Morgunblaðið - 24.09.1985, Page 45

Morgunblaðið - 24.09.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985 Pontar vígö- ir í Fjöl- brautaskóla Suðurlands Selfossi, 19. september 1985. PONTAR, en svo nefnast fyrsta írs nemar Fjölbrautaskóla Suöurlands, voru í dag vígðir formlega til skóla- göngu sinnar og látnir ssta afarkost- um sem þeir eru taldir hafa gott af. Eldri nemendur klæddust svört- um ruslapokum og voru hinir böðulslegustu ásýndum. Söfnuðu þeir pontunum saman á afmarkað- an stað, við gamla iðnskólann, og héldu yfir þeim ræðu til áréttingar tilhýðilegri hegðun í skólanum og áminntu þá um að sýna fyllstu undirgefni. Að ræðuhöldum loknum hélt hópurinn í virðulegri skrúðgöngu að tjörn á tjaldsvæði bæjarins og fylgdi stór hópur áhorfenda. Pont- arnir voru síðan þvingaðir til undirgefni og beygðir undir yfir- borð tjarnarinnar og gekk þá á ýmsu því sumir vildu ekki þýðast böðlana hvað þetta snertir. Að baðinu loknu fengu pontar heitan koss til _að árétta hlýju skólans í þeirra garð og loks áminningu um að einfeldni hlutanna er mikil dyggð með því að þeir voru smurðir hafragraut og yfir þá stráð ríflegri hveitilúku. Þó menn veltust um í gruggugri tjörninni og einhverjir hafi sopið á í hamaganginum og e.t.v. bragð- að á hornsílum tjarnarinnar, stóðu allir upp brosandi, enda veður hið ákjósanlegasta, sól og hægviðri. SigJóns. Háskóli íslands: Styrkur til háskólanáms í Noregi Úr Minningarsjóói Olavs Brun- borg verður veittur styrkur að upp- hæð sjö þúsund norskar krónur á næsta ári. Tilgangur sjóðsins er að styrkja , íslenska stúdenta og kandídata til háskólanáms í Noregi. (Sam- kvæmt skipulagsskrá sjóðsins er styrkurinn aðeins veittur karl- mönnum.) Umsóknir um styrkinn, ásamt námsvottorðum og upplýsingum um nám umsækjenda, sendist skrifstofu Háskóla Islands fyrir 1. október 1985. FrétUtilkynning. Akureyri: Ekið á full- orðna konu EKIÐ var á fullorðna konu á Hörgár- braut, skammt norðan við Glerárbrú, á Akureyri á fostudag. Konan hand- leggsbrotnaði, hlaut áverka á fótum og skurð á enni. Slysið átti sér stað kl. 13.25 og sagði ökumaður bifreiðarinnar að strætisvagn hefði byrgt sér sýn og hann hefði því ekki séð konuna fyrr en of seint. Þá varð vinnuslys við nýbygg- ingu iþróttahúss KA á Akureyri seinna um daginn, þegar steypu- mót féll á starfsmann þar. Tókst honum að víkja sér undan að mestu, en vinstri fóturinn varð þó undir mótinu. - koma i veg fyrir steypuskemmdir eða lagfæra þær með Sprungur geta myndast í heilbrigðri steinsteypu þegar ytralDorð hennar mettast af vatm sem síðan frýs og piðnar á víxl í hinni umhleypingasömu veðráttu okkar. Alkalivirk steinsteypa mettast af vatni og sprmgur síðan vegna efnafræðilegra hvata. Því parf að hmdra að vatn smjúgi inn í steypuna svo sem kostur er en hún verður pó að geta andað. DYMASYLAM BSM 40 er monosflan vatnsfæla sem hlotiö hefur meömæli Rannsóknarstofnunar bygglng- ariðnaðarlns. DYNASYLAN BSM 40 er efm sem borið er jafnt á nýjan. ómálaðan stein og sprungmn málaðan stein og hindrar vatnsdrægm steypunnar. VITRETEX plastmalning er copolymer (akryl) máln- ing með mjóg gott PAM glldl og andar því vel. rettri meðhöndlun VITRETEX plastmálnmg hefur verið á íslenskum markaði í áratugi og sannað ágæti sitt. p.á m. í ströngustu veðurpols- tilraunum. Tvær yflrferðlr með DYMASYLAM BSM 40 og síðan tvær yfirferðlr með VITRETEX plastmálnlngu tryggir margra ára endingu. Umboðsmenn um land alltl S/ippfé/agid i Reykjavík hf Máln/ngarverksmidjan Dugguvogi Simi 84255 \ P&O

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.