Morgunblaðið - 02.10.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
Olafur Ragnarsson
kaupir Helgafell
ÓLAFUR Ragnarsson eigandi bóka-
útgáfunnar Vöku hefur keypt bóka-
útgáfuna Helgafell. Viðræóur hafa
um skeið átt sér stað á milli Ólafs
og fyrri eigenda Helgafells, sem er
fjölskyIda Ragnars heitins Jónssonar
í Smára og fleiri, og var gengið frá
kaupunum í fyrrakvöld. Olafur tók
við fyrirtækinu í gær og mun hann
reka bókaútgáfurnar saman að Síðu-
múla 29 undir nafninu Vaka-Helga-
fell.
ólafur sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að áfram yrði haldið
þeirri útgáfustarfsemi sem Vaka
hefur verið með og kæmi útgáfa
Helgafells þar til viðbótar. Hann
sagði að reksturinn yrði sameigin-
legur og ætti þannig að verða
hagkvæmari en ella. Helgafell
hefur gefið út öll ritverk Halldórs
Laxness á íslensku og sagði ólafur
Rafeinda-
virkjar
segja upp
— ef ekki verður
gengið að breyttum
ráðningarkjörum
„VIÐ höfum sent yfirmönnum Pósts
og síma og Ríkisútvarpsins bréf þar
sem gert er grein fyrir að eftir næst-
komandi áramót sé rafeindavirkjum
ekki heimilt að starfa hjá þessum
stofnunum á öðrum kjörum en þeim,
sem Sveinafélag rafeindavirkja sam-
þykkir eða semur um,“ sagði Leó
Ingólfsson varaformaður Sveinafélags
rafeindavirkja, er hann var spurður
um fyrirhugaðar fjöldauppsagnir raf-
eindavirkja í opinberri þjónustu. „Ef
ekki verður gengið að breyttum ráðn-
ingarkjörum má líta á þetta sem upp-
sagnarbréf, en hér er um að ræða 90
rafeindavirkja hjá Pósti og síma og
rúmlega 30 hjá Ríkisútvarpinu," sagði
Leó ennfremur.
Sveinafélag rafeindavirkja hélt
almennan félagsfund hinn 23. sept-
ember síðastliðinn þar sem fjallað
var um málefni rafeindavirkja í
þjónustu rikisins. Á fundinum var
samþykkt ályktun þar sem meðal
annars kemur fram, að í rúmt ár
hafi rafeindavirkjar í opinberri
þjónustu reynt að fá stjórnvöld til
að fallast á að þeir sameinist öðrum
stéttarbræðrum sínum í Sveinafé-
lagi rafeindavirkja og öðrum stétt-
um rafiðnaðarmanna í Rafiðnaðar-
sambandi íslands. Engin svör hafa
borist frá ráðamönnum við þessu
erindi og í ályktuninni er skorað á
fundarmenn að sýna samstöðu og
að félagsmenn ráði sig ekki til starfa
hjá opinberu fyrirtæki eða stofnun
lengur en til og með 31. desember
1985, nema á þeim kjörum sem félag-
ið semur um eða samþykkir.
að það hefði orðið að samkomulagi
á milli sín og Halldórs að Helgafell
héldi þeirri útgáfu áfram eftir
eigendaskiptin. Halldór hefði jafn-
framt veitt sér forgangsrétt til
útgáfu þessara verka í nýjum bún-
ingi og til útgáfu annarra verka
hans.
„Auðvitað sýnir þetta að ég hef
mikla trú á bókaútgáfu og framtíð
bókarinnar í landinu og að bókin
muni enn styrkja stöðu sína í ís-
lensku menningarlífi,* sagði ólaf-
ur þegar rætt var við hann í gær.
Stjórnin boð-
ar sr. Gunnar
til fundar
STJÓRN Fríkirkjusafnaðarins kom
saman til fundar í gær til að ræða
bréf sem séra Gunnar Björnsson
skrifaði stjórninni um helgina með
beiðni um að stjórnin endurskoði
afstöðu sína til uppsagnar hans.
Stjórnin ákvað að boða séra Gunnar
til fundar sem fyrst.
„Niðurstaða fundarins í kvöld
var sú að stjórnin var einhuga
um að boða séra Gunnar til á
fund sem fyrst i framhaldi af
bréfi þess sem barst frá honum,“
sagði Ragnar Bernburg formaður
stjórnarinnar þegar hann var
inntur eftir niðurstöðum fundar-
ins. Hann sagði einnig: „Verður
þá rætt við hann um málið og er
það von okkar að farsæl lausn
fáist á því.“
Morgunbladið/Guðlaugur
Sigurgeir Jónasson umboðsmaður og Ijósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum afhendir Sverri Guð-
mundssyni úrið, sem Garðar Ólafsson úrsmiður gaf honum.
Björgunarafrek í Vestmannaeyjum:
Sverrir fékk nýtt úr
— Úrsmiður í Reykjavík gaf honum nýtt úr
eftir að hafa lesið um björgunarafrek hans
UNGUR Vestmanneyingur, Sverrir Guðmundsson, vann það afrek að
bjarga tveimur börnum frá drukknun með skömmu millibili.
I tilefni fréttar í Morgunblað-
inu ritaði Garðar ólafsson úr-
smiður í Reykjavík ritstjórn
Morgunblaðsins eftirfarandi
bréf, þann 24 september sl.:
„Málefni: Björgunarafrek í
Vestmannaeyjum.
í blaði yðar 18. sept. sl. er á
baksíðu getið um einstök afrek
Sverris Þórs Guðmundssonar,
Brekastíg 5a, Vestmanneyjum,
þar sem hann hefur á stuttum
tíma bjargað tveim börnum í
Vestmannaeyjum frá drukknun.
Ég veitti því athygli, að Sverrir
Þór hafði við björgunina á
drengnum í Friðarhöfn orðið
fyrir því, að úr hans eyðilagðist.
Þar sem ég hefi veitt því athygli,
að í Vestmannaeyjum er karl-
mennska og drengskapur afar
mikils metinn, þá vil ég eigi láta
hjá líða, að slíkum efnispilti sé
eigi veitt nein viðurkenning fyrir
hans einstöku afrek.
Því hefi ég ákveðið að biðja
umboðsmann Morgunblaðsins í
Vestmannaeyjum að færa hon-
um að gjöf frá mér Citizen quartz
úr sem viðurkenningu fyrir
björgunarafrek hans. Megi hann
njóta heilastur. Garðar Ólafsson,
úrsmiður, Lækjartorgi, Reykja-
vík.“
Sigurgeir Jónasson umboðs-
maður og ljósmyndari Morgun-
blaðsins í Vestmannaeyjum varð
við þessari ósk Garðars og af-
henti hann Sverri úrið föstudag-
inn 27. september sl.
Húsnæðisvandamál rannsóknastöðvarinnar í veirufræði:
Húsið allt of lítið og er
óhæft til alnæmisrannsókna
NEI, ÉG sagði ekki af mér vegna AIDS-málsins, en það má segja að það
hafi riðið baggamuninn. Húsnæðið er fyrir löngu sprungið og þrátt fyrir
allt tal manna um úrbætur hefur lítið verið gert,“ sagði Margrét Guðnadótt-
ir, forstöðumaður Rannsóknastofu háskólans í veirufræði, en hún sagði
starfi sínu lausu fyrir 2'h mánuði vegna þess að hún telur sig ekki geta
tekið ábyrgð á því lengur að vinnuslys verði ekki vegna óhæfrar starfsað-
stöðu.
Veirufræðin er til húsa í gamla
þvottahúsi Landspitalans á
Landspítalalóðinni við Barónsstig.
Það er ekki aðeins Margrét sem
er óánægð með þá vinnuaðstöðu
sem rannsóknastofan býr við, þvi
á mánudaginn fór hópur veiru-
fræðinga á fund Matthíasar
Bjarnasonar heilbrigðisráðherra
til að ræða við hann um þetta
vandamál.
„Þetta húsnæði var upphaflega
tekið i notkun til bráðabirgða í
fimm ár, en þau eru nú orðin 12
árin sem húsið hefur verið notað.
Það má segja að þetta hafi verið
í lagi fram til 1980, en undanfarin
ár hefur starfsemin vaxið svo ört,
að brýn nauðsyn er á að komast í
nýtt, betra og stærra hús,“ sagði
Margrét. Hún nefndi sem dæmi
að sýnamagnið sem deildin tæki
til rannsóknar hefði tvöfaldast
siðan 1983, en rannsóknastofan sér
um allar veirurannsóknir sem
gerðar eru á landinu, auk annarra
sérverkefna. Þá fer þar fram
kennsla að hluta til í fimm há-
skóladeildum i einni kennslustofu,
en fyrirhugað er að færa hluta
þeirrar kennslu a.m.k. í annað
húsnæði.
Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra fól fyrir allnokkru síðan
stjórnarnefnd Rikisspítalanna að
athuga með hvaða hætti best væri
að standa að alnæmisvörnum hér-
lendis, til dæmis mótefnamæling-
um alnæmisveirunnar, en talið er
brýnt að koma upp aðstöðu til
slíkra mælinga hérlendis. Er álitið
heppilegast að mælingar þessar
fari fram á vegum rannsóknastof-
Birgir Isleifur Gunnarsson um gagnrýni á fjárlögin:
„Urðum að samþykkja þau eða
hætta þátttöku í ríkisstjórn“
„AífTÆÐUR þessarar gagnrýni okkar á fjárlagagerðina og stefnu ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum eru fyrst og fremst þau gögn sem lögð
voru fram á þessum fundi í Stykkishólmi, sem benda til áframhaldandi
stórkostlegs viðskiptahalla við útlönd," sagði Birgir ísleifur Gunnarsson
í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann lagði til á fundinum um
helgina að fjárlög yrðu tekin upp og tekjuliðir þeirra endurskoðaðir og
útgjaldaliðir skornir niður. Birgir ísleifur var með þessum orðum sínum
að vísa til þjóðhagsspár sem kynnt var á fundinum í Stykkishólmi.
„Þegar málið var lagt fyrir
þingflokkinn á sínum tíma voru
þessar ákvarðanir komnar í ein-
daga og þingflokkurinn hafði á
næsta fundi á undan hætt við
að ræða fjárlögin. Þingflokkur-
inn hafði sett það skilyrði að
ríkisstjórnin kæmi sér saman um
ákveðnar tillögur, áður en flokk-
urinn tæki afstöðu til þeirra,“
sagði Birgir ísleifur, „og þegar
svo fjallað var um tillögur ríkis-
stjórnarinnar á kvöldfundi þing-
flokksins stóð flokkurinn frammi
fyrir því að samþykkja tillögurn-
ar, eða að hætta þátttöku í ríkis-
stjórninni.“
Birgir Isleifur sagði að menn
hefðu verið sammála um það að
það væri ekki raunhæf leið að
hætta þátttöku í ríkisstjórn þá,
og því hefðu þessar tillögur verið
samþykktar, þótt ýmsir þing-
menn hefðu síður en svo verið
ánægðir með fjárlagadrögin.
Birgir Isleifur sagði að tvær
grímur hefðu farið að renna á
ýmsa, eftir að þeir hefðu skoðað
fjárlagafrumvarpið nánar á
þessum 10 dögum sem liðu þar
til fundurinn var í Stykkishólmi
um helgina. „Margar þessara
tillagna eru gallaðar og vafasam-
ar í framkvæmd, eins og þessar
fyrirhuguðu skattahækkanir, og
þvi er það mín skoðun að það
eigi að vinna að því fram til þess
tíma að fjárlögin verða afgreidd,
að skera þetta frekar niður, og
koma í veg fyrir þessar skatta-
hækkanir."
„Þessi orð fjármálaráðherra
sýna það að hann hefur ríkulega
kímnigáfu," sagði annar þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, þeg-
ai hann var spurður hvort hann
liti á bókun formanns Sjálfstæð-
isflokksins á fundinum um helg-
ina sem traustsyfirlýsingu við
fjármálaráðherra og stefnu
hans, eins og fjármálaráðherra
orðaði það í Morgunblaðinu í
gær.
unnar í veirufræði, en húsnæðis-
vandamál rannsóknastofunnar
hafa m.a. staðið í veginum fyrir
skjótri afgreiðslu þess máls.
„Það kemur að mínum dómi ekki
til greina að bæta AIDS-rannsókn-
um við allt það sem gert er í núver-
andi húsnæði okkar,“ sagði Mar-
grét. „Landlæknir nefndi það við
mig í sumar hvort ekki mætti nota
kennslustofuna undir AIDS-
rannsóknirnar, úr því að til stæði
að flytja kennsluna, en ég taldi það
af og frá. Bæði er stofan of lítil,
húsið sjálft óþétt og umgangur of
mikill. Ennfremur er kennslustof-
an rétt við eldhús Landspítalans,"
sagði Margrét.
Stjórnarnefnd Ríkisspítalanna
kom saman til fundar í gær og
skrifaði bréf til Matthíasar
Bjarnasonar heilbrigðisráðherra,
þar sem tillögur nefndarinnar eru
lagðar fram varðandi tilhögun
alnæmisvarnanna. Matthíasi
Bjarnasyni hafði ekki borist bréfið
í gærkvöldi og vildu stjórnarmenn
ekki skýra frá innihaldi þess í
smáatriðum fyrr en ráðherra hefði
fengið það í hendur. Magnús Karl
Pétursson, formaður læknaráðs,
sagði þó að í tillögunum væri lagt
til að alnæmisrannsóknir færu
fram á Landspítalanum, sennilega
í svokallaðri W-álmu, sem enn er
í bygginu og mun hýsa margvís-
lega starfsemi. Þá er lagt til að
allar alnæmisrannsóknir og mæl-
ingar verði í höndum rannsókna-
stofunnar í veirufræði.
Húsnæði rannsóknastöðvar Háskóla
íslands, í gamla þvottahúsi
Landspítalans.