Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 68
tfgtntfybiMfe OPINN 10.00-02.00 HIBCKURIHBMSKEOJU SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 VERÐ I LAUSASOLU 35 KR. Magnús Gimnarsson framkvæmdastjóri VSI: Fiskvinnslan keppir við ríkið um starfsfólk 1970 unnu 63% fleiri í fiskvinnslu en að heilbrigðismálum, en 1983 3%færri BÚIST var við fundarhöldum um helgina í samningaviðrsðum VSÍ og VMSÍ um bónussamning. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að góður gangur væri í viðræðunum, en rædd voru mílefni fólks í saltfiskverk- un og kjör aðstoðarfólks í bónus. Fundi var frestað um miðnætti á fostudags- kvöld og nýr boðaður kl. 15 í gær. „Það er einlægur vilji að koma til móts við fólkið og finna lausnir, en svigrúmið er ekki neitt. Kauptaxtar frá því í ágúst í fyrra til ágústmán- aðar í ár, hafa hækkað um 37,6% á sama tíma og gengi dollars hefur hækkað um 31,4%, en hann er mik- ilvægasta útflutningsmyntin fyrir fiskvinnsluna. Þessar launahækk- unarkröfur eru langt umfram það sem hægt er að koma til móts við og geta ekki leitt til neins annars en gengisfellingar, þó hún geti aldrei verið annað en skammtímalausn, ef ekki á einfaldlega að loka frystihús- unum. Við hljótum því að knýja á um svör frá ríkisvaldinu við erindi Samtaka fiskvinnslustöðvana um vandann í fiskvinnslunni frá í surnar," sagði Magnús Gunnarsson, ennfremur. Magnús sagði að fiskvinnslan ætti í samkeppni við ríkisvaldið bæði um fjármagn og mannafla. Á það mætti benda að árið 1970 hefðu 63% fleiri unnið við fiskvinnslu, en í heilbrigðisgreinum, 1980 hefði samsvarandi tala verið 27%, en 1983 hefði ástandið verið orðið þannig að 3% færri ynnu í fisk- vinnslunni. Hann sagði það vera takmarkað hvað þjóð með mann- fjölda upp á 240 þúsund gæti haft mikla yfirbyggingu. „Það er verið að tala um aukna óbeina skatta og niðurskurð á fjár- lögunum til að mæta fjárlagahall- anum. Ég hef hins vegar ítrekað sagt, að það þýðir ekki lengur að tala um niðurskurð, það verður að tala um uppskurð á fjárfestingu og rekstrarþáttum ríkisins til að minnka yfirbygginguna. Það þarf að gera róttækar breytingar á þremur meginþáttum íslensks þjóð- lífs, stjórnkerfi ríkisins, fjölda sveitarféiaga og samstarfi fyrir- tækja," sagði Magnús. Aðspurður um hvort skattaíviln- anir til handa fiskvinnslufólki hefðu verið ræddar í samningavið- ræðum, svaraði Magnús því neit- andi, enda ætti það ekki heima í viðræðum um bónussamning, held- ur í umræðu um málefni fisk- vinnslufólks. Vinnuveitendafélag Vesturlands setti fram hugmyndir þessa efnis fyrr á þessu ári. Morgunblaðið/JúHus Mikill fjöldi unglinga var saman kominn fyrir utan Villta tryllta Villa á föstudagskvöldið og ölvun áberandi mikil. Þessi mynd var tekin skömmu eftir að verknaðurinn átti sér stað. Hnífsstungan við Villta tryllta Villa: Pilturinn lést af sárum sínum um nóttina UNGI pilturinn sem stunginn var rannsóknarlögreglunnar virtist með hnífi laust fyrir miðnætti í eitthvert ósætti hafa komið upp fyrrinótt fyrir utan unglinga- milli piltanna, sem stigmagnað- skemmtistaðinn Villta tryllta Villa ist með þeim afleiðingum að er látinn. Lést hann skömmu eftir annar þeirra dró upp vasahníf að hann kom til aðgerðar á slysa- og stakk hinn einni stungu i deild Borgarspítalans. Hann var brjóstið, og særði til ólífis. 15 ára garnall. Ekki er unnt að skýra frá nafni piltsins að svo Mikill fjöldi unglinga var utan stöddu, þar sem ekki hafði náðst við skemmtistaðinn þetta kvöld í alla ættingja hans þegar blaðið og ölvun áberandi mikil. Að sögn fóríprentun. lögreglunnar voru nokkur vitni Það var jafnaldri piltsins sem að verknaðinum, og hafa þau varð honum að bana. Að sögn verið yfirheyrð að hluta. Sætúnið lengist smám saman til vesturs FRAMKVÆMDIR standa nu yfir við lengingu Sætuns til vesturs. Unnið hefur verið að þessu verki í áföngum undanfarin ár, að sögn Stefáns Hermannssonar verkfræðings hjá gatnamálastjóra og er í fram- tíðinni gert ráð fyrir að uppfyllingin nái vestur að Ingólfsgarði og þar tengist Sætúnið Kalkofnsvegi og Geirsgötu. Ekki er enn endanlega ákveðið með hvaða hætti þetta verður gert en þau mál eru nú til umfjöllunar í skipulagsnefnd. Stefán sagði að í haust yrði malbikaður kafli til viðbótar við Sætúnið og tenging þess við Skúlagötuna færð vestar en nú er. Einnig verður haldið áfram með uppfyllinguna til vesturs og er að því stefnt að næsta sumar verði hægt að hleypa umferð á Sætúnið vestur úr. Verður það í fyrsta áfanga tvær akreinar í hvora átt en í framtíðinni er gert ráð fyrir þremur akreinum í hvora átt. Að sögn Stefáns er ráð fyrir því gert að sú mikla umferð sem nú er um Skúlagötuna færi i framtíðinni um Sætúnið, en að Skúlagatan verði mjókkuð og fái nýtt hlutverk sem safngata fyrir Skuggahverfið. Um nánari út- færslu á því væri ekki hægt að segja fyrr en Skúlagötuskipulag- ið hefur verið afgreitt. Skúlatorg mun hverfa þegar þessar breytingar eru um garð gengnar. Bensinstöðin við Skúla- götuna mun standa óbreytt fyrst um sinn en í framtíðinni er gert ráð fyrir nýrri þjónustumiðstöð fyrir bíleigendur á svipuðum slóðum á opna svæðinu milli Sæ- túns og Skúlagötu. Akranes: Sjálfstæðis- menn vilja sameiginlegt prófkjör Akranesi, 13. september. FULLTRÍIARÁÐ sjálfstæðisfélag- anna á Akranesi hefur sent öllum stjórnmálaflokkum á Akranesi bréf og óskað eftir því að fram fari sam- eiginlegt prófkjör allra flokkanna til undirbúnings framboðs til sveitar- stjórnakosninga, sem fram eiga að fara vorið 1986. Þetta fyrirkomulag var reynt fyrir síðustu kosningar og þótti takast mjög vel. f bréfi fulltrúa- ráðsins er þess farið á leit við hina flokkana að ef þeir séu hlynntir slíku prófkjöri tilnefni þeir full- trúa í kjörstjórn fyrir 30. sept- ember nk. J.G. Fjögur skip með loðnu FJÖGUR skip tilkynntu um loðnu- afla síðastliðinn föstudag. Voru þau með samtals 2.660 lestir. Eitt þessara skipa, Súlan EA, fór með afla sinn til Siglufjarðar og verður hún annað skipið, sem landar þar á yfirstandandi vertíð. Skipin sem tilkynntu um afla eru þessi: Skarðsvík SH, 650, Svanur RE, 730, Guðrún Þorkelsdóttir SU, 600 og Súlan EA 680. Þrjár íslenskar fegurðardísir keppa erlendis ÞRJÁR íslenzkar fegurðardísir taka í dag, sunnudag, þátt í fegurðar- samkeppnum í Finnlandi og Japan. Halla Bryndís Jónsdóttir og Sif Sigfúsdóttir keppa um titilinn ungfrú Skandinavía í Helsinki í Finnlandi og Anna Margrét Jóns- dóttir keppir um titilinn fulltrúi ungu kynslóðarinnar í Japan. Stúlkur þessar hafa skipað efstu sætin í fegurðarsamkeppnum hér heima. Gullskipsmenn leita vestan Skeiðarár Nota svifflugdreka við mælingar GULLSKIPSMENN lögðu í gær af stað með ieitartæki sín og vélaflota á leitarsvæði vestan Skeiðarár á Skeiöar- ársandi, en þar hyggjast þeir framkvæma viöamiklar mæl- ingar á næstu vikum. Leitar- svæðið sem kannað var í hitteðfyrra var austan Skeið- arár, en síðastliðið vor voru framkvæmdar byrjunarat- huganir á vestanverðum Skeiðarársandi. Allstórt svæði verður nú mælt með fullkomnum segulmælingar- tækjum og meðal annars verða gerðar markvissar mælingar með vélknúnum flugdreka sem mun fljúga yfir leitarsvæðið og skrá upplýsingar fyrir tölvubúnað. Mun þá mælitæki hanga niður úr drekanum. Fimm manna hópur fór með búnaðinn niður á sandinn í gær og en það tekur nokkra daga að undirbúa mælingarnar, en aðalfarkostur leitarmanna niður á sandinn er stóri vatna- drekinn sem er jafnvígur á sjó og landi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.