Morgunblaðið - 15.09.1985, Síða 5

Morgunblaðið - 15.09.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1-5. 8EFTEMBER 198S Vatnsleysustrandarhreppur: Verðlauna snyrtilegt umhverfi Fegrunarnefnd Vatns- leysustrandarhrepps veitti nýlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi í hreppn- um. I»að er í fyrsta skipti sem viðurkenningar eru veittar fyrir snyrtimennsku í hreppn- um, en alls voru viðurkenn- ingarnar fjórar, þrjár fyrir garða við íbúðarhús og ein fyrir umhverfi við fyrirtæki. Eftirtaldir aðilar hlutu viður- kenningarnar, Jón Þórðarson og Þórunn Gottliebsdóttir fyrir Heiðargerði 16, Vogum, Klemens Sæmundsson og Guðrún Krist- mannsdóttir fyrir Hólabraut 4, Vogum og Einar Þórðarson og Alice Lide Þórðarson, Vatns- leysu, Vatnsleysuströnd. Þor- valdur Guðmundsson fékk einu viðurkenninguna sem veitt var fyrir snyrtilegt umhverfi við fyrirtæki, það var fyrir svínabúið að Minni-Vatnsleysu á Vatns- leysuströnd. E.G. Morgunblaðið/Eyjólfur Heióargerði 16, Vogum, einn garðanna sem voru verólaunaóir. Signe Prytz sagnfræðingur Dóttir frum- kvöðuls skóg- ræktar á íslandi hér í heimsókn Dr. phil. Signe Prytz, danskur sagnfræðingur, kom hingað í sl. viku og var hér í nokkra daga. Morgunblaðið náði stuttu tali af henni er blaðamaður komst að því að hún var dóttir prófessors Carls V. Prytz, en hann var. annar þeirra Dana sem hófu skógrækt hér á landi rétt fyrir aldamótin. Hinn var Carl Ryder skipstjóri, sem naut bæði álits og vinsælda meðan hann var í siglingum hér við land. Enda þótt dr. Signe Prytz sé mjög víðförul var þetta í fyrsta sinn sem hún kom til íslands. Hinsvegar hafði hún heyrt margt um þetta land er lengi hefur verið á óskalista hennar, enda fór faðir hennar um landið þvert og endi- langt sumarið 1903 og hafði síðan samband við ýmsa íslendinga. Samt kom henni margt á óvart eins og heiðríkjan og bláminn á Þingvallavatni og tært og hreint loftið. Ennfremur hrjóstrin og moldarmekkir innan af öræfum. Henni fannst mikið til um að koma í gamla furulundinn á Þingvöllum, en faðir hennar hafði einmitt ráðið því hvaða teg- undum var plantað þar í upphafi. Kvaðst hún hafa mikla ánægju af því að brautryðjandastarf föður hennar hefði ekki verið unnið fyrir gýg. Og þegar hún sá hve Alaskalúpínan er fljót að nema örfoka og eydd lönd gat hún ekki orða bundist um ágæti hennar. Hún gekk með fundarmönnum UMFt um Þrastarskóg laugar- daginn 7. september og átti varla orð til að lýsa því hve vel henni leist á unga fólkið, en hún hefur verið menntaskólakennari um mörg ár, bæði í Danmörku og í Bandaríkjunum, og forstöðukona barnaheimilis í Jægerspris, sem greifafrú Danner og Friðrik sjöundi komu á fót fyrir meira en hundrað árum. JIl hamingju eigendui Kjarabzéfaf -Þið völduð rétta kostinn. Þeir sem keyptu kjarabréí Verðbréíasjóðsins h/í þann 17. maí sl. haía íengið betri vexti en aðrir. 78% ársvexti Til samanburðar voru aðrir vextir þannig á sama tímabili: Bankabók 45% Aðrir verðbréíasjóðir 58% Ríkisskuldabréí 50% Kjarabréf Verðbréfasjóðsins h/f 78% Fors«ndur • M/V gengl verðbrélasjóða 6. sept. '85 • M/v sparlskiilelni með 7% raunávöxtun • M/v bestu 6 mán verðtryggða bankareikninga (3.5% raunávöxtun) • Ekki er tekið tillit til lnnlausnargjalds eða sólulauna Það er augljóst, að Kjarabréíin okkar haía geíið betri ávöxtun en aðrir valkostir, írá því að sala þeirra hófst 17. maí 1985. Kjarabréf Verðbréfasjóðsins h/í fást í ílestum pósthúsum og hjá Verðbréfamarkaði Fjáríestingarfélagsins, Haínarstrœti 7, Reykjavík. Símar 28466 8c 28566. VERÐBREFA SJÖDURINN HF Hafnarstræti 7 101 Reykjavik

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.