Morgunblaðið - 24.09.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985
15
Hópferðabílar Helga
Péturssonar 50 ára
— Eftir Arna
Helgason
StTkkishólmi, 11. september.
Arin fyrir síðustu heimsstyrjöld
gáfu fólki almennt ekki mikið til-
efni til bjartsýni. Heimskreppan
hafði dunið yfir með allar sínar
ógnir. Afurðasölumöguleikar voru
ekki beysnir og tekjur manna gátu
ekki verið minni. Yfirleitt gat þá
enginn öfundað annan. Það voru
bjartsýnismenn sem á þeim tíma
hófu rekstur. Árið 1935 var þar
engin undantekning og þeir sem
lifðu þá tíma muna lítinn lúxus.
Því er á þetta minnst að nú þessar
mundir heldur eitt af farsælustu
fyrirtækjum okkar Snæfellinga
upp á 50 ára starf, starf sem farið
hefir vaxandi ár frá ári óg gæfan
hefir vakað yfir enda þannig til
þess stofnað.
Ég man það að er ég kom hingað
á Snæfellsnes fyrir 43 árum var
starf mitt þannig að ég hafði sam-
band við flesta íbúa og áberandi
hér og þá ekki síst þá sem fylltu
mann kjarki og útilokuðu allan
bölmóð og vantrú á hlutunum. Ég
man að enn eimdi eftir af undrun
héraðsbúa yfir glæfraskap Helga
Péturssonar, Helga í Gröf eins og
hann var daglega nefndur, er
hann fækkaði fé sínu til að kaupa
bifreið til að bæta samgöngur við
Snæfellsnesið og fæðingarsveit
sína Miklaholtshrepp. Vegirnir
voru ekki til að ýta undir bjart-
sýnina, því þær slóðir sem þá voru
eknar voru ekki glæsilegar í þá
daga og þegar ég ek þessar sömu
leiðir nú vakna þær spurningar
oftar og oftar í huga minn, hvern-
ig þessir menn hafi farið að því að
komast leiðar sinnar.
Að aka þessar slóðir var oft
mikil fyrirhöfn. Helgi Pétursson
var bara venjulegur bóndi, sem
ólst upp við gamlar og grónar
venjur í heyvinnslu, kunnastur
hrífu og ljá og átti sitt undir ár-
vekni og iðjusemi. Hesturinn
dugði vel í blessaðri sveitlnni. Og
byltingar þær sem á öllu hafa orð-
ið síðan á þessum fáu árum er ekki
hægt að nefna án undrunar.
Það vildi til að Helgi stóð ekki
einn. Kona hans, Unnur Hall-
dórsdóttir, var sami glanninn og
undrunarefni sveitunganna og
hvatti hann meira en latti.
Helgi fékk síðan árið 1935 sér-
leyfi milli ólafsvíkur og Borgar-
ness og þá um leið var stefnan
tekin. Umsvifin voru í lágmarki en
erfiðið og kjarkurinn þeim mun
meiri. Og ekki leið á löngu þar til
samferðamennirnir þökkuðu fyrir
hjálpina.
Fyrstu veturnir gerðu strik í
reikninginn og fljótt var að fenna
á vegi. Það hafði þau áhrif að
hvetja Helga fremur en letja og ég
man að hann átti alltaf bros með
sér út í bylinn. Fyrsti bílinn var
Ford-boddy-bíll, þótti gífurlegur
farkostur. Þá datt engum í hug að
telja farþega sem fluttir voru á ári
hverju. Það er ekki fyrr en 1949 að
farið er að fylgjast með því og
voru þeir þá nærri 700. Árið 1944
er leiðin lengd og nú farið á Akra-
nes og það er ekki fyrr en 1946 að
hægt er að lenga leiðina til
Reykjavíkur.
Og enn gera veturnir strik í
reikninginn. Reynt var að endur-
nýja og skipta um farartæki, sem
gekk vonum framar og einnig að
afla hópferða. Það er fyrst árið
1970 að daglegar ferðir verða milli
Ólafsvíkur, Hellissands og
Revkjavíkur á sumrin.
Árið 1972 kaupir fyrirtækið Bif-
reiðastöð Stykkishólms og tekur
við sérleyfisleiðum þangað. Þar
með voru komnar áætlunarferðir í
öll kauptúnin á Snæfellsnesi, en
ekki leið á löngu áður en umsvif
urðu meiri, vegir höfðu þá farið
batnandi og nú síðustu tvö árin
hefir engin áætlunarferð fallið
niður vegna sjóa. Sumaráætlun
allt árið, á hverjum degi fram og
til taka auk þess margar auka-
ferðir, allt til þæginda viðskipta-
vinum og má það sérstakt heita
þegar þess er gætt að fólksbifreið-
um hefir öll árin fjölgað í hundr-
aða tali.
Helgi var heppinn. Drengirnir
hans fengu mikinn lærdóm í gegn-
um hans starf og gæfan var að
þeir fetuðu í fótspor föður síns og
gengu þar feti framar. Þeirra
hugsun var að halda merki braut-
ryðjandans á lofti og það hafa þeir
gert með sóma. Móðir þeirra hefir
í mörgu verið þeirra bakhjarl og
það kunna þeir að meta. Árið 1953
voru farþegar yfir 3 þúsund og í
fyrra rúmlega 19 þúsund. Þessar
tölur tala sínu máli. Þá má ekki
gleyma öllum þeim pökkum sem
komið hafa með rútunni og sú
þjónusta sem aldrei verður metin
og pósturinn skiptir tugum tonna.
Rútan er ómissandi tengiliður við
Snæfellinga og aidrei þarf hún að
reikna út flugveður og merkilega
stundvís er hún. Þrír synir Helga
hafa veg og vanda af rekstrinum.
Halldór, Hilmar og svo Haukur
sem er „rekstrarstjóri". Þeir eru
allir samtaka, hafa jafnan trausta
og góða ökumenn og aldrei heyri
ég um árekstra á þeim bæ. 16.
þessa mánaðar hefði Helgi orðið
80 ára hefði hann lifað. Hann lést
í blóma lífsins og í önnum í far-
sælu starfi, en merkið stendur
sem mikill hluti af lífi Snæfell-
inga.
Það hefir verið mér ánægjuauki
að geta fylgst með þróun Hóp-
ferða HP um árin og sjá fyrirtæk-
ið veita meiri og meiri þjónustu.
Það byrjaði í smáum stíl en á nú
marga góða og glæsilega vagna.
Ég vil nota þetta tækifæri og
flytja fyrirtækinu og fjölskyld-
unni innilegar þakkir fyrir liðin ár
og þann veg sem Snæfellingar
hafa öðlast í sögunni af þeirra
hálfu, og biðja velfarnaðar í kom-
andi framtíð. Samskipti okkar
hafa verið á einn veg til gagns og
ánægju og munu svo fleiri mæla.
Því margir eiga góðar minn-
ingar um ferðalög með Helga og
þeim bræðrum.
50 ára áfanginn er liðinn. Nýr
áfangi með nýrri tækni og ennþá
meiri þjónstu er í sjónmáli.
Arni Helgason
Námskeið
Sjálf sþekking - Sjálf söryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi er mikilvægt
fyrir einstaklinginn í starfi og einkalífi. Tilgangur
námskeiðsins er að leiðbeina einstaklingum að meta
stöðu sína og kenna árangursríkar aðferðir í
samskiptum.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaöa persónulegan stfl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar
hann.
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl
• Hvernig ráöa má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma Sálfræði stöðvarinnar:
687075 milli kl. 10 og 12.
SKÁK
SK0LINN
Haustnámskeið hefjast 1. október
Kennsla fyrir alla
aldurshópa:
Manngangsflokkur
Byrjendaflokkur
Framhaldsflokkur I
Framhaldsfiokkur II
Nýjung:
Skákæfingar fyrir fullorðna
Kvöldnámskeið sem einkum eru ætluð þeim
sem hafa yndi af tafli en hafa lítiö sinnt skákbókum.
Fariö er yfir algengustu byrjanir og teflt undir
handleiðslu kennara.
Sex skipti, vikulega, þrjár klst. í senn.
Sérnámskeið/fjöltefli
Skákskólinn útvegar leiðbeinendur
á sérstök námskeið í fyrirtækium eða hjá
félagasamtökum jafntá höfiiðborgarsvæðinu sem
úti á landi.
Við erum ekki síður tilbúnir í fjöltefli
hvar sem er á landinu!
Innritun virka daga kl. 17-19,
laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.
Innritunarsíminn er 25550.
Klúbbfélagar Skákskólans fá 10% afslátt.
Systkinum er einnig veittur 10% afsláttur.
Laugavegi 51 -simi 25550
Guðmundur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson Jón L. Amason, Margeir Pétursson
SKAKSKOLMN