Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
39
Miles sigur-
stranglegur
í Tilburg
Tilburg, 13. september. AP.
JAFNTEFLI við Hollendinginn Jan
Timman í 11. umferð skákmótsins í
Tilburg hefur það í för með ér, að
Vestur-Þjóðverjinn Robert Hiibner
er nú kominn í efsta sæti á mótinu.
Talið er þó víst, aö það eigi eftir að
breytast, þar sem Englendingurinn
Tony Miles er með unna biðskák á
móti Timman og nær öruggur um
jafntefli í biðskak sinni Dzin. Að
þessum biðskákum loknum verður
Miles væntanlega á ný orðinn efstur
á mótinu.
Önnur úrslit í 11. umferð voru
á þann veg að Ljubojevic gerði
jafntefli við Romanisnhin, en bið-
skák varð hjá þeim Dzih og Miles,
sem að framan segir en einnig
hjá þeim Poilugaevsky og Korc-
hnoi. Eftir 11 umferðir var því
staðan þannig, að Hiibner var
efstur með 6 vinninga, Miles var
í öðru sæti með 5‘h vinning og
tvær biðskákir og Timman var í
þriðja sæti með 5'h vinning og
eina biðskák.
Afganir
ráðast á
þorp í
Pakistan
Islamabad, 12. september. AP.
FJÓRAR afganskar orrustuþotur
rufu lofthelgi Pakistan í gær, mið-
vikudag. Vörpuðu þær sprengjum og
skutu flugskeytum á þorp þar í landi
og landamærastöðvar. Særðust
landamæraverðir í árásinni, að sögn
talsmanns utanríkisráðuneytisins.
Orrustuþoturnar vörpuðu a.m.k.
sex sprengjum og skutu 100 flug-
skeytum á landamærastöðina
Punnu, sem er 300 km suðvestur
af Islamabad, höfuðborg Pakistan.
Æðsti maður sendiráðs Afgana
var kvaddur í utanríkisráðuneytið
í Islamabad í dag og voru honum
afhent þar „kröftug mótmæli"
vegna árásanna.
Ítalía:
Ætla að byggja
stærstu brú
í heimi
Kóm, 13. sepiember. AP.
STJÓRNVÖLD á Ítalíu hafa í
hyggju að byggja stærstu hengibrú
beims til að tengja Sikiley við ítalska
meginlandið, að sögn dagblaðsins II
Messaggero á föstudag. Athuganir
hafa farið fram varðandi brúarbygg-
inguna undanfarinn áratug en ekki
hefur verið ráðist í neinar fram-
kvæmdir.
Dagblaðið vitnar til samgöngu-
málaráðherrans, Claudio Signor-
ile, sem segir að undirbúnings-
samþykkt um þessa gömlu
draumaframkvæmd verði undir-
rituð í næsta mánuði og hugsan-
lega verði hafist handa við brúna
1988.
Þó rannsóknir hafi sýnt að bæði
sé unnt að gera undirgöng og brú,
sagði Signorile að hann teldi
vænlegri kost að gera brú yfir
Messinasund fyrir umferð bíla og
járnbrauta. Slík brú yrði 3,3 kiló-
metrar á lengd, eða tvöfalt lengri
en Verrazano-Narrows-brúin yfir
New York-höfn. Hann áætlaði að
brúin myndi kosta 5 trilljónir líra,
eða 2,5 billjónir dollara. Áætlað er
að brúin verði átta ár í smíðum.
EINANGRUÐ HITAVEITURÖR
KAPPKOSTUM AÐ EIGA ÁVALT Á
LAGER ALLT EFNI í HITAVEITU-
LAGNIR - MARGRA ÁRA REYNSLA
TRYGGIR GÆÐIN - SENDUM UM
ALLT LAND.
EYRAVEGI 43-45
P.O. BOX 83
800 SELFOSS
SÍMI 99-2099,-1399
I
HEIMA
VARIMAR
LIÐIÐ
HEMPELS
- þakmálning, serhæfð á þakjárn
HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn
og hefur frábæra viðloðun og veðurþol.
Forskriftin að HEMPELS þakmálningu hefur
þróast í tímans rás á söltum sæ, þ.e. á
íslenskum hafskipum þar sem álagið nær
hámarki.
DYNASYLAN BSM 40 vatnsfæla og
VITRETEX plastmálning
- koma í veg fyrir steypuskemmdir eða
lagfæra þær með réttri meðhöndlun
Tværyfirferðir með DYNASYLAN BSM 40 og
síðan tvær yfirferðir með VITRETEX
plastmálningu tryggir margra ára endingu.
CUPRINOL
! Slippfélagið í Reykjavík hf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Sími 84255
- alvörufuavarnarefnið sem fegrar og
fyrirbyggir
CUPRINOL fúavarnarefnið greinist í 4
aðalflokka:
1. Grunnfúavarnarefni án yfirborðsfilmu.
2. Hálfgagnsætt litað fúavarnarefni í fjölda
viðarlita.
3. Þekjandi lituð fúavörn í 7 litum.
4. Grænt fúavarna.efni í vermireiti og á
gróðurhús.
•<
p&ó