Morgunblaðið - 11.08.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. AGUST 1985
=P...S&?
Guðmundur V. Lárus
son — Minning
Fæddur 12. júlf 1926
Dáinn 5. ágúst 1985
Það tekur dálítinn tíma að átta
sig á því að það sé komið að hinstu
kveðjustund þegar í hlut á maður
á góðum aldri sem alltaf hefur
verið heilsuhraustur og tekið þátt
í lífinu með þrótti og dug. Eftir að
Guðmundur tók þann sjúkdóm
sem svo marga sigrar nú gekk
hann til móts við örlög sín með
óvenjulegri hetjulund og síðustu
mánuðina og allt til enda sýndi
hann æðruleysi og stillingu.
Hann fæddist að Krossnesi í
Eyrasveit, sonur hjónanna Sigur-
laugar Skarphéðinsdóttur og Lár-
usar Guðmundssonar, elstur
barna þeirra sem voru átta tals-
ins. Æskuárin liðu við leik og störf
en brátt tók alvaran við. Guð-
mundur fór ungur að vinna fyrir
sér sem kallað er, var einn af þess-
um harðduglegu mönnum sem
hlífa sér hvergi, honum var sér-
lega lagið að vinna með vélar og
að stjórna stórvirkum tækjum var
ekkert mál. Alla sina starfsævi
var hann eftirsóttur verkmaður,
vinsæll og vel látinn af vinnufé-
lögum jafnt sem yfirmönnum.
í einkalífi gekk Guðmundur
gæfuveg með eiginkonu sinni,
Rósu Guðjónsdóttur. Heimili
þeirra hér í Reykjavík ber vott um
sérstaka snyrtimennsku og um-
hyggju. Þau eignuðust fimm börn
sem nú kveðja ástríkan föður, þau
eru Sigurlaug húsmóðir, Guðjón
sjómaður, Lára húsmóðir, Þuríður
húsmóðir, Anna hjúkrunarkona,
búsett í Svíþjóð.
Þegar ég nú kveð Munda frænda
minn vil ég þakka áralanga tryggð
og hlýja vináttu hjá þeim hjónum
báðum. Hans er nú saknað af stór-
um hópi frænda og vina sem muna
glaðlyndi hans og vináttu. Nán-
ustu ástvinir hafa þó mest misst.
Ég sendi eiginkonu hans, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
innilegar samúðarkveðjur minnug
þessara orða:
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg.
En anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgrímsson)
Kristín Jóhannesdóttir
Fæddur var Guðmundur að
Krossnesi í Grundarfirði. Foreldr-
ar hans voru Sigurlaug Skarphéð-
insdóttir og Lárus Guðmundsson
bóndi þar. Hann var elstur átta
systkina. Tvö þeirra eru farin á
undan honum, Jóna sem lést úr
hjartaslagi fyrir fáum árum og
Lýður er dó af slysförum. Ekki
náði Guðmundur að fylla sjötta
áratuginn og telst það ekki hár
aldur í dag. En ekki þýðir að deila
við dómarann. Móðir hans dó er
hann hafði rétt náð fermingar-
aldri. Faðir hans stóð þá uppi með
stóran barnahóp, öll á unga aldri
og hann eina fyrirvinnan. Þá var
þröngt I búi hjá mörgum smá-
bóndanum á íslandi. Kreppunni
var rétt að linna og byrjað að rofa
fyrir nýjum degi í landinu. Strax
og Guðmundur hafði aldur til
dreif hann sig til höfuðborgarinn-
ar að leita fjár og frama, eins og
svo margir aðrir hafa gert fyrr og
síðar. Þegar til Reykjavíkur kom
var stríðið skollið á og réð hann
sig til vinnu við Reykjavíkurflug-
völl eins og þúsundir annarra Is-
lendinga gerðu þá. Síðan vann
hann um tima hjá Haraldi
Bjarnasyni og starfaði þá mikið
við ýtur og gröfur. Vinnudagurinn
var þá oft langur og ekki spurt um
Marta Péturs-
dóttir - Minning
Það fækkar óðum þeim sem
ólust upp í „litlu húsi“ hjá foreldr-
um sínum og stórum systkinahópi,
í sátt og samlyndi við allt og alla.
Einn þeirra var Marta mágkóna
mín. Marta Pétursdóttir fæddist á
Norðfirði þann 15. júlí 1907. For-
eldrar hennar voru hjónin Jó-
hanna Erlendsdóttir frá Auðkúlu I
Húnavatnssýslu og Pétur Bjarna-
son, sjómaður og fiskmatsmaður
úr Norðfirði. Fljótlega fluttu þau
til Eskifjarðar, þar sem Pétur
byggði sér lítið hús, eins og þá
tiðkuðust og fjölskyldan bjó i.
Barnahópurinn varð stór, 9
systur og 1 bróðir. Þrjár systr-
anna lifa enn, Metta býr í Reykja-
vík, Jóna er sjúklingur á Fá-
skrúðsfirði og Jóhanna sem býr I
Garðabæ.
Marta fór snemma að vinna,
bæði á heimilinu og alla vinnu
sem til féll í þorpinu. Haustið 1927
fór hún til Reykjavfkur og hugðist
fá sér betri og meiri vinnu. Hún
var vönust heimilisstörfum og
þjónustubrögðum, sem hún vann
af einstökum hagleik og gleði.
Marta var barnelsk og vildi þvi
helst vera á barnmörgum heimil-
um.
Þess má geta að hún var í
marga vetur hjá þeim heiðurs-
hjónum Auðbjörgu Tómasdóttur
og Kristjáni Gestssyni verslunar-
manni. Börn þeirra voru henni
kærir vinir alla hennar æi. Á vor-
in fór Marta austur á Eskifjörð til
þess að sinna litlu systkinunum
sfnum, sem enn voru f ómegð.
Árið 1944 giftist Marta elsta
bróður mfnum, Sigurði P.J. Jak-
obssyni, starfsmanni Rafmagns-
veitu Reykjavfkur, þau eignuðust
tvo syni, Jóhann Pétur, rafvirkja,
sem bjó alltaf með móður sinni, og
Jón Ármann, verkstjóra, giftan
Ingibjörgu ölvisdóttur frá Þjórs-
ártúni, þau eiga 3 börn.
Heimili Mörtu og Sigurðar var
sérstaklega ánægjulegt og mynd-
arlegt. Synirnir undu vel heima
við ýmiss konar tómstundaiðkanir
með föður sínum. Á sumrin ferð-
aðist fjölskyldan oftast öll um
landið þvert og endilangt.
Marta gekk þó aldrei heil til
skógar. Á unga aldri fékk hún
mjög slæma liðagigt, sem háði
henni alltaf. Hún bar veikindi sín
með rósemi. Heilsu hennar hrak-
aði mjög sfðustu ár, þar til hún
lést 21. júli sl.
Minningin um gott og ástríkt
æskuheimili verður drengjunum
leiðarljós í lífinu. Blessuð sé minn-
ig hjónanna Mörtu og Sigurðar.
Petrína Kristín
hvort helgur dagur væri eða ekki.
Guðmundur var dugnaðarforkur
til allrar vinnu og kunni vel til
verka. Á þessum árum var það að
Guðmundur vildi reyna nýjar leið-
ir og réð sig á togara. Ekki varð sú
ferð til neinnar gæfu, því í fyrstu
ferðinni varð sprenging um borð í
togaranum og létust menn en aðr-
ir urðu fyrir eitrun og var hann
einn þeirra. Er ég hræddur um að
hann hafi aldrei gengið heill til
skógar eftir það. Urðu nú þátta-
skil í ævi hans. Álverksmiðjan í
Straumsvik hóf starfsemi sfna og
þangað réð hann sig til starfa og
starfaði þar til dauðadags. Fyrir
rúmu ári kenndi Guðmundur sjúk-
dóms þess er nú hefur lagt hann
að velli. Var hann stöðugt undir
Hinir vinsælu' körfu-
skór úr mjúku leðri
komnir aftur
Litir: Hvítir, svartir,
dökkbláir og rauöir.
St. 36—41.
Kr.
899,00
Póstsendum
21212
læknishendi allan timann. Reynd
voru öll þau ráð er læknar gátu
beitt, en allt kom fyrir ekki. Sá
kraftur sem öllu er meiri og við
flest öll köllum Guð sagði hingað
og ekki lengra. öllu er lokið, tjald-
iö fallið. Við, litlu peðin á taflborði
lffsins, eigum engan leik, við erum
mát.
Guðmundur var liðlega meðal-
maður á hæð og samsvaraði sér
vel að öllu leyti. Mannblendinn
var hann og hafði gaman af að
skemmta sér í góðra vina hópi.
Var hann hrókur alls fagnaðar og
lék þá á als oddi Þannig vil ég
muna hann glaðan og reifan, tak-
andi á móti mér með silfurskál f
hendi á hinni ókunnu strönd, sem
bíður okkar allra.
Kvæntur var Guðmundur Rósu
Guðjónsdóttur héðan úr borginni
og lifir hún mann sinn. Þeim varð
fimm barna auðið, eins sonar og
fjögurra dætra, og eru þau öll á
lífi.
Fari vinur minn og mágur í
friði.
Útför Guðmundar fer fram á
morgun, mánudag, frá Bústaða-
kirkju kl. 10.30.
l>orsteinn Brynjólfsson
Samskipti
á tölvuöld
Verðum með kynningarfund og sýningu í Kristalsal Hót-
els Loftleiða, mánudag og þriöjudag, kl. 16.00—18.00,
báöa dagana.
Hr. Clive Norris, forstööumaður tæknideildar One To
One í Englandi verður á fundinum og gefur upplýsingar.
Kynnist því nýjasta í tölvusamskiptum.
One To One-umboðið á íslandi
Klapparstíg 16, Reykjavík.
Sími: 27113.
IL n n n n n ii ii
-
L um tr. Tnrr
rnm$ irir
'li 3Q
SMIÐSHÖFÐI
Til leigu viö Smiðshöfða, 3 hæöir hver um sig 200 m1.
Húsnæðið er fullfrágengið og málað, en óinnréttað.
Allar nánari upplýsingar í síma 687450.
KÖFUNARNÁMSKEIÐ
Nú gefst einstakt tækifæri til að kynnast
undraheimi undirdjúpanna og læra froskköfun.
Námskeið verða haldin á Farfuglaheimilinu
Reykjanesi. Þau eru í 8 daga hvert og standa
öllum opin. Hverju námskeiði lýkur með prófi sem
miðast við tveggja stjörnu a'þjóðleg réttindi til
sportköfunar.
Næsta námskeið hefst 24. ágúst 1985.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
Bandalagi íslenskra farfugla,
simi (91) 10490.
Jt
kl. 10—18 mánudag og föstudag.
m
2 Áskríftarsínmm er 83033