Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985 7 MoreunblaAiA/Dmvió Pétnrason Fjölmenni var aö Lundi í Lundarreykjadal vid útför Ingimundar Ásgeirsson- ar á Hæli. Borgarfjörður: Mjög fjölmenn útför Ingi- mundar Ásgeirssonar Grund, Skorradal, 21. september. í DAG fór fram frá Lundarkirkju í Lundarreykjadal útfor Ingimundar Ásgeirssonar bónda á Hæli í Flóka- dal. Um 400 manns voru við útförina, sem fór fram í hinu fegursta veðri. Sr. Guðmundur Sveinsson, fyrrum sóknarprestur í Hestaþingapresta- kalli jarðsöng. Að lokinni útfór að Lundi var öll- um viðstöddum boðið í erfidrykkju í félagsheimili sveitarinnar að Braut- artungu. — DP. Læknaþing: Verður verðlaunabókin ef tir þig? Þú gætir orðið hundrað þúsund krónum ríkari... Nú eru tæpir þrír mánuðir til stefnu. Frestur til að skila handritum að nýjum bama- og unglingabókum til Verðlaunasjóðs íslenskra bamabóka retinur út 15. desember næstkomandi. Ein verðlaun verða veitt fyrir besta handritið, 40.000 krónur að viðbættum höfundarlaunum samkvæmt samningi Rithöfundasambands íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda. Miðað við meðaluþplag barnabóka gæti þetta samtals numið rúmlega eitt hundrað þúsund krónum. Verðlaunasjóðurinn var stofnaður fyrr á þessu ári í tilefni af 70 ára afmæli Ármanns Kr. Einarssonar, rithöfundar. Fjölskylda Ármanns og Bókaútgáfan Vaka lögðu fram stofnfé sjóðsins, 200.000 krónur. Þriggja manna dómnefnd mun velja verðlaunasöguna, sem Vaka gefur út vorið 1986. Ekki eru sett nein ákveðin mörk varðandi lengd sagnanna. Handrit skulu send til Bókaútgáfunnar Vöku Síðumúla 29,108 Reykjavík, merkt „Barnabókaverðlaunin." Allar nánari upplýsingar em gefnar í síma Vöku 32800. BARNA BÓKA VERÐLA UNIN Rætt um rannsóknir á börnum og öldruðum LÆKNAÞING hófst í Domus Med- ica í gær. Á þinginu, sem er aðal- fundur Læknafélags íslands, og námskeiði sem haldið er samhliða því eru einkum til umræðu öldrun- arlækningar, barnalækningar og fjármögnun til rannsókna í læknis- fræði. Allmargir læknar kynna ýms- ar niðurstöður rannsókna sinna og eru fyrirlesarar um fimmtíu. Tveir erlendir læknar flytja fyrirlestur á námskeiðinu: Alvar Svanborg, prófessor í öldrunar- lækningum og yfirlæknir við Vasa-sjúkrahúsið í Gautaborg, og Peter Karlberg, prófessor í barna- lækningum, einnig frá Gautaborg. í erindum um öldrunarlækn- ingar verða m.a. teknar fyrir bæklunarskurðlækningar, með- ferð elliglapa, heilsufar og félags- legar aðstæður aldraðra. Aðal- umræðuefni um barnalækningar eru vöxtur og líkamsþroski barna og þvagfærasýkingar. Þrír ís- lenskir læknar greina frá nýlegum rannsóknum á vexti og kynþroska íslenskra barna og fjallað verður um lyfjameðferð, skurðaðgerðir, meðfædda galla og langtímahorf- ur þvagfærasýkingar barna. I frétt frá Læknafélagi íslands segir að allmargir læknar hafi óskað eftir að fá að kynna efni með frjálsum erindum eða á spjöldum. Algengt er á fjölmenn- um læknaþingum erlendis að er- indi séu kynnt á spjöldum, oft í máli og myndum, og eru höfundar viðstaddir til að svara fyrirspurn- um. Slíkt er nú í fyrsta sinn reynt’ á læknaþingi í nokkrum mæli. Alls eru 15 efni kynnt á spjöldum og flutt 19 frjáls erindi. Fjalla þessi erindi m.a. um ónæmisfræði, smitsjúkdóma, atvinnusjúkdóma, lýtalækningar, lyflæknisfræði og öndunarfærasjkdóma. Fyrirlestur í Háskóla íslands: Áhrif írskrar kristni á ís- landi á 10. öld MIÐVIKUDAGINN 25. september nk. flytur Dr. Jón Hnefill Aðalsteins- son fyrirlestur á vegum Félagsvísinda- deildar Háskóla Islands sem hann nefnir „Áhrif írskrar kristnir á íslandi á 10. öld“. Hann mun birta þar í fyrsta skipti niðurstöður rannsókna á þessum vettvangi sem um sumt má ætla að þyki nokkuð nýstárlegar. Fvrirlesturinn verður haldinn í Odda (gegnt Norræna húsinu), stofu 101 og hefst kl. 20. Fyrirlesturinn er öllum opinn. (Fréttatilkynning:) Síöasta innritunarvika Ofnfastur steinleir í hæsta gæðaflokki. Sænskt hand- verk eins og það gerist best. Innritun daglega kl. 2—5 í skólanum, Stórholti 16, sími 27015. Upplýsingar á öörum tíma ísíma 685752. Póstsendum KOSTA BODA Bankastræti 10, sími 13122.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.