Morgunblaðið - 24.09.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.09.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985 5 OTRULEGA LÁGT VERD Kr. 16.000 staðgreiðsla Afborgunarskilmálar TVEGGIA DYRA KÆLI- OG FRYSTISKAPAR Samt. stærö: 260 I. Frystihólf: 45 I. Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm. Dýpt: 60 sm. Vinstri eða hægri opnun. Fullkomin viögerOa- og varahlutaþjónusta. vtsa Heimilis- og raftækjadeild. HEKLAHF LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 ■ 21240 Ungfrú Skandinavía, Sif Sigfúsdóttir. Morgunblaðtd/RAX Hef áhuga á að reyna fyrir mér sem fyrirsæta SIJMARCLEÐIN Stórkostleg afmælishátíð Sumargleðinnar í Broadway nk. föstudags- og laugardagskvöld. 17 landsþekktir skemmti- kraftar leika listir sínar. Hljóöfæraleikarar, grínistar, dansarar, söngvarar og leikarar. Allt saman fisléttir og frískir fjörkálfar sem fara á kostum. Karnival og gleöi. Miöa- og boröapantanir í síma 77500. söngur — grín — segir Sif Sigfúsdóttir sem nýlega var valin ungfrú Skandinavía SIF Sigfúsdóttir, 17 ára Reykjavíkurstúlka, var valin ungfrú Skandinavía í fegurðarsamkeppni sem fram fór í Helsinski í Finnlandi sunnudaginn 15. september sl. Þátttakendur voru tveir frá hverju Norðurlandanna og hinn íslenski keppandinn, Halla Bryndís Jónsdóttir, hafnaði í 3. ssti eins og fram hefur komið í fréttum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Sif fyrir helgi og spurði hana hvernig keppnin gekk fyrir sig og hvað nú tæki við. „Það var mjög gaman að taka þátt í þessari keppni. Við stelpurn- ar urðum allar góðar vinkonur og ég held að þetta hafi verið heiðarleg keppni," sagði Sif „og þegar ég kom heim rigndi yfir mig blómum og skeytum frá vinum og ættingjum og er ég mjög þakklát þeim fyrir þessar góðu móttökur. Annars gat ég ekki undirbúið mig mikið. Eg var í Bandaríkjunum í sumar og vann sem fyrirsæta í Tennessee í ágústmánuði. Þegar ég var þar var hringt til mín og ég var spurð hvort ég væri ekki tilbúin til að taka þátt í þessari keppni. Ég átti satt að segja ekki von á þessu. Undirbúningstíminn var stuttur og fór ég því út að hlaupa tvisvar á dag, synti og borðaði hollan mat. Það var allur undirbúningurinn. Síðan fór ég til Helsinki 10. sept- ember og það var nóg að gera fram að keppninni. Við vöknuðum klukk- an 8 á morgnanna og vorum komnar upp í rútu um tíuleytið. Við ferðuð- umst á milli og komum fram á nokkrum stöðum fyrir utan Hels- inki þar sem haldnar voru skemmt- anir á kvöldin. Við sungum og svör- uðum ótal spurningum. Þessar skemmtanir voru auglýstar og var fólkinu gefinn kostur á að kjósa uppáhaldsstúlkuna sína. Blaðamað- ur og ljósmyndari fylgdu okkur hvert sem við fórum og tóku við okkur viðtöl og alltaf birtist stór mynd af þeirri stúlku sem valin var uppáhaldsstúlka í blöðunum daginn eftir. Ég var tvisvar valin uppá- haldsstúlka og sænska stúlkan sem hafnaði í öðru sæti I keppninni þrisvar. í þessum ferðum var mjög vel hugsað um okkur, til dæmis var bæði snyrtisérfræðingur og hár- greiðslumeistari alltaf með okkur. til að ég héldi áfram þar í haust. En eftir að ég var valin ungfrú Skandinavía ákvað ég að taka mér árs frí frá skólanum. Það verður mikið að gera í sambandi við aug- lýsingar og fleira og ég vil ekki þurfa að grípa inn í námið. Ég vil frekar byrja af krafti næsta vetur. Ég vann ferð til Parísar og ætla mér að fara þangað til að byrja með. Þar mun ég tala við menn frá snyrtivörufyrirtækjum og ef til vill vinn ég eitthvað þar sem fyrir- sæta. Þó vil ég ekki gera samning við einn ákveðinn aðila og binda mig þannig. Ef mér bjóðast ein- hverjir samningar ætla ég að kynna mér þá vel áður en ég tek ákvörðun. Ég hef mikinn áhuga á að reyna fyrir mér sem fyrirsæta þetta ár sem ég ber þennan titil því nú ættu tækifærin að liggja fyrir. En ég veit að ég verð sjálf að vinna af krafti til að komast áfram. Þetta verður ekki lagt upp í hendurnar á mér,“ sagði Sif Sigfúsdóttir að lokum. - Hvernig leið þér meðan á keppninni sjálfri stóð? „Ég var svolítið stressuð um kvöldið. Ég var búin að vera mjög róleg allan tímann þarna úti og ákveðin í að standa mig, en ég var svo viss um að eitthvað færi úr- skeiðis í sjálfri keppninni. En þetta gekk allt vel. Við svöruðum spurn- ingum, sungum og dönsuðum og komum fram á sundbolum. Það er erfitt að lýsa því hvernig mér leið þegar úrslitin voru til- kynnt. Við vorum þrjár eftir og fyrst var tilkynnt hver var í þriðja sæti o.s.frv. Mér fannst þetta drag- ast óþarflega á langinn. Ég stóð þarna ein eftir og þegar nafnið mitt var kallað upp var ég svo spennt að ég heyrði það varla. En þegar ég fékk borðann og kórónuna fór ég að átta mig á þessu." — Hvað tekur svo við hj á þér? „Ég hef lokið verslunarprófi frá Verslunarskóla Islands og það stóð BRCA.Dmy
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.