Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985 3E A DR0rnNS«I Umsjón: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Ásdís Emilsdóttir Svavar A. Jónssón Ekki einfalt að deila lífinu með öðrum — segir Ingeborg Lundberg sálfræðingur 1* fyrra komu hingað hjónin Ingeborg og Lars Áke Lundberg frá Svíþjóð. Þau héldu fræðslufundi og námskeið með æskulýðsstarfsfólki þjóðkirkjunnar. Við höfum áður birt viðtal við Lars Áke hér á síðunni og í dag birtum við ykkur ofurlítið af þeim fróðleik, sem Ingeborg bar fram í erindum, sem hún flutti í Reykjavík. Og meira birtist síðar. Hún talaði um samvistir fólks, samvistir barna og foreldra og samvistir fólks þegar það er ástfangið og eftir að hin fyrsta ást er ögn tekin að róast. Ingeborg og Lars Áke fluttu þessa fyrirlestra saman, hvert frá sínu sjónarhorni, en hún er sálfræðingur en hann prestur. Á milli sungu þau eða efndu til almenns söngs svo að fyrirlestrarnir urðu sannarlega lifandi. — Við erum sköpuð til sam- vista hvert við annað. Félags- skapurinn gefur okkur gleði í líf- inu, við auðgum hvert annað og hjáipumst að. En það er ekki alltaf einfalt að deila lífi sínu með öðrum. Samvistirnar þró- ast, vaxa og breytast og ýmislegt þarf að leggja í sölurnar til þess að þær takist. Samvistir foreldra og barna Við flytjum fyrirmyndina að samvistum okkar með okkur frá fyrri skeiðum lífs okkar, frá samvistum við foreldra okkar þegar við vorum börn og ungl- ingar. Þegar við giftum okkur höfum við þegar mikla reynzlu af samvistum við aðra. Margt í henni er okkur samt ómeðvitað. Við tökum reynzlu okkar sem sjálfsögðum hlut þar til við hitt- um aðra, sem hafa aðra reynzlu og önnur viðhorf. Fjölskyldur geta verið ólíkar, bæði hið ytra og innra. Við töl- um nú oft um kjarnafjölskyld- una, fjölskyldu einstæðra for- eldra og stjúpfjölskylduna. Barn í kjarnafjölskyldu býr með báðum foreldrum sínum. Barnið getur verið einbirni, ann- að barn eða þriðja barnið í fjöl- skyldunni. Kjarnafjölskyldan getur orðið að fjölskyldu ein- stæðs foreldris. Og margar fjöl- skyldur einstæðra foreldra verða síðar stjúpfjölskyldur. Þær geta litið út á ýmsa vegu. Það er ein- kennandi fyrir stjúpfjölskyld- Elskið hvort annað en gerið ekki kærleikann að bauju. Látið hann heldur vera haf milli stranda sálna ykkar. Fyllið bikar hvors annars en drekkið ekki af sama bikarnum. Gefið hvort öðru brauð en etið ekki af sama brauðinu. Syngið og dansið saman og verið glöð, en látið hvort ykkar vera eitt, eins og strengirnir á lútunni eru einstakir hver fyrir sig þótt þeir titri af sömu hljómlistinni. A unglingsáninum verður barnið æ óháðara foreldrum sínum. Það getur gerzt sársaukalaust en er stundum erfitt af beggja hálfu. urnar að stundum eru þar marg- ir heima en stundum fáir, stund- um eru börnin heima en stund- um hjá hinu foreldrinu. Foreldrar þurfa líka að læra að verða sjálfstæðir í fyrstu eru afar náin tengsl milli barnsins og móðurinnar. Barnið fyllist angist þegar hún fer í burtu en lærir svo af reynzl- unni að hún kemur alltaf aftur. Svo vex barnið upp úr þessum tengslum, það getur og vill sjálft gera meira og meira á eigin spýtur. Þá sveiflast það sífellt milli þess að vilja vera hjá for- eldrum sínum og hins að spjara sig sjálft. Á unglingsárunum verður barnið æ óháðara for- eldrum sínum. Það getur gerzt sársaukalaust en er stundum erfitt af beggja hálfu. Ungl- ingarnir komast þá stundum I andstöðu við foreldra sína um tíma og véfengja flestar skoðan- ir þeirra. En þetta er mikilvægt tímabil eins og tímabil hinna nánu sam- skipta var. Að því loknu rennur væntanlega upp skeið gagn- kvæmrar virðingar fullorðins fólks. Það eru ekki aðeins ungl- ingarnir, sem þurfa að verða óháðari foreldrum sínum, for- eldrarnir þurfa líka að verða óháðari börnunum. Þeir þurfa að verða óháðari foreldrahlutverk- um sínum og fela unglingunum ábyrgðina á sjálfum sér smátt og smátt. Þeir þurfa líka að losa sig við það, sem þau vonuðu eða ætluðust til að barnið tæki sér fyrir hendur. Þetta skeið er breytilegt og sumum finnst þau ekki verða óháð foreldrum sín- um fyrr en á fullorðinsárum. Hvernig sýnir fólk til- finningar sínar? Við skulum líta nánar til hinn- ar mismunandi innri gerðar fjöl- skyldunnar. Hún kemur t.d. fram í því hvernig fólk sýnir til- finningar sínar. I sumum fjöl- skyldum sýnir fólk gleði sína augljóslega, einhverjir í fjöl- skyldunni a.m.k. í öðrum fjöl- skyldum kaupir fólk eitthvað og kemur með heim þegar það er glatt. I enn öðrum fjölskyldum er fólk hljóðlátt og sýnir gleði sína varfærnislega. Og hvernig sýnir fólk óánægju sína? Sumir verða háværir, sum- ir tala mikið um hana, aðrir verða þumbaralegir, afneita óánægjunni og verða hræddir við hana. Hvernig sýnir fólk hinar ýmsu tilfinningar? Þegar farið er að hugleiða það kemur kannski í ljós að mamman gerði það á einn veg en pabbinn á annan. Þau komu líka frá ólíkum fjölskyld- um. Við sögðum að við hefðum gleymt mörgu því, sem við tók- um með okkur frá uppvexti okkar. En það rifjast upp þegar við förum að tala um það. Hversvegna ættum við að gera það? Vegna þess að það hjálpar okkur til að skilja sjálf okkur. Og því betur sem við skiljum sjálf okur því betur gengur okkur að láta aðra skilja okkur. Og við það verða samvistirnar auðveldari. Það er nefnilega al- gengur misskilningur að við ætl- umst til þess að þau, sem elska okkur, eigi líka að skilja okkur. Án þess að við tölum um það, sem við hugsum, finnum og vilj- Kjarnafjolskyldur geta breytzt í fjölskyldur einstæðra foreldra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.