Morgunblaðið - 20.09.1985, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 20.09.1985, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER1985 Schuster má passa sig Frá Jóhanni inga (iunnarsNyni, frétUmanni MorgunblaAsins í l^ýskalandi. VESTUR-ÞÝSKI landsliðsmadur- inn Bernd Schuster sem leikur meö Barcelona á Spáni hefur ver- ið upp á kant við forseta félags- ins. „Forsetinn hefur tvö andlít, í fyrra vorum við stjörnur í hans augum er viö uröum meistarar, en nú erum við ekkert,“ sagði Schuster i samtali við eitt blaö- anna á Spáni. Forsetinn brást reiöur viö og sagöi: „Ég held aö Schuster ætti aö halda sig á mottunni, liöinu hef- ur ekki gengiö vel í fyrstu leikjum deildarinnar, unniö fjóra leiki og tapaö fjórum, hann hefur heldur ekki náö aö sýna sitt besta, og ef hann nær ekki aö sýna hæfni sína í næstu leikjum þá sel ég hann.“ Schuster á þaö á hættu aö detta út úr liöinu eftir þessi ummæli sín og jafnvel aö veröa seldur. Leik- menn Barcelona hafa ekki veriö ánægöir meö bónusgreiöslurnar og vilja fá kauphækkun. Norræna skólahlaupið AD FRUMKVÆÐI Norrænu skóla- íþróttanefndarinnar fór fram skólahlaup á Norðurlöndum á tímabílínu okt.—nóv. á sl. skóla- ári. Þrátt fyrir þá röskun sem varö . Ekki leikiö á Heysel Alþjóðaknattspyrnusambandíð (FIFA) setti í gær bann við því að leikiö yrði á Heysel-leikvanginum í BrUssel þar sem leikur Juventus og Liverpool fór fram í vetur. Fyrirhugaö var aö leika á þess- um velli þann 16. október þegar Belgía og Holland eiga aö leika í heimsmeistarakeppninni. Líklegt er aö leikur Belga og Hollendinga veröi leikinn á heima- velli Anderlecht fyrst búiö er að banna aö leika á Heysel. Badminton BADMINTONFÉLAG Hafnarfjarð- ar ar nú aö hefja vetrarstarf sitt og enn eru nokkrir lausir tímar fyrir þá sem áhuga hafa á að stunda badminton. Upplýsingar er hægt aö fá um lausa tíma í síma 52788 eftir kl. 19 á kvöldin. Fálagiö hefur einnig unglinga- tíma kl. 18.45 í Víöistaðaskóla á miöviku- og föstudögum og er skráning í þá tíma á staönum. á skólahaldi hór á landi í október tóku 79 skólar þátt í hlaupinu og hlupu 14.874 þátttakendur sam- tals 51.347 km. Með „norræna skólahlaupinu“ er leitast viö aö hvetja nemendur, kennara og aðra starfsmenn skól- anna til þess aö æfa hlaup eöa aörar íþróttir reglulega og stuöla þannig aö betri heilsu og vellíöan. Þá er meö skólahlaupinu, sem fram fer á öllum Noröurlöndum um svipaö leyti, leitast viö aö kynna norrænu skólaíþróttanefndina og norrænt samstarf um íþróttamál í skólum. Þess er vænst aö „norræna skólahlaupiö" veröi framvegis ár- legur viöburöur í íþróttalífi grunn- og framhaldsskóla á öllum Noröur- löndum og fari fram á öllum Norö- urlöndunum um líkt leyti, eöa á tímabilinu 1.—15. október. Ákveðið hefur verið aö hlaupið fari fram hér á landi á tímabilinu 17. september til 15. október. Er hér meö hvatt til þess aö allir skólar veröi meö í norræna skóla- hlaupinu 1985. Aö hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skóli viöurkenningarskjal þar sem greint veröur frá heildarár- angri hans. Einnig veröa heildar- úrslit birt í fjölmiölum og send skólum landsins. Umsjón meö „skólahlaupinu 1985“ hefur samstarfsnefnd skip- uö Reyni G. Karlssyni íþrótta- fulltrúa og Birni Magnússyni, full- trúa fyrir hönd íþrótta- og æskulýðsmáladeildar menntamálaráöuneytisins, og Sig- uröi Helgasyni, deildarstjóra, fyrir hönd útbreiöslunefndar Frjáls- íþróttasambands Islands. Fróttatílkynning Norræna trimmlands- keppnin gengur vel NORRÆNA trimmlandskeppnin, sem hófst hér á landi fyrir skömmu, hefur gengið mjög vel fram að þessu og er þátttaka 500 km áheitahlaup hjá UMFK Frjálsíþróttadeild UMFK mun hlaupa 500 km boð- hlaup á hlaupabrautinni á íþróttavellinum í Keflavík. Hlaupið stendur yfir dagana 20. til 22. sept. Hyggjast hlaupararnir, 25 talsins, hlaupa vegalengdina á minna en tveimur sólar- hringum. Hver maður hleyp- ur 5 km í eínu og þarf aö hlaupa 20 km samtals báða dagana. Frjálsíþróttadeildin mun ganga í hús og safna áheitum og hefst söfnunin á mánudaginn 16. september. sérlega góð á fjölmörgum heimil- um og dvalarstofnunum fyrir fatl- aöa. Af þeim stöðum sem við höf- um haft samband viö er þátttak- an víöa allt aö 100%. Til þess aö auka enn á áhuga fyrir trimminu höfum viö t.d. frátt aö á Kópa- vogshæli fari fram keppni milli deiida. í lok keppninnar mun sú deild sem bestum árangri nær fá bikar í verðlaun. Vinsælustu greinarnar í þessari trimmlandskeppni eru án efa ganga, skokk og hjólastólaakstur. Þá vitum viö einnig um allmarga sem hafa hjólaö og náö þannig í stig í keppninni. íþróttasamband fatlaöra hvetur alla þá sem ekki hafa nú þegar hafiö þátttöku í trimmkeppninni að veröa sér úti um þátttökukort og vera með seinni hluta keppninnar. Eins og áöur hefur komiö fram er unnt aö fá þátttökukort hjá íþróttasambandi fatlaóara, íþróttafélögum fatlaóra, sjálfsbjargarfélögum, svæöis- stjórnum um málefni fatlaöra og hjá ýmsum félögum sem vinna aö málefnum fatlaöra. • Halldór R. Halldórsson sýnir tilþrif þar sem hann sveiflar kúlunni niður keilubrautina í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Tvísýn para- keppni í keilu KEILU- OG veggboltafélag Rvk. hélt paramót í keilu á laugardag og sunnudag. Fyrri daginn voru undanúrslit og aö þremur leikjum loknum voru efst Halldór R. Hall- dórsson og Björg Hafsteinsdóttir, í öðru sæti Ásgeir Heiðar og Dóra Sigurðardóttir, í þriöja sæti Ólaf- ur Skúlason og Laila Ómarsdóttir og í fjóröa Ingimundur Helgason og Sólveig Guðmundsdóttir. Síöan var útsláttarkeppni og sigruðu allir þessir keppendur andstæöinga sína. Á sunnudegin- um voru síöan úrslitin. Halldór og Björg kepptu viö Ingimund og Sól- veig og unnu þau fyrrnefndu. Ás- geir og Dóra kepptu viö Ólaf og Lailu og sigruóu Ásgeir og Dóra. Þvínæst kepptu Halldór og Björg við Ásgeir og Dóru um fyrsta og annað sætiö, og var sú keppni hörkuspennandi og skemmtileg. Ásgeir og Dóra unnu fyrri leikinn meö 331 stigi á móti 313 en í seinni leiknum tókst þeim ekki eins vel upp og töpuöu meö 283 stigum á móti 346. Um þriöja og fjóröa sætiö kepptu Ingimundur og Sól- veig á móti Ólafi og Lailu og sigr- uöu þau fyrrnefndu. Úrslit: 1. sæti: Halldór R. Halldórsson og Björg Hafsteinsdóttir. 2. sæti: Ásgeir Heiðar og Dóra Siguröardóttir. 3. sæti: Ingimundur Helgason og Sólveig Guömundsdóttir. • Þau voru í efstu sætunum í parakeppninni í keilu. Frá vinstri: Ásgeir Heiöar og Dóra Siguröardóttir, en þau urðu í öðru sæti. Sigurvegararnir eru í miðju, þau Halldór R. Halldórsson og Björg Hafsteinsdóttir og þá Ingimundur Helgason og Sólveig Guömundsdóttir sem höfnuðu í þriöja sæti. Þorsteinn sigraði UM SÍÐUSTU helgi fór fram í Sví- þjóö meistaramót í frjálaum íþróttum fyrir 21 árs og yngri. Fjórir íslendingar tóku þátt í móti þessu, þeir Þorsteinn Þórsson og Gísli Sigurösson í tugþraut og Birgitta Guðjónsdóttir og Ingi- björg ívarsdóttir í sjöþraut. Þor- steinn sigraöi í tugþraut karla og Birgitta varð fjóröa í sinni grein. Þorsteinn tók þátt í þessu móti þrátt fyrir aö hann sé oröinn of gamall tll aö taka þátt í 21 árs mótum. Hann sigraöi meö miklum yfirburöum, hlaut 7329 stig alls, og er þaö bæting hjá honum um 200 stig. Hann bætti persónulegan árangur sinn í þremur greinum, hljóp 100 m á 11,44 sekúndum, stökk 6,96 i langstökki og fékk timann 50,61 i 400 m grindahlaupi. Gísli Sigurösson náöi einnig ágætum árangri en hann varö fyrir því óhappi aö togna i þriöju siö- ustu greininni, stangarstökki, og gat því ekki lokið keppni. Í kvennaflokki varö Birgitta í fjóröa sæti meö 4761 stig og er þaö talsvert frá hennar besta árangri. Ingibjörg ívarsdóttir varö í sjötta sæti, hlaut 4507, stig og bætti sitt persónulega met um 100 stig. Einnig bætti hún persónulegt met sitt í þremur greinum. Hún stökk 1,60 í hástökki, hljóp 200 m á 26,64 og 800 m á 2:21.68 mínút- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.