Morgunblaðið - 02.10.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985
5
Nýburar á íslandi þyngri
en á hinum Norðurlöndunum
ÍSLENSKIR nýburar em ad meðaltali 80-90 grömmum þyngri en
sænskir og norskir nýburar og 170-180 grömmum þyngri en danskir.
íslensku nýburarnir eru einnig lengri og höfuömál þeirra stærra en
nýbura á hinum Norðurlöndunum.
Þetta kom fram í erindi sem
Gunnar Biering barnalæknir
flutti á Haustnámskeiði Læknafé-
lags íslands í Domus Medica á
föstudaginn var, en hann hefur
ásamt Gunnlaugi Snædal fæðing-
arlækni kannað stærð nýbura á
íslandi og borið saman við stærð
nýfæddra barna annars staðar.
Morgunblaðið spurði Gunnar um
það helsta sem kom fram í erindi
hans.
„Fyrir utan þessa tölvuvædddu
fæðingarskráningu sem við höf-
um verið að vinna úr, höfum við
Gunnlaugur starfað í samnor-
rænni nefnd, þar sem eru þrír
aðilar frá hverju Norðurlandanna
og hafa þeir komið saman síðan
1979. Við höfum borið saman
fæðingarskráningu i þessum
löndum og reynt að samræma
hana, m.a. með því að skrá alla
hluti með sama hætti.
Við bárum síðan fæðingar-
skrána okkar á tíu ára tímabili
frá 1972, þegar byrjað var með
tölvuskráningu, til 1981 saman
við fæðingarskrár á Norðurlönd-
um. Þá komumst við að þeirri
niðurstöðu að íslenskir nýburar
eru að meðaltali 80-90 grömmum
þyngri en norskir og sænskir ný-
burar og u.þ.b. 170-180 grömmum
þyngri en danskir nýburar. Við
fórum að velta því fyrir okkur
hvernig gæti staðið á þessu, því
það kom í ljós að það var ekki
bara um þyngdarmun að ræða
heldur voru íslensku nýburarnir
einnig lengri og höfuðmál þeirra
stærra, án þess þó að vera nokkuð
þroskaðri en aðrir nýburar.
Ein skýringin er sú að íslenskar
konur eiga fleiri börn en konur á
hinum Norðurlöndunum. Fyrsta
barn er yfirleitt um 150 grömm-
um léttara en næstu börn og þess
vegna er meðalþyngdin hærri á
íslandi.
En samkvæmt upplýsingum
tölvufræðings gæti þetta skipt
svona 40-50 grömmum og því átti
eftir að fá skýringu á allt að 130
gramma mun sem ekki var skýrð-
ur með þessu móti.
Okkur finnst nærtækasta skýr-
ingin vera sú að íslendingar eru
hávaxnari en aðrir Norður-
landabúar. Hæðarmælingar gefa
til kynna að íslenskir karlmenn
voru um 2 sentimetrum hærri en
norskir upp úr aldamótunum og
3-4 sentimetrum hærri en dansk-
ir. Mælingar á síðari árum benda
til að við séum ennþá hávaxnari.
Það eru þekkt fyrirbæri í fæðing-
arfræðinni að stórar konur eiga
að jafnaði stærri börn en litlar
konur. En börnin okkar eru samt
ekkert betri börn," sagði Gunnar,
„þau eru bara stærri, væntanlega
af því að þjóðin er stærri.
Hingað til höfum við notað
vaxtarrit, sem er línurit byggt á
tölum um stærð nýbura, t.d. þegar
vafi leikur á lengd meðgöngu. Ef
við höfum þyngd barnsins getum
við fengið hugmynd um hve löng
meðgangan hefur verið með því
að bera þyngdina saman við vaxt-
arritið. En þessi vaxtarrit hafa
verið byggð á erlendum tölum,
breskum, bandarískum og sænsk-
um. Síðastliðin tvö ár höfum við
því unnið að því að búa til vaxtar-
rit fyrir íslenska nýbura sem
byggð eru á íslenskum tölum. Á
þessum tíu árum fæddust 43.000
börn á íslandi sem vitað er hvað
vógu við fæðingu og er vaxtarritið
byggt á tölum um fæðingarþyngd
þeirra. Og það hefur komið í ljós
að þessar tölur eru svolítið öðru-
vísi en erlendu tölurnar. íslenska
vaxtarritið verður væntanlega
tekið í notkun um næstu áramót,"
sagði Gunnar Biering barnalækn-
ir að lokum.
Stóriðjunefnd
og Elkem funduðu
í Osló:
„Lítið
gerðist á
fundinum“
„TILFELLIÐ er nú það, að lítið
gerðist á þessum fundi okkar
með Elkem í Osló,“ sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson formaður
stóriðjunefndar í samtali við
Morgunblaðið í gær, er hann
var spurður fregna af fundi
stóriðjunefndar og fulltrúa
Elkem í Osló á mánudag, vegna
hugsanlegrar eignaraðild
Elkem að kísilmálmverksmiðju
á Reyðarfirði.
Birgir ísleifur sagði að já-
kvæður tónn hefði verið á þess-
um fundi og aðilar hefðu verið
sammála um að ræða frekar
saman og reyna að draga eigna-
raðila Járnblendiverksmiðj-
unnar frekar inn í þessar um-
ræður, en auk íslenska ríkisins
og Elkem er Sumi Tomo eigna-
raðili að Járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga.
Jcj öritt (>0pid t
NK. SUNNUDAGSKVÖLD 6. OKTÓBER r**
Dagskrá:
Kl. 19.00: Húsiö opnað og gestum veittur fordrykkur frá Kijafa. Þátttakendur koma fram í sundbolum og síóum kjólum. Anna Margrét
Dansarar frá Dansstudíói Sóleyjar sýna nýjan dans tileinkaöan keppninni. Jónsdóttir,
Model 79 sýna haust- og vetrartískuna frá Goldie Laugavegi. Stjarna Hollywood 1984
Töframaöurinn snjalli Baldur Brjánsson kemur nú fram eftir nokkurt hlé og sýnir stórkostleg töfrabrögö.
Hljómsveitin Rikshaw leikur nokkur lög.
Kynnir kvöldsins veröur Páll Þorsteinsson og Magnús Sigurösson stjórnar tónlistinni.
Þátttakendur í keppninni eru:
Stjarna Hollywood — Fulltrúi Ungu kyn-
slóðarinnar '85 fær í verölaun hinn guli-
fallega bíl Daíhatsu Turbo, bíl unga fólks-
ins í ár.
Þá fær stjarnan einnig sérsaumaöan kjól
frá Maríunum á Klapparstíg og Seiko úr
frá Þýsk-íslenska.
Matseóill
Rjómasúpa Marie Louisell
Heilsteikt nautafillet með rist-
uðum sveppum
Melónuskál með vínlegnum
ávöxtum
Sólarstúlka
Úrvals
sem jafnframt verður krýnd fær aukaverö-
laun m.a. úr frá Seiko. Allir þátttakendur
fá svo feró til Ibiza með Úrvali, ilmvatn frá
Gianfranco Ferre, Booti-snyrtivörur,
Dance France-sundboli frá Danutúdíói
Sóleyjar, Marabou-konfekt, blóm frá
Stefánsblómum og videospólur frá Snæ-
vart Vídeói.
Þátttakendurnir hafa verið í Ijósum i Sól-
argeislanum, Hverfisgötu, og þær hafa
stundaó líkamsrækt { Vaxtarræktinni
Dugguvogi.
Brósi á Hárgreiötlutlofu Bróu sér um
hár stúlknanna. Snyrtingu annast Jóna
Hallgrímsdóttir á Snyrtítfofunni Jónu.
Við snyrtingu sfúlknanna eru notaðar
Boott snyrtivörur.
Miða- og borða-
pantanir í Broadway y
í síma 77500.
Agnes Erlingsdóttir
Ingibjörg Siguröardóttir Kristín B. Gunnarsdóttir
Margrét Guömundsdóttír
Lína Rut Karlsdóttir
Ragna Sæmundsdóttir
Sigurdís Reynisdóttir
Sólveig Grétarsdóttir
Tryggið ykkur miða í tíma því þegar er búið að panta heiming af þeim öllum. BKCADWAY