Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ1913
221. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ísraelar gera þotuárás á
höfuðstöðvar PLO í Túnis
Eftir árásina
Aðeins loftskeytastöð PLO
stóð heil eftir loftárás ísraela
á höfuðstöðvar samtakanna í
Túnis í gær. Að sögn tals-
manns PLO biðu 60 manns
bana. Á myndinni má sjá hvar
hjálmur hermanns liggur eftir
í rústunum.
Hamam Plage, Túnis, I. október. AP.
SEX ÍSRAELSKAR herþotur af Phantom-gerö gerðu í gær sprengju árás á
höfuðstöðvar frelsishreyfingar Palestínumanna (PLO) í þorpinu Hamam
Plage með þeim afleiðingum að um 60 manns létu lífið og byggingar eyði-
lögðust. Leiðtogi samtakanna, Yasser Arafat, slapp ómeiddur.
Læknar í Túnis sögðu að um 50
hefðu látist í árásinni og um hundr-
að særst. Útvarpið í Túnis bað
menn um að gefa blóð.
Arafat, sem kom til Túnis á
mánudag, gekk um rústirnar eftir
árásina, klæddur hermannafötum,
og talaði við og tók í hendur þeirra,
sem lifðu af. Hann gaf ekki út neina
yfirlýsingu um atburðinn og hélt á
braut seinna um daginn án þess
Vestur-Þýskaland:
Tékknesk
herþota ræðst
á bandaríska
þyrlu
Washington, 1. október. AP.
BANDARÍSK yfirvöld greindu frá
því í dag, að tékknesk herþota
hefði ráöist að bandarískri her-
þyrlu innan vestur-þýskrar loft-
helgi á laugardag. Sagt var að
tveiraur til fjórum eldflaugum
hefði verið skotið að þyrlunni, en
hún heföi ekki verið hæfð. Tveir
vestur-þýskir borgarar voru vitni
að atburðinum.
Þyrlan var stödd vestur af
Nurnberg, um tvo km. innan
vestur-þýsku landamæranna,
þegar til árásarinnar kom.
Talsmaður Bandaríkjastjórn-
ar, Robert Sims, sagði að at-
burðinum hefði verið mótmælt
harðlega, en greindi ekki frá
viðbrögðum Tékka. Hann sagði
að þetta væri í 17. sinn sem
flugvél frá austantjaldslandi
ryfi vestur-þýska lofthelgi á sex
mánuðum, en fyrsta árásin sem
gerð væri á bandarískt loftfar.
Ekki er vitað hvers vegna árásin
var gerð.
að gefa upp ákvörðunarstað sinn.
Varnarmálaráðherra ísraels,
Yitzhak Rabin, sagði í dag að
sprengjuárásin hefði verið gerð til
að benda hryðjuverkamönnum á að
þeir væru hvergi óhultir. Hann
sagði að gripið hefði verið til þessa
ráðs til að hefna fyrir morðin á
þremur ísraelskum hermönnum um
borð í snekkju á Kýpur fyrir sex
dögum.
Rabin sagði að Israelar vildu enn
ganga til friðarsamninga við Jórd-
aníumenn, en PLO væri kvistur á
meiði hins illa á þessu svæði.
ísraelar hafa alltaf haldið fram
rétti sínum til að leggja til atlögu
við hermdarverkamenn utan ísra-
els, þótt það brjóti í bága við al-
þjóðalög.
Orrustuþoturnar flugu 2.400 km.
leið til að varpa sprengjunum og
tóku þær eldsneyti í lofti á leiðinni.
ísraelar hafa ekki gert árás svo
langt utan landamæra sinna til
þessa, ef frá er skilin björgun gísl-
anna á flugvellinum í Entebbe 1976.
ísraelar hófu að skipuleggja ár-
ásina skömmu eftir að hermennirn-
ir sex voru myrtir og vissu þeir að
Arafat yrði staddur í Túnis þegar
hún var gerð. Aðeins einn ráðherra
var á móti því, að árásin yrði gerð,
þegar stjórnin veitti vilyrði sitt
fyrir henni í síðustu viku.
Bandaríkjamenn voru ekki látnir
vita af árásinni fyrr en eftir að til
hennar kom, en talsmaður Hvíta
hússins sagði í dag að hún hefði
verið réttmæt viðbrögð við árás
hryðjuverkamanna og um sjálfs-
vörn hefði verið að ræða. Hann tók
fram að hraða þyrfti friðarsamn-
ingum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Yasser Arafat fordæmdi árásina
í útvarpsviðtali í kvöld og sagði að
hún yrði ísraelum dýrkeypt.
Sji nánar um viðbrögð við árisinni á
síðu 24.
AP/Slmamynd
Ráði vinstri vængurinn
fylgir enginn flokknum
— segir Neal Kinnock á ársþingi Verkamannaflokksins
Bournemouth, 1. október. AP.
LEIÐTOGI Verkamannaflokksins,
Neil Kinnock, hélt í dag ræðu á árs-
þingi flokksins, þar sem hann beindi
spjótum sínum að flokksbræðrum á
vinstri vængnum. Sagði Kinnock rót-
tæklingunum í flokknum að hann
kæmist aldrei til valda nema hlynnt
væri að borgarastéttinni. Viðtökur
við ræðunni voru blendnar og voru
bæöi gerð hróp að Kinnock og honum
klappað lof í lófa.
„ötrúverðug loforð geta ekki af
sér sigra," sagði Kinnock í ræðu
sinni fyrir um 2.000 fulltrúum á
þriðja degi þingsins. Deilur við
forystumann stéttarfélags náma-
manna, marxistann Arthur Scarg-
ill, hafa sett mark sitt á þingið.
Eric Heffer, fyrrverandi ráð-
herra, skundaði út úr salnum þegar
Kinnock sakaði vinstri sinnaða leið-
toga bæjarstjórnarinnar í Liver-
pool um að stuðla að gjaldþroti
borgarinnar með því að sætta sig
ekki við niðurskurð ríkisstjórnar
Ihaldsflokksins.
„Langsóttum ákvörðunum er
Öfgamenn taka fjóra Sovétmenn í gíslingu:
Hóta að taka þá af lífi
verði kröfum ekki sinnt
Beirúl, l.október. AP.
HÓPUR öfgasinnaðra múhameðstrúarmanna rændi í gær þremur sovéskum
sendiráðsstarfsmönnum og einum lækni í vesturhluta Beirút á mánudag.
Mannræningjarnir sendu í dag frá sér myndir af Sovétmönnunum þar sem
byssum er beint að þeim og viðvörun um að þeir verði teknir af lífi, ef
árásinni á Trípolí, sem Sýrlendingar styðja, verður ekki hætt.
Ljósmyndirnar voru sendar til
vestrænnar fréttastofu í borginni
og í orðsendingu, sem þeim fylgdi,
sagði: „Fyrsti gíslinn verður tekinn
af lífi klukkan 21, nema aðför trú-
leysingjanna að múhameðstrúar-
mönnum í Trípolí verði hætt.“
Klukkustundu eftir að fyrsta
aftakan hefði átt að fara fram benti
ekkert til þess að hryðjuverka-
mennirnir hefðu staðið við hótun
sína.
Nafnlausar símhringingar héldu
áfram eftir því sem leið á kvöldið
og hafa að minnsta kosti þrjár
hreyfingar öfgamanna lýst yfir
ábyrgð sinni á ráninu.
Hver símhringjandi sagði að
einhver Sovétmanna hefði verið
myrtur, sumir að tveir hefðu verið
myrtir. Engin leið var til að stað-
festa sannleiksgildi þessara sím-
hringinga.
Talið er að ljósmyndirnar og
yfirlýsingin hafi komið frá frelsis-
hreyfingu múhameðstrúarmanna,
sem er í tygjum við þá hreyfingu
múhameðstrúarmanna, sem um
þessar mundir verst sókn herskárra
vinstri manna í Trípólí.
Haft var eftir opinberum heim-
ildum að Amin Gemayel, forseti
Líbanon, hefði í dag sagt sendiherra
Sovétmanna að gíslarnir væru á
lífi, en lagt áherslu á að það væri
ekki á sínu valdi að frelsa þá.
Sovétmenn hafa fordæmt gísla-
AP/Simamynd
Þessar myndir af Sovétmönnunum
fjórum, sem var rænt, voru sendar
til vestrænna fréttastofa í dag. Þeir
eru Valery Kornev, efst til vinstri,
Oleg Sprin, efst til hægri, Nikolai
Versky, læknir, neðst til vinstri, og
Arkady Katkov, neðst til hægri.
tökuna harðlega og segjast ekki
munu sitja aðgerðarlausir meðan
Snvótmpnnirnir prn f VinlHi
stillt upp í stirðar kennisetningar,
og útkoman er stéttarfélagsnefnd
sem tekur leigubíla til að senda
uppsagnir til félagsmanna sinna,"
sagði Kinnock.
Kvað Kinnock sósíalistastjórn
aldrei mundu komast til valda
nema reynt væri að höfða til þeirra,
sem „ekki eru fátækir, ekki at-
vinnulausir og hafa ekki orðið fyrir
barðinu á þjóðfélaginu".
Vinstri menn flokksins hrópuðu
og kölluðu í hartnær mínútu til að
láta í ljósi vanþóknun sína á orðum
flokksformannsins, en leiðtogar
stærri stéttarfélaga og fylgismenn
þeirra fögnuðu ákaft.
Kinnock hefur aldrei áður verið
jafn harðorður í garð þeirra sem
vilja sveigja stefnu flokksins til
vinstri.
Sjá nánar um ársþing Verka-
mannaflokksins á síðu 25.
Garri Kasparov
jafnaði metin
Moskvu, 1. október. AP.
ÁHORFENDUR í Tsjaíkovskí-höll-
inni í Moskvu risu á fætur og fögn-
uðu með lófataki í fjórar mínútur
er heimsmeistarinn, Anatoly Karpov,
gaf skák sína við Garri Kasparov
eftir aðeins 24 leiki.
Tefld var nimzó-indversk vörn
og þótti staðan í járnum þar til
Kasparov kom andstæðingi sínum
í opna skjöldu með þriggja leikja
fléttu.
Staðan í heimsmeistaraeinvíg-
inu er nú jöfn og hefur hvor skák-
maður 5Vi vinning.