gott“ var sungiö um áriö. Væntanlegt er á smáskifu þetta ákveöna lag, Dancing in the Street, í flutningi félaganna. Popparinn spáir laginu fyrsta sæti beggja vegna Atlantshafsins sem og hér á landi. A hvað hlustar Clapton? Hlustar Eric Clapton eitt- hvað a yngri popparana? Svo sannarlega. Og hvað þa? Ju, Paul Young og Howard Jones eru i miklu uppáhaldi hjá kappanum auk Prince og Bruce Springsteen Clapton segist langa mikið á tonleika hja Springsteen en þorir það varla. „Það er hætta á aö maður hætti algjörlega i tonlist ef maður fer og sér þennan frábæra listamann a tonleikum. Eg hætti varla a það.“ segir Clapton i blaðaviðtali. Clapton í fínu formi þarna. Líklegast í hægum blús. Sú besta The Damned — The Sha- dow of Love Hljómurinn, yfirbragöiö og flutn- ingurinn er fyrirtak. Drunginn er yf- irþyrmandi en samt heyrir maöur Bonanza og Rawhide í fjarska. Lagiö virkar virkilega sterkt á mann. Aðrar ágætar Lindisfarne — I Remember The Nights Þjóölagabrýnin komin af staö á ný og nú eru sparibuxurnar teknar fram og sungiö a la Flying Pickets. Munurinn er þó sá aö rödd Alans Hull slær allar raddir Flying Pickets út léttilega. Gott lag og vel aó verki staöiö. Júlíus Lennon giftir sig von bráöar. Sú heppna eöa hvaö maö- ur á aö segja heitir Debbie Boy- land. Paul McCartney voru boönar margar krónur (1 milljón dollara) ef hann vildi leika í Dallas. Bruce Springsteen, gallabuxna- rokkari allra tíma, slær nú hvert metiö á fætur ööru í Bretlandi. All- ar sjö breiöskífur hans eru á lista yfir 50 söluhæstu plöturnar t Bret- landi og 3 þeirra hafa nú náö hærra sæti en þegar þær voru fyrst gefnar út. Fljótlega kemur út hljómleika- plata meö Hall and Oates sem fyrr var minnst á. Meö þeim á plötunni eru Temptations-náungarnir Eddie Kendricks og David Ruffin sem viö sáum á Live Aid. Efni plötunnar er þvi blanda af Hall and Oates og Temptations-slögurum. Meöal laga má nefna My Girl, Adult Education og síöast en ekki sízt Everytime You Go Away. Ray Davies leikur hlutverk í kvikmyndinni Absolute Beginners sem veriö er að gera þessa dag- ana. I einu atriöa myndarinnar á Davies aö bakka bíl. Leikstjórinn baö Davies um aö aka hægt og róiega aö ákveðnum staö og drap fæti sínum þar niöur til áréttingar. „Allt í lagi,“ sagöi Davies, setti í bakkgír og bakkaöi á 60 mílna hraöa á kvikmyndatökuvélina og fleira, en leikstjórinn slappll Vænt- anlega er Kinksarinn okkar kom- inn í ökutima meö The Smiths (sjá fyrr í grein). Tom Jones á 20 ára afmæli í skemmtibransanum um þessar mundir. Popparlnn sendir mannin- um meö loönu bringuna innilegar hamingjuóskir meö laginu Á sjó. Tears for Fears Tvteykið vinsæla: Tears for Fsars. Tears for Fears heitir eitt allra vinsælasta tvíeykiö í heimi popps- ins eins og staöan er í dag. Hljómplata þeirra Songs from the Big Chair hefur heldur betur hitt í mark og lögin Shout, Everybody wants to Ruie the World og Head over Heels slá hvarvetna í gegn eins og trommarinn kröftugi forö- um. Popparinn rakst á spjall viö tví- eykiö í einhverju erlendu tímariti og var aó hugsa um aö þýöa þaö si sona en hætti viö þaö. i staöinn látum við nokkrar staöreyndir fjúka um piltana sem komu á dag- inn eftir lestur viötalsins. Hugmyndin aö nafni plötunnar Songs from the Big Chair er fengin úr kvikmyndinni Sybil, en hún fjall- ar um stúlku sem hefur 14 per- sónuleika, hvorki meira né minna. Gott ef myndin var ekki sýnd i því íslenska foröum. Hvaö um þaö. Sálfræöingur Sybil sat alltaf í for- láta stól, stórum, og þaöan kemur nafniö. Orzabel var vist skotfljótur aö semja Shout. Fyrsta lagiö á hliö 2,1 Believe, er tileinkaö Robert Wyatt, fyrrum meölimi Soft Machine. Upphaflega var lagiö samið fyrir hann en svo uröu strákarnir svo skotnir í laginu aö þeir tímdu ekki aö láta þaö frá sér. Þeim finnst I Believe besta lag plötunnar. Þegar Curt Smith og Roland Orzabal (þeir heita þetta víst) hitt- ust tyrst fyrir ca. 10 árum hélt Curt aö Roland væri franskur. Roland hélt hinsvegar aö Curt væri indíáni. Skemmtilegt. Roland segist hafa oröiö fyrlr mestum áhrifum frá Paul Simon og David Essex er hann var ungur (Roland þ.e.a.s.). Curt hins vegar varö fyrir miklum áhrifum frá Thin Lizzy og Blue Oyster Cult sem unglingur meö fílapensla. Nafniö Tears for Fears er fengiö úr bókinni Prisoners of Pain eftir Arthur Janov. Aö lokum: Piltunum finnst gam- an aö taka myndir. Þ.e. áhugamál þeirra er Ijósmyndun. Látum þetta duga. jar sveitir Árni Daníel og Ellý söngkona úr Q4U eru búin aö hleypa af stokkunum nýrri hljómsvelt sem Popparinn er búinn aö stein- gleyma hvaö heitir. Arni þessi var í Taugadeildinni og Q4U ef einhver kannast ekki viö kauöa. Bróöir Arna ku vist vera meölimur í þessari nýju sveit. Sigurvegari Hæfileikakeppni Sóló, Guöjón Guðmundsson stór- söngvari (bróöir Magnúsar í Meö nöktum), Guömundur trymbill úr Das Kapital og Bergþór Morthens, fyrrum gítarleikari í Egó munu fara af staö meö hljómsveit um leiö og Guöjón kemur aö utan. Þar sem minni Popparans er frekar slæmt veröur nafn bassaleikarans aö biöa betri tíma, en þaö er bassaleikari inni i myndinni. Þögn. Ellý og Ami Daníel eru þama saman í hljómtveitinni Q4U. Ellý með hljóðnemann og Ámi leikur tipurlega é ferðahljómborðið. SMÁSKÍFUR VIKUNNAR Opus — Life » Live Susanna. Ekki alveg en næstum því. Hópsöngur, pottþétt sjúdder- allírei-lag og sem slikt fær þaö fyrstu einkunn. Afgangurinn Rick James — Glow Meinar maöurinn þetta?? Mai Tai — History Sbr. næsta dóm á undan. AC/DC — Danger Helber þumbaraskapur. Sigurö- ur? Hvaö er meö þína menn? De Barge — Who’s Holding Donna Now? Corey Hart — Never Surrender Má ég annaö hvort fá meira súkkulaöi eöa meira af gaddavír. Svona óákveöni gengur ekki. Ekta amerikuhljómur. Fínt á biöstofur tannlækna og sem síöasti dans. Ég heföi samt ekki getaó sagt til um hvort Richie, Jackson Ocean eöa De Barge heföi samiö þetta upphaflega? Denise Lasalle — My Toot Toot Aretha Franklin — Freeway of Love Alveg eins og History meö Mai Tai. Ferlega litlaust. Góö hugmynd en illa fram- kvæmd. Ekta trommuleikari heföi komiö betur út í svona tónlist. Lag- iö er ekki alvont og kella með tína rödd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.